Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Malouda genginn til liðs við Chelsea Enska knattspyrnuliðið Chelsea hefur fest kaup á franska landsliðsmanninum Florent Malouda frá franska félaginu Lyon. Chelsea skýrði frá þessu nú í morgun. Malouda, sem er kantmaður, skrifaði undir fjögurra ára samning við liðið og mun hitta nýja liðsfélaga sína síðar í dag í Los Angeles í Kaliforníu þar sem þeir eru nú í æfingaferð. 10.7.2007 08:29
Nítján bikarsigrar í röð Skagamenn hefja keppni í VISA-bikar karla í kvöld þegar þeir fá Víkinga í heimsókn upp á Skaga. Skagamenn ættu að mæta til leiks fullir bjartsýni enda er Guðjón Þórðarson í brúnni. Guðjón hefur stýrt liði til sigurs í 19 bikarleikjum í röð á Íslandi en hann lið að bikarmeisturum fjögur ár í röð frá 1993 til 1996. 10.7.2007 06:45
17 ára piltur settur til höfuðs Helga Hinn 17 ára gamli Eggert Rafn Einarsson mun væntanlega spila í stöðu miðvarðar við hlið Tryggva Bjarnasonar hjá KR gegn Val í VISA-bikarnum í kvöld en þá hefjast 16 liða úrslit keppninnar. Hann verður þannig settur til höfuðs Helga Sigurðssonar, heitasta sóknarmanns landsins um þessar mundir. 10.7.2007 06:00
Leikmenn fylgi boðorðum Laporta Joan Laporta, forseti Barcelona á Spáni, hefur sett saman lista með boðorðum sem leikmenn liðsins munu þurfa að fylgja í hvívetna frá og með næsta tímabili, ellegar munu þeir ekki eiga von á góðu. 10.7.2007 05:00
Víkingur yfir á Skaganum Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í Visa-bikarnum í knattspyrnu. Víkingur hefur yfir 1-0 gegn ÍA á Skaganum, markalaust er hjá KR og Val í vesturbænum, jafnt er hjá Haukum og Fram í Hafnarfirði 1-1 og ekkert mark hefur litið dagsins ljós í Eyjum þar sem ÍBV tekur á móti Íslandsmeisturum FH. Þá hefur Fjölnir yfir 2-1 gegn Fjarðabyggð á Eskifirði. 10.7.2007 20:19
Lið Brasilíu 1970 kosið besta lið allra tíma Tímaritið Soccer Magazine hefur útnefnt lið Brasilíu sem varð heimsmeistari árið 1970 besta knattspyrnulið allra tíma. Þetta var niðurstaða skoðanakönnunar blaðsins sem gerð var með aðstoð sérfræðinga. Þá valdi blaðið einnig bestu mörk allra tíma og bestu leikina. 9.7.2007 18:17
Cisse skrifar undir hjá Marseille Franski framherjinn Djibril Cisse skrifaði í dag undir fimm ára samning við Marseille eftir að hafa leikið með liðinu sem lánsmaður frá Liverpool á síðustu leiktíð. Langar og strangar samningaviðræður höfðu staðið yfir milli félaganna undanfarnar vikur en þeim er nú lokið og ganga allir aðilar sáttir frá borðinu. 9.7.2007 20:15
Rooney fer á kostum í auglýsingu Enski landsliðsmaðurinn Wayne Rooney hjá Manchester United fer á kostum í nýrri auglýsingu sem komin er í loftið fyrir Nike íþróttavöruframleiðandann. Í auglýsingunni lætur hann hrokafullan amerískan leikstjóra finna til tevatnsins. Smelltu á hlekkinn í fréttinni til að sjá myndband af tilþrifunum. 9.7.2007 17:45
Kamara til Fulham Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham festi í dag kaup á senegalska sóknarmanninum Diomansy Kamara frá West Brom fyrir um 6 milljónir punda. Fulham hefur lengi verið á eftir framherjanum sem skoraði 23 mörk fyrir West Brom í Championship deildinni á liðinni leiktíð. Hann hefur skrifað undir fimm ára samning og keppir við Heiðar Helguson um sæti í byrjunarliðinu á næstu leiktíð. 9.7.2007 17:13
