Fleiri fréttir

Sameinast í danstónlist

Fyrsta skemmtikvöld REYK-VEEK, sem er hópur raftónlistarmanna og plötusnúða, verður haldið á Nasa á laugardagskvöld. Á meðal þeirra sem koma fram eru Karíus og Baktus, Oculus og Siggi Kalli.

Kreppan er komin í Kattholt

„Hér hafa aldrei verið fleiri kettlingar, mér telst til að þeir séu milli 25 og 30 hjá okkur núna,“ segir Sigríður Heiðberg, formaður Kattholts. Eins og mörg undanfarin ár reynist sumarið erfitt fyrir Kattholt og ketti almennt. Fólk fer í sumarfrí og á í mestum erfiðleikum með að fá fóstur fyrir gæludýrin. Kreppan hefur einnig leikið dýrahaldið grátt, dýrara er að hafa gæludýr á heimilunum og stundum eru ferfætlingarnir þeir fyrstu sem fá að finna fyrir niðurskurðarhníf heimilisbókhaldsins.

Lohan á heima fjarri Ronson

Michael Lohan, faðir leikkonunnar Lindsay Lohan, er ekkert sérstaklega orðvar maður. Enda er hann grunaður um að hafa hótað unnustu sinni lífláti. Lohan fer heldur ekkert í kringum hlutina þegar kemur að dóttur hans.

Lögfræðingar Phils Spectors vilja sem stystan dóm

Lögfræðingar tónlistarmannsins Phils Spectors reyna nú hvað þeir geta til að fangelsisdómur hans fyrir morðið á leikkonunni Lönu Clarkson verði sem stystur. Spector var í apríl sakfelldur fyrir að hafa myrt leikkonuna á heimili sínu árið 2003. Hann neitaði allan tímann að hafa myrt Clarkson sem var skotin í munninn.

Jóhanna Guðrún verður bæjarlistamaður

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir verður útnefnd sem bæjarlistamaður Hafnarfjarðar í dag og mun af því tilefni taka við viðurkenningunni og syngja Eurovision -lagið Is it true á Thorsplani kl. 18 samkvæmt tilkynningu á heimsíðu Hafnarfjarðar.

Demi Moore ætlar að styðja Susan Boyle

Stórleikkonan Demi Moore gerir ráð fyrir að fljúga til Bretlands til að styðja við hina geðþekku Susan Boyle í lokaþætti Britain's Got Talent.

Jóhanna Guðrún heillaði sænska blaðamenn

Íslensk tónlist var í aðalhlutverki á kynningu sem haldin var í sendiráðsbústaðnum í Stokkhólmi þriðjudaginn 26. maí síðastliðinn. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að fjöldi sænskra blaðamanna hafi verið mættur til leiks, auk aðila úr sænska og alþjóðlega tónlistargeiranum og góðra gesta frá Íslandi. Á meðal þeirra sem tróðu upp var silfurverðlaunahafinn úr Eurovisionkeppninni, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir.

Hver að verða síðastur til að bragða á vestustu pizzum Evrópu

Frá 17. maí hefur Curver Thoroddsen staðið fyrir raunveruleikagjörningi í Bjargtangavita við Látrabjarg. Þar rekur hann pizzastaðinn Sliceland sem býður upp á Lundapizzur sem eru um leið "vestustu pizzur í Evrópu" því Látrabjarg er vestasti oddi heimsálfunar. Í tilkynningu segir að gjörningurinn sé hluti af Brennið þið, vitar! sýningunni á Listahátíð í Reykjavík og stendur hann til 31. maí þannig að næsta helgi er lokahelgi gjörningsins.

Landssöfnun hefst á morgun

Hönd í Hönd styrktarfélag fyrir hönd Fjölskylduhjálpar Íslands stendur fyrir landssöfnun sem hefst á morgun og lýkur þann 1. júní næstkomandi. Merki verða seld við 600 afgreiðslukassa í 277 verslunum um land allt. Í tilkynningu frá söfnuninni segir að verkefninu verði ýtt úr vör á Austurvelli í hádeginu í dag þegar alþingismönnum verður boðið að koma út að styttu Jóns Sigurðssonar og kaupa merki.

