Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Guardiola, þjálfari Barcelona: Við vorum í vandræðum með Xerez Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, viðurkenndi að liðið sitt hafi verið langt frá sínu besta á móti fallbaráttuliði Xerez í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Barcelona vann leikinn 2-0 með marki frá Thierry Henry í upphafi seinni hálfleiks og marki frá Zlatan Ibrahimovic í uppbótartíma. 3.12.2009 10:15
Mark Hughes: Arsene Wenger kann ekki að tapa Mark Hughes, stjóri Manchester City, var ekkert alltof sáttur með Arsene Wenger, stjóra Arsenal eftir að sá síðarnefndi neitaði að taka í höndina á honum eftir 3-0 sigur City á Arsenal í átta liða úrslitum enska deildarbikarsins í gær. 3.12.2009 09:45
Blackburn vann Chelsea eftir vítaspyrnukeppni Blackburn varð seint í kvöld síðasta liðið til þess að komast í undanúrslit enska deildabikarsins. Liðið lagði þá Chelsea í hörkuleik en vítaspyrnukeppni þurfti til að fá sigurvegara í leiknum. 2.12.2009 22:48
Wenger neitaði að taka í hendina á Hughes Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var ekki í neinu jólaskapi eftir að hans menn höfðu tapað gegn Man. City í átta liða úrslitum enska deildabikarsins í kvöld. 2.12.2009 22:14
Manchesterliðin mætast í undanúrslitum Það er búið að draga í undanúrslit enska deildabikarsins þó ekki sé enn ljóst hvaða lið verða þar. 2.12.2009 22:10
Man. City sló út Arsenal Manchester City varð í kvöld þriðja liðið til þess að tryggja sig inn í undanúrslitin í enska deildabikarnum. 2.12.2009 21:39
Robinho væri fínn í sirkus Þjóðverjinn Franz Benckenbauer er ekki beint þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum og hann hefur viðrað þær aðeins fyrir HM-dráttinn í Suður-Afríku. 2.12.2009 20:45
Drogba vonast eftir léttari riðli en á síðasta HM Didier Drogba, framherji Chelsea og Fílabeinsstrandarinn vonast til þess að Fílabeinsströndin verði heppnari með riðli en á HM í Þýskalandi 2006. Fílabeinsströndin lenti þá í riðli með Argentínu, Hollandi og Serbíu/Svartfjallalandi. 2.12.2009 20:00
Henry gæti byrjað HM í leikbanni Máli franska landsliðsmannsins Thierry Henry er hvergi nærri lokið en nýjasta nýtt er að FIFA íhugar að setja hann í bann í upphafi HM vegna handarinnar frægu gegn Írum. 2.12.2009 19:19
Ferguson sér eftir því að hafa sleppt enska bikarnum árið 2000 Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur viðurkennt að hann sjái eftir því að hafa dregið lið sitt út úr ensku bikarkeppninni fyrir tíu árum síðan. Manchester United var ekki með í ensku bikarkeppninni 1999-2000 þar sem félagið valdi frekar að taka þá í Heimsmeistarakeppni félagsliða sem fram fór í Brasilíu. 2.12.2009 17:45
Klinsmann tjáir sig ekkert um Liverpool Jurgen Klinsmann hefur ekkert viljað tjáð sig um það hvort hann sé að fara taka við Liverpool-liðinu næsta sumar af Rafa Benitez en menn hafa verið að velta því upp í enskum fjölmiðlum. 2.12.2009 17:00
Gana vill að Balotelli spili með þeim á HM Milovan Rajevac, þjálfari landsliðs Gana, vonast til þess að geta sannfært Mario Balotelli hjá Inter Milan um að spila með landsliði Gana á HM í Suður-Afríku næsta sumar. 2.12.2009 16:30
Brandararnir hans Ancelotti slá í gegn hjá Chelsea Ray Wilkins, aðstoðarknattspyrnustjóri Carlo Ancelotti hjá Chelsea segir að góður húmor Ítalans hafi hjálpað honum mikið til að komast inn í hlutina hjá enska félaginu. Chelsea hefur aðeins tapað 2 af 21 leik undir stjórn Ancelotti og er sem stendur með fimm stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. 2.12.2009 16:00
Keflvíkingar spila heimaleikina í Njarðvík næsta sumar Keflvíkingar þurfa að spila fyrstu heimaleiki sína í Pepsi-deild karla næsta sumar á heimavelli nágranna sinna í Njarðvík. Þetta kemur fram á vefsíðunni fotbolti.net. 2.12.2009 15:30
