Fleiri fréttir

Íslenska landsliðið má spila á Íslandi: Ólafssalur fékk undanþágu frá FIBA
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta hefur verið heimilislaust eftir að Laugardalshöllin datt úr vegna vatnsskemmda því liðið fékk ekki leyfi frá FIBA til að spila á heimavelli í undankeppni HM í lok síðasta árs. Nú hefur Ólafssalur á Ásvöllum fengið sérstaka undanþágu frá FIBA.

Skvettubræður komu Golden State aftur á sigurbraut
Golden State Warriors komst aftur á sigurbraut í NBA-deildinni í körfubolta þegar liðið lagði Detroit Pistons að velli í nótt, 102-86.

Jón Axel skiptir aftur yfir til Þýskalands
Körfuknattleiksmaðurinn Jón Axel Guðmundsson er á leið til Crailsheim í þýsku A-deildinni í körfubolta.

Westbrook fékk bæði víti að auki og tæknivillu á sig eftir eina rosalega troðslu
Hlutirnir hafa ekki verið að ganga upp hjá Russell Westbrook og félögum í Los Angeles Lakers liðinu að undanförnu og hefur gloppóttur leikur Russ fengið mikla gagnrýni.

Sterkur sigur Lakers og Phoenix styrkti stöðuna á toppnum
Eftir þrjú töp í röð vann Los Angeles Lakers góðan sigur á Utah Jazz, 101-95, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Topplið Austurdeildarinnar án lykilmanna og töpuðu bæði
Alls fóru sex leikir NBA-deildarinnar fram á skikkanlegum tíma fyrir okkur Íslendinga nú í kvöld. Topplið Austurdeildarinnar – Brooklyn Nets og Chicago Bulls – töpuðu bæði.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Stjarnan 88-77 | Heimamenn fara upp úr fallsæti
ÍR vann góðan 11 sigur á Stjörnunni í Subway-deild karla í kvöld, lokatölur 88-77. Sigurinn lyftir heimamönnum upp úr fallsæti.

„Það er alltaf markmiðið að komast inn í úrslitakeppnina“
Jordan Semple, leikmaður ÍR, var besti leikmaður vallarins í 88-77 sigri ÍR á Stjörnunni í kvöld. Jordan var sérstaklega öflugur þegar mest á reyndi á lokamínútum leiksins.

LeBron þögull eftir ummæli Magic: „Stuðningsfólk Lakers á betra skilið“
LeBron James er andlit Los Angeles Lakers í dag. Hann er maðurinn sem leitað er til þegar svara þarf fyrir slæmt gengi eða hvað sem gæti bjátað á. Eftir stórtap gegn Denver Nuggets ákvað LeBron hins vegar að tjá sig ekki við fjölmiðla.

Borgar og úlfarnir unnu Curry-lausa stríðsmenn
Minnesota Timberwolves nýtti sér fjarveru Stephens Curry og vann Golden State Warriors, 119-99, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Jón Axel með tvö stig í sigri Fortitudo Bologna
Jón Axel Guðmundsson spilaði með Fortitudo Bologna gegn Napoli í ítölsku Lega A deildinni í körfubolta í kvöld í leik sem Jón Axel og félagar unnu 86-89.

Durant meiddur enn á ný
Kevin Durant, einn albesti körfuboltamaður síðari ára, meiddist í nótt og er óttast að hann gæti verð frá í dágóðan tíma. Hann fékk högg á hnéð er liðsfélagi hans lenti illa á honum. Atvikið má sjá í fréttinni.

Vandræði Lakers halda áfram og aftur lágu Nautin í valnum
Vandræði Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta halda áfram en liðið steinlá gegn Denver Nuggets í nótt. Þá hafði Boston Celtics betur gegn Chicago Bulls. Alls fóru 10 leikir fram í deildinni í nótt.

Sara stigahæst í öruggum sigri Phoenix Constanta
Sara Rún Hinriksdóttir var besti leikmaður vallarins í 26 stiga sigri Phoenix Constanta á útivelli gegn Agronomia Bucuresti í rúmensku deildinni í kvöld, 57-83.

Stríðsmennirnir tömdu Nautin og Morant mátti sín lítils gegn Dončić
Alls fóru níu leikir fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Þar ber helst að nefna stórsigur Golden State Warriors á Chicago Bulls sem og stórsigur Dallas Mavericks á Memphis Grizzlies.

