Fleiri fréttir

Undrabarn skrifar undir hjá LIverpool

Liverpool hefur fengið til liðs við sig ungverska undrabarnið Peter Gulacsi. Gulacsi þessi er 17 ára markvörður og þykir einn sá allra efnilegasti í Evrópu. Hann kemur frá MTK Búdapest en það lið skrifaði undir samstarfssamning við Liverpool fyrr á árinu. Samningurinn kveður á um að Liverpool fái forkaupsrétt á efnilegum leikmönnum MTK sem á móti getur fengið leikmenn að láni frá Liverpool.

Glaumgosi kaupir QPR

Ítalski glaumgosinn Flavio Briatore mun ganga frá kaupum á hinu fornfræga knattapyrnuliði Queens Park Rangers á mánudaginn. Briatore mun greiða 22 milljónir punda fyrir klúbbinn og bjarga QPR frá yfirvofandi gjaldþroti.

Keypti 57 þúsund króna rauðvínsflösku fyrir Sir Alex

Sven Goran Erikson ætlar að bjóða Sir Alex Ferguson í rauðvín eftir leik erkióvinanna í United og City á sunudaginn. Erikson er þegar búinn að kaupa flösku fyrir tilefnið en það er 57 þúsund króna Cabernet Sauvignon flaska.

Dregið í aðra umferð deildarbikarsins í Englandi

Dregið var í aðra umferð deildarbikarsins í kvöld. Tólf úrvalsdeildarlið koma inn í keppnina núna, en engin úrvalsdeildarlið drógust þó saman. Áhugavert verður að fylgjast með leik Portsmouth og Leeds en eins og margir vita þá féll Leeds niður í þriðju efstu deild Englands síðastliðið vor. Íslendingaliðið West Ham heimsækir Bristol Rovers. Leikirnir verða spilaðir 27. ágúst.

KR komið úr botnsætinu

Fimm leikir fóru fram í Landsbankadeild karla í kvöld. Fjögur efstu liðin fyrir umferðina töpuðu stigum í kvöld en KR-ingar komu sér af botninum með sigri á Víkingum á meðan Fram náði jafntefli í Kaplakrikanum, en þar með er Fram á botni deildarinnar. Keflvíkingar eru dottnir niður í sjötta sætið en staða FH og Vals í toppbaráttunni er óbreytt.

Ármann Smári skoraði fyrir Brann í sigri á Suduva

Ármann Smári Björnsson skoraði fyrra mark Brann í 2-1 sigri á Suduvas í fyrrli leik liðanna í forkeppni Evrópukeppni félagsliða. Ármann skoraði markið á 24. mínútu leiksins. Robbie Winters bætti öðru marki við fyrir Brann áður en Jose Negreiros jafnaði leikinn fyrir Suduvas. Kristján Örn Sigurðsson og Ólafur Örn Bjarnason spiluðu allan leikinn fyrir Brann ásamt Ármanni Smára.

Curbishley ósáttur með ummæli Konchesky

Alan Curbishley, knattspyrnustjóri West Ham, íhugar málsókn gegn fyrrverandi leikmanni West Ham, Paul Konchesky. Konchesky, sem yfirgaf West Ham í sumar, gagnrýndi Curbishley harkalega í viðtali sem birtist um helgina. Konchesky gagnrýndi meðal annars stjórnunarhæfileika stjórans og sagði að West Ham kæmist ekkert áfram með Curbishley í brúnni.

Mido skrifar undir hjá Middlesbrough

Egypski framherjinn Mido hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Middlesbrough. Middlesbrough borgar Tottenham sex milljónir punda fyrir þennan 24 ára gamla leikmann. Mido gæti þreytt frumraun sína með félaginu gegn Fulham um helgina.