Dóttir Tysons látin

Fjögurra ára gömul dóttir hnefaleikakappans Mikes Tysons lést í gær eftir hörmulegt slys sem hún varð fyrir á heimili sínu í Phoenix í fyrradag.

Sundlaug Steinunnar og Lilju verður til á Hofsósi

„Auðvitað fylgist maður með, ég bý hérna hinum megin við lækinn,“ segir Lilja Pálmadóttir. Lilja og aðrir íbúar á Hofsósi horfa nú með tilhlökkun í hjarta sínu á byggingu sem er að rísa, hina margumtöluðu og víðfrægu sundlaug sem þær stöllur gáfu. Sökkullinn er risinn og fyrstu myndir gefa ágætis hugmynd um hvers slags upplifun það verður að sitja í heitu pottunum og horfa yfir Skagafjörðinn og til Drangeyjar. Jafnvel geta hugmyndaríkir sundkappar ímyndað sér að þeir séu að þreyta Drangeyjarsund að hætti Grettis þegar þeir svamla um í 25 metra lauginni.

Skjaldborgarhátíðin haldin í þriðja sinn um helgina

Skjaldborgarhátíðin svokallaða, hátíð íslenskra heimildamynda, verður haldin í Skjaldborg á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina. Þetta er þriðja árið sem Skjaldborgarhátíðin er haldin, segir Halfdan Pedersen, einn aðstandenda hátíðarinnar.

Aðdáendur Ferris Bueller geta gert reyfarakaup

Nei, það er reyndar ekki Ferrari 250 GT-bifreiðin af árgerð 1961 sem þarna er um að ræða, enda var hún lögð í rúst í myndinni, heldur húsið sem sögupersónan Cameron Frye, vinur Buellers, bjó í ásamt fjölskyldu sinni og föður, sem átti einmitt umrædda bifreið.

Ilmur farin í hundana

„Þetta er hvolpur, labrador-hvolpur,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, sem er orðin stoltur hundaeigandi. Loðni ferfætlingurinn er hvers manns hugljúfi en Ilmur segist í raun ekki vita af hverju hún hafi ákveðið að festa kaup á þessu dýri. „Það kviknaði bara einhver sterk þörf, það var bara eitthvað sem sagði mér að þetta yrði ég að gera, svo ég ákvað bara að láta slag standa,“ útskýrir leikkonan.

Eiríkur í Austurbæ

Miðasala á afmælistónleika Eiríks Haukssonar hefst á fimmtudaginn á vefsíðunni midi.is klukkan 11. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir margt löngu verður Eiríkur fimmtugur í ár en engin ellimerki eru þó á rauðhærða rokkaranum. Hann blæs til veglegrar afmælisveislu eins og honum einum er lagið og hyggst sýna og sanna, í eitt skipti fyrir öll, að allt er fimmtugum fært. Tónleikarnir verða á afmælisdaginn sjálfan sem er 4. júlí og hefur þeim verið gefið nafn við hæfi: „Born on the fourth of July“.

Zúúber fer um landið

Í tilefni af tuttugu ára afmæli útvarpsstöðvarinnar FM 957 ætlar hún að flakka um landið í sumar og halda skemmtanir og dansleiki undir nafninu Zúúber á sviði og Zúúber grúbban.

Blásið til veislu á Patreksfirði

Tvö undanfarin ár hefur áhugafólk um heimildarmyndir og kvikmyndagerðarmenn flykkst til Patr­eksfjarðar. Ástæðan er einföld: heimildarmyndahátíðin Skjaldborg.

Gaddakylfan yfirvofandi

Það verður sannkallað glæpsamlegt ástand á Grand Rokki í dag kl. 17 þar sem úrslit í Gaddakylfunni 2009, glæpasagnasamkeppni Mannlífs og Hins íslenska glæpafélags, verða kunngerð. Hinn háskalegi verðlaunagripur er nú veittur í sjötta sinn og bárust yfir sjötíu sögur í keppnina að þessu sinni. Kristján Jóhann Jónsson, fulltrúi Glæpafélagsins, var formaður dómnefndarinnar og valdi, ásamt þeim Þórarni Þórarinssyni, aðstoðarritstjóra Mannlífs, og Kristjáni H. Guðmundssyni blaðamanni, þær þrettán sögur sem þóttu bera af. Sögurnar birtast í árlegri kilju sem fylgir tímaritinu Mannlífi, sem kemur út daginn eftir glæpateitið. Kiljan í ár ber heitið 13 krimmar.

