Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mancini: Set annaðhvort Jó í liðið eða spila sjálfur Roberto Mancini, stjóri Manchester City, gæti þurft að stilla Jó upp í framlínu liðsins á móti Blackburn Rovers í dag þar sem að þrír framherjar liðsins, Carlos Tevez, Emmanuel Adebayor og Mario Balotelli, eru allir meiddir. 11.9.2010 13:00
Lampard verður ekki með á móti West Ham í dag Frank Lampard er ekki orðinn góður af meiðslum sínum og verður ekki með Chelsea-liðinu á móti West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Carlo Ancelotti, stóri Chelsea, staðfesti þetta í gær. 11.9.2010 11:45
Rooney ekki í hópnum hjá Manchester United á móti Everton Wayne Rooney verður ekki með Manchester United á móti sínu gamla félagi í Everton þegar liðin mætast á Goodison Park eftir hálftíma. Sir Alex Ferguson, stjóri United, hefur tekið þá ákvörðun að hvíla framherjann sinn í leiknum. 11.9.2010 11:15
Redknapp gæti látið William Gallas fá fyrirliðabandið Harry Redknapp, stjóri Tottenham, er að velta því alvarlega fyrir sér að láta William Gallas fá fyrirliðabandið þegar hann leikur sinn fyrsta leik fyrir Tottenham á móti West Bromwich Albion í dag. 11.9.2010 11:00
Given fékk ekki að fara frá Man. City Hinn afar frambærilegi markvörður Man. City, Shay Given, ætlar ekki að gefast upp hjá félaginu þó svo búið sé að henda honum á tréverkið svo Joe Hart geti spilað með liðinu. Reyndar hefur hann ekki um annað að velja. 10.9.2010 23:30
Rodwell verður frá fram að jólum Miðjumaðurinn efnilegi hjá Everton, Jack Rodwell, mun ekki geta spilað með liðinu aftur fyrr en um jólin vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik Everton gegn Aston Villa. 10.9.2010 22:45
Ferdinand verður í hópnum hjá Man. Utd á morgun Rio Ferdinand verður í leikmannahópi Man. Utd á morgun er liðið sækir Everton heim. Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, staðfesti það í dag. 10.9.2010 20:30
Hodgson þolir ekki lygasögur umboðsmanna Roy Hodgson, stjóri Liverpool, er mjög reiður út í umboðsmann Hollendingsins Rafael van der Vaart en hann segir umbann hafa logið til um áhuga Liverpool á leikmanninum. 10.9.2010 18:15
Ræði aldrei einkalíf leikmanna Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, var fljótur að þagga niður í þeim blaðamönnum sem vildu spyrja hann út í einkalíf Wayne Rooney í dag. 10.9.2010 17:30
Scholes og Ancelotti bestir í ágúst Paul Scholes, leikmaður Man. Utd, og Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, voru valdir menn ágústmánaðar í ensku úrvalsdeildinni. 10.9.2010 16:45
Houllier ekki viss um hvenær hann tekur við Aston Villa liðinu Gerard Houllier er ekki viss um hvenær hann sest í stjórastólinn hjá Aston Villa þótt að hann sé búinn að gera þriggja ára samning við félagið. Franska knattspyrnusambandið á enn eftir að losa hann undan samningi sínum þar sem hann hefur gengt stöðu tæknilegs ráðgjafa. 10.9.2010 16:00
Roque Santa Cruz kemst ekki í Evrópulið Manchester City Það er hörð samkeppnin í liði Manchester City eftir að hver stórstjarnan á fætur annarri hefur verið keypt til liðsins. Roque Santa Cruz hefur fengið að kynnast því þar sem að hann kemst ekki í 25 manna hóp liðsins fyrir keppni í Evrópudeildinni. 10.9.2010 15:00
