Handbolti

Olís-spá karla 2022-23: Þurfa ekki að fella tár eins og Alexander mikli

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Valsmenn unnu KA-menn í Meistarakeppni HSÍ á laugardaginn. Alexander Örn Júlíusson, fyrirliði Vals, hefur Meistarabikarinn á loft.
Valsmenn unnu KA-menn í Meistarakeppni HSÍ á laugardaginn. Alexander Örn Júlíusson, fyrirliði Vals, hefur Meistarabikarinn á loft. vísir/diego

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Val 1. sæti Olís-deildar karla í vetur.

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild karla en keppni í deildinni hefst með fjórum leikjum í dag, fimmtudaginn 8. september.

Íþróttadeild spáir Val 1. sæti Olís-deildar karla í vetur og að liðið verði deildarmeistari í þriðja sinn á síðustu fjórum árum.

Valsmenn hafa verið besta lið landsins undanfarin ár og unnið síðustu sjö titla sem keppt hefur verið um. Á síðasta tímabili vann Valur þrefalt; varð deildar-, og bikar- og Íslandsmeistari.

Strákarnir hans Snorra Steins Guðjónssonar urðu betri og betri eftir því sem leið á tímabilið og í úrslitakeppninni héldu þeim engin bönd. Andstæðingar Vals réðu ekkert við hraðan og beinskeyttan leikstíl liðsins sem þurfti sjaldnast að stilla upp í sókn.

Valur er búinn að vinna allt sem hægt er að vinna hér heima, og það oftar en einu sinni, en öfugt við Alexander mikla þurfa Valsmenn ekki að fella tár því þeir geta enn numið ný lönd í Evrópudeildinni (þið munið, Die Hard). Valur fékk sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og því bætast tíu krefjandi leikir við hjá liðinu.

Evrópudeildin verður væntanlega ofarlega í hugum Valsmanna framan af tímabili og því gæti deildakeppnin setið á hakanum. Það er það eina sem getur komið í veg fyrir að Valur vinni deildarmeistaratitilinn.

Þrátt fyrir að hafa misst Einar Þorsteinn Ólafsson eru Valsmenn enn með langbesta lið deildarinnar og líklegastir til að vinna allt sem hægt er að vinna þriðja árið í röð.

Gengi Vals undanfarinn áratug

  • 2021-22: Deildarmeistari+Íslandsmeistari+bikarmeistari
  • 2020-21: 3. sæti+Íslandsmeistari+bikarmeistari
  • 2019-20: Deildarmeistari
  • 2018-19: 3. sæti í deildinni+undanúrslit+bikarúrslit
  • 2017-18 4. sæti+átta liða úrslit
  • 2016-17: 7. sæti+Íslandsmeistari+bikarmeistari
  • 2015-16: 2. sæti+undanúrslit+bikarmeistari
  • 2014-15: Deildarmeistari+undanúrslit
  • 2013-14: 3. sæti+undanúrslit
  • 2012-13: 7. sæti

Lykilmaðurinn

Þrátt fyrir vera orðinn 37 ára gefur Björgvin Páll Gústavsson ekkert eftir.vísir/diego

Eins og við mátti búast gerði Björgvin Páll Gústavsson gott Valslið frábært eftir komuna frá Haukum í fyrra. Auk þess að vera besti markvörður Olís-deildarinnar kom hann með nýja vídd í Valsliðið með löngum og hárnákvæmum sendingum sínum fram völlinn. Hraðaupphlaupsmörkum Vals fjölgaði því enn frekar. Björgvin varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn á ferlinum á síðasta tímabili og ætlar sér vafalítið að endurtaka leikinn í vetur.

Félagaskiptamarkaðurinn

Komnir:

  • Aron Dagur Pálsson frá Elverum (Noregi)
  • Bergur Elí Rúnarsson frá FH

Farnir:

  • Einar Þorsteinn Ólafsson til Fredericia (Danmörku)
  • Þorgeir Bjarki Davíðsson til Gróttu

Markaðseinkunn (A-C): B

Fortíðarhetja sem gæti nýst í vetur

Varla er veikan blett á liði Vals að finna og því ósanngjarnt fyrir önnur lið að bæta hetju úr fortíðinni við leikmannahóp Hlíðarendapilta. En ef Snorri Steinn fengi að velja eina stöðu til að styrkja væri það sennilegast línustaðan. Þorgils Jón Svölu Baldursson og Tjörvi Týr Gíslason eru báðir góðir, mjög góðir, en hvorugur þeirra er afgerandi sóknarmaður. Það væri því gaman að sjá Valsliðið með Rússajeppann sjálfan, Sigfús Sigurðsson, á línunni. Hann myndi eflaust skora nokkur mörkin fyrir þessa útgáfu af Valsliðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×