Fleiri fréttir

Óvænt úrslit í A-riðli

Það voru heldur betur óvænt úrslit í A-riðli í dag þar sem Pólland beið lægri hlut fyrir Armeníu á útivelli. Leikurinn endaði 0-1 og var það Mkhitaryan sem skoraði sigurmarkið á 66. mínútu.

Figo hefur ekki áhuga á Tottenham

Portúgalski vængmaðurinn Luis Figo hjá Inter Milan segist ekki vilja spila annarsstaðar í Evrópu og hafnar slúðri sem verið hefur á kreiki um að hann sé á leið til Tottenham á Englandi. "Ef ég held áfram að spila í Evrópu, verður það aðeins fyrir Inter og ég er ekki á leið til Portúgal eða Englands," sagði Figo, sem einnig hefur verið orðaður við lið í Saudi Arabíu.

England mætir Eistlandi í E-riðli

England mætir Eistlandi í Tallin í undankeppni EM klukkan 18:30 í kvöld. Mikil pressa er á enska liðinu um að ná úrslitum þar sem liðið hefur ekki riðið feitum hesti í keppninni. Liðið situr í 4 sæti riðilsins með 11 stig eftir 6 leiki.

Nani stóðst læknisskoðun

Portúgalski leikmaðurinn Nani hefur staðist læknisskoðun hjá Manchester United og þar með ætti ekkert að koma í veg fyrir að hann skrifi undir samning við liðið á næstu dögum.

West Ham fær Parker

West Ham var rétt í þessu að ganga frá kaupum á Scott Parker frá Newcastle. Parker spilaði eitt tímabil með Newcastle, en var áður hjá Charlton þar Alan Curbishley var í brúnni.

Ribery á leið til Bayern fyrir metfé

Franski landsliðsmaðurinn, Franck Ribery, er á leið til Bayern Munchen fyrir metfé. Talið er að Ribery skrifi undir samning við félagið á fimmtudaginn. Kaupverðið er talið vera um 17 milljónir punda.

Fabregas hefur miklar áhyggjur af framtíðinni

Miðjumaðurinn Cesc Fabregas hjá Arsenal virðist vera farinn að sjá eftir því að hafa skrifað undir langtímasamning við félagið á árinu, því hann segist 90% viss um að fara frá félaginu ef Arsene Wenger knattspyrnustjóri hætti störfum.

Aragones hættir á næsta ári

Luis Aragones, landsliðsþjálfari Spánverja í knattspyrnu, tilkynnti í dag að hann ætlaði að hætta eftir að samningur hans rennur út eftir EM næsta sumar. Hann tók við liðinu árið 2004 og hefur raunar áður lofað að hætta, en stóð þá ekki við stóru orðin. Aragones hefur verið mjög umdeildur síðan Spánverjar þóttu ná óviðunandi árangri á HM í fyrra.

Milan staðfestir áhuga sinn á Eto´o

Forráðamenn AC Milan staðfestu í dag að þeir hefðu mikinn áhuga á að kaupa sóknarmanninn Samuel Eto´o frá Barcelona í sumar. Þeir vísa hinsvegar á bug fregnum um að kaupin séu komin langt á veg og taka fram að ekkert verði gert í málinu fyrr en eftir að deildarkeppninni lýkur á Spáni.

Foster þarf í uppskurð

Markvörðurinn Ben Foster hjá Manchester United getur ekki leikið með liði sínu í upphafi næstu leiktíðar í ensku úrvalsdeildinni eftir að ljóst varð að hann þarf í uppskurð vegna hnémeiðsla. Foster stóð sig vel þegar hann var í láni hjá Watford í vetur og er inni í enska landsliðshópnum.

Zlatan á bekknum hjá Svíum

Sænska blaðið Aftonbladet hefur birt byrjunarlið Svía sem tekur á móti Íslendingum í Stokkhólmi í kvöld. Þar hefur verið staðfest að framherjinn Zlatan Ibrahimovic verði á varamannabekk sænska liðsins, en hann hefur átt við meiðsli að stríða.

