

Tíu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta karla í nótt sem leið. Luka Doncic og LeBron James léku afar vel fyrir lið sín.
NBA meistarar Golden State Warriors verða án síns besta manns næstu tvær vikurnar hið minnsta þar sem Stephen Curry er meiddur á öxl. Þetta er mikið áfall fyrir liðið sem hefur ekki enn náð að sýna sínar bestu hliðar á tímabilinu.
Brittney Griner þakkaði Bandaríkjaforseta þegar hún tjáði sig í fyrsta skipti opinberlega eftir að vera loks komin heim eftir tíu mánuði í rússnesku fangelsi. Þá stefnir hún á að spila með Phoenix Mercury í WNBA deildinni í körfubolta á næstu leiktíð.
Leikur Vals og Njarðvíkinga í 10. umferð Subway deildar karla náði ekki flugi fyrr en í fjórða leikhluta en þá náðu Valsmenn að keyra yfir gestina og klára leikinn með 13 stiga mun 88-75.
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkinga, var sammála blaðamanni um að leikurinn við Val í kvöld hafi ekki verið fallegur en hann gat verið stoltur af sínum mönnum. Leikurinn endaði með sigri Valsmanna 88-75 sem sitja í öðru sæti en Njarðvíkingar verða í því fjórða yfir jólin.
„Mér líður afskaplega vel, er mjög stoltur af mínu liði, sérstaklega varnarlega. Mér fannst við stoppa sterkt Haukalið ansi oft í kvöld, héldum þeim í 78 stigum,“ sagði Ólafur Ólafsson sem átti stórleik í liði Grindavíkur í dag.
Haukar tóku á móti Grindavík í Ólafssal í tíundu umferð Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld og unnu gestirnir þriggja stiga sigur, lokatölur 78-81 eftir framlengdan leik.
KR, sem situr í botnsæti Subway deildar karla í körfubolta, hefur ákveðið að láta Roberts Freimanis fara. Félagið greindi frá þessu á samfélagsmiðlum sínum.
Tinna Guðrún Alexandersdóttir, nítján ára leikmaður Hauka, var ausin lofi í síðasta þætti Subway Körfuboltakvölds.
Þór Þ. vann öruggan 24 stiga sigur er liðið tók á móti Stjörnunni í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 128-104. Með sigrinum lyftu Þórsarar sér upp af botni deildarinnar.
Keflavík hélt sér á toppi Subway deildar karla í körfubolta með öruggum 20 stiga sigri á ÍR í kvöld, lokatölur 108-88.
Styrmir Snær Þrastarson skilaði 26 stigum og níu fráköstum er Þór frá Þorlákshöfn vann sinn annan leik á tímabilinu og lyfti sér þar með upp úr botnsæti Subway-deildar karla í körfubolta. Leikmaðurinn segir að nú þurfi liðið að byggja ofan á þennan leik og fara að tengja saman sigra.
Lærisveinar Ísaks Wíum í ÍR náðu heldur betur að velgja Keflvíkingum undir uggum í Keflavík í Subway deild karla í körfubolta fyrr í kvöld en leikurinn var hnífjafn og æsipennandi fyrstu þrjá leikhlutana. Lokaniðurstaðan aftur á móti varð 20 stiga sigur heimamanna sem áttu 4. leikhlutann með húð og hári, lokatölur 108-88.
Höttur hafði tapað fjórum leikum í röð áður en sjóðandi heitt lið Breiðabliks kom í heimsókn í Subway deild karla í körfubolta í kvöld. Það var ekki að sjá hvort liðið var í 2. sæti þegar leikurinn hófst en Höttur vann sannfærandi sigur. Það voru -13 gráður úti og hinir sjóðheitu Blikar höndluðu það ekki
Álftanes vann stórsigur á Ármanni í eina leik dagsins í 1. deild karla í körfubolta, lokatölur 115-81. Álftanes er með afgerandi forystu á toppi deildarinnar en liðið hefur unnið 12 af 13 leikjum sínum til þessa.