Bobby Zamora búinn að gera samning við Fulham til 2014 Bobby Zamora, framherji Fulham, er búinn að gera nýjan fjögurra ára samning við félagið sem gildir til ársins 2014. Zamora fór á kostum með Fulham á síðasta tímabil þar sem hann skoraði 19 mörk og hjálpaði liðinu að komast í úrslitaleik Evrópudeildarinnar og ná tólfta sætinu í ensku úrvalsdeildinni. 10.9.2010 14:00
Roy Hodgson hótar því að losa Liverpool við fleiri leikmenn Roy Hodgson, stjóri Liverpool, hefur gefið það út að fleiri leikmenn gætu verið á förum frá liðinu en Hodgson er á fullu að byggja upp nýtt lið á Anfield. 10.9.2010 13:00
Defoe fór í ökklaaðgerð og verður frá í þrjá mánuði Tottenham er nú búið að fá slæmar fréttir af framherja sínum Jermain Defoe þrjá daga í röð. Hann meiddist í leik með enska landsliðinu á þriðjudag, á miðvikudaginn var talið að hann yrði frá í sex vikur en í gær kom í ljós að hann þurfti að fara í aðgerð og verður frá í þrjá mánuði. 10.9.2010 12:00
Gerrard spáir því að Houllier nái góðum árangri með Aston Villa Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, hefur trú á því að gamli stjórinn hans, Gerard Houllier, nái góðum árangri með Aston Villa en Frakkinn skrifaði undir nýjan þriggja ára samning í vikunni og tekur við af Martin O'Neill. 10.9.2010 10:00
Neville: Ber virðingu fyrir Liverpool en virðir aldrei City Það þekkja allir sem fylgjast með enska boltanum hatur Gary Neville á Liverpool. Nú hefur þessi reynslubolti í liði Manchester United ýtt undir nágrannaerjurnar við Manchester City með því að segjast aldrei geta borið virðingu fyrir hinu Manchester-liðinu ekki frekar en öðrum félögum sem nota peninga til að búa til skyndi-árangur. 10.9.2010 09:30
Redknapp vill fá Englending sem landsliðsþjálfara Harry Redknapp, stjóri Spurs, hefur áður lýst yfir áhuga sínum á því að taka við enska landsliðinu. Hann hefur nú gert það aftur og viðurkennt að það yrði erfitt að segja nei ef kallið kæmi eftir EM 2012. 9.9.2010 22:15
Parker framlengdi við West Ham Scott Parker er svo sannarlega ekki á förum frá West Ham eins og stuðningsmenn félagsins óttuðust heldur er hann búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið. 9.9.2010 19:15
Theo Walcott gæti verið frá í allt að sex vikur Ökklameiðsli Theo Walcott frá því í landsleik Englendinga í Sviss á þriðjudaginn eru það alvarleg að hann gæti verið frá í allt að sex vikur. 9.9.2010 18:30
Pulis segist vera of ungur til að taka við velska landsliðinu Tony Pulis, stóri Stoke City í ensku úrvalsdeildinni, segir það of snemmt á sínum þjálfaraferli að taka við velska landsliðinu en John Toshack sagði af sér sem þjálfari Wales í dag. 9.9.2010 16:00
Rooney getur búist við fjandsamlegum móttökum á Goodison Park Phil Jagielka, varnarmaður Everton og enska landsliðsins, hefur varað Wayne Rooney við því að hann muni fá fjandsamlegar móttökur þegar Manchester United heimsækir Everton á Goodison Park á laugardaginn. 9.9.2010 14:30
Defoe missir af fyrstu leikjum Tottenham í Meistaradeildinni Jermain Defoe verður ekki með Tottenham-liðinu næstu sex vikurnar vegna ökklameiðsla sem hann varð fyrir í leik með enska landsliðinu í Sviss á þriðjudaginn. Defoe var að vona það eftir leikinn að meiðslin væru ekki alvarleg en annað kom á daginn. 9.9.2010 14:00
