Fleiri fréttir

Miklar vangaveltur um markvarðastöðu Skota

Það eru ekki einungis vangaveltur um hver muni verja mark Íslands í leiknum gegn Skotum í Glasgow á morgun heldur eru heimamenn efins um að Allan McGregor sé tilbúinn í verkefnið.

Eggert: Þetta er bara fótboltaleikur

Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður skoska úrvalsdeildarfélagsins Hearts, sagðist vitanlega spenntur fyrir leiknum gegn Skotum á Hampden Park í Glasgow á morgun.

Theodór Elmar: Vil sanna mig á Hampden

Theodór Elmar Bjarnason vill ólmur sýna sig og sanna fyrir skoskum áhorfendum þegar íslenska landsliðið mætir því skoska á Hampden Park í Glasgow á morgun.

Hermann: Hvað er að heyra í þér?

Hermann Hreiðarsson skaut föstum skotum á Eggert Gunnþór Jónsson, liðsfélaga sinn í íslenska landsliðinu, á blaðamannafundi liðsins nú í kvöld.

Iwelumo vill sanna sig gegn Íslandi

Chris Iwelumo, leikmaður Wolves og skoska landsliðsins, vill ólmur fá tækifæri til að sanna sig í skoska landsliðsbúningnum er liðið mætir því íslenska á Hampden Park á morgun.

Burley sá óöruggasti í starfi

Samkvæmt veðmálafyrirtækjum í Bretlandi þykir George Burley, landsliðsþjálfari Skota, óöruggastur í starfi af þeim landsliðsþjálfurum sem starfa á Bretlandseyjum.

Terry Butcher: Verðum að vera klókari

Terry Butcher, aðstoðarlandsliðsþjálfari Skota, sagði að Hollendingar hafi verið mun klókari á vellinum í leiknum gegn Skotum um helgina. Þeir þurfi nú að vera klókari aðilinn gegn Íslandi á morgun.

McManus og Hutton klárir í slaginn

Þeir Stephen McManus, fyrirliði Celtic, og Alan Hutton, varnarmaður Tottenham, eru sagðir klárir í slaginn fyrir leik Skota og Íslendinga á morgun.

Di Canio: Guttarnir hafa það of gott

Ítalska knattspyrnugoðsögnin Paulo di Canio sem áður lék m.a. með West Ham á Englandi, segir að ungir knattspyrnumenn í dag hafi það allt of gott.

Diaby á meiðslalistann

Miðjumaðurinn Abou Diaby hjá Arsenal er nýjasta nafnið á sjúkralistanum hjá félaginu eftir að hafa meiðst á mjöðm. Diaby verður fyrir vikið ekki með franska landsliðinu gegn Litháen annað kvöld.

Hutton vill halda McGregor í markinu

Alan Hutton, leikmaður Tottenham og skoska landsliðsins, vill að Allan McGregor, fyrrum liðsfélagi sinn hjá Rangers, haldi sæti sínu í marki Skota. McGregor stóð vaktina í marki Skota gegn Hollendingum ytra um helgina og fékk á sig þrjú mörk.

Capello: Leikmenn mínir óttast ekkert

Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, hefur trú á því að leikmenn landsliðsins séu loksins farnir að leika eins vel fyrir landsliðið og þeir gera með félagsliðum sínum.

Romario vill fá Ronaldo aftur í landsliðið

Brasilíumaðurinn Romario hefur hafið baráttu fyrir því að Ronaldo fái aftur tækifæri með brasilíska landsliðinu en hinn 32 ára framherji hefur komið til baka eftir erfið meiðsli.

Framherjaálög á enska landsliðinu - Bent meiddist

Enska landsliðið er búið að missa enn einn framherjann í meiðsli eftir að ljóst var að Darren Bent getur ekki tekið þátt í leiknum á móti Úkraínu í undankeppni HM á morgun. Fabio Capello, þjálfari enska landsliðsins, hefur valið Gabriel Agbonlahor í hans stað.

Drillo kemur í Laugardalinn í haust

Norska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að Egil „Drillo" Olsen muni stjórna norska fótboltalandsliðinu út undankeppni HM í Suður-Afríku en Norðmenn eru eins og kunnugt með Íslendingum í riðli.

