Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Angel semur við Red Bulls Kólumbíumaðurinn Juan Pablo Angel hefur gengið frá samningi við MLS liðið New York Red Bull í Bandaríkjunum. Angel kom til Aston Villa árið 2001 en hefur ekki átt fast sæti í liðinu að undanförnu. Talið er að Angel muni halda svipuðum launum hjá Red Bulls - um 40.000 pundum í vikulaun. 17.4.2007 16:40
Frings í viðræðum við Juventus Þýski miðjumaðurinn Torsten Frings hjá Werder Bremen er nú kominn langt á veg með að semja við ítalska félagið Juventus. Hann er sem stendur á Ítalíu að semja um kaup og kjör og fer væntanlega til Juve í sumar þegar það mun væntanlega vera búið að tryggja sér sæti í A-deildinni á ný. Juve er í toppsæti B-deildarinnar þrátt fyrir að níu stig hafi verið dregin af því í skandalnum fræga í fyrra. Frings er 28 ára gamall landsliðsmaður. 17.4.2007 16:28
Neuville ætlar að berjast til síðasta manns með Gladbach Þýski landsliðsmaðurinn Oliver Neuville hjá úrvalsdeildarfélaginu Gladbach gagnrýnir nokkra af félögum sínum í liðinu harðlega og segir þá kæra sig kollótta um það hvort liðið haldi sæti sínu í deildinni í vetur eða ekki. Fátt annað en fall blasir við þessu fornfræga liði sem hefur verið á tómu basli síðasta áratug. 17.4.2007 16:11
Wenger sektaður Arsene Wenger, stjóri Arsenal, fékk í dag enn eina áminninguna frá aganefnd enska knattspyrnusambandsins og var þar að auki sektaður um rúmlega 300 þúsund krónur fyrir framkomu sína í garð dómara á leik Arsenal og Portsmouth í desember. Í sama mánuði var hann sektaður um rúma milljón króna vegna rifrildis síns við Alan Pardew, þáverandi stjóra West Ham. 17.4.2007 16:05
Dómara bárust morðhótanir Spænski dómarinn Javier Turienzo Alvarez sem dæmdi tvær umdeildar vítaspyrnur á Real Madrid í 2-1 tapi liðsins gegn Racing Santander um helgina hefur upplýst að sér hafi borist yfir 50 morðhótanir í kjölfarið. Dómarinn vísaði tveimur leikmönnum Real af velli í þessum sama leik, sem kann að hafa kostað stórveldið möguleika á titlinum. 17.4.2007 14:59
Þriðjudagsslúðrið á Englandi Daily Mirror segir að Manchester United muni reyna að fá norska landsliðsmanninn Morten Gamst Pedersen hjá Blackburn í sínar raðir í sumar. Blaðið segir að Pedersen sé með ákvæði í samningi sínum sem losar hann frá félaginu ef 8 milljón punda tilboð berst í hann. 17.4.2007 14:19
Angel frjálst að fara til Bandaríkjanna Martin O´Neill, knattspyrnustjóri Aston VIlla, segir að framherjanum Juan Pablo Angel sé frjálst að semja við lið New York Red Bulls í MLS deildinni. Framherjinn kólumbíski er 31 árs gamall og talið er að hann sé að ganga frá tveggja ára samningi við Red Bulls. Hann á eitt ár eftir af samningnum við Villa en honum verður væntanlega rift ef af þessu verður. 17.4.2007 14:09
Endurkomu Owen seinkar Michael Owen hjá Newcastle mun ekki snúa aftur með liði sínu í leiknum gegn Chelsea á sunnudaginn eins og til stóð eftir að í ljós kom að hann var ekki valinn í varaliðshóp félagsins sem mætir Middlesbrough í kvöld. Owen er að ná sér af erfiðum hnémeiðslum sem hann varð fyrir í fyrra. 17.4.2007 14:04
Dida tæpur fyrir leikinn á Old Trafford Brasilíski markvörðurinn Dida hjá AC Milan gæti misst af fyrri leik liðsins gegn Manchester United á Old Trafford þann 24. apríl vegna meiðsla á öxl. Hann meiddist í leik gegn Messina á dögunum þegar hann skall ár markstönginni. 17.4.2007 13:59