Valsmenn ætla á ölstofuna

Stuðningsmenn Vals ætla að fjölmenna á Ölstofuna fyrir leik sinna manna gegn Breiðablik í kvöld. Að sögn Breka Logasonar, félaga í stuðningsmannaklúbb Vals, er ætlunin að hrista hópinn saman, æfa nokkra söngva og gíra sig almennt upp fyrir leik kvöldsins. "Fyrstu 50 sem mæta fá frítt á völlinn," bætir Breki við sem er bjartýnn á góðan Valssigur í kvöld.

Logi segir alla leiki vera úrslitaleiki núna

Logi Ólafsson, þjálfari KR, segir að allir leikir KR-inga sem eftir eru í Landsbankadeildinni séu úrslitaleikir. KR vermir botnsæti deildarinnar með aðeins sjö stig eftir tólf leiki. KR heimsækir Víkinga í Víkina í kvöld.

Óli Kristjáns ætlar að kveða Valsgrýluna í kútinn

Valsmenn hafa ekki tapað fyrir Breiðablik á heimavelli í 26 ár. Þjálfari Breiðabliks, Ólafur Kristjánsson, lætur það ekki hræða sig og ætlar sínum mönnum sigur þegar liðin mætast á Laugardagsvelli í kvöld.

Hólmfríður, Helgi, Helena og Guðjón best

Hólmfríður Magnúsdóttir úr KR og Helgi Sigurðsson úr Val hafa verið valin bestu leikmennirnir úr 7.-12. umferðum Landsbankadeildarinnar. Helena Ólafsdóttir úr KR og Guðjón Þórðarson úr ÍA voru valin bestu þjálfararnir. Þá voru stuðningsmenn Vals valdir bestu stuðningsmenn í Landsbankadeild kvenna en stuðningsmenn KR í Landsbankadeild karla.

Steven Gerrard er tábrotinn

Forráðamenn Liverpool hafa staðfest að fyrirliði liðsins, Steven Gerrard, hafi tábrotnað í leiknum gegn Toulouse í gær. Gerrard þurfti að yfirgefa völlinn á 64. mínútu vegna meiðslanna og í læknisskoðun kom í ljós að táin væri brotin. Gerrard mun samt spila gegn Chelsea á sunnudaginn en mun svo hvíla í 2-3 vikur.

“Ég ætlaði ekki að fiska Ronaldo útaf

Leikmaðurinn sem Cristiano Ronaldo skallaði í gærkvöld, og fékk rautt spjald fyrir, hefur tjáð sig um atvikið. Richard Hughes segir það ekki hafa verið ætlun sína að fiska Ronaldo út af eins og Alex Ferguson gaf í skyn eftir leikinn í gær.

Dyer kominn til West Ham

West Ham hefur gengið frá kaupum á enska landsliðsmanninum Kieran Dyer frá Newcastle fyrir tæpar 7 milljónir punda. Talið var að kaupin yrðu að engu eftir að Newcastle snarhækkaði verðmat sitt á leikmanninum fyrir skömmu en liðin hafa nú náð samkomulagi um sanngjarnt verð fyrir Dyer.

Bellamy og Ljungberg vilja Eið Smára

Samkvæmt heimildum Vísis úr innsta hring knattspyrnuklúbbsins West Ham eru tveir af bestu leikmönnum liðsins, Craig Bellamy og Freddie Ljungberg, æstir í að fá Íslendinginn Eið Smára Guðjohnsen til liðsins. Þeir telja Eið kjörinn til að koma bitlausum sóknarleik liðsins í lag

Myndaveisla úr 2. umferð enska boltans

Vísir heldur áfram að safna saman bestu ljósmyndunum úr enska boltanum. Nú getur þú séð nokkrar af skemmtilegustu myndunum úr 2. umferð. Smelltu á myndaalbúmið hér fyrir neðan til að skoða myndirnar.

Ætla í mál við Eggert og Björgólf

Talsmaður Sheffield United tilkynnti áðan að liðið hyggist höfða skaðabótamál gegn West Ham og krefjist að Eggert, Björgólfur og félagar bæti þeim fjárhagstjónið sem Sheffield varð fyrir við það að falla niður um deild.

