Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hræðileg mistök Lehman kostuðu Arsenal sigur Arsenal og Blackburn voru rétt í þessu að gera 1-1 jafntefli á Ewood Park. Robin Van Persie kom Arsenal yfir með góðu marki á 18. mínútu en David Dunn jafnaði í seinni hálfleik eftir að Jens Lehman hafði misst skot hans í markið. Þetta eru önnur mistök Lehman á tímabilinu sem kosta Arsenal mark. 19.8.2007 14:25
Erikson sá við Ferguson - United enn án sigurs Nú var að ljúka leik Man City og Man United. City vann leikinn 1-0 með marki frá Geovanni. United er því enn án sigurs eftir þrjá leiki í Úrvalsdeildinni. Bein textalýsing var á leiknum hér á Vísi 19.8.2007 12:03
Veigar Páll með tvö mörk Veigar Páll Gunnarsson skoraði bæði mörk Stabæk í 2-2 jafntefli liðsins við Stromgodset í norsku úrvaldeildinni í dag og átti stórleik. Mörk Veigars komu bæði á fyrstu 30 mínútum leiksins og komu Stabæk í 2-0. Stromgodset náði hins vegar að jafna með góðum leik í seinni hálfleik. 19.8.2007 15:53
Ekki með sína menn í hlaupum og leiðindum Fyrsta tímabil HK í úrvalsdeild er afar sérstakt þar sem HK-liðið er fórnarlamb aðstæðna því þátttaka mótherja þeirra í Evrópukeppni og bikarkeppni hefur þýtt að færa leiki þeirra til. 19.8.2007 15:30
Línur farnar að skýrast Fjölnir vann 4-0 sigur á KA í 1. deild karla í gær og náði með því sex stiga forskoti á Fjarðabyggð í baráttunni um þriðja sætið og það síðasta sem gefur sæti í Landsbankadeild. 19.8.2007 15:00
Spilar í dag brákaður á tá Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, lætur ekki brákaða tá koma í veg fyrir að hann spil stórleikinn gegn Chelsea í dag. Gerrard meiddist í 1-0 sigri á franska liðinu Toulouse í forkeppni meistaradeildarinnar á miðvikudaginn. 19.8.2007 00:01
Umeå vann uppgjörið Umeå á sænska meistaratitilinn vísan þriðja árið í röð eftir 2-0 sigur á JdB Malmö í uppgjöri efstu liðanna í sænsku úrvalsdeildinni í knattsyrnu kvenna í gær. 19.8.2007 00:01
Valskonur flugu á toppinn Valur skoraði sjö mörk á tuttugu mínútna kafla í lok fyrri hálfleiks í 9-0 sigri á Keflavík í Landsbankadeild kvenna og komst fyrir vikið upp fyrir KR í toppsæti deildarinnar. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði sex mörk í leiknum. 19.8.2007 00:01
HK vann FH Lið HK/Víkings er komin með annan fótinn í úrslitakeppni deildarinnar eftir 4-0 sigur á FH í Kaplakrika í gær en karlalið félaganna mætast einmitt á Kópavogsvellinum í kvöld. 19.8.2007 00:01
Fyrsti risaslagur tímabilsins á Anfield Það fara fram þrír flottir fótboltaleikir í ensku úrvalsdeildinni í dag og þar á meðal er fyrsti risaslagur tímabilsins þegar Liverpool tekur á móti Chelsea á Anfield. 19.8.2007 00:01
Góðir sigrar Íslendingaliðanna í gær West Ham, Reading og Portsmouth unnu öll sína fyrstu sigra í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Wigan skellti Sunderland og fór óvænt upp í toppsætið. Tottenham vann sinn fyrsta sigur með stæl. 19.8.2007 00:01
Markalaust hjá Newcastle og Aston Villa Newcastle og Aston Villa gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn var frekar bragðdaufur en segja má að Aston Villa hafi verið sterkari aðillinn í leiknum. Newcastle er nú með fjögur stig en Aston Villa fékk sitt fyrsta stig í deildinni. 18.8.2007 16:30
Reading batt enda á sigurgöngu Everton Reading batt enda sigurgöngu Everton með því að leggja liðið að velli, 1-0, á heimavelli sínum í dag í ensku úrvalsdeildinni. Það var Stephen Hunt sem skoraði sigurmarkið rétt undir lok fyrri hálfleiks. Tottenham og Wigan unnu stórsigra og West Ham vann sinn fyrsta leik. Middlesbrough náði í sín fyrstu stig þegar liðið lagði Fulham að velli þar sem táningurinn Lee Cattermole skoraði sigurmarkið undir lok leiksins. 18.8.2007 13:45