Lippi: Messi, Ronaldo og Zlatan kæmust ekki í HM-lið Ítala Marcello Lippi, þjálfari ítalska landsliðsins, segir það að hafa súperstjörnur eins Lionel Messi og Cristiano Ronaldo skili sér ekki alltaf í góðum árangri liða. Hann segist frekar hafa samheldan hóp en einhverja af bestu leikmönnum heims. 2.12.2009 15:00
Macheda hjá United til 2014 Ítalinn Federico Macheda hefur framlengt samning sinn við Manchester United til loka tímabilsins 2014. 2.12.2009 13:30
Þórunn Helga bikarmeistari í Brasilíu annað árið í röð Þórunn Helga Jónsdóttir varð í nótt bikarmeistari í Brasilíu annað árið í röð eftir 3-0 sigur Santos á Botucatu í úrslitaleiknum sem fram fór á Estádio Paulo Machado í Carvalho. Marta skoraði tvö mörk fyrir Santos og Cristiane kom Santos í 2-0. Þórunn Helga kom inn á sem varamaður í leiknum. 2.12.2009 12:00
Ferguson: Stjörnur leiksins voru Gibson og Anderson Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, var ánægður með unga miðjumanninn sinn Darron Gibson eftir að hann skoraði bæði mörk United-liðsins í 2-0 sigri á Tottenham í átta liða úrslitum enska deildarbikarins í gær. Gibson átti mjög góðan leik eins og Anderson sem lék við hlið hans. 2.12.2009 11:30
Wenger ætlar að kaupa framherja í janúarglugganum Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur gefið það út að hann ætli að kaupa framherja til liðsins þegar félagsskiptaglugginn opnar í janúar en hann leggur jafnframt áherslu á það að hann ætli ekki að láta þvinga sig til að borga svimandi háa upphæð fyrir nýjan leikmann þótt að nauðsyn sé að bæta við sóknarmann í meiðslahrjáða framlínu liðsins. 2.12.2009 11:00
Englendingar í efsta styrkleikaflokki í HM-drættinum Alþjóðaknattspyrnusambandið hefur gefið það út að enska landsliðið verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla í úrslitakeppni HM á föstudaginn. 2.12.2009 10:00
Ármann skoraði fyrir Hartlepool Ármann Smári Björnsson opnaði markareikning sinn hjá enska liðinu Hartlepool í kvöld er liðið tapaði fyrir Carlisle, 3-2. 1.12.2009 23:09
Stefán Eggertsson í Val frá HK Gunnlaugur Jónsson, þjálfari Vals, nældi sér í bakvörð í dag er Stefán Eggertsson skrifaði undir tveggja ára samning við Valsmenn. 1.12.2009 22:56
Gibson: Þurfum ekki að sanna neitt Hetja Man. Utd í kvöld, Darron Gibson, segir að kjúklingarnir í liði Man. Utd hafi ekki þurft að sanna neitt fyrir neinum þegar þeir stigu út á völlinn í kvöld gegn Tottenham. 1.12.2009 22:44
Gibson skaut United í undanúrslit Miðjumaðurinn Darron Gibson sá til þess í kvöld að Manchester United komst í undanúrslit ensku deildarbikarkeppninnar. 1.12.2009 21:52
Villa komið í undanúrslit Aston Villa er komið í undanúrslit ensku deildarbikarkeppninnar eftir glæsilegan útisigur á Portsmouth, 2-4. 1.12.2009 21:38
Mancini stýrir hugsanlega Nígeríu á HM Ítalinn Roberto Mancini er nú sterklega orðaður við landsliðsþjálfarastarfið hjá Nígeríu fyrir HM sem fram fer næsta sumar. 1.12.2009 21:15
Carrick ánægður hjá United Miðjumaðurinn Michael Carrick segist vera ánægður með lífið á Old Trafford þó svo hann fái ekki alltaf að spila eins mikið og hann eflaust vildi sjálfur. 1.12.2009 20:45
Andrey Arshavin: Ennþá í sjokki eftir HM-klúðrið Andrey Arshavin hjá Arsenal hefur viðurkennt að hann sé ekki enn kominn yfir það að rússneska landsliðinu hafi mistekist að komast á HM í Suður-Afríku. Rússar duttu úr leik eftir 1-0 tap á móti Slóveníu í seinni umspilsleiknum og töpuðu einvíginu á færri mörkum á útivelli. 1.12.2009 19:30
Charlize Theron í aðalhlutverki á HM-drættinum Suður-afríska leikkonan og Óskarsverðlaunahafinn Charlize Theron verður í aðalhlutverki í Höfðaborg á föstudaginn þegar dregið verður í riðla í úrslitakeppni HM í Suður-Afríku sem fer fram næsta sumar. 1.12.2009 18:45