Lippi liggur enn undir feldi Ítalski knattspyrnuþjálfarinn Marcello Lippi, sem stýrði Ítölum til sigurs á HM fyrir nákvæmlega ári síðan, liggur enn undir feldi og hefur ekki tekið neina ákvörðun um framtíð sína. Hann segir 10 félög hafa sett sig í samband við sig og boðið sér starf. 9.7.2007 16:30
Danir spila í Árósum Danska knattspyrnusambandið tilkynnti í dag að næstu tveir heimaleikir liðsins í undankeppni EM verði spilaðir á NRGi Park í Árósum. Dönum var gert að spila tvo heimaleiki utan þjóðarleikvangsins á Parken í Kaupmannahöfn í kjölfar uppákomunnar ljótu sem varð í leiknum við Svía forðum, þegar áhorfandi réðist inn á völlinn. 9.7.2007 16:08
Ferguson: Náum vonandi að landa Tevez fljótlega Sir Alex Ferguson segir að Manchester United muni væntanlega ná að landa framherjanum Carlos Tevez frá West Ham fljótlega. Hann segist helst vilja hafa klárað málið fyrir helgina síðustu, en reiknar með að enska úrvalsdeildin sé að tefja framgöngu málsins. 9.7.2007 15:27
Gallas sakar Arsenal um metnaðarleysi Franski varnarmaðurinn William Gallas hefur látið í ljós óánægju sína með störf forráðamanna Arsenal og sakar þá um metnaðarleysi í leikmannamálum. Gallas átti ekki sérlega góða leiktíð með Arsenal í fyrra eftir að hann kom frá Chelsea og er harðorður í garð vinnuveitenda sinna eftir söluna á Thierry Henry. 9.7.2007 15:00
Neville vonast til að ná heilsu Varnarmaðurinn Gary Neville hjá Manchester United segist vonast til þess að vera búinn að ná heilsu þegar boltinn byrjar að rúlla aftur í ensku úrvalsdeildinni í næsta mánuði. Neville meiddist illa á ökkla gegn Chelsea í enska bikarnum í mars. 9.7.2007 13:30
Anelka ætlar að vera áfram hjá Bolton Franski framherjinn Nicolas Anelka hefur lofað að vera áfram hjá Bolton í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa átt fund með knattspyrnustjóranum Sammy Lee. Hinn 28 ára gamli framherji hefur verið orðaður við brottför frá félaginu í marga mánuði, en segist nú ekki vera á förum. 9.7.2007 13:15
Laudrup tekinn við Getafe Spænska knattspyrnufélagið Getafe beið ekki boðanna í dag þegar tilkynnt var að Bernd Schuster yrði næsti þjálfari Real Madrid og tilkynnti um leið að félagið hefði gert tveggja ára samning við dönsku goðsögnina Michael Laudrup um að gerast þjálfari liðsins. 9.7.2007 11:56
Liverpool er búið að bjóða í Ryan Babel Umboðsmaður hollenska útherjans Ryan Babel segir að Liverpool sé þegar búið að gera kauptilboð í leikmanninn. Babel fór á kostum með U-21 árs liði Hollendinga á Evrópumótinu á dögunum og hefur mikið verið orðaður við Arsenal. 9.7.2007 11:47
Mánudagsslúðrið á Englandi Bresku blöðin eru full af safaríku slúðri í dag eins og venjulega og þar er m.a. greint frá áformum Rafa Benitez á leikmannamarkaðnum og áframhaldandi áhuga Real Madrid á leikmönnum í ensku úrvalsdeildinni. 9.7.2007 11:27
