Fleiri fréttir

Ince ekki til Newcastle

Paul Ince hefur útilokað að taka við Newcastle og segist vera nýbyrjaður á langtímaverkefni hjá Blackburn.

Chelsea íhugar að áfrýja brottvísun Terry

Luiz Felipe Scolari, knattspyrnustjóri Chelsea, sagði í gærkvöldi að félagið væri nú að íhuga að áfrýja rauða spjaldinu sem John Terry fékk í leiknum gegn Manchester City í gær.

Ronaldo gæti spilað í vikunni

Svo gæti farið að Cristiano Ronaldo spili með Manchester United gegn Villarreal í Meistaradeild Evrópu í vikunni.

Robinho skoraði en Chelsea vann

Robinho opnaði markareikning í sínum fyrsta leik með Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann kom sínum mönnum yfir gegn Chelsea sem vann þó á endanum 3-1 sigur.

Sigur hjá Jóa Kalla og félögum

Jóhannes Karl Guðjónsson og félagar í Burnley unnu í dag 2-1 sigur á Notthingham Forest á útivelli í ensku B-deildinni í dag.

Stórsigur Arsenal - Hull í fjórða sætið

Hull gerði sér lítið fyrir og tyllti sér í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar með góðum sigri á Newcastle á útivelli. Arsenal slátraði Blackburn, 4-0, og er í öðru sæti - einu stigi á eftir Liverpool.

Liverpool vann United

Fyrsta risaleik tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni er lokið. Liverpool vann 2-1 sigur á Manchester United á Anfield í fyrsta leik Dimitar Berbatov með United.

Berbatov með en Torres og Gerrard á bekknum

Stórleikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni er viðureign Liverpool og Manchester United. Það eru vonbrigði fyrir heimamenn að hvorki Fernando Torres né Steven Gerrard geta verið í byrjunarliðinu vegna meiðsla.

Fyrsti stórleikur tímabilsins

Átta leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag en flestra augu munu líklega beinast að hádegisleik Liverpool og Englandsmeistara Manchester United.

Keegan sagður hafa fundað með eiganda Newcastle í dag

Heimildir Sky fréttastofunnar herma að Kevin Keegan hafi í dag átt fund með Mike Ashley eiganda Newcastle í Lundúnum. Keegan sagði upp störfum hjá Newcastle fyrir nokkrum dögum af því hann var ósáttur við stefnu félagsins í leikmannamálum.

Ný andlit á White Hart Lane á mánudag

Gera má ráð fyrir því að lið Tottenham mæti nokkuð breytt til leiks á mánudagskvöldið þegar liðið tekur á móti Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni.

West Ham og West Brom spila án auglýsinga

Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham mun leika í ómerktum treyjum þegar það mætir West Brom í deildinni á morgun. Breska sjónvarpið segir að samstarfi West Ham og ferðaskrifstofunnar XL hafi verið slitið.

Deco og Southgate bestir í ágúst

Miðjumaðurinn Deco hjá Chelsea og Gareth Southgate stjóri Middlesbrough voru í dag útnefndir leikmaður og knattspyrnustjóri mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni.

Chelsea vill halda Clarke

Chelsea hefur neitað að taka við uppsagnarbréfi frá Steve Clarke. Chelsea hafði bannað Clarke að hefja viðræður við West Ham sem vill fá hann til að aðstoða Gianfranco Zola.

Scolari fékk tilboð frá City

Luiz Felipe Scolari segist hafa fengið tilboð frá Manchester City um að taka við sem knattspyrnustjóri félagsins eftir að Sven Göran Eriksson var látinn taka pokann sinn í lok síðasta tímabils.

Berbatov stefnir á að vera bestur

„Ég stefni á að vinna gullknött Evrópu áður en ferlinum lýkur. Þegar ég set mér eitthvað einstaklingsmarkmið þá er ég ákveðinn í að ná því," segir Dimitar Berbatov, nýjasti liðsmaður Manchester United.

Keane kallar varaforseta FIFA trúð

Roy Keane, knattspyrnustjóri Suderland, er allt annað en sáttur við ummæli Jack Warner, varaforseta alþjóða knattspyrnusambandsins. Warner sagði Keane sýna smærri þjóðum vanvirðingu og svaraði Keane með þeim orðum að Warner væri trúður.

Stuðningsmenn Newcastle mótmæla

Stuðningsmenn Newcastle ætla að safnast saman fyrir leik félagsins gegn Hull á morgun til þess að lýsa yfir óánægju sinni með Mike Ashley, eiganda félagsins.

Steve Clarke sagði upp hjá Chelsea

Eins og Vísir greindi frá í gær hefur Steve Clarke átt í viðræðum við West Ham um að gerast aðstoðarþjálfari Gianfranco Zola. Hann hefur nú sagt upp störfum hjá Chelsea.

