Enski boltinn

Chelsea íhugar að áfrýja brottvísun Terry

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Chelsea mótmæla brottvísun John Terry í gær.
Leikmenn Chelsea mótmæla brottvísun John Terry í gær. Nordic Photos / Getty Images

Luiz Felipe Scolari, knattspyrnustjóri Chelsea, sagði í gærkvöldi að félagið væri nú að íhuga að áfrýja rauða spjaldinu sem John Terry fékk í leiknum gegn Manchester City í gær.

Terry fékk að líta rauða spjaldið fyrir að brjóta á Jo þegar hann var við það að sleppa í gegnum vörn liðsins. Mark Halsey dómari leit sem svo á að Terry væri aftasti varnarmaður en Ricardo Carvalho var ekki langt undan.

Scolari gat þó ekki tjáð sig um atvikið þar sem hann var ekki búinn að sjá það í sjónvarpi. Mark Hughes, stjóri City, fannst það hins vegar harður dómur.

„Mér fannst þetta ansi þungur dómur. Frammistaða dómarans var nokkuð óstöðug," sagði Hughes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×