Enski: Öll mörk gærkvöldsins á Vísi

Fimm leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni i gærkvöld. Eins og við var að búast var skoraður fjöldinn allur af glæsilegum mörkum af öllum gerðum. Eins og venjulega getur þú séð öll mörkin hér á Vísi.

Video: Fyrsta mark Beckham fyrir Galaxy

David Beckham skoraði í gærkvöld fyrsta mark sitt fyrir Los Angeles Galaxy síðan hann kom til liðsins í sumar. Markið kom á 27.mínútu í leik liðsins við DC United í undanúrslitum bandarísku bikarkeppninnar.

Abramovich sagði nei

Roman Abramovich, eigandi Chelsea, hefur neitað að samþykkja kaup félagsins á brasilíska bakverðinum Daniel Alves frá Sevilla fyrir 24,5 milljónir punda. Hann hefur sent Peter Kenyon, yfirmanni knattspyrnumála hjá félaginu þau skilaboð að drífa sig aftur til Spánar og kaupa Alves fyrir lægra verð.

Drogba er leikmaður 2. umferðar í úrvalsdeildinni

Framherjinn frábæri Didier Drogba hjá Chelsea er leikmaður 2. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar að mati Vísis. Drogba kom inn í lið Chelsea eftir meiðsli gegn Reading í kvöld og átti stóran þátt í sigri síns liðs, 2-1. Drogba lagði upp fyrra mark Chelsea og skoraði það síðara með glæsilegu skoti.

Þróttur R. á topp 1. deildar

Þróttur R. komst í kvöld á topp fyrstu deildarinnar með góðum sigri á heimavelli gegn Víking Ó. Leikurinn var markalaus lengi vel áður en Hjörtur Hjartarson kom Þrótturum yfir á 83. mínútu og það var svo Adolf Sveinsson sem tryggði sigurinn á lokamínútum leiksins. Þróttarar eru því efstir í deildinni með 37 stig eftir 16 leiki en Grindavík er í öðru sæti með 35 stig eftir 15 leiki.

Arsenal sigraði örugglega í Tékklandi

Arsenal sigraði Sparta Prag örugglega í Tékklandi í kvöld með tveimur mörkum gegn engu í fyrri leik liðanna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Markalaust var í hálfleik en Cesc Fabregas og Alexander Hleb skoruðu í seinni hálfleik og tryggðu Arsenal dýrmætan útisigur.

Heiðar skoraði gegn sínum gömlu félögum

Heiðar Helguson nýtti tækifærið vel að vera í byrjunarliði Bolton í kvöld því að það tók hann aðeins 12 mínútur að koma sínu liði yfir. Mark Heiðars dugði þó ekki til sigurs því að Fulham svaraði með tveimur mörkum fyrir leikhlé og þar við sat. Heiðari var svo skipt út af á 72. mínútu fyrir Daniel Braaten.

Úrslit leikja úr ensku úrvalsdeildinni

Sex leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Manchester United náði aðeins jafntefli gegn Portsmouth á meðan erkifjendurnir í Chelsea sigruðu Reading eftir að hafa lent undir. Heiðar Helguson skoraði fyrir Bolton í tapleik gegn Fulham. Sunderland náði jafntefli gegn Birmingham með marki á síðustu andartökum leiksins.

Portsmouth náði jafntefli gegn Manchester Unied

Portsmouth náði jafntefli á heimavelli gegn Manchester United í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. United var einu marki yfir í hálfleik eftir að Paul Scholes skoraði fallegt mark á 15. mínútu. Benjamin Mwaruwari jafnaði leikinn fyrir Portsmouth á 53. mínútu. Cristiano Ronaldo og Sulley Muntari fengu rautt spjald í leiknum. Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn fyrir Portsmouth.

