Skiptir gríðarlega miklu máli fyrir HK 18. ágúst 2007 07:30 Jón Þorgrímur Stefánsson sést hér fagna marki sínu gegn KR. MYND/Valli
Jón Þorgrímur Stefánsson skoraði sigurmark HK í 2-1 sigri á Keflavík í 13. umferð Landsbankadeildar karla og þessi 32 ára sóknarmaður og einn af reynsluboltunum í liði nýliðanna hefur átt mikinn þátt í öllum fjórum sigurleikjum liðsins í sumar. HK hefur unnið fjóra leiki og skorað í þeim sjö mörk. Jón Þorgrímur hefur skorað fjögur af þessum sjö mörkum, þar af sigurmark í tveimur þeirra og fyrsta mark leiksins í hinum tveimur. Hann hefur einnig lagt upp tvö af hinum mörkunum og því komið að öllum mörkum HK í sigurleikjunum nema einu. Jón Þorgrímur er með 6,75 í meðaleinkunn hjá Fréttablaðinu í þessum fjórum sigurleikjum og hefur verið valinn maður leiksins í tveimur þeirra. Í hinum átta leikjum HK í Landsbankadeildinni hefur lítið gengið hjá HK og Jóni Þorgrími. HK hefur aðeins náð tveimur stigum í þeim og markatalan er skelfileg eða 4-19 í óhag. Jón Þorgrímur hefur spilað alla þessa leiki en náði hvorki að skora né leggja upp mark í þeim. Frammistaðan í einkunngjöf Fréttablaðsins í þessum leikjum er heldur ekki glæsileg en meðaleinkunn hans er aðeins 4,75. „Það var fyrst og fremst liðsheildin sem skóp sigurinn á móti Keflavík en það er bara þannig að sumir leikmenn hafa ákveðna þætti í sér sem gera gæfumuninn," segir Gunnar Guðmundsson, þjálfari HK sem er mjög ánægður með Jón Þorgrím. „Jónsi hefur það í sér að vera oft á tíðum réttur maður á réttum stað og hann er góður fótboltamaður. Hann hefur mikla þýðingu fyrir okkur og í þessum leikjum sem hafa skilað okkur stigum þá hefur hann verið að skora úrslitamarkið eða gefa lokasendingu fyrir mark. Hann skiptir gríðarlega miklu máli fyrir okkur," segir Gunnar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Handbolti Fleiri fréttir Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Sjá meira