Fótbolti

Lampard: Við þurftum á Capello að halda

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Frank Lampard er mjög ánægður með Fabio Capello.
Frank Lampard er mjög ánægður með Fabio Capello. Mynd/GettyImages

Frank Lampard er ánægður með Fabio Capello í brúnni hjá enska landsliðinu en Englendingar hafa unnið alla leiki sína í undankeppni HM síðan að Ítalinn tók við landsliðinu. Framundan er heimaleikur á móti Úkraínu á miðvikudaginn.

„Þegar ég lít til baka þá sé ég að Fabio Capello var einmitt það sem við þurftum. Ein af aðalástæðunum á bak við það er að hann gerir það honum sýnist og lætur engan trufla sig," segir Lampard.

„Hann fer þetta á reynslunni og velur hvern einasta hóp út frá því hvernig menn eru að spila með félagsliðunum á hverjum tíma," segir Frank Lampard.

„Það mjög mikilvægt að allir leikmenn átti sig á þessu, Það aldrei neinn vafi á því hvernig hlutirnir eiga að vera og það mjög sterk ára í kringum hann," segir Lampard.

Lampard líkir karakter Capello við þann sem Jose Mourinho hefur en báðir hafi þeir mikið sjálfstraust að hans mati.

Lampard segir það vera mikilvægan eiginlega þegar fréttamenn og þjóðin eru að reyna að hafa áhrif á það hvernig hann stjórnar enska landsliðinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×