Enski boltinn

Keegan sagður hafa fundað með eiganda Newcastle í dag

NordicPhotos/GettyImages

Heimildir Sky fréttastofunnar herma að Kevin Keegan hafi í dag átt fund með Mike Ashley eiganda Newcastle í Lundúnum. Keegan sagði upp störfum hjá Newcastle fyrir nokkrum dögum af því hann var ósáttur við stefnu félagsins í leikmannamálum.

Þessi tíðindi hafa orðið til þess að hleypa af stað orðrómi um að Keegan muni jafnvel taka aftur við liði Newcastle.

Sky leitaði til forráðamanna Newcastle en þeir neituðu að staðfesta fréttirnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×