Fleiri fréttir

Breytingar á laxastiga við Steinboga í biðstöðu

Skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs hefur frestað afgreiðslu erindis um breytingar á áður samþykktum fiskistiga við svokallaðan Steinboga í Jökulsá á Dal. Stiginn á að opna laxfiskum tugkílómetra leið á efri hluta Jöklu.

Dagur 2 í Ytri-Rangá: Alls 16 á land

Fjörið heldur áfram í Ytri-Rangá. Alls komu upp 16 fiskar annan daginn sem veitt er í ánni í sumar, 8 laxar og 8 sjóbirtingar, en stærsti laxinn var 11 pund.

Anders Limpar líkir George Graham við Saddam Hussein

Sænski knattspyrnumaðurinn Anders Limpar vandar George Graham, fyrrum stjóra sínum hjá Arsenal, ekki kveðjurnar. Limpar segir lífið hjá Arsenal undir stjórn Skotans hafa verið líkt og í Írak undir einræði Saddam Hussein.

Víkingur sló Fylki út úr bikarnum | Myndasyrpa

Víkingur gerði sér lítið fyrir og sló Fylkismenn út úr Borgunarbikar karla í knattspyrnu í Fossvoginum í kvöld. Fossvogsbúar, sem hafa haft litlu að fagna í sumar, gátu glaðst í veðurblíðunni í Víkinni í kvöld.

Börsungar vilja Alba en ekki Drogba

Sandro Rosell, forseti spænska knattspyrnufélagsins Barcelona, gefur lítið fyrir orðróm þess efnis að Dider Drogba sé á leið til félagsins. Hann staðfesti hins vegar að félagið væri á eftir Jordi Alba, vinstri bakverði Valencia.

Lee Clark tekur við Birmingham

Breskir fjölmiðlar greina frá því í kvöld að Lee Clark sé tekinn við stjórastöðunni hjá Championship-liði Birmingham í ensku knattspyrnunni.

Löw: Við þurfum á Schweinsteiger að halda

Joachim Löw, þjálfari þýska landsliðsins, ætlar að nota Bastian Schweinsteiger í undanúrslitaleiknum á móti Ítölum þótt að miðjumaðurinn sé að glíma við ökklameiðsli. Schweinsteiger gat ekki æft í nokkra daga eftir Grikklandsleikinn en var með á æfingu í gær.

Ray Allen hefur áhuga á því að spila með Miami Heat

Brian Windhorst á ESPN hefur heimildir fyrir því að Ray Allen, leikmaður Boston Celtics, hafi áhuga á því að spila með Miami Heat á næsta NBA-tímabili. Allen setur það víst ekki fyrir sig að þarna séu erkifjendurnir á ferðinni sem hafa slegið Boston Celtics út úr úrslitakeppninni undanfarin tvö ár.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Breiðablik 3-0 | Bikarmeistararnir áfram

KR-ingar unnu góðan sigur á Breiðabliki í 16 liða úrslitum Borgunarbikars karla í kvöld. Sjálfsmark Kristins Jónssonar í fyrri hálfleik ásamt tveimur mörkum frá Kjartani Henry Finnbogasyni og Þorsteini Má Ragnarssyni á lokamínútum leiksins tryggðu ríkjandi bikarmeisturum farseðil í 8-liða úrslitin.

Larry Bird hættir sem forseti Indiana Pacers

Larry Bird er ákveðinn að hætta sem forseti NBA-liðