Lífið

Matt Damon næsti forseti Bandaríkjanna?

Matt Damon
Matt Damon
Hollywoodleikarinn Matt Damon er nefndur til sögunnar sem hugsanlegur forsetaframbjóðandi frjálslyndra vestanhafs, sem mótvægi við Barack Obama.

Kvikmyndagerðarmaðurinn Michael Moore var fyrstur til að nefna Damon þegar hann lýsti gremju sinni og óánægju með störf Obama, en margir vinstrimenn vestanhafs telja að Obama hafi virt málstað þeirra að vettugi.

Fréttin um stjórnmálamanninn Matt Damon fór síðan eins og eldur um sinu á bloggsíðum og í fréttamiðlum í Bandaríkjunum en leikarinn sjálfur hefur þó ekki ljáð máls á ferli í stjórnmálum.

Damon hefur hins vegar reglulega tjáð sig um stjórnmál á undanförnum árum og virðist hafa sterkar skoðanir á ólíkum málaflokkum, allt frá stríðinu í Írak til menntamála.

Þá hefur hann opinberlega gagnrýnt Obama og sagt að forsetinn hafi meðhöndlað umboð sitt og embætti illa.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.