Ancelotti heldur mest upp á Elton John Carlo Ancelotti, stjóri toppliðs Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, var mjög kátur með að dragast á móti Watford í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar en dregið var um helgina. 1.12.2009 18:00
Jordao Diogo búinn að framlengja hjá KR Portúgalski bakvörðurinn Jordao Diogo hefur gert nýjan samning við KR sem gildir út leiktíðina 2011 eða næstu tvö tímabil. Jordao Diogo hefur verið í herbúðum KR-inga síðan sumarið 2008 og hefur spilað 31 leik fyrir Vesturbæjarliðið í úrvalsdeild karla. 1.12.2009 16:29
Maður handtekinn fyrir kynþáttarníð gegn móður Darren Bent Darren Bent setti það inn á twitter-síðuna sína að mamma hans hafi orðið fyrir kynþáttarníð af einum stuðningsmanna Sunderland eftir 1-0 tap liðsins á móti Wigan á síðasta laugardag. 1.12.2009 16:15
Írland fær ekki að verða 33. þjóðin á HM Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur gefið það út að Írland fái ekki að vera 33. þjóðin á HM í Suður-Afríku næsta sumar eins og írska knattspyrnusambandið bað um sem lausn á deilunum vegna svindlmarks Frakka í umspilsleik þjóðanna á dögunum. 1.12.2009 14:45
Fimm á ferðinni í Frakklandi á fimmtudag Fimm íslenskir dómarar munu sjá um dómgæsluna í leik Toulouse frá Frakklandi og Partizan Belgrad frá Serbíu sem fram fer í Evrópudeildinni á fimmtudaginn. Kristinn Jakobsson dæmir leikinn. 1.12.2009 14:15
Kalou vonar að Fílabeinsströndin lendi með Englandi í riðli Salomon Kalou framherji Chelsea og landsliðs Fílabeinsstrandarinnar á sína óskamótherja þegar verður dregið í riðla í úrslitakeppni HM í Suður-Afríku seinna í þessum mánuði. Hann vill mæta Englendingum. 1.12.2009 13:45
Ferguson heimtar að blaðamaður The Independent verði rekinn Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er allt annað en sáttur með blaðamann The Independent sem gagnrýndi harðlega ungu strákana hans fyrir frammistöðuna í heimatapinu á móti Besiktas í Meistaradeildinni í síðustu viku. 1.12.2009 13:15
Umboðsmennirnir fengu 70 milljónir punda í sinn vasa Umboðsmenn knattspyrnumanna í ensku úrvalsdeildinni græddu 70 milljónir punda eða rúma fjórtán milljarða íslenskra króna á félagsskiptum leikmanna í janúar og í sumar. 1.12.2009 12:15
FIFA íhugar að refsa Thierry Henry fyrir höndina frægu Thierry Henry er ekki sloppinn þrátt fyrir að hafa beðist formlega afsökunar á því að hafa notað höndina þegar hann lagði upp jöfnunarmarkið mikilvæga fyrir Frakka í umspilsleik við Íra um sæti á HM í Suður-Afríku næsta sumar. 1.12.2009 11:45
Stelpurnar okkar fengu háttvísiverðlaun fyrir EM í Finnlandi Íslenska kvennalandsliðið fékk háttvísiverðlaunin á EM í Finnlandi í sumar. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari veitir verðlaununum viðtöku í Nyon í Sviss í dag í tengslum við ráðstefnu fyrir landsliðsþjálfara A landsliða kvenna í Evrópu og fræðslustjóra aðildarlanda UEFA. 1.12.2009 11:15
Lampard: Chelsea er með bestu framherjana í heimi Frank Lampard, enski landsliðsmiðjumaðurinn hjá toppliði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, er ánægður með sóknarmennina sína hjá Chelsea, þá Didier Drogba og Nicolas Anelka. Þeir Drogba og Anelka hafa skorað saman 20 mörk í Meistaradeildinni og ensku úrvalsdeildinni. 1.12.2009 10:45
Lionel Messi hlýtur Gullbolta France Football í ár Argentínumaðurinn Lionel Messi hjá Barcelona hefur verið kosinn besti knattspyrnumaður Evrópu árið 2009 og hlýtur að launum hinn eftirsótta gullbolta. Það er franska blaðið France Football sem stendur fyrir valinu með evrópska fótboltafjölmiðlamanna. 1.12.2009 10:15