Robinho klár á laugardaginn

Mark Hughes, stjóri Manchester City, hefur staðfest að Robinho muni að öllu óbreyttu spila sinn fyrsta leik með liðinu þegar það mætir Chelsea í kvöldleiknum í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Dagar Beckham eru taldir

John Barnes, fyrrum leikmaður enska landsliðsins og Liverpool, segir að dagar David Beckham með enska landsliðinu séu endanlega taldir eftir frábæra frammistöðu Theo Walcott í gærkvöld.

Ég hef spilað Championship Manager alla mína ævi

Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United finnur sig vel í þjálfarastöðunni hjá félaginu. Hann segist ekki vera í vandræðum með að stýra öðrum leikmönnum vegna reynslu sinnar af því að vinna með Alex Ferguson og því að spila tölvuleiki.

Aukin öryggisgæsla í Newcastle

Lögregla í Newcastle hefur aukinn viðbúnað á laugardaginn fyrir leik liðsins gegn Hull í ensku úrvalsdeildinni. Viðbúnaðurinn er vegna fyrirhugaðra mótmæla stuðningsmanna félagsins í kjölfar uppsagnar Kevin Keegan.

Berbatov spilar væntanlega gegn Liverpool

Dimitar Berbatov mun líklega spila sinn fyrsta leik fyrir Manchester United í hádeginu á laugardaginn þegar liðið sækir Liverpool heim á Anfield.

Steve Clarke í viðræðum við West Ham

Samkvæmt heimildum Vísis er Steve Clarke, aðstoðarþjálfari Chelsea, nú í viðræðum við West Ham um að gerast aðstoðarmaður nýráðins knattspyrnustjóra Gianfranco Zola.

Beckham hrósar Walcott

David Beckham hrósaði hinum unga Theo Walcott í hástert eftir að hann skoraði þrennu fyrir Englendinga gegn Króötum í undankeppni HM í gær.

Zola tekur við West Ham

West Ham hefur ráðið Gianfranco Zola sem knattspyrnustjóra liðsins til næstu þriggja ára. Félagið er í eigu Björgólfs Guðmundssonar.

Zola færist nær West Ham

Heimildir BBC herma að enska úrvalsdeildarfélagið West Ham muni ganga frá ráðningu Gianfranco Zola sem knattspyrnustjóra á morgun.

Tommasi til QPR

Enska B-deildarliðið QPR hefur gengið frá samningi við fyrrum ítalska landsliðsmanninn Damiano Tommasi sem áður lék m.a. með Roma.

Donadoni: West Ham hentaði mér ekki

Ítalski þjálfarinn Roberto Donadoni segist hafa dregið sig út úr kapphlaupinu um stjórastöðuna hjá West Ham af því hann hafi ekki verið rétti maðurinn í starfið.

Fowler á leið til Blackburn

Forráðamenn Blackburn hafa staðfest að félagið hafi samþykkt samning við Robbie Fowler og að hann gæti þess vegna spilað með liðinu strax gegn Arsenal um helgina.

Zola ákveður sig á morgun

Gianfranco Zola tjáði sig í kvöld um möguleikann á því að taka við starfi knattspyrnustjóra hjá enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham.

Poyet segist ekki á leið til Newcastle

Gus Poyet hefur verið einna helst orðaður við stjórastöðuna hjá Newcastle, og þá í sameiningu með Dennis Wise, en hann segist ánægður þar sem hann er.

Hiddink hunsar Tottenham

Guus Hiddink, landsliðsþjálfari Rússlands, ætlar að nota framherjan Roman Pavlyuchenko í leik Rússa gegn Wales á morgun þrátt fyrir beiðni Tottenham um að gefa honum frí.

Zico spenntur fyrir Newcastle

Brasilíumaðurinn Zico er áhugasamur um að taka við starfi Kevin Keegan hjá Newcastle eftir því sem kemur fram í enskum fjölmiðlum í dag.

Essien með slitið krossband í hné

Chelsea verður án Michael Essien næsta hálfa árið að minnsta kosti eftir í ljós kom að hann hafði slitið krossband í hné í landsleik Gana og Libíu í Trípólí á föstudaginn.

Zola vill Steve Clarke með sér til West Ham

Ef Gianfranco Zola verður ráðinn knattspyrnustjóri West Ham vill hann fá Steve Clarke sér við hlið sem aðstoðarþjálfara. Þetta hefur Vísir eftir heimildum sínum.

Zola eða Donadoni?

Enskir fjölmiðlar telja að valið hjá West Ham standi milli Gianfranco Zola og Roberto Donadoni. Félagið er í leit að knattspyrnustjóra í stað Alan Curbishley sem lét af störfum í síðustu viku.

Sjá næstu 50 fréttir