Marseille reyndi að kaupa Drogba frá Chelsea í sumar Franska liðið Marseille hefur skýrt frá því að liðið reyndi að kaupa Didier Drogba, markakóng ensku úrvalsdeildarinnar, frá Chelsea í sumar. Drogba er einn allra besti framherji heims og því vpru engar líkur að Chelsea væri til í að selja hann. 9.9.2010 11:00
Balotelli þarf að fara í hnéaðgerð Mario Balotelli, framherji enska liðsins Manchester City, þarf að fara í hnéaðgerð og verður frá keppni næstu sex vikurnar. 9.9.2010 10:00
Roy Hodgson hefur lofað Pacheco því að hann fái að spila í vetur Roy Hodgson, stjóri Liverpool, hefur lofað spænska unglingalandsliðsmanninum Daniel Pacheco að hann fái tækfæri með aðalliðinu í vetur en Pacheco sló í gegn með spænska 19 ára landsliðinu á EM í sumar þar sem hann fékk gullskóinn. 8.9.2010 23:45
Ástæðan fyrir því að Mancini tók fyrirliðabandið af Kolo Toure Kolo Toure, leikmaður Manchester City og landsliðs Fílabeinsstrandarinnar, segist hafa misst fyrirliðabandið hjá City vegna þess að Roberto Mancini var að reyna að hjálpa Carloz Tevez að verða næsti Diego Maradona. 8.9.2010 22:15
Ganamaðurinn Gyan segist vera tilbúinn í enska boltann Asamoah Gyan, stjarna Gana á HM í Suður-Afríku og nýr leikmaður Sunderland í ensku úrvalsdeildinni, hefur ekki áhyggjur af pressunni sem fylgir því að vera keyptur fyrir þrettán milljónir punda. 8.9.2010 21:30
Hleb byrjar ferilinn hjá Birmingham á meiðslalistanum Aleksandr Hleb, nýi miðjumaðurinn hjá Birmingham City, mun ekki spila sinn fyrsta leik með liðinu á sunndaginn þegar Birmingham mætir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Fyrirliði Hvít-Rússa meiddist í leik með landsliði sínu í undankeppni EM í gær. 8.9.2010 19:15
Kuyt ætlar að reyna að ná Evrópuleiknum á móti sínu gamla liði Dirk Kuyt er ákveðinn í því að ná að spila Evrópuleikinn á móti sínum gömlu felögum í FC Utrecht en leikurinn fer fram í Hollandi 30. september. Kuyt meiddist illa á öxl á æfingu hollenska landsliðsins og átti af þeim sökum að vera frá í fjórar vikur. 8.9.2010 17:00
Gérard Houllier búinn að gera þriggja ára samning við Aston Villa Gérard Houllier hefur samþykkt þriggja ára samning um að gerast knattspyrnstjóri Aston Villa samkvæmt frétt hjá Guardian en enskir miðlar höfðu fyrir nokkru birt fréttir um að allt stefndi í það að þessi fyrrum stjóri Liverpool snéri aftur í ensku úrvalsdeildina. 8.9.2010 15:14
Robin van Persie kemur ekki til baka fyrr en um miðjan október Robin van Persie, framherji Arsenal, verður lengur frá en í fyrstu var talið en Hollendingurinn snjalli meiddist á ökkla í 2-1 sigri á Blackburn 28. ágúst. Samkvæmt nýjasta mati læknaliðs Arsenal verður hann frá keppni í það minnsta fram í miðjan október. 8.9.2010 10:30
Vermaelen: Cesc Fabregas er með Barcelona í sínu DNA Thomas Vermaelen, varnarmaður Arsenal og liðsfélagi Cesc Fabregas, segir að Fabregas sé með Barcelona í sínu DNA. Hinn 23 ára fyrirliði Arsenal hefur verið orðaður við Barcelona liðið í allt sumar en Arsene Wenger var ekki tilbúinn að láta hann fara. 7.9.2010 19:15