Alan sáttur við stigin þrjú Alan Curbishley, knattspyrnustjóri West Ham, sagðist þokkalega sáttur með leik sinn manna í kvöld en liðið vann sinn fyrsta sigur í deildinni í ár með því að bera sigurorð af Birmingham. Curbishley sagði í lok leiks að sínir menn hefðu verið töluvert óöruggir til að byrja með 18.8.2007 20:59
Margrét Lára með sex mörk gegn Keflavík Valsstúlkur tóku stöllur sínar í Keflavík í bakaríið í Landsbankadeild kvenna í fótbolta í dag. Þegar uppi var staðið höfðu þær skorað níu mörk gegn engu marki Keflvíkurstúlkna sem sáu aldrei til sólar á heimavelli sínum í Reykjanesbæ. Margrét Lára Viðarsdóttir fór hamförum og skoraði sex mörk og þær Katrín Jónsdóttir, Nína Ósk Kristinsdóttir og Nína Björk Óðinsdóttir skoruðu eitt mark hver. Valsstúlkur eru á toppi deildarinnar með jafnmörg stig og KR en mun betri markatölu. 18.8.2007 16:41
Spáð í spilin: Newcastle v Aston Villa Newcastle tekur á móti Aston Villa á St. James' Park í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Newcastle vann auðveldan sigur á Bolton í 1. umferðinni en ASton Villa tapaði fyrir Liverpool á heimavelli. Leikurinn er sýndur í beinn útsendingu á Sýn 2 og hefst kl. 16.15. 18.8.2007 16:00
Við verjum að verjast betur Sammy Lee og lærisveinar hans í Bolton eru enn án stiga í ensku úrvalsdeildinni eftir 3-1 tap gegn Portsmouth í dag. Þrátt fyrir stigaleysið er Lee þó jákvæður en benti þó réttilega á að það væri erfitt að vinna leiki ef liðið héldi aldrei hreinu. 18.8.2007 15:01
Einn besti leikurinn undir minni stjórn Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, var himinlifandi með leik sinna manna í sigurleiknum gegn Bolton í dag og sagði leikinn einn þann besta sem liðið hefði spilað undir hans stjórn. 18.8.2007 14:44
Spáð í spilin: Birmingham v West Ham Birmingham tekur á móti West Ham á St. Andrews í ensku úrvalsdeildinni í dag. Birmingham er með eitt stig eftir tvo leiki en drengirnir hans Eggerts Magnússonar í West Ham er án stiga eftir tap gegn Manchester City í fyrstu umferðinni. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn 2 og hefst kl. 14. 18.8.2007 13:30
Spáð í spilin: Reading v Everton Reading, með Íslendingana Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson innanborðs, tekur á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Reading hefur nælt sér í eitt stig gegn tveimur bestu liðum deildarinnar, Manchester United og Chelsea, en Everton er með fullt hús stiga. Líklegt er að bæði Ívar og Brynjar Björn verði í byrjunarliði Reading. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn Extra. 18.8.2007 13:15
Joorabchian vill láta skoða Tevez-málið upp á nýtt Íranski athafnamaðurinn Kia Joorabchian, sem er umboðsmaður og eigandi Carlosar Tevez, vill láta skoða mál skjólstæðings síns ofan í kjölinn á nýjan leik þar sem hann segir margt óskýrt enn. Joorabchian segist vera tilbúinn til að borga allan kostnað sjálfur af nýrri rannsókn. 18.8.2007 13:06
Spáð í spilin: Fulham v Middlesbrough Fulham og Middlesbrough mætast í ensku úrvalsdeildinni í dag. Fulham vann mikilvægan sigur á Bolton í miðri viku en Middlesbrough hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn Extra 3 og hefst kl. 14. 18.8.2007 13:00