Carragher segir Liverpool eiga erfitt verkefni framundan

Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, segir að liðið eigi erfitt verkefni fyrir höndum þegar þeir spila seinni leikinn gegn Toulouse á Anfield. Liverpool vann í dag, 0-1. Útimarkið setur Liverpool í sterka stöðu fyrir seinni leikinn en Carragher segir verkið aðeins hálfnað.

Video: Fáránlegt mark í SuperLiga

Dwayne De Rosario, leikmaður Houston Dynamo, skoraði eitt fáránlegasta mark sem sést hefur í undanúrslitaleik SuperLiga, bandarísku bikarkeppninnar, á milli Pachucha og Houston Dynamo. Á einhvern furðulegan hátt tókst honum að sparka boltanum í andlitið á sér og þaðan í markið. Mark De Rosario var fyrsta mark leiksins sem endaði 2-2 og fór í vítaspyrnukeppni. Sjón er sögu ríkari. Sjáðu markið hér

Levante hafnar Luque vegna of hárra launakrafna

Spænska liðið Levante hefur slitið á allar samningsviðræður við framherjann Albert Luque hjá Newcastle vegna of hárra launakrafna leikmannsins. Luque dreymir um að komast frá Englandi áður en leikmannaglugginn lokar til að enda martröð sína hjá Newcastle, en framherjinn hefur ekki staðið undir væntingum síðan hann var keyptur til Newcastle.

CSKA Sofia fær metsekt í Búlgaríu

CSKA Sofia frá Búlgaríu hefur verið dæmt til að borga metsekt vegna óláta stuðningsmanna liðsins síðastliðinn laugardag í leik gegn Litex. Félagið þarf að borga 1,7 milljón krónur í sekt ásamt því að þurfa að spila næstu tvo heimaleiki fyrir luktum dyrum.

Bandaríkjadvölin hefur ekki áhrif á landsliðsferil Beckham

Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englands, segir að sú staðreynd að David Beckham skuli spila með LA Galaxy í Bandaríkjunum muni ekki hafa áhrif á stöðu hans í landsliðinu. McClaren flaug til Bandaríkjanna í síðustu viku til að til að ræða við Beckham um ástand hans og til að sjá leik í bandarísku deildinni með eigin augum.

Liverpool sigraði Toulouse

Nú rétt í þessu lauk fyrri leik Toulouse og Liverpool í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Leiknum lauk með 0-1 sigri Liverpool. Eina mark leiksins skorði Andriy Voronin með góðu skoti á 42. mínútu leiksins.

Yobo vill fá Yakubu

Varnarmaðurinn sterki, Joseph Yobo, vill fá Yakubu til liðs við Everton frá Middlesbrough. Everton hefur verið á eftir leikmanninum í nokkra stund núna og gert tilraunir til að fá sóknarmanninn sterka. Yobo segir Yakubu vera heimsklassaleikmann, en þeir eru saman í nígeríska landsliðinu.

Lampard með eigin sjónvarpsstöð

Miðjumaðurinn sterki hjá Chelsea, Frank Lampard, hefur skrifað undir samning við breska símafélagið Orange um stofnun Frank TV. Frank TV er sjónvarpsstöð, algjörlega helguð Lampard, sem viðskiptavinir Orange hafa einir aðgang að en þar verður sjónvarpað áður óséðu efni sem Lampard hefur verið að taka upp undanfarin tvö tímabil.

11 flottustu fótboltaeiginkonurnar

Í Englandi njóta konur kanttspyrnukappa litlu minni athygli en makarnir. Roy Keane knattspyrnustjóri Sunderland hefur gagnrýnt þetta harðlega og segir að enska úrvalsdeildin eigi að snúast um fótbolta, ekki flotta bíla og skemmtanalíf. Þó að við á Vísi séum þessu alveg sammála gátum við ekki setið á okkur og tókum því saman lista yfir ellefu flottustu konur knattspyrnukappa í enska boltanum.