Enn tapar KR og útlitið er svart hjá liðinu sem einokaði Íslandsmeistaratitilinn til fjölda ára. Staðan er mjög vond í Vesturbænum og það eru góðar líkur - eins og staðan er núna - á því að KR verði í 1. deild á næstu leiktíð. Hversu skrítið er að lesa og segja það? KR í 1. deild í körfubolta? Tilhugsunin er vægast sagt skrítin.
„Bara hræðilega,“ sagði Helgi Már Magnússon, þjálfari KR, þegar hann var spurður að því hvernig hann meti leikinn á móti Tindastóli í Subway-deild karla. KR tapaði að lokum, á heimavelli, með 27 stiga mun, lokatölur 77-104.
Hansel Enmanuel vakti mikla athygli þegar hann var að spila með gagnfræðisskólanum sínum en nú er hann farinn að minna á sig í háskólakörfuboltanum.
Það gekk ekki vel hjá NBA meisturum Golden State Warriors í heimsókn sinni til Milwaukee í vikunni og endaði með að skíttapa.
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, var svekktur með fjögurra stiga tap gegn Haukum á heimavelli í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld, 77-81. Rúnar telur að Íslandsmeistararnir eigi mikið inni.
Haukar unnu dramatískan sigur gegn Njarðvík í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Leikurinn var æsispennandi og þá sérstaklega lokamínúturnar, þar sem Haukar náðu að knýja fram sigur, 77-81.
Breiðablik vann ÍR í botnslag Subway deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Sigur Breiðabliks þýðir að ÍR er enn að leita að sínum fyrstu stigum á tímabilinu.
Valur vann hreint út sagt ótrúlegan sigur á Fjölni í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld. Lokatölur 63-122 í Grafarvogi í kvöld. Þá vann Keflavík góðan sigur á Grindavík.
Það er ansi lágt risið á liði ÍR í Subway-deild kvenna þessa dagana en liðið er án sigurs í deildinni og þar varð engin breyting á í kvöld. 91-77 tap í Smáranum niðurstaðan og 13 tapaðar deildarleiki í röð staðreynd og ekki batnaði það þegar liðið féll út úr VÍS bikarnum þegar það tapaði gegn 1. deildar liði Stjörnunnar.
Elvar Már Friðriksson átti frábæran leik fyrir lið Rytas í Meistaradeild Evrópu í körfubolta í kvöld. Það dugði þó ekki til sigurs þar sem Rytas tapaði með 11 stigum á Bnei Herzliya, lokatölur 90-101.
KR-ingar hafa enn ekki unnið heimaleik í Subway deild karla í körfubolta í vetur og reyna einu sinni enn á fimmtudagskvöldið í síðasta heimaleik sínum fyrir jól.
KR, sem situr í fallsæti í Subway-deild karla í körfubolta, hefur samið við Brian Fitzpatrick um að leika með liðinu út tímabilið. Þessi 33 ára kraftframherji eða miðherji er fæddur í Bandaríkjunum en er með írskt vegabréf.
NBA deildin í körfubolta hefur endurskírt leikmanna verðlaunin sín í höfuðið á gömlu goðsögnum úr deildinni og eftirsóttustu verðlaunin er nú örugglega Michael Jordan bikarinn.
Annað árið í röð eru Sara Rún Hinriksdóttir og Elvar Már Friðriksson Körfuknattleiksfólk ársins af KKÍ.
Hinn stórskemmtilegi liður „Nei eða Já“ var að venju á sínum stað í þætti kvöldsins af Lögmál leiksins en þar er farið yfir það helsta sem hefur gerst í NBA deildinni í körfubolta. Að þessu sinni var farið yfir hvort gott gengi Brooklyn Nets gæti haldið áfram, hvort Miami Heat þyrfti ekki að fara hafa áhyggjur, hvort Los Angeles Lakers gæti orðið NBA meistari og hvor yrði bestur af Cade Cunningham, Evan Mobley og Jalen Green.