Brotthvarf Jóhönnu setur strik í reikninginn

Aðstandendur stórtónleika Jóhönnu Guðrúnar sendu í gær frá sér tilkynningu þar sem fyrirhuguðum tónleikum Eurovision-stjörnunnar í Laugardalshöll var frestað fram á haust. Tónleikarnir áttu að vera 4. júní en vegna áhuga sænskra aðila urðu söngkonan og umboðsmaður hennar, María Björk, að bregðast skjótt við og var tekin sú ákvörðun að fresta öllu tónleikahaldi. Þorsteinn Stephensen hjá Hr. Örlygi, sem sér um tónleikana, skilur vel ákvörðun Jóhönnu.

Tvær tónlistarhátíðir um ferðahelgi

Tvær tónlistarhátíðir verða haldnar á Akureyri og í Rangárvallasýslu um hvítasunnuhelgina, þessa fyrstu stóru ferðahelgi ársins. Önnur heitir AIM-festival en hin Norden Blues Festival.

Kylie gengur í það heilaga

Ástralska söngstjarnan Kylie Minogue er farin að búa sig undir væntanlegt brúðkaup því spænski kærastinn hennar, Andreas Velencoso, hefur beðið hana um að giftast sér. Andreas bar upp bónorðið yfir rómantískum kvöldverði í New York og samkvæmt heimildum Grazia-tímaritsins svífa ástríðurnar yfir vötnum hjá turtildúfunum.

Morrissey aflýsir tónleikum vegna veikinda

Breski tónlistarmaðurinn Morrissey hefur þurft að aflýsa þremur tónleikum síðustu daga vegna veikinda. Hann hefur neyðst til að fresta eða aflýsa fjölda tónleika eftir að listamaðurinn hóf tónleikaferð sína í febrúar. Morrissey tróð upp í Laugardalshöll árið 2006.

Nýjasta mynd Bens Stillers feikivinsæl

Nýjasta kvikmynd bandarísku stjörnunnar Bens Stillers, Night at the Museum: Battle of the Smithsonian, er feikivinsæl vestanhafs og sáu fleiri myndina nú um helgina frekar en nýjustu myndina um sjálfan Tortímandann, Terminator Salvation.

Maddy segir tærnar hafa kalið á Íslandi

„Það var algjörlega stórkostlegt að fara til Íslands og ég er svo ánægð með að ég lét verða af því að fara þangað," segir Maddy, ein af þátttakendunum í Britain´s Next Top Model í samtali við Digital Spy slúðurvefinn.

Lúðrasveitir blása lífi í borgina

Reykvíkingar munu á næstunni verða varir við lúðrasveitir á göngu víðsvegar um borgina. Þar er á ferðinni verkefnið "Blásum lífi í borgina" sem er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Lúðrasveitar verkalýðsins. Á heimasíðu Lúðrasveitar verkalýðsins segir að hugmyndin að þessu verkefni hafi kraumað meðal ráðamanna Lúðrasveitar verkalýðsins síðan um síðasta sumar.

Dóttir Tysons í bráðri lífshættu

Fjögurra ára gömul dóttir Mikes Tysons hnefaleikakappa slasaðist alvarlega á heimilinu sínu í gær. Fox fréttastofan segir að 7 ára gamall bróðir stúlkunnar, sem heitir Exodus, hafi komið að henni þar sem hún hékk í snúru sem tengd var í hlaupabretti. Hún er nú í bráðri lífshættu á St. Josephs spítalanum.

Tekur Svía framyfir Íslendinga

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir Evróvisionstjarna er á leið til Svíþjóðar til fundarhalda og samningaviðræðna ásamt umboðskonu sinni, Maríu Björk Sverrisdóttur.

Auddi á úrslitaleikinn í Róm

„Ég hlakka mikið til, þetta verður stemning,“ segir sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal sem er á leiðinni til Rómar þar sem úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu fer fram á milli Manchester United og Barcelona á miðvikudag. Ekki er um vinnuferð að ræða heldur ætlar Auddi eingöngu að mæta til að styðja við bakið á sínum mönnum í United.