Spáð í spilin: Tottenham v Derby Tottenham og Derby eigast við í ensku úrvalsdeildinni í dag. Tottenham hefur byrjað tímabilið afar illa og tapað tveimur fyrstu leikjunum. Nýliðar Derby nældu sér hins vegar í stig í fyrstu umferðinni og virðast vera sprækir. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn Extra 2 og hefst kl. 14. 18.8.2007 12:45
Spáð í spilin: Wigan v Sunderland Roy Keane og lærisveinar hans í Sunderland sækja Wigan heim á JJB-leikvanginn. Nýliðar Sunderland eru enn taplausir í deildinni en Wigan er líka á góðu róli eftir sigur gegn Middlesbrough á miðvikudaginn. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn Extra 4 og hefst kl. 14. 18.8.2007 12:30
Öruggur sigur hjá Portsmouth Portsmouth bar sigurorð af Bolton, 3-1, í ensku úrvalsdeildinni í dag. Nwankwo Kanu, John Utaka og Matt Taylor skoruðu mörk Portsmouth eftir að Frakkinn Nicolas Anelka hafði komið Bolton yfir. Hermann Hreiðarsson spilaði allan leikinn fyrir Portsmouth en Heiðar Helguson spilaði síðustu sex mínútur leiksins. Portsmouth er komið með fimm stig en Bolton er enn án stiga. 18.8.2007 11:00
Bellamy kominn upp á kant við Curbishley Það tók vandræðagemlinginn Craig Bellamy aðeins mánuð að komast upp á kant við Alan Curbishley, knattspyrnustjóra West Ham. Bellamy reifst heiftarlega við Curbishley eftir tapleik liðsins gegn Manchester City um síðustu helgi og gæti þess vegna hafa spilað sinn síðasta leik fyrir félagið. 18.8.2007 09:54
Ferguson skýtur fast á Eriksson Það ríkir lítill kærleikur á milli knattspyrnustjóranna Alex Ferguson hjá Manchester united og Sven Görans Eriksson hjá Manchester City. Liðin mætast á morgun í ensku úrvalsdeildinni og hefur Ferguson þegar hafið sálfræðistríð gegn Svíanum. Hann segist búast við grófum leik af hendi Manchester City og að hann þekki aðeins tvo af þeim átta leikmönnum sem Eriksson keypti fyrir tímabilið. Ferguson og Eriksson háðu margan hildinn þegar Eriksson var landsliðsþjálfari Englands og rifust oft eins og hundur og köttur. 18.8.2007 09:52
Spáð í spilin: Portsmouth v Bolton Það verður sannkallaður Íslendingaslagur á Fratton Park nú eftir þegar Portsmouth, lið Hermanns Hreiðarssonar, tekur á móti Heiðari Helgusyni og félögum hans í Bolton. Ekki er búist við öðru en að þeir verði báðir í byrjunarliðum sinna félaga. Leikurinn hefst klukkan 11.45 og er í beinni útsendingu á Sýn 2. 18.8.2007 09:37
Torres hlakkar til leiksins gegn Chelsea Spænski framherjinn Fernando Torres hjá Liverpool getur ekki beðið eftir því að mæta Chelsea en liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Torres þykir hafa byrjað vel með Liverpool eftir að hann var keyptur frá Atletico Madrid fyrir 26 milljónir punda í sumar og segir leikinn gegn Chelsea á Anfield vera þann sem hann hafi hlakkað hvað mest til þegar hann skrifaði undir samning við Liverpool. 18.8.2007 09:02
Fram er ekki versta liðið í deildinni Sænski miðjumaðurinn Alexander Steen átti mjög góðan leik á miðju Fram í leiknum gegn Íslandsmeisturum Fram í fyrradag og er leikmaður umferðarinnar að mati Fréttablaðsins. Hann segir Fram vera með alltof gott lið til að falla úr Landsbankadeildinni og hefur fulla trú á að liðið nái að rétta úr kútnum í lokaumferðunum. 18.8.2007 09:00
Beckham er réttborinn fyrirliði Landon Donovan, bandaríski landsliðsmaðurinn og ein helsta stjarna bandarísku atvinnumannadeildarinnar, hefur fært sínum nýja liðsfélaga David Beckham fyrirliðaarmbandið sem hann hefur borið síðustu ár. 18.8.2007 08:15
Van Nistelrooy valinn á ný Ruud van Nistelrooy, framherji Real Madrid, hefur verið valinn í hollenska landsliðið á ný eftir að hafa verið úti í kuldanum frá því á HM í fyrra. 18.8.2007 08:15
