Fabregas: Ég talaði við forseta Real Madrid Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2009 11:00 Cesc Fabregas er eftirsóttur leikmaður og spænsku stórliðin vilja bæði fá hann. Mynd/GettyImages
Cesc Fabregas, ein aðalstjarna enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal, viðurkenndi í spænska blaðinu El Mundo, að hann hafi á dögunum rætt við Ramon Calderon, forseta Real Madrid í síma. Það hefur margt breyst síðan að Cesc Fabregas yfirgaf unglingalið Barcelona og kom til Arsenal þar sem hann hefur blómstrað og orðið einn af bestu miðjumönnum í Evrópu. Hann tók við fyrirliðabandinu hjá Arsenal fyrr í vetur. „Það er rétt að forseti Real Madrid hringdi í mig og við töluðum saman í síma. Ég lofaði honum aldrei að ég ætlaði að semja við Real og hann var bara að kanna stöðuna á mér," sagði Fabregas sem hefur glímt við erfið meiðsli í vetur. Hann meiddist á hné í leik á móti Liverpool og hefur verið frá í nokkra mánuði. „Ég hef ekki gefið neinum liðum undir fótinn að ég ætli að semja við þau. Það sama á að gilda um alla sem koma fram fyrir mína hönd. Ég stend við mitt og ég hef aldrei gefið neitt í skyn um að ég ætli að yfirgefa Arsenal," sagði Cesc Fabregas í umræddu viðtali við El Mundo. „Það er mikill heiður að vita að því að tvö af stærstu fótboltaliðum heims hafi áhuga á manni en ég er leikmaður Arsenal og er með samning við félagið til ársins 2014," sagði Fabregas en auk áhuga frá Real Madrid þá vilja forráðamenn Barcelona ólmir fá spænska landsliðsmanninn aftur til sín.
Mest lesið Elsti maraþonhlaupari sögunnar varð fyrir bíl og lést Sport Totti í harðri forræðisdeilu um fjögur Rolex úr Fótbolti „Það var engin taktík“ Fótbolti Trump fékk alvöru bikarinn en Chelsea aðeins eftirlíkingu Fótbolti „Labbar ekki inn í líkamsrækt og byrjar að sprauta í þig sterum“ Sport Endaði á sjúkrahúsi eftir árás frá kú Sport Raggi Nat á Nesið Körfubolti Toone með sögulega fullkomna tölfræði Fótbolti Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Körfubolti Dagskráin í dag: Blikar berjast fyrir lífi sínu í Meistaradeildinni Sport Fleiri fréttir Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Sjá meira