Enski boltinn

Scolari fékk tilboð frá City

Elvar Geir Magnússon skrifar
Luiz Felipe Scolari.
Luiz Felipe Scolari.

Luiz Felipe Scolari segist hafa fengið tilboð frá Manchester City um að taka við sem knattspyrnustjóri félagsins eftir að Sven Göran Eriksson var látinn taka pokann sinn í lok síðasta tímabils.

Scolari var við stjórnvölinn hjá Brasilíu á þeim tíma. Hann segist hafa rætt við stjórnarmenn City og fengið tilboð í hendurnar. Hann viðurkennir að tilboðið hafi verið freistandi en hlutirnir hafi breyst þegar Chelsea skarst í leikinn.

Scolari er nú stjóri Chelsea sem leikur einmitt gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Mark Hughes var ráðinn stjóri City eins og flestir vita.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×