John Terry og Frank Lampard með Chelsea um helgina Fyrirliðar Chelsea-liðsins, John Terry og Frank Lampard, gætu báðir spilað með Chelsea í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi en þeir misstu af landsleikjum Englendinga í dag og á föstudaginn vegna meiðsla. 7.9.2010 17:45
Liverpool segir að Dirk Kuyt missi af næstu sex leikjum liðsins Dirk Kuyt verður ekkert með Liverpool næstu fjórar vikurnar eftir að hafa meiðst illa á vinstri öxl á æfingu með hollenska landsliðinu í gær. 7.9.2010 12:30
Gerard Houllier tekur væntanlega við Aston Villa á morgun Gerard Houllier, fyrrum stjóri Liverpool og Lyon, mun væntanlega taka við stjórastöðunni hjá Aston Villa á morgun en hinn 63 ára gamli Frakki fór í viðtal vegna starfsins eins og þeir Kevin McDonald og Alan Curbishley. Enski fjölmiðlar sameinast um að eigna Houllier stöðuna. 7.9.2010 09:30
Davids sagður hafa slegið konu í bíó Hollenski miðjumaðurinn Edgar Davids, sem leikur með Crystal Palace þessa dagana, hefur verið kærður til lögreglunnar fyrir að slá konu utan undir í bíóhúsi. 6.9.2010 23:45
Ancelotti vill fylgja í fótspor Ferguson Einhverra hluta vegna hafa fjölmiðlar gaman af því þessa dagana að orða Carlo Ancelotti, stjóra Chelsea, við landslið. Hann þurfti að sverja af sér áhuga á ítalska landsliðinu um daginn og nú er verið að spyrja hann út í enska landsliðið. 6.9.2010 22:15
Carragher er ánægður með Hodgson Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, er afar ánægður með frammistöðu nýja stjórans, Roy Hodgson, á leikmannamarkaðnum. Hodgson hefur nælt í nokkra þekkta leikmenn þó svo hann hafi ekki úr miklu fjármagni að spila. 6.9.2010 19:15
Shawcross er ósáttur með eineltið hjá Arsene Wenger Ryan Shawcross, varnarmaður Stoke og nýr liðsfélagi Eiðs Smára Guðjohnsen, er mjög ósáttur við einelti Arsene Wenger, stjóra Arsenal, sem heldur því fram að hann og Robert Huth stundi það að meiða mótherja sína viljandi. 6.9.2010 18:30
Bebé verður í Meistaradeildarhópi United eftir allt saman Portúgalinn Bebé verður í 25 manna Meistaradeildarhópi Manchester United en áður hafði félagið tilkynnt að hann fengi ekki að vera með á þessu tímabili ekki frekar en hinn meiddi Owen Hargreaves. 6.9.2010 15:00
Capello á eftir að meta það hvort Rooney sé klár í leikinn Wayne Rooney fór með enska liðinu til Sviss í morgun þrátt fyrir að allt sé á öðrum endanum í einkalífinu eftir að News of the World og Sunday Mirror birtu frétt um Rooney hafi haldið framhjá unnustu sinni á meðan hún var ólétt. Það er þó ekki víst að Ropney muni spila leikinn. 6.9.2010 11:30
Van der Vaart vildi ekki fara til Liverpool Hollenski landsliðsmaðurinn Rafael van der Vaart valdi það frekar að fara til Tottenham en að spila með Liverpool. Þetta kemur fram á Skysports í morgun. Van der Vaart samdi við Tottenham rétt áður en félagsskiptaglugginn lokaði á þriðjudaginn. 6.9.2010 11:00
Madrid með Bale í sigtinu? Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Real Madrid muni gera tilboð í Gareth Bale leikmann Tottenham og reyna að fá hann til Spánar þegar félagaskiptaglugginn opnar á nýjan leik í janúar. 5.9.2010 22:30
Hutton vill fara frá Tottenham Skoski varnarmaðurinn Alan Hutton vill yfirgefa herbúðir Tottenham. Hann telur sig ekki fá nægilega mörg tækifæri með liðinu og vill færa sig til félags þar sem hann fær að leika reglulega. 5.9.2010 20:15