Enski boltinn

Diaby á meiðslalistann

Nordic Photos / Getty Images

Miðjumaðurinn Abou Diaby hjá Arsenal er nýjasta nafnið á sjúkralistanum hjá félaginu eftir að hafa meiðst á mjöðm. Diaby verður fyrir vikið ekki með franska landsliðinu gegn Litháen annað kvöld.

Sóknarmennirnir Theo Walcott og Robin Van Persie eru þegar komnir á meiðslalistann hjá Arsenal, en hann lengist með hverjum deginum.

Þannig sneri Daninn Nicklas Bendtner til baka til Lundúna eftir að hafa meiðst með danska landsliðinu í leik gegn Albaníu á laugardaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×