Fimm breytingar á íslenska landsliðinu

Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Svíum í undankeppni EM í knattspyrnu í Svíþjóð í kvöld. Hann gertir fimm breytingar á liðinu frá leiknum við Liechtenstein um helgina.

Crouch og Owen verða í framlínu Englendinga

Breska sjónvarpið greinir frá því í morgun að það komi í hlut Peter Crouch að leika við hlið Michael Owen í framlínu enska landsliðsins í kvöld þegar það sækir Eista heim í Tallin í kvöld. Þá er reiknað með því að miðvörðurinn Ledley King komi inn í vörnina í stað Jamie Carragher og að Wayne Bridge leysi Nickey Shorey af hólmi í stöðu vinstri bakvarðar. Leikurinn verður sýndur á Sýn klukkan 20:30 í kvöld að loknum leik Svía og Íslendinga.

Roberto Carlos á leið til Fenerbahce

Brasilíski bakvörðurinn Roberto Carlos hjá Real Madrid hefur samþykkt að ganga í raðir tyrkneska liðsins Fenerbahce í sumar þegar hann verður með lausa samninga. Carlos hefur verið hjá Real í 11 ár og er einn besti og sigursælasti bakvörður knattspyrnunnar af þessari kynslóð. Carlos er 34 ára gamall og sagðist hafa neitað tilboðum frá Englandi og Ítalíu til að fara til Tyrklands.

250 öryggisverðir verða allt í kringum völlinn

Svíar ætla ekki að taka neina áhættu í kringum leik Svíþjóðar og Íslands í undankeppni EM 2008 á miðvikudaginn í kjölfar þess sem gerðist á Parken um helgina. Öryggisgæsla á leiknum hefur verið hert til mikilla muna og alls munu 250 manns vera á vaktinni í kringum leikvöllinn á meðan á leiknum stendur.

Englendingar yfir í hálfleik

Englendingar hafa yfir 1-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðsins gegn Eistum í Tallin. Það var Joe Cole sem skoraði mark enska liðsins á 37. mínútu en enska liðið hefur aðeins einu sinni tapað leik þegar hann hefur verið í byrjunarliðinu. Það var gegn Portúgal á HM í fyrrasumar, en þá var Cole reyndar skipt af velli í síðari hálfleik.

5-0 í leik Svíþjóðar og Íslands

Markus Rosenberg skoraði strax á 48. mínútu kom Svíum í 4-0. Á 51. mínútu skoraði Marcus Allback mark sem verður að teljast hlægilegt þar sem Íslendingar héldu að búið væri að dæma inni í teig og Allback þurfti ekki annað að gera en að skjóta boltanum í netið.

Svíar komnir í 2-0

Ander Svensson var að bæta við öðru marki Svía gegn Íslandi. Íslendingarnir voru að komast vel inn í leikinn þegar þetta gerðist og átti Brynjar Björn m.a. gott skot sem markvörður Svía varði í horn. Markið kom á 40. mínútu.

Svíar búnir að skora

Svíar eru búnir að skora og eru komnir í 1-0. Það var Marcus Allback sem skoraði markið eftir 10 mínútna leik. Það er ljóst að það verður á brattann að sækja fyrir íslensku strákana í Svíþjóð.

Svíþjóð - Ísland í beinni á Sýn klukkan 18:15

Leikur Svía og Íslendinga í undankeppni EM í knattspyrnu hefst klukkan 18:15 og verður sýndur beint á Sýn. Þar er á dagskrá sérstakur upphitunarþáttur fyrir leikinn þar sem sérfræðingar Sýnar fara yfir stöðu mála. Hörður Magnússon lýsir leiknum svo beint frá Svíþjóð, en auk þess verður fylgst með gangi mála hér á Vísi.

Ljungberg: Verðum að keyra upp hraðann gegn Íslendingum

Freddie Ljungberg, leikmaður Arsenal og sænska landsliðsins, segir að sænska liðið verði að keyra upp hraðann á móti Íslendingum þegar þjóðirnar mætast í undankeppni EM ytra annað kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn og hér í fréttinni má sjá viðtal við Ljungberg og Zlatan Ibrahimovic, sem reiknar með að fá að spila í leiknum.