Keflavík er komið áfram í undanúrslit VÍS bikars karla í körfubolta eftir 13 stiga sigur á erkifjendunum í Njarðvík í 8-liða úrslitunum í kvöld, 99-86. Valur Orri Valsson, leikmaður Keflavíkur, gat ekki leynt ánægju sinni í leikslok.
Höttur varð síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslit VÍS-bikars karla í körfubolta þegar liðið vann lánlaust lið KR í Vesturbænum. Munurinn gat ekki verið minni en gestirnir frá Egilsstöðum unnu leikinn 94-93.
Keflvíkingar unnu afar sannfærandi 13 stiga sigur á nágrönnum sínum í Njarðvík í 8-liða úrslitum VÍS bikar karla í körfubolta í kvöld, 99-86.
Íslandsmeistarar Vals eru komnir í undanúrslit VÍS-bikars karla í körfubolta. Valur vann Grindavík með tíu stiga mun á Hlíðarenda í kvöld, lokatölur 90-80. Varð Valur þar með annað liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitunum sem fram fara í Laugardalshöll 11. janúar næstkomandi.
Lið Phoenix Suns í NBA deildinni í körfubolta lyktar af hræsni. Farið verður yfir af hverju í þætti kvöldsins af Lögmál leiksins. Þátturinn hefst klukkan 20.00 á Stöð 2 Sport 2.
LeBron James heldur upp á 38 ára afmælið sitt seinna í þessum mánuði og er að spila sitt tuttugasta í NBA-deildinni í körfubolta.
Kornungar körfuboltakonur voru heldur betur í sviðsljósinu um helgina þegar átta liða úrslit VÍS bikar kvenna í körfubolta fóru fram.
Lífið tók óvænta beygju hjá Martin Hermannssyni þegar hann sleit krossband í vor eftir að hafa farið nánast meiðslalaus í gegnum allan sinn feril. Meiðslin hafa gefið honum nýja sýn og veitt honum tækifæri til að njóta lífsins án erilsins og ferðalaganna sem fylgja lífi atvinnumanns í körfubolta.
Nágrannaliðin og erkifjendurnir í Reykjanesbæ, Keflavík og Njarðvík, mættust í átta liða úrslitum VÍS-bikars kvenna í Blue-höllinni fyrr í kvöld þar sem Keflvíkingar höfðu að lokum betur eftir tvíframlengdan leik, 103-97.
„Ég held að það sé ekkert voðalega skemmtilegt að vera leikmaður í Stjörnunni núna, það er bara þungt yfir þessu einhvernveginn,“ sagði Kristinn Geir Friðriksson, sérfræðingur Körfuboltakvölds, í síðasta þætti þar sem meðal annars var farið yfir gengi Stjörnuliðsins undanfarnar vikur.
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur í körfubolta, var nokkuð brattur í viðtali við Vísi eftir að lið hans féll úr leik í VÍS bikarnum eftir tap í tvíframlengdum leik, 103-97, gegn Keflavík. Hann sagði leikplan Njarðvíkinga hafa gengið upp að mörgu leyti þrátt fyrir tapið.
Haukar og Stjarnan urðu í kvöld tvö seinustu liðin til að tryggja sér sæti í undanúrslitum VÍS-bikars kvenna í körfubolta. Haukar unnu nauman tveggja stiga sigur gegn Grindavík, 66-64, og 1. deildarlið Stjörnunnar hafði betur gegn Subway-deildarliði ÍR, 84-92. Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar og eiga því enn möguleika á að verja titilinn.
Bikarmeistarar Stjörnunnar urðu í dag fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum VÍS-bikars karla í körfubolta er liðið vann sex stiga sigur á 1. deildarliði Skallagríms, 98-92.
Farið var yfir gæðin sem Kári Jónsson, leikstjórnandi Íslandsmeistara Vals í körfubolta, í síðasta þætti af Körfuboltakvöldi.
Alls fóru átta leikir fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Þar má helst nefna stórleik meistara Golden State Warriors og besta liðs deildarinnar, Boston Celtics. Nikola Jokić var frábær í leik Denver Nuggets og Utah Jazz á sama tíma og Chicago Bulls skoraði 144 stig gegn Dallas Mavericks