Skuggahliðar fótboltans (myndband) Knattspyrnan er gjarnan nefnd hinn fallegi leikur en hann á sér sínar skuggahliðar eins og sést í myndbandinu sem fylgir þessari frétt. Bestu knattspyrnumenn heims sýna okkur frábær tilþrif á degi hverjum, en eiga það svo til að verða sér til skammar inn á milli eins og Zinedine Zidane þegar hann stimplaði sig út á HM í sumar. 16.4.2007 19:08
Fyrsti sigurinn í húsi hjá Sigurði Jónssyni Lærisveinar Sigurðar Jónssonar í sænska liðinu Djurgarden unnu fyrsta sigurinn undir hans stjórn í kvöld þegar liðið lagði Halmstad 2-0. Helsingborg lagði Gefle 3-1 þar sem Ólafur Ingi Skúlason kom inn sem varamaður hjá Helsingborg og markaskorarinn Henrik Larsson skoraði eitt mark. 16.4.2007 21:08
Slitnað upp úr viðræðum Terry og Chelsea John Terry, fyrirliði Chelsea, segist staðráðinn í að ljúka ferlinum hjá félaginu þrátt fyrir að slitnað hafi upp úr viðræðum hans við félagið um framlengingu á samningi hans. "Viðræðum hefur verið hætt í bili, en það kemur oft fyrir og er mjög eðlilegt. Það breytir engu um vilja minn til að vera áfram hjá félaginu og það sama má segja um Frank (Lampard) og knattspyrnustjórann," sagði Terry við Sky í dag. 16.4.2007 19:15
Metzelder segist vera á leið til Real Madrid Þýski landsliðsmaðurinn Christoph Metzelder hjá Borussia Dortmund segist vera kominn langt með að semja við spænska félagið Real Madrid og á von á því að ganga í raðir þess í sumar. Dortmund sleit samningaviðræðum við hann snemma í síðasta mánuði og er leikmaðurinn að eigin sögn þegar farinn að læra spænskuna. Metzelder er 26 ára og átti gott heimsmeistaramót með Þjóðverjum í sumar. 16.4.2007 18:40
Raul vill ekki fara frá Real Madrid Gulldrengurinn Raul hjá Real Madrid segist alls ekki vilja fara frá Real Madrid og ætlar að efna þau þrjú ár sem hann á eftir af samningi sínum. Nokkuð hefur verið ritað um Raul í spænskum miðlum undanfarið og því jafnvel haldið fram að hann væri á förum. 16.4.2007 18:06
Terry dáist að Cristiano Ronaldo John Terry, fyrirliði Chelsea, segist ekki í nokkrum vafa um að Cristiano Ronaldo hjá Manchester United verði kosinn leikmaður ársins af leikmannasamtökunum á Englandi síðar í þessum mánuði. Terry segist dást að hæfileikum Portúgalans á vellinum og tippar á að hann hafi betur gegn Didier Drogba í valinu. 16.4.2007 17:20
Líkir Rooney og Ronaldo við Michael Jordan Jay DeMerit, leikmaður enska liðsins Watford sem ólst upp í Bandaríkjunum, segir að tilþrif þeirra Wayne Rooney og Cristiano Ronaldo hjá Manchester United minni sig á það þegar hann fylgdist með Michael Jordan fara á kostum í NBA deildinni á árum áður. DeMerit segir tvíeykið hjá United gjörsamlega óstöðvandi, en er ekki frá því að Watford sé betra lið en Roma á Ítalíu. 16.4.2007 16:34
Blatter: Ekki einblína á krikket Sepp Blatter, forseti Alþjóða Knattspyrnusambandsins, er nú í þriggja daga heimsókn á Indlandi þar sem hann er að kynna knattspyrnuna fyrir krikket-sinnuðum heimamönnum. Hann skorar á þessa næst fjölmennustu þjóð heims að beina sjónum sínum í auknum mæli að knattspyrnu. 16.4.2007 16:00
Schuster vonast eftir kraftaverki gegn Barcelona Barcelona og Getafe spila fyrri leik sinn í udanúrslitum spænska konungsbikarsins á miðvikudagskvöldið og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 18:25. Bernd Schuster, þjálfari smáliðs Getafe, segist vonast eftir kraftaverki á Nou Camp. 16.4.2007 15:26
Kahn sigursælasti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar Markvörðurinn Oliver Kahn náði tveimur glæsilegum áföngum þegar hann stóð í marki Bayern Munchen í 2-1 sigri liðsins á Leverkusen um helgina. Kahn lék þá sinn 400. leik fyrir meistarana og vann sinn 292. sigur í úrvalsdeildinni á ferlinum. Enginn leikmaður hefur oftar verið í sigurliði í sögu deildarinnar. 16.4.2007 15:19
Mánudagsslúðrið á Englandi Bresku blöðin láta ekki sitt eftir liggja í slúðrinu um helgina frekar en aðra daga. Daily Mirror segir að Stuart Pearce stjóri Man City hafi flogið til Spánar til að fylgjast með varnarmanninum Juanito. Þá segir blaðið að Lawrie Sanchez muni reyna að kaupa Steven Davis frá Aston Villa ef honum verður boðið fullt starf hjá Fulham. 16.4.2007 14:38
Rio Ferdinand í ágætum málum Í morgun kom í ljós að meiðsli varnarmannsins Rio Ferdinand hjá Manchester United eru ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu. Hann meiddist á nára í leiknum við Watford á laugardaginn og óttast var að hann yrði frá keppni út leiktíðina. Hann stefnir á að spila á ný næsta laugardag gegn Middlesbrough, en óvíst er hvort hann nær leiknum við Sheffield United annað kvöld. 16.4.2007 14:26
Abramovich gaf Mourinho knús Breskir fjölmiðlar veittu því mikla athygli í dag að Roman Abramovich eigandi og Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea, féllust í faðma eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik enska bikarsins í gær. Því hefur verið haldið fram að samband þeirra félaga væri orðið ansi súrt, en Abramovich hefur látið sig vanta inn í búningsklefa hjá liðinu í vetur eins og undanfarin ár. 16.4.2007 14:19
Duff úr leik hjá Newcastle Írski landsliðsmaðurinn Damien Duff getur ekki leikið meira með liði Newcastle á leiktíðinni eftir að hann varð fyrir ökklameiðslum í tapinu gegn Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Duff er 28 ára gamall og kom til félagsins frá Chelsea fyrir fimm milljónir punda síðasta sumar. 16.4.2007 14:14
Leikmannasamtökin tilnefna leikmenn ársins Nú er búið að tilnefna þá knattspyrnumenn sem koma til greina í valinu á knattspyrnumanni ársins hjá leikmannasamtökunum í ensku úrvalsdeildinni, en valið samanstendur af atkvæðum knattspyrnumannanna sjálfra. Cristiano Ronaldo og Didier Drogba þykja báðir líklegir til að hampa titlinum að þessu sinni. 16.4.2007 14:07
Spánn: Valencia gerði Barcelona greiða Valencia lagði Sevilla 2-0 í kvöldleiknum í spænska boltanum með tveimur mörkum frá spænska landsliðsmanninum David Villa. Sigur Valencia þýðir að Barcelona er enn með fjögurra stiga forskot á toppnum. Valencia skaust með sigrinum í fjórða sæti deildarinnar, aðeins tveimur stigum á eftir Sevilla. 15.4.2007 23:05
Ítalía: Kaflaskiptur leikur hjá Inter og Palermo Fátt getur komið í veg fyrir að Inter Milan hampi meistaratitlinum á Ítalíu í ár þrátt fyrir að liðið næði aðeins jafntefli gegn Palermo á heimavelli sínum í dag 2-2. Roma styrkti stöðu sína í öðru sætinu með því að bursta Sampdoria 4-0. 15.4.2007 23:01
Ferguson: Ég þurfti að sannfæra Ronaldo Sir Alex Ferguson greindi frá því í samtali við breska blaðið News of the World um helgina að hann hafi flogið sérstaklega til Portúgal eftir HM í sumar til að sannfæra vængmanninn Cristiano Ronaldo um að það væri í lagi að snúa aftur til Englands. Ronaldo var ekki vinsæll hjá stuðningsmönnum enska landsliðsins eftir að Portúgalar slógu þá úr keppni á HM. 15.4.2007 21:45
Heilladísirnar á bandi Barcelona Barcelona náði í kvöld fjögurra stiga forskoti á toppi spænsku deildarinnar í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á Mallorca á heimavelli. Markið var sjálfsmark á síðustu mínútu leiksins eftir að skot varamannsins Javier Saviola hrökk af stönginni í varnarmann og í netið. Eiður Smári Guðjohnsen sat allan tímann á bekknum hjá Barcelona. Sevilla getur minnkað forskot Barca niður í eitt stig með sigri á Valencia í stórleik kvöldsins sem er sýndur beint á Sýn. 15.4.2007 19:18
Hughes: Vorum fimm mínútum frá úrslitaleiknum Mark Hughes, stjóri Blackburn, var mjög sáttur við frammistöðu sinna manna í dag þó þeir hafi beðið í lægri hlut gegn Chelsea í undanúrslitaleik enska bikarsins. Hann sagði sína menn hafa verið hársbreidd frá því að ná í úrslitaleikinn. 15.4.2007 19:09
Mourinho: Úrslitaleikurinn verður ótrúlegur Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hrósaði sínum mönnum í hástert í dag þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik enska bikarsins með 2-1 sigri á Blackburn í framlengdum leik. Hann segir úrslitaleikinn milli Chelsea og Manchester United verða stórkostlegan. 15.4.2007 19:03
Allt í járnum í Þýskalandi Werder Bremen skaust aftur í annað sætið í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag eftir góðan 2-0 sigur á Dortmund. Meistarar Bayern Munchen halda í veika von um að verja titilinn eftir 2-1 sigur á Leverkusen. 15.4.2007 17:57
Draumaúrslitaleikur á Wembley Chelsea tryggði sér í dag sæti í úrslitaleiknum í enska bikarnum með 2-1 sigri á Blackburn í undanúrslitum á Old Trafford. Liðið mætir því Manchester United í draumaúrslitaleik á Wembley. Frank Lampard kom Chelsea yfir í upphafi leiks en Jason Roberts jafnaði í þeim síðari. Í framlengingu var það svo Michael Ballack sem skoraði sigurmark Lundúnaliðsins í fínum knattspyrnuleik. 15.4.2007 17:36
Dýrt tap hjá Charlton Charlton missti í dag af gullnu tækifæri til að komast af fallsvæðinu í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið lá 2-1 fyrir Everton á útivelli. Ekkert mark kom í leiknum fyrr en eftir 80 mínútur þegar Joleon Lescott kom heimamönnum yfir. Darren Bent náði að jafna fyrir Charlton á 89. mínútu, en liðið missti af dýrmætu stigi í fallslagnum þegar Skotinn James McFadden skoraði sigurmark þeirrar bláklæddu í uppbótartíma. 15.4.2007 16:07
Jafnt hjá Wigan og Tottenham í markaleik Wigan og Tottenham skildu jöfn 3-3 í fjörugum fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Wigan er í fallbaráttu en Tottenham í baráttu um sæti í Evrópukeppni. Wigan komst þrisvar yfir í leiknum en Lundúnaliðið náði alltaf að svara. 15.4.2007 14:56