Voru á botninum í 80 daga KR-ingar komu sér af botni Landsbankadeildar karla með því að vinna 1-0 sigur á Víkingum í Víkinni í fyrrakvöld. 18.8.2007 08:00
Hreifst af metnaði félagsins Kieron Dyer, nýjasti liðsmaður Íslendingaliðsins West Ham, segist hafa hrifist af gríðarlegum metnaði félagsins og að sá mikli vilji Eggerts Magnússonar og annarra forráðamanna þess um að koma liðinu í fremstu röð hafi ráðið mestu í ákvörðun sinni um að skrifa undir fjögurra ára samning við félagið. 18.8.2007 08:00
Markaveisla í leikjum Sýnar Sjónvarpsstöðin Sýn hefur þegar sýnt 21 leik í beinni útsendingu úr Landsbankadeild karla í sumar og flestir þeirra hafa verið miklir markaleikir og mikil skemmtun fyrir áhorfendur. 18.8.2007 07:45
Skiptir gríðarlega miklu máli fyrir HK Jón Þorgrímur Stefánsson skoraði sigurmark HK í 2-1 sigri á Keflavík í 13. umferð Landsbankadeildar karla og þessi 32 ára sóknarmaður og einn af reynsluboltunum í liði nýliðanna hefur átt mikinn þátt í öllum fjórum sigurleikjum liðsins í sumar. 18.8.2007 07:30
Vill að Ronaldo fái meiri vernd Fótbolti Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, vill að dómarar í ensku úrvalsdeildinni veiti Cristiano Ronaldo meiri vernd í návígjum. Ferguson vill meina að Ronaldo sé ávallt í umtalsverðri hættu á að hljóta alvarleg meiðsl. 18.8.2007 07:15
Campbell og James valdir Varnarmaðurinn Sol Campbell og markvörðurinn David James, gömlu kempurnar í liði Portsmouth, voru í gær valdir í enska landsliðið á nýjan leik. 18.8.2007 06:45
Situr ÍA-leikurinn í Keflavík? Það gengur ekkert hjá Keflvíkingum í fótboltanum þessa dagana og eftir 1-2 tap fyrir HK í Kópavogi blasir sú kalda staðreynd við liðinu að Keflavíkurliðið er komið niður í neðri hluta Landsbankadeildarinnar. 18.8.2007 06:15
Harpa með sigurmarkið í upphafi leiks Stjörnustúlkur unnu nauman 1-0 útisigur á Fjölnisstelpum í Landsbankadeild kvenna í Grafarvogi í gær en fyrir leikinn voru liðin jöfn í 5. sæti með tólf stig. 18.8.2007 06:15
Átta lið keppa um fimm sæti Riðlakeppni 3. deildar karla í knattspyrnu lýkur í dag en það er ljóst hvaða félög leika í úrslitakeppninni sem hefst laugardaginn 25. ágúst. 18.8.2007 06:00
Hermann og Heiðar mætast Hádegisleikurinn í ensku úvalsdeildinni í knattspyrnu verður Íslendingaslagur af bestu gerð en Hermann Hreiðarsson og Heiðar Helguson mætast þá í fyrsta sinn með sínum nýju félögum. 18.8.2007 06:00
Lítið að segja um Eið Smára Alan Curbishley, knattspyrnustjóri West Ham, tók undir ummæli Eggerts Magnússonar, stjórnarformanns síns, þegar hann var spurður um áhuga sinn á íslenska landsliðsfyrirliðanum Eiði Smára Guðjohnsen í gær. 18.8.2007 06:00
Nedved hafnaði Inter í sumar Tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved hefur greint frá því að hann hafnaði tilboði frá meisturum Inter Milan í sumar. Nedved er sem fyrr á mála hjá Juventus og spilað með liðinu í næstefstu deild á Ítalíu á síðustu leiktíð. 18.8.2007 05:45
Stjarnan og Breiðablik unnu Tveir leikir fóru fram í Landsbankadeild kvenna í fótbolta í kvöld. Breiðablik bar sigurorð af ÍR, 4-1. og Stjarnan vann Fjölni, 1-0, í Grafarvoginum. Breiðablik komst með sigrinum upp í þriðja sæti deildarinnar með 22 stig en Stjarnan er í fimmta sæti með 15 stig. Fjölnisstúlkur eru í sjötta sæti með tólf stig en ÍR í áttunda og næstneðsta sæti með fjögur stig. 17.8.2007 22:15
Uppgjörið: Skotland - Ísland 1-3 | Fyrsti sigur Arnars Bergmanns við stjörnvölinn hjá íslenska liðinu Fótbolti