Mel Gibson á von á afkvæmi

Ástralski leikarinn Mel Gibson hefur játað að nýja unnustan, hin rússneska Oksana Grigorieva, beri barn hans undir belti og eigi von á sér í haust.

Hugleikur aftur í Símaskrána

„Mér fannst ég ekki vera búinn að klára þessar persónur,“ segir Hugleikur Dagsson, sem hefur annað árið í röð samið myndasögu fyrir Símaskrána. „Ég reyndi að gera þetta eins sjálfstætt framhald og ég gat en sagan er samt framhald af atburðum fyrri bókar.“

Einstæðar mæður skrifa leikrit fyrir Borgarleikhúsið

„Þetta er svona Full Monty, nema bara fyrir leikhúsið og það er engin sem fækkar fötum,“ segir Auður Jónsdóttir, rithöfundur og leikritaskáld. Hún var leiðbeinandi tveggja hópa í Kvennasmiðju námsflokka Reykjavíkur í skapandi skrifum en nemendurnir voru átján einstæðar mæður. Útgefendur skyldu hafa augun hjá sér og fylgjast vel með hópnum því einn þekktasti rithöfundur síðari tíma, J.K. Rowling, var einmitt einstæð móðir þegar hún skrifaði sögurnar um Harry Potter.

James Bond leyfð öllum en Madagascar 2 bönnuð

Tómas Valgeirsson, einn af stjórnendum síðunnar Kvikmyndir.is og starfsmaður raftækjadeildar Hagkaupa sem selur DVD-diska, segir að misræmi í aldursmerkingum á DVD-myndum sé bagalegt. Tómas ætlar að koma á fót aðgengilegum og öflugum gagnagrunni á síðunni kvikmyndir.is sem foreldrar geta stuðst við í framtíðinni vilji þeir kaupa eða leigja mynd fyrir börnin sín.

Nýjasta plata Eminem beint á toppinn í Bretlandi

Nýjasta platan með bandaríska rapparanum Eminem, Relapse, er þessa stundina vinsælsta platan í Bretland en hún rauk á toppinn þegar hún kom í nýverið í verslanir. Þetta er fyrsta plata listamannsins í sem kemur út í fjögur ár.

Hrafna syngur "Alla leið" - Myndband

Idolstjarnan Hrafna sem sigraði hug og hjörtu Íslendinga í úrslitum keppninnar á dögunum hefur sent frá sér myndband sem hægt er að horfa á á YouTube. Þar flytur hún lagið "Alla leið" sem þeir félagar Örlygur Smári og Páll Óskar Hjálmtýsson sömdu sérstaklega fyrir keppnina.

Ólafur Ragnar fær eintak af hljóðbók MND félagsins

"Björt framtíð" er safn greina eftir 49 höfunda sem komin er út á hljóðbók á vegum MND félagsins. Höfundar greinanna koma úr ýmsum áttum en meðal þeirra eru: forseti og biskup Íslands, bæjarstjórar, húsmóðir, prófessorar, verkstjórar, iðnaðarmaður, forstjórar, klæðskeri og prestar. Í tilefni af útgáfunni bauð MND félagið greinahöfundum og aðstandendum verksins til fundar í Fjörugarðinum í Hafnarfirði í hádeginu í dag þar sem Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands var afhent fyrsta eintakið af hljóðbókinni.

Dylan varar við nútímatækni

Hinn margrómaði söngvari Bob Dylan ráðleggur ungu fólki að nota sem minnst nútímatækni eins og iPod, tölvuleiki eða farsíma.

Bacon elti vasaþjóf

Hollywoodleikarinn Kevin Bacon elti vasaþjóf sem stal farsímanum hans í neðanjarðarlest í New York á laugardaginn. Kevin hljóp á eftir þjófnum í gegnum mannmergð en gafst fljótlega upp og kallaði á lögregluna.