Argentína og Mexíkó í undanúrslit Argentínumenn og Mexíkóar tryggðu sér í nótt sæti í undanúrslitum Copa America með stórsigrum í viðureignum sínum í 8-liða úrslitunum. Argentína skoraði öll fjögur mörkin í síðari hálfleik í 4-0 sigri á Perú þar sem Riquelme skoraði tvö, Messi eitt og Mascherano eitt. Liðið mætir Mexíkó í næstu umferð, en Mexíkóar burstuðu 10 manna lið Paragvæ 6-0 eftir að markverði Perú var vikið af leikvelli eftir aðeins fimm mínútna leik. 9.7.2007 10:58
Schuster ráðinn þjálfari Real Madrid Real Madrid hefur ráðið Þjóðverjann Bernd Schuster sem þjálfara félagsins. Hann þjálfaði áður Getafe og náði góðum árangri með liðið en hann er 48 ára gamall. Ítalski þjálfarinn Fabio Capello var rekinn fyrr í sumar þrátt fyrir að hafa gert liðið að spænskum meisturum í fyrsta sinn í fjögur ár. 9.7.2007 10:06
Heiðar áfram hjá Fulham? Samkvæmt Daily Mirror er framherjinn Diomansy Kamara ekki á leið til Fulham eins og talið hafði verið, heldur er hann á leiðinni til Eggerts Magnússonar og félaga í West Ham. Þetta gæti táknað að Heiðar Helguson verði áfram í Úrvalsdeildinni næsta vetur. 9.7.2007 09:49
Loksins lágu Danir í því Vaskir landsliðsmenn sýndu og sönnuðu að lengi lifir í gömlum glæðum á Akureyri um helgina. Íslendingar lögðu Dani á 40 ára afmæli 14-2 leiksins margfræga á Parken. Mikil ánægja ríkti með þennan einstaka viðburð. 9.7.2007 06:00
Emil Hallfreðsson til Lyn í Noregi Landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson er á leið til norska úrvalsdeildarliðsins Lyn, en hann hefur verið á mála hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Tottenham síðustu ár. Emil mun væntanlega skrifa undir þriggja og hálfs árs samning við norska félagið í næstu viku, en þá mun hann mæta á sína fyrstu æfingu hjá Lyn. 8.7.2007 19:00
Malouda til Chelsea Jean-Michel Aulas, forseti franska knattspyrnufélagsins Lyon, tilkynnti Reuters fréttastofunni nú fyrir stundu að félagið hefði samþykkti að selja franska landsliðsmanninn Florent Malouda til Chelsea. Malouda er kantmaður og var kjörinn knattspyrnumaður ársins í Frakklandi á síðustu leiktíð. 8.7.2007 18:33
Deilurnar voru Chelsea dýrkeyptar Peter Kenyon framkvæmdastjóri Chelsea, viðurkennir að deilur innan herbúða liðsins hafi verið því dýrkeyptar á síðustu leiktíð. Sagt var að Jose Mourinho knattspyrnustjóri og Roman Abramovich hefðu vart talast við á löngum köflum í fyrra, en Kenyon segir alla vera búna að grafa stríðsöxina. 8.7.2007 21:45
Breiðablik lagði Fjölni Breiðablik bar sigurorð af Fjölni í Kópavoginum 2-1 í síðari leik kvöldsins í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu. Margrét Magnúsdóttir kom Fjölni yfir en Guðrún Sóley Gunnarsdóttir jafnaði metin. Katherine Moss skoraði svo sigurmark Breiðabliks sem er komið með tíu stig eftir sjö leiki. 8.7.2007 21:12
Newcastle sagt hafa áhuga á Raul og Deco Breska blaðið News of the World greindi frá því í dag að milljarðamæringurinn Mike Ashley, eigandi Newcastle, vildi ólmur kaupa stórstjörnur til félagsins. Hann er sagður hafa áhuga á að fá til sín miðjumanninn Deco frá Barcelona og gulldrenginn Raul frá Real Madrid. 8.7.2007 21:00