Framlengt hjá Blackburn og Chelsea Undanúrslitaleikur Blackburn og Chelsea í enska deildarbikarnum hefur verið framlengdur eftir að staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma á Old Trafford í Manchester. Frank Lampard kom Chelsea yfir eftir um stundarfjórðung, en Jason Roberts jafnaði fyrir baráttuglaða Blackburn menn á 63. mínútu. 15.4.2007 16:57
Carrick borubrattur í treyju númer 16 Miðjumaðurinn Michael Carrick hjá Manchester United skortir greinilega ekki sjálfstraustið þessa dagana og segist njóta þeirrar áskorunar að spila í treyju númer 16 hjá liðinu. Goðsögnin Roy Keane lék með númer 16 þar á undan og Carrick er hvergi smeykur þó fólk ætli honum að taka við keflinu af Íranum grjótarða. 14.4.2007 22:15
Schalke í vænlegri stöðu Schalke tók stórt skref í átt að fyrsta meistaratitli sínum í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag með sannfærandi 3-0 útisigri á Mainz. Kevin Kuranyi, Gerald Asamoah og Lincoln skoruðu mörk Schalke, sem hefur nú fjögurra stiga forskot á Bremen á toppnum. Bremen á leik til góða gegn Dortmund á morgun. 14.4.2007 21:09
Súrt tap hjá Real Madrid Real Madrid missti af tækifæri til að komast á topp spænsku deildarinnar í knattspyrnu í kvöld þegar liðið lá 2-1 á útivelli fyrir Racing Santander. Real hafði ekki tapað í 9 leikjum í röð, en eftir að Raul kom Madrid yfir í upphafi leiks, skoraði varnarmaðurinn Ezequiel Garay tvö mörk úr vítaspyrnum í síðari hálfleiknum. 14.4.2007 20:39
Coppell hrósaði Brynjari Steve Coppell, stjóri Reading, var ekki sáttur við frammistöðu sinna manna í 1-0 sigrinum á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann sagði liðið hafa slakað of mikið á eftir að það náði forystu í leiknum en hrósaði Brynjari Birni Gunnarssyni fyrir vinnusemi sína á miðjunni. 14.4.2007 19:21
Manchester United í úrslit Manchester United komst í dag í úrslit ensku bikarkeppninnar með öruggum 4-1 sigri á Watford á Villa Park í dag. Wayne Rooney kom United yfir á 7. mínútu en Hameur Bouazza jafnaði fyrir Watford á 26. mínútu. Cristiano Ronaldo kom United yfir aðeins tveimur mínútum síðar og staðan 2-1 í hálfleik. 14.4.2007 18:28
Arsenal lagði Bolton Leikjunum sex í ensku úrvalsdeildinni er lokið. Arsenal vann mikilvægan 2-1 heimasigur á Bolton og Sheffield United vann dýrmætan 3-0 sigur á West Ham í botnbaráttunni. Manchester City og Liverpool skildu jöfn 0-0 og Reading lagði Fulham 1-0 í Íslendingaslagnum. 14.4.2007 16:20
Chelsea vann tvöfalt í mars Jose Mourinho, stjóri Chelsea og markvörður liðsins, Tékkinn Peter Cech, fengu verðlaun ensku úrvalsdeildarinnar fyrir marsmánuð. 14.4.2007 10:45
Ronaldo samdi til ársins 2012 Stuðningsmenn Manchester United áttu kannski ekki von á frábær vika yrði enn betri eftir 7-1 sigur á Roma á þriðjudagskvöldið en fréttirnar af nýjum samningi Cristiano Ronaldo sáu þó til þess. 14.4.2007 09:45
Aftur á spítala Diego Armando Maradona er kominn aftur á spítala með kviðverki aðeins tveim dögum eftir að hafa losnað úr tveggja vikna vist. Læknar á Buenos Aires-spítalanum segja að líf Maradona sé ekki í hættu. Maradona byrjaði aftur að drekka á dögunum en það þoldi lifrin ekki og því var hann fluttur í skyndingu á spítala. 14.4.2007 09:00
Er ekki að taka við Chelsea Hollenski þjálfarinn Guus Hiddink ítrekaði í viðtali í gær að hann væri ekki að taka við Chelsea í sumar. 14.4.2007 08:00
Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig Íslenski boltinn