Kristófer Acox: Valur er besta varnarlið landsins
Valur fór illa með Tindastól og vann tuttugu og tveggja stiga sigur 93-71. Kristófer Acox, leikmaður Vals, var ánægður með úrslit kvöldsins.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 93-71 | Þægilegt hjá heimamönnum
Valur vann góðan sigur á Tindastól í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Það var ekki að sjá að liðin væru hlið við hlið í töflunni fyrir leik en Valur vann leikinn með 22 stiga mun.

Ég skal svara þessari spurningu eftir helgi
Vestramenn fengu sannkallaða líflínu í fallbaráttunni í Subway deildinni í kvöld, þegar þeir lögðu ÍR í TM Hellinum, 78-79. Við spurðum Pétur Má Sigurðsson, þjálfara Vestra, hvernig tilfinningin væri svona rétt eftir leik.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: ÍR - Vestri 77-78 | Háspenna lífshætta í Breiðholti
Vestri vann ÍR í sannkölluðum spennitrylli í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 78-77 gestunum í vil sem unnu einkar dýrmætan sigur í botnbaráttunni.

Giannis með þrennu í stórsigri á Golden State
Giannis Antetokounmpo var frábær í NBA-deildinni í nótt þegar meistarar Milwaukee Bucks léku sér að Golden State Warriors.

229 sm NBA-stjarna er nú lamaður fyrir neðan mitti
Shawn Bradley er einn af hávöxnustu leikmönnunum í sögu NBA en þessi 229 sentimetra leikmaður spilaði í deildinni í fjórtán ár. Hjólslys fyrir ári síðan breytti lífi hans en hann hefur síðan verið lamaður fyrir neðan mitti.

Brooklyn Nets mætti með alla þrjár súperstjörnurnar og vann stórt í Chicago
Brooklyn Nets sýndi styrk sinn í NBA-deildinni í körfubolta í nótt með sannfærandi útisigri á öflugu liði Chicago Bulls en þetta var einn af fáum leikjum í vetur þar sem allar þrjá súperstjörnur Brooklyn liðsins voru í búning.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík 63-52 Njarðvík | Heimakonur með sterkan sigur í Sláturhúsinu
Keflavík sá til þess að Njarðvík komst ekki aftur á topp Subway-deildar kvenna í körfubolta. Keflvíkingar unnu góðan 11 stiga sigur á nágrönnum sínum í stórleik kvöldsins.

Martin átti stóran þátt í sigri Valencia
Martin Hermannsson hjálpaði Valencia að vinna sex stiga útisigur á Ulm í Evrópubikarnum í körfubolta í kvöld, lokatölur 70-76. Þá lék Jón Axel Guðmundsson í stóru tapi Bologna í ítölsku úrvalsdeildinni.

Þristur Söru Rúnar upphafið af ótrúlegri endurkomu
Sara Rún Hinriksdóttir og félagar hennar í Phoenix Constanta unnu þriggja stiga útisigur á CS Universitatea Cluj-Napoca í rúmensku körfuboltadeildinni í dag.

Ekkert stöðvar Ja Morant og „Memphis-mafíuna“ ekki einu sinni GSW með Klay
Memphis Grizzlies hélt sigurgöngu sinni áfram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt með því að vinna flottan sigur á liði Golden State Warriors. Memphis-liðið hefur nú unnið tíu síðustu leiki sína.

Kyrie Irving með en Brooklyn Nets tapaði
Brooklyn Nets var að spila á útivelli í NBA-deildinni í nótt og þessa vegna óbólusetta stórstjarnan Kyrie Irving spilað með liðinu. Það dugði þó ekki til í nótt.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Ak. - Tindastóll 91-103 | Stólarnir kipptu Þórsurum niður á jörðina eftir fyrsta sigurinn
Þórsarar unnu loksins sinn fyrsta sigur á tímabilinu í seinustu umferð en þurftu að sætta sig við 12 stiga tap gegn Tindastól í norðurlandsslag í kvöld, 91-103.

Baldur: Allt Sauðárkrókssamfélagið þarf bara að halda haus
Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Tindastóls, var fyrst og fremst ánægður með að lið hans væri aftur farið að spila körfubolta eftir 25 daga frí vegna covid-smita innan liðsins eftir að lið hans hafði sigur á Þór Akureyri, 91-103, í Höllinni á Akureyri í kvöld. Leikurinn var jafn framan af en Stólarnir settu í fluggírinn í fjórða leikhluta og kláruðu leikinn fagmannlega.

