Shevchenko: Ætlar að skora sitt 40. landsliðsmark á Wembley Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. mars 2009 14:30 Andriy Shevchenko hefur ekki fengið mörg tækifæri með AC MIlan í vetur. Mynd/GettyImages
Andriy Shevchenko bíður spenntur eftir landsleik Úkraínumanna og Englendinga á Wembley á miðvikudaginn. „Mig dreymir um að skora mitt fertugasta landsliðsmark á Wembley og að það mark hjálpi okkur til að komast áfram," sagði Andriy Shevchenko sem hefur skorað 39 mörk í 85 landsleikjum með Úkraínu. England er með fimm stiga forskot á Úkraínu fyrir leikinn en Úkraína á leik inni og er því í ágætum málum nái liðið góðum úrslitum í London. Andriy Shevchenko ætlar sér örugglega að sýna sig og sanna og það má búast við að það verði margir stuðningsmenn Chelsea í stúkunni sem sáu hann aðeins skora 9 mörk í 47 leikjum fyrir Chelsea. Hinn 32 ára gamli framherji hefur aðeins fengið að byrja inn á í tveimur leikjum síðan að hann snéri aftur til AC Milan í haust. „Landsliðið gefur mér tækifæri að gera það sem ég elska sem er að spila fótbolta. Það er samt ekki auðvelt fyrir landsliðsþjálfarann að velja leikmann í liðið sem er ekki að spila reglulega fyrir sitt félagslið," viðurkennir Shevchenko. „Þetta er stór leikur fyrir okkur. Við vitum að England er eitt af sterkustu liðunum og við vonumst til að geta náð góðum úrslitum. Við erum með ungt lið sem getur vaxið og dafnað," segir Andriy Shevchenko sem ætlar að miðla reynslu sinni til liðsins. „Ég stefni á að spila í annarri heimsmeistarakeppni, þessi leikur er mikilvægur en lykilleikurinn fyrir okkar er á móti Króötum í júní," sagði Shevchenko. Þetta verður fyrsti leikur hans á nýja Wembley því hann var meiddur þegar Chelsea spilaði þar á sínum tíma.
Mest lesið Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Fótbolti Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Fótbolti „Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Fótbolti Fleiri fréttir JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn „Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Infantino hættir við allt saman Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Arnór Gauti fékk sínar fyrstu mínútur í Króatíu „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Eru of fáar konur að starfa fyrir karlalið í knattspyrnu? Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Real Madrid klófestir besta unga leikmann spænsku deildarinnar Þór sækir fyrirliða frá Spáni Leikbanni Mudryk aflétt Slot á leið til Sádi-Arabíu? Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Kallar eftir bættum starfsháttum hjá FIFA: „Mikil samstaða“ Sjáðu Tryggva stíga trylltan dans, vítakeppni Stjörnunnar og mark Vestra Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Frá Keflavík og beint á Parken: „Draumur flestra ungra stráka“ „Mig dreymdi alla daga um að spila með Messi“ Asíuþjóðirnar taka undir áhyggjur af áætlunum FIFA Palmer steinsvaf meðan enska landsliðið spilaði á HM Franco Baresi er látinn FIFA heldur settri stefnu Lítið af möguleikum fyrir Liverpool í vörninni Stones skrifar undir hjá ítölsku meisturunum Leikmenn sem gerast sekir um mismunun fá tíu leikja bann Sjá meira