Krefjast 200 milljóna í skaðabætur

Danski áhorfandinn sem réðist að dómaranum í leik Dana og Svía á Parken á laugardaginn hefur verið krafinn um 200 milljónir íslenskra króna í skaðabætur af danska knattspyrnusambandinu. Smelltu á spila til að sjá frétt stöðvar 2 um atvikið fræga frá því á laugardaginn.

McClaren hefur ekki áhyggjur af starfi sínu

Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga, segist ekki vera að hugsa um að bjarga starfi sínu þegar enska liðið mætir Eistum í Tallin í undankeppni EM annað kvöld. Enska liðið er í fjórða sæti E-riðilsins, fimm stigum á eftir efsta liðinu Króatíu, og fullyrt er að McClaren verði rekinn ef lið hans vinnur ekki sigur í leiknum.

Totti lokar ekki á landsliðið

Framherjinn Francesco Totti hjá Roma segist ekki vera búinn að útiloka frekari þáttöku með ítalska landsliðinu í knattspyrnu, en hann lagði landsliðsskóna á hilluna eftir HM í sumar. Ítalir mörðu 2-1 sigur á Færeyingum í undankeppni EM um helgina og virtist liðið sakna Totti í sókninni.

Slúðrið á Englandi í dag

Bresku slúðurblöðin eru full af safaríkum sögum í dag eins og venjulega, en mikið hefur verið um að vera á leikmannamarkaðnum undanfarna daga. Að venju eru stórliðin á Englandi orðuð við fjölda leikmanna.

Aston Villa býður 7 milljónir punda í Reo-Coker

Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa gerði í dag 7 milljón punda kauptilboð í miðjumanninn Nigel Reo-Coker hjá West Ham. Leikmaðurinn hafði fyrir nokkrum dögum farið fram á að verða seldur frá félaginu og var í kjölfarið settur á hann 8 milljóna punda verðmiði. Hann hefur einnig verið orðaður við Tottenham, Arsenal og Newcastle.

Gildardino er falur hjá AC Milan

Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, segir að framherjinn Alberto Gilardino sé falur fyrir 24 milljónir evra eða 2 milljarða króna. Gilardino skoraði 12 mörk fyrir Milan í A-deildinni í vetur en er ósáttur við hlutskipti sitt hjá liðinu og vill gjarnan breyta til.

Fabregas óttast að missa Henry

Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas hjá Arsenal segist óttast að félagi hans Thierry Henry muni ganga í raðir Barcelona í sumar. Vitað er af áhuga Katalóníuliðsins á framherjanum skæða og Fabregas segir að það gæti reynst félaga sínum of freistandi að reyna fyrir sér á Spáni.

Viduka á leið til Newcastle

Framherjinn Mark Viduka hjá Middlesbrough er nú sagður vera við það að ganga í raðir Newcastle í ensku úrvalsdeildinni. Hinn 31 árs gamli Ástrali hefur enn ekki framlengt samning sinn við Boro og hefur neitað öllum tilboðum félagsins til þessa. Fjöldi liða á Englandi hafa verið orðuð við framherjann, þar á meðal Birmingham, Portsmouth og West Ham. Viduka skoraði 19 mörk fyrir Boro á síðustu leiktíð.

Barton í læknisskoðun hjá Newcastle

Joey Barton sást í dag með Sam Allardyce, stjóra Newcastle, og er hann talinn vera að gangast undir læknisskoðun hjá félaginu. Þetta þýðir að allt bendi til að Barton muni velja Newcastle fram yfir West Ham.

Aston Villa að undirbúa tilboð í Sneijder

Martin O´Neill, stjóri Aston Villa, mun á næstu dögum leggja fram tilboð í miðjumanninn Wesley Sneijder hjá Ajax í Hollandi. Sneijder var á leiðinni til Valencia en ekkert varð úr þeim kaupum.