Átta tilboð á borðinu hjá Fowler Umboðsmaður framherjans Robbie Fowler hefur nóg að gera þessa dagana og segist vera með átta samningstilboð á borðinu fyrir leikmanninn. Fowler var látinn fara frá Liverpool í sumar og er því með lausa samninga. Félög á borð við Celtic og Rangers í Skotlandi, Sydney FC í Ástralíu og New England Revelution í MLS-deildinni eru sögð hafa áhuga á honum. 8.7.2007 20:30
ÍR af botninum ÍR lyfti sér í kvöld af botninum í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu þegar liðið lagði Þór/KA 3-0 í uppgjöri botnliðanna í deildinni. Ana Gomes kom ÍR á bragðið á heimavelli með marki á 9. mínútu, Bryndís Jóhannesdóttir kom liðinu í 2-0 úr víti skömmu fyrir leikhlé og innsiglaði svo sigurinn með öðru marki sínu í síðari hálfleik. 8.7.2007 18:27
Carragher að hætta með landsliðinu? Breska blaðið Mail on Sunday greinir frá því í dag að varnarmaðurinn Jamie Carragher hjá Liverpool hafi ákveðið að hætta að leika með enska landsliðinu í kjölfar þess að Steve McClaren valdi hann ekki í hóp sinn fyrir leikinn gegn Eistum á dögunum. 8.7.2007 18:15
Verðmiðinn á Curtis Davies er of hár Umboðsmaður varnarmannsins Curtis Davies hjá West Brom er ósáttur við vinnubrögð félagsins og segir það hafa sett allt of háan verðmiða á leikmanninn. West Brom vill fá 8 milljónir punda fyrir hinn efnilega varnarmann og því er útlit fyrir að ekkert verði af draumaskiptum hans í Tottenham. 8.7.2007 16:45
Torres: Fabregas lokkaði mig til Englands Spænski framherjinn Fernando Torres sem nýverið gekk í raðir Liverpool fyrir metfé, segir að félagi sinn Cesc Fabregas í spænska landsliðinu hafi sannfært sig endanlega um að flytja til Englands. Hann segist einnig hafa fengið tækifæri til að ganga í raðir Arsenal fyrir nokkrum árum. 8.7.2007 15:30
Tveir leikir í landsbankadeild kvenna í dag Tveir leikir eru á dagskrá í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í dag og í kvöld. ÍR tekur á móti Þór/KA klukkan 16:00 í botnbaráttunni og Breiðablik tekur á móti Fjölni á Kópavogsvelli klukkan 19:15 í kvöld. Fjölnir er í fjórða sæti deildarinnar, Blikar í því sjötta og eiga leik til góða. ÍR er á botninum með aðeins eitt stig og Þór/KA hefur þrjú stig í næst neðsta sætinu. 8.7.2007 14:54
Liverpool íhugar að stækka nýja völlinn Tom Hicks, meðeigandi enska knattspyrnufélagsins Liverpool, segir að félagið sé að íhuga alvarlega að hafa nýja knattspyrnuleikvang félagsins stærri en áformað var í fyrstu. Nýr völlur átti að taka 61,000 manns í sæti og hófust viðræður í því sambandi um leið og Hicks og George Gillett eignuðust félagið á sínum tíma. 8.7.2007 14:45
McCarty ætlar að virða samninginn við Blackburn Suður-Afríski framherjinn Benni McCarthy hjá Blackburn hefur lýst því yfir að hann vilji gjarnan komast til stærra félags á Englandi, en segist muni virða samning sinn við Blackburn ef ekkert gerist í hans málum í sumar. Hann hefur verið orðaður við Chelsea í nokkra mánuði. 8.7.2007 14:00
Enginn í treyju númer 14 hjá Arsenal Leikmenn Arsenal búa sig nú undir líf án Thierry Henry í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð og enn sem komið er hefur enginn leikmaður fengið úthlutað treyju númer 14. Orðrómur er uppi um að númerið verði jafnvel tekið úr umferð hjá félaginu til að heiðra minningu eins besta leikmanns í sögu félagsins. 8.7.2007 13:24