Fabregas: Ég talaði við forseta Real Madrid

Cesc Fabregas, ein aðalstjarna enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal, viðurkenndi í spænska blaðinu El Mundo, að hann hafi á dögunum rætt við Ramon Calderon, forseta Real Madrid í síma.

Gabriel Agbonlahor fær stuðning frá Luke Young

Markaleysi Gabriel Agbonlahor, framherja Aston Villa, hefur verið í umræðunni að undanförnu enda hefur Agbonlahor aðeins skorað eitt mark í síðustu sextán leikjum með Villa.

Fernando Torres: Það vilja allir vinna Evrópumeistarana

Spánverjar geta unnið sinn sjötta leik í sex leikjum undankeppni HM þegar þeir heimsækja Tyrki til Istanbúl á morgun. Liðin mættust einnig um síðustu helgi á Spáni og þar unnu Evrópumeistararnir nauman 1-0 sigur.

Lennon átti skilið að vera í liðinu

Baráttan um hægri vængstöðuna hjá enska landsliðinu er mikil en David Beckham vonast til þess að komast í byrjunarliðið á miðvikudag. Hann viðurkennir einnig að Aaron Lennon hefði átt skilið að byrja um helgina.

Rooney að verða faðir

Wayne Rooney hefur greint frá því að hann sé að verða faðir. Eiginkona Rooneys, Coleen McLoughlin, er komin þrjá mánuði á leið og parið að springa úr hamingju.

Beckham er launahæstur

Fótboltatímaritið France Football hefur birt árlegan lista sinn yfir þá knattspyrnumenn sem hafa hæstu launin. Það eru sem fyrr kunnugleg nöfn á listanum en efstur á listanum er David Beckham.

Cannavaro opinn fyrir öllu

Ítalinn Fabio Cannavaro mun hætta að spila með Real Madrid í sumar og það er ekki klárt að hann fari strax til Ítalíu eins og búist var við.

Rooney horfir eingöngu fram á veginn

Wayne Rooney sýndi um helgina að hann er ekki mikið í því að velta sér úr fortíðinni. Hann ýtti vandræðaleiknum gegn Fulham til hliðar og fór á kostum með enska landsliðinu.

Helmingslíkur á að Emil spili

„Emil er sá eini sem á við einhver meiðsli að stríða, aðrir eru klárir í slaginn. Það er of snemmt að segja til um það hvort hann spili en það eru svona helmingslíkur á því í dag," sagði Pétur Pétursson, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins í knattspyrnu við Vísi í dag.

Brasilíumenn orðnir jafntefliskóngar í Suður-Ameríku

Undankeppni HM 2010 ætlar að reynast Brasilíumönnum erfiðari en oft áður. Eftir enn eitt jafnteflið um helgina þá er brasilíska landsliðið komið niður í 4. sæti í Suður-Ameríku riðlinum með 18 stig úr 11 leikjum.

Lampard: Við þurftum á Capello að halda

Frank Lampard er ánægður með Fabio Capello í brúnni hjá enska landsliðinu en Englendingar hafa unnið alla leiki sína í undankeppni HM síðan að Ítalinn tók við landsliðinu.

Hafa ekki tapað heimaleik í HM í tæp 52 ár

Rússar unnu um helgina 2-0 sigur á Aserbaídjan í Moskvu í undankeppni HM 2010 og náði því einstökum árangri því þetta var 50. heimaleikurinn í röð sem Sovétmenn eða Rússar spila í undankeppni HM án þess að tapa.

Schalke vill fá Slaven Bilic sem þjálfara

Forráðamenn þýska úrvalsdeildarliðsins Schalke 04 ætla að reyna að fá Slaven Bilic til þess að stjórna liðinu út tímabilið en þýska liðið rak þjálfara sinn Fred Rutten fyrir stuttu og leitar nú að nýjum manni í hans stað.

Skotar æfa föstu leikatriðin fyrir Íslandsleikinn

Meiðslalistinn hjá Skotum gæti verið að styttast ef marka má fréttir úr herbúðum skoska landsliðsins. Aðstoðarlandsliðsþjálfarinn Terry Butcher staðfesti það við fréttamenn að Stephen McManus og Alan Hutton gætu báðir byrjað á móti Íslandi á miðvikudaginn.

Sjá næstu 50 fréttir