JOLasveinn á botninum eftir 13 milljarða innkaup

Martin Jol hefur keypt leikmenn fyrir rúmlega 100 milljón pund, eða um 13 milljarða króna. Samt sem áður situr lið hans, Tottenham, í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 0 stig. Sjáðu 10 dýrustu leikmannakaup Martin Jol hér fyrir neðan.

McClaren grátbað Carragher um að snúa aftur

Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga, fór í gær á æfingasvæði Liverpool til að ræða við Jamie Carragher. Hann grátbað leikmanninn um að endurskoða ákvörðun sína um að gefa ekki kost á sér í landsliðið og sagði honum að byrjunarliðssæti væri víst í fjarveru John Terry. Carragher neitaði. Carragher lagði sem kunnugt er landsliðskóna á hilluna í fyrra og sagði því um að kenna að hann ætti ekki möguleika á byrjunarliðssæti.

Mörkin úr leik Tottenham og Everton

Eins og venjulega geta lesendur Vísis séð mörkin úr öllum leikjum ensku úrvalsdeildarinnar. Í gær léku Tottenham og Everton á White Hart Lane og lyktaði leiknum með 1-3 sigri Everton.

Spáð í spilin: Margir spennandi leikir í kvöld

Það eru ekki bara leikir Chelsea og Manchester United sem eru áhugaverðir í kvöld. Sýn býður upp á þrjá leiki til viðbótar sem verða án efa gríðarlega spennandi. Vísir renndi yfir liðin og skoðaði hvaða breytingar verða gerðar frá því um helgina.

Spáð í spilin: Reading - Chelsea

Það er alls óvíst hvort Michael Essien nái að verða heill fyrir leikinn í kvöld. Hann er tæpur á hné eftir samstuð í leiknum gegn Birmingham um helgina. Paulo Ferreira byrjaði að æfa aftur með liðinu í vikunni en Glen Johnson heldur þó líklega sæti sínu í einn leik í viðbót þrátt fyrir að bera ábyrgð á öðru marki Birmingham á sunnudaginn. Leikurinn er klukkan 18:55 og er sýndur í beinni á Sýn Extra.

Spáð í spilin: Portsmouth - Man Utd

Sol Campell og Pedro Mendes verða að standast skoðun hjá sjúkraþjálfara Portsmouth til þess að komast í hópinn gegn Manchester United í kvöld. Þeir eru báðir meiddir á nára. Hermann Hreiðarsson mun að öllum líkindum halda sínu sæti í byrjunarliðinu. Leikurinn hefst klukkan 18:35 og er í beinni á Sýn2

Chelsea búið að ná samkomulagi við Sevilla um Alves

Fjölmiðlar á Spáni halda því fram að Chelsea hafi náð samkomulagi við Sevilla um kaupverð á bakverðinum Daniel Alves. Greint er frá því að Peter Kenyon, stjórnarformaður Chelsea, hafi verið staddur í Madrid í vikunni til að ræða við forráðamenn Sevilla og náðst hafi samkomulag um að Chelsea myndi borga 25 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Everton sigraði Tottenham á White Hart Lane

Everton sigraði Tottenham í kvöld í fyrsta leik 2. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Everton átti sigurinn skilið en aðeins Paul Robinson kom í veg fyrir að sigurinn yrði stærri. Þar með er lið Tottenham búið að tapa báðum leikjum sínum í úrvalsdeildinni en Everton búið að vinna báða. Joleon Lescott, Leon Osman og Alan Stubbs skoruðu fyrir Everton en Ricardo Gardner skoraði mark Tottenham.

Sammy Lee biður um þolinmæði

Sammy Lee, knattspyrnustjóri Bolton, biður stuðningsmenn félagsins að sýna sér þolinmæði á meðan hann er að byggja upp liðið. Lee hefur fengið tólf nýja leikmenn til liðsins í sumar og segir hann að nýju leikmennirnir séu enn að aðlagast. Bolton tapaði fyrir Newcastle í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar á laugardaginn.

Sjá næstu 50 fréttir