Harewood að yfirgefa West Ham

Það er alltaf nóg að gerast í herbúðum West Ham, en nú hefur einum framherja liðsins, Marlon Harewood, hefur verið sagt að hann sé ekki inni í framtíðarplani Alan Curbishley.

Newcastle fær leyfi til að ræða við Barton

Það lítur allt út fyrir að Newcastle United sé að vinna kapphlauðið um ólátabelginn Joey Barton. Nú hefur Newcastle fengið leyfi frá Manchester City til að ræða við Barton en þetta kemur fram á sjónvarpsstöðinni Sky. West Ham hefur einnig verið á eftir Barton en virðast vera að missa af lestinni.

Tölvuleikur gerður í kjölfar atviksins á Parken

Eftir að atvikið í leik Danmerkur og Svíþjóðar á Parken varð eitt vinsælasta umræðuefni í Evrópu hefur danskt fyrirtæki ákveðið að nýta sér tækifærið og búið til leik sem er í anda atviksins. Sá er spilar leikinn er í hlutverki dómarans, Herbert Fandel.

Gerrard segir sig og Lampard spila vel saman

Steven Gerrard segir að hann og félagi hans í Enska landsliðinu, Frank Lampard, hafi sannað það fyrir öllum í vináttuleiknum gegn Brasilíu á föstudag að þeir geti vel spilað saman.

Ramos orðaður við Manchester City

Eftir að Claudio Ranieri samdi við Juventus í gær hafa forráðamenn Manchester City snúið sér að að Juande Ramos, stjóra Sevilla, til að fylla í skarð Stuart Pearce. Ramos hefur stjórnað Sevilla í næstum því sex ár.

Án Eiðs Smára í þriðja sinn

Íslenska landsliðið hefur aðeins tvisvar sinnum verið án Eiðs Smára í keppnisleik undanfarin átta ár en stjarna íslenska landsliðið verður fjarri góðu gammni í næsta landsleik. Eiður Smári átti mjög slakan leik gegn Liechtenstein og hefur nú leikið í yfir 500 mínútur án þess að skora með landsliðinu.

Næ kannski hálftíma

Sænski landsliðsmaðurinn Zlatan Ibrahimovic vísaði því á bug á blaðamannafundi í gær að hann yrði í byrjunarliði Svíþjóðar gegn Íslandi á morgun. Hann hefur átt við meiðsli að stríða.

KR á toppinn

KR komst á topp Landsbankadeildar kvenna í kvöld. KR sigraði Fylki í Árbænum í kvöld 2-4. Þar með er KR með 9 stig eftir 3 leiki og situr á toppi deildarinnar. Keflavík burstaði ÍR á heimavelli, 7-0. Á Kópavogsvelli skildu Breiðablik og Stjarnan jöfn 1-1.

U19: Ísland 5-2 Azerbaijan

Íslenska U19 ára landslið Íslands lauk í dag keppni í milliriðli í Noregi fyrir EM með sigri á Azerbajian 5-2. Ísland hafði áður tapað fyrir Noregi og Spáni með litlum mun. Íslendingar enda því í öðru sæti riðilsins með 3 stig.

Wigan fær Sibierski

Antoine Sibierski skrifaði í dag undir 2 ára samning við Wigan. Þetta er annar leikmaðurinn sem að Wigan semur við í dag, en Titus Bramble skrifaði undir samning við félagið í morgun.

UEFA: Málið tekið fyrir á föstudaginn

Aganefnd UEFA mun taka málið úr leik Danmerkur og Svíþjóðar fyrir á föstudaginn. Leikurinn var spilaður á Parken í Danmörku og upp úr sauð á lokamínútunum þegar reiður áhorfandi slapp inn á völlinn og réðst að dómara leiksins, Herbert Fandel.

Gerrard og Carragher búnir að gera nýjan samning

Steven Gerrard og Jamie Carragher skrifuðu undir nýjan samning við Liverpool í dag. Gerrard og Carragher hafa verið lykilmenn í liði Liverpool síðastliðin ár og hjálpuðu liðinu meðal annars að komast í úrslit Meistaradeildar Evrópu í síðasta mánuði.

Sjá næstu 50 fréttir