„Vonumst til að fyrsta skóflustunga verði tekin áður en árið er liðið“
„Sú áætlun sem að ríkisstjórnin er með núna, og ráðherra íþróttamála hefur lagt fram, er þannig að bæði FIBA og við hjá KKÍ treystum því að þetta sé að fara að gerast,“ segir Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, um byggingu nýs þjóðarleikvangs fyrir inniíþróttir.

Klay Thompson lék í nótt sinn fyrsta leik í NBA-deildinni í 941 dag
Stóra frétt næturinnar í NBA-deildinni í körfubolta var endurkoma Klay Thompson í lið Golden State Warriors eftir meira en tveggja tímabila fjarveru vegna meiðsla. Klay skilaði fínum tölum í sigri.

Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir 91-81 Breiðablik | Fjölniskonur lyftu sér á toppinn
Fjölniskonur lyftu sér á topp Subway-deildar kvenna með tíu stiga sigri gegn botnliði Breiðabliks í kvöld, 91-81.

Mikilvægur sigur hjá Martin og félögum í Valencia
Martin Hermannsson og félagar hans í spænska úrvalsdeildarliðinu Valencia unnu góðan sigur á Unicaja Malaga á útivelli í dag. Lokatölur leiksins urðu 82-87.

Körfuboltakvöld: Umræða um Njarðvík og Richotti
Kjartan Atli Kjartanson og félagar í Subway Körfuboltakvöldi fóru yfir frammistöðu Nicolas Richotti, leikmanns Njarðvíkur, í leiknum gegn Þór Þorlákshöfn á föstudagskvöld.

NBA: Grizzlies áfram á sigurbraut
Memphis Grizzlies hefur heldur betur komið á óvart í vetur og unnu enn einn leikinn í nótt þegar þeir mættu meiðslahrjáðu liði Los Angeles Clippers, 108-123.

Klay Thompson spilar í kvöld
Það eru liðnir 942 dagar síðan Klay Thompson spilaði síðast körfuboltaleik. Níuhundruð fjörutíu og tveir dagar. Allt bendir til þess að nú sé stóri dagurinn runninn upp.

Kevin Durant ætlar ekki að neyða liðsfélaga sinn í bólusetningu
Körfuboltamaðurinn Kevin Durant segist ekki ætla að neyða Kyrie Irving, liðsfélaga sinn hjá Brooklyn Nets í NBA-deildinni í körfubolta, til að láta bólusetja sig.

LeBron dró vagninn í fjórða sigri Lakers í röð
NBA-deildin í körfubolta bauð upp á níu leiki í nótt. LeBron James var atkvæðamestur Los Angeles Lakers-manna er liðið vann 134-118 sigur á Atlanta Hawks og hefur nú unnið fjóra leiki í röð.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Njarðvík 92-109 | Bikarmeistararnir höfðu betur gegn Íslandsmeisturunum
Íslandsmeistarar Þórs lutu í lægra haldi gegn bikarmeisturum Njarðvíkur er liðin mættust í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 92-109, en liðin eru nú jöfn í öðru sæti deildarinnar.

Sá sem fékk COVID-19 og „stoppaði“ NBA á sínum tíma er aftur smitaður
Franski miðherjinn Rudy Gobert hjá Utah Jazz er aftur smitaður af kórónuveirunni. Þegar það gerðist fyrst hafði það gríðarlegar afleiðingar fyrir NBA-deildina.

Þórsarar tolleruðu þjálfarann eftir fyrsta sigurinn
Þórsarar frá Akureyri unnu sinn fyrsta sigur í Subway-deild karla í körfubolta í gær og fögnuðu honum vel og innilega.

Næstu tveimur leikjum KR frestað
Leik Breiðabliks og KR í Subway-deild karla í körfubolta hefur verið frestað vegna sóttkvíar og einangrunar leikmanna. Þá hefur fjórum öðrum leikjum verið frestað af sömu ástæðu.

„Bara eins og eitthvað sem maður fékk á hverjum einasta vetri heima á Íslandi“
Körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson missti af fyrsta leik spænska liðsins Valencia á nýju ári eftir að hafa ásamt konu sinni og syni smitast af kórónuveirunni. Martin fann varla fyrir veikindum og stefnir á að spila á sunnudag.

Ótrúleg flautukarfa í sigri Knicks
RJ Barrett var í litlu jafnvægi, undir mikilli pressu, þegar honum tókst að skora magnaða sigurkörfu New York Knicks gegn Boston Celtics í NBA-deildinni í nótt.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Vestri 80-71 | Keflvíkingar aftur á sigurbraut
Topplið Keflavíkur vann góðan níu stiga sigur er liðið tók á móti Vestra í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 80-71.