Fleiri fréttir

Bjarki Már skoraði þrjú í fyrsta deildar­leiknum í Ungverjalandi

Veszprém vann stórsigur á Dabas í ungversku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 30-21 gestunum í vil. Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson var að leika sinn fyrsta deildarleik fyrir liðið en hann missti af leiknum í fyrstu umferðar vegna meiðsla.

„Hornið hentar minni líkamsbyggingu betur“

Leikur Fram og Selfoss í gærkvöldi var ekki bara fyrsti leikur tímabilsins 2022-23 í Olís-deild karla, fyrsti leikur Fram á nýjum heimavelli í Úlfarsárdal heldur einnig fyrsti alvöru leikur Ívars Loga Styrmissonar í nýrri stöðu.

Björn Viðar leggur skóna á hilluna

Handboltamarkvörðurinn Björn Viðar Björnsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna frægu og mun því ekki leika með ÍBV í Olís-deild karla á tímabilinu.

Umfjöllun og viðtöl: FH-Stjarnan 28-33| Garðbæingar sannfærandi í fyrsta leik

1. umferð í Olís deild karla fór af stað í kvöld með fjórum leikjum. Í Kaplakrika vann Stjarnan sannfærandi sigur á FH.Leikurinn var jafn til að byrja með en góður endasprettur Stjörnunnar í fyrri hálfleik sló FH-inga út af laginu og var síðari hálfleikur aldrei spennandi og endaði leikurinn með fimm marka sigri Stjörnunnar 28-33.

„Ánægður með okkur í dag“

Einar Jónsson, þjálfari Fram, var ánægður eftir fyrsta keppnisleik félagsins á nýja heimavellinum í Úlfarsárdal. Frammarar unnu þá Selfyssinga örugglega, 33-26.

Ihor í Mosfellsbæinn

Afturelding hefur fengið úkraínska hornamanninn Ihor Kopyshynskyi frá Haukum. Hann hefur leikið hér á landi undanfarin ár.

Seinni bylgjan: Gaupi og Andri Már fara á kostum í „Feðgar á ferð“

Seinni bylgjan kynnir til leiks nýjan lið fyrir þætti sína í vetur. Líkt og áður mun Gaupi [Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamaður] halda áfram að aðstoða strákana við að fara yfir það sem gerist í Olís deild karla en nú hefur hann fengið dyggan aðstoðarmann sér til aðstoðar.

Íslendingaliðin áfram í franska bikarnum

Leikið var í 32-liða úrslitum í frönsku bikarkeppninni í handbolta í kvöld og voru fjögur Íslendingalið í eldlínunni sem tryggðu sér öll sæti í 16-liða úrslitum.

„Ætla hin liðin bara að láta þetta yfir sig ganga?“

Þrefaldir meistara Vals voru til umræðu í upphitunarþætti Seinni bylgjunnar í gær en óðfluga styttist í að Olís-deild karla fari af stað á ný. Því er velt upp hvort önnur lið muni veita Valsmönnum samkeppni í vetur og hvaða áhrif þátttaka þeirra í Evrópudeildinni muni hafa.

Völsurum spáð titlinum í báðum deildum

Hinn árlegi kynningarfundur Olís- og Grill 66-deildanna í handbolta fór fram á Grand Hótel í dag. Val er spáð efsta sæti í bæði karla- og kvennaflokki.

Hvalreki fyrir Hauka

Haukar hafa heldur betur fengið liðsstyrk fyrir átökin sem framundan eru í Olís-deild karla í handbolta. Andri Már Rúnarsson er genginn í Hafnarfjarðarliðsins frá Stuttgart en samningi hans við þýska félagið var rift.

Lokkaði tvo út af í fyrsta leik

Mathias Gidsel spilaði sinn fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta um helgina og fór nokkuð vel af stað. Hraði hans er illviðráðanlegur.

Þreytti frumraun sína í sigri á PSG

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson lék sinn fyrsta leik fyrir franska stórliðið Nantes í franska handboltanum í kvöld.

Misjafnt gengi Íslendingaliðana í upphafi dönsku deildarinnar

Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag og voru Íslendingar í eldlínunni í þremur þeirra. Íslendingalið Ribe-Esbjerg og Fredericia unnu sigra í sínum leikjum, en leikmenn Lemvig þurftu að sætta sig við tap.

ÍR-ingar safna liði fyrir Olís-deildina

Nýliðar ÍR hafa fengið tvo nýja leikmenn til liðs við sig fyrir komandi átök í Olís-deild karla í handbolta. ÍR-ingar hafa samið við Friðrik Hólm Jónsson frá ÍBV og hinn unga Róbert Snær Örvarsson frá Haukum.

Svissnesku Íslendingaliðin hefja tímabilið á sigrum

Likið var í fyrstu umferð svissnesku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld og voru bæði Íslendingalið deildarinnar í eldlínunni. Svissnesku meistararnir í Kadetten Schaffhausen unnu  marka útisigur gegn St. Gallen og Zurich vann öruggan sigur gegn Kreuzlingen.

Nýliðar Gummersbach byrja tímabilið á sigri

Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld og voru Íslendingar í eldlínunni í öllum fjórum leikjunum. Íslendingalið Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, vann góðan fjögurra marka sigur gegn Lemgo, 26-30.

Fyrsti Færeyingurinn til Kiel

Þýska stórliðið Kiel hefur samið við færeyska handboltamanninn Elias Ellefsen á Skipagötu. Hann gengur í raðir Kiel næsta sumar.

Sjá næstu 50 fréttir