Gísli Örn og Nína fá sinn drykk

Öldurhúsið Vickery‘s í Charleston, Suður Karólínu, hefur ákveðið að bjóða upp á sérstakan drykk sem er tileinkaður leiksýningunni Don John en aðalhlutverkin í henni leika þau Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir. Hefur honum verið gefið nafnið The Union Jack. Frá þessu er greint í staðarblaðinu Charleston City Paper. Fram kemur í fréttinni að drykkurinn samanstandi meðal annars af kanadísku viský, grenadine og trönuberjasafa og kemur fram að hann sé nokkuð sterkur. Jafnframt er greint frá því að leikhópurinn hafi tekið nokkuð ástfóstri við kránna og ef að gestir og gangandi séu heppnir geti þeir jafnvel komið auga á aðalstjörnu sýningarinnar; Gísla Örn.

Húsmæður í skoskum smábæ brjálaðar út í Magnús Scheving

Skoskar húsmæðir í smábænum Hamilton á Skotlandi urðu heldur betur hvumsa þegar þær mættu með börnin sín og ætluðu að leyfa þeim að sjá hetjuna þeirra úr sjónvarpi; Sportacus eða Íþróttaálfinn. Samkvæmt skipulagðri dagskrá mikillar matarhátíðar átti Sportacus að mæta á svæðið og sýna listir sínar. Mæðurnar létu ekki rigningu á sig fá enda krakkarnir alveg óðir af spenningi yfir því að sjá íslensku ofurhetjuna. „Við urðum alveg rosalega reiðar þegar við sáum að þetta var ekki Magnus Scheving heldur einhver ástralskur táningur í ljótum búningi með yfirvaraskegg sem var alltaf að detta,“ segir Mairi Breen í samtali við staðarblaðið The Hamilton Advertiser.

-sme með nýtt blað

Tryllingsleg reið Sigurjóns M. Egilssonar um fjölmiðlamarkaðinn hefur nú farið í einskonar hring – nýtt blað í hans ritstjórn um sjávarútveg er í vinnslu og er væntanlegt í byrjun júní.

Stefán Karl kemur heim til Búðardals

„Þetta er fyrsta aðalhlutverkið mitt í íslenskri bíómynd og þótt víðar væri leitað,“ segir Stefán Karl Stefánsson, stórleikari í Los Angeles. Hann leikur aðalhlutverkið í nýjustu kvikmynd Ólafs Jóhannessonar, Laxdæla Lárusar Skjaldarsonar, sem fer í tökur í sumar. Stefán leikur þar áðurnefndan Lárus, borgarbarn með allt niðrum sig. Hann ákveður að breyta um umhverfi, flytjast vestur og taka að sér uppbyggingu Sláturhússins í Búðardal. „Mér líst bara ljómandi vel á þetta, ég verð á landinu í sumar við að kynna plötuna mína þannig að þetta hentaði mér bara mjög vel,“ segir Stefán. Annars ganga upptökur á plötunni ganga vel, meira að segja fyrrum trommuleikari Dobbie Brothers og Neil Diamond hefur lamið húðirnar í sumum lögunum en hún kemur út þann 23.júní.

Augu Hollywood til Íslands

Sex af fremstu tökustjórum Hollywood eru væntanlegir til landsins í dag og hyggjast skoða náttúru Íslands í fylgd íslenskra framleiðslufyrirtækja. Tökustjórar (e. location managers) eru hálfgerð augu Hollywood en þeirra hlutverk er að finna heppilegustu tökustaðina fyrir stórmyndir frá kvikmyndaborginni.

Hætta við skilnað - aftur

Óskarsverðlaunahafinn Sean Penn sótti sum skilnað frá Robyn Wright Penn eiginkonu sinni í síðasta mánuði en þau hafa verið gift í þrettán ár. Hann bað hinsvegar dómstóla um að fella málið niður á þriðjudag. „Þetta voru hrokafull mistök," sagði Penn við fjölmiðla í kjölfarið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þau hjónin hætta við skilnað.

Hudson hafði betur gegn Diaz

Það verður líklega langt í að þær stöllur Cameron Diaz og Kate Hudson stilli sér saman upp á rauða dreglinum eftir að sú síðarnefnda hafði betur í baráttunni um hlutverk í dansmynd sem Cameron vildi ólm hreppa.

Sjá næstu 50 fréttir