Enski boltinn

Zola færist nær West Ham

NordicPhotos/GettyImages

Heimildir BBC herma að enska úrvalsdeildarfélagið West Ham muni ganga frá ráðningu Gianfranco Zola sem knattspyrnustjóra á morgun.

Heimildamaður BBC segir að Zola hafi alla tíð verið fyrsti kostur hjá félaginu og segir að samningar séu í sjónmáli. Aðeins eigi eftir að leggja málið fyrir stjórnina.

Zola er aðstoðarþjálfari ítalska u-21 árs landsliðsins og lék með Chelsea á árunum 1996-2003.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×