Liverpool og Atletico berjast um Quaresma Breska blaðið News of the World segir að Liverpool og Atletico Madrid séu nú í miklu kapphlaupi við að landa vængmanninum Ricardo Quaresma frá Porto í Portúgal. Bæði félögin eru sögð hafa lagt fram formleg tilboð, en Porto er sagt vilja fá 20 milljónir punda fyrir hinn 23 ára gamla leikmann. Liverpool á að hafa boðið 14 milljónir punda í hann, en forráðamenn Porto segja það ekki nógu háa upphæð til að réttlæta að setjast að samningaborði. 8.7.2007 13:07
Tevez hefur lofað Ferguson að fara til United Argentínumaðurinn Carlos Tevez hjá West Ham hefur lofað Sir Alex Ferguson að hann muni ganga í raðir Manchester United og ætlar að gera allt sem í valdi hans stendur til að af félagaskiptunum verði. Hann segist vilja fara frá West Ham því félagið hafi ekki vilja hafa hann áfram. 8.7.2007 12:50
Real staðfestir áhuga sinn á Fabregas Daginn eftir að umboðsmaður spænska miðjumannsins Cesc Fabregas hjá Arsenal sagði að hann færi ekki frá félaginu, hafa forráðamenn Real Madrid á Spáni nú lýst því yfir að þeir hafi mikinn áhuga á að fá hann í sínar raðir. 8.7.2007 12:45
Chelsea ræður nýjan yfirmann knattspyrnumála Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea tilkynnti í dag að það hefði ráðið Avram Grant sem yfirmann knattspyrnumála hjá félaginu. Grant var áður tæknistjóri Portsmouth en sest nú á skrifstofu Chelsea þar sem hann mun starfa náið með mönnum eins og Peter Kenyon, Jose Mourinho, Frank Arnesen og eigandanum Roman Abramovich. 8.7.2007 12:41
Brasilíumenn burstuðu Chile Fyrstu tveir leikirnir í 8-liða úrslitum Copa America fóru fram í gærkvöldi. Brasilíumenn burstuðu Chile 6-1 þar sem Robinho skoraði tvö mörk og er nú langmarkahæstur í keppninni með 6 mörk. Diego Forlan skoraði tvívegis fyrir Úrúgvæ sem tryggði sér einnig sæti í undanúrslitum með 4-1 sigri á heimamönnum í Venesúela. 8.7.2007 12:34
Collina ráðinn yfirdómari á Ítalíu Ítalska knattspyrnusambandið hefur ráðið fyrrum knattspyrnudómarann Pierluigi Collina í sérstakt embætti þar sem honum verður falið að hafa umsjón með öllum dómurum í landinu. Er þetta tilraun Ítala til að fegra ímynd sambandsins eftir skandalinn ljóta þar í landi í fyrra. 7.7.2007 22:15
Van der Meyde lofar að bæta sig Hollenski miðjumaðurinn Andy ven dre Meyde hjá Everton segist taka fulla ábyrgð á því hve miklum vonbrigðum hann hefur valdið fyrstu tvö árin sín hjá félaginu og lofar að standa sig betur á næstu leiktíð. 7.7.2007 20:30
Derby kaupir Andy Todd Nýliðar Derby County í ensku úrvalsdeildinni halda nú áfram að styrkja sig fyrir átökin á komandi vetri og í dag gekk félagið frá kaupum á miðverðinum Andy Todd frá Blackburn. Todd átti tvö ár eftir af samningi sínum við Blackburn en félagið tilkynnti hinum 32 ára leikmanni að það hefði ekki lengur þörf fyrir hann. 7.7.2007 19:45
Carroll semur við Rangers Markvörðurinn Roy Carroll sem áður lék með West Ham og Manchester United, hefur skrifað undir eins árs samning við Glasgow Rangers í Skotlandi. Carroll var hjá Manchester United í fjögur ár en hafði verið í herbúðum West Ham frá árinu 2005. Hann er 29 ára gamall og hóf ferilinn hjá Hull árið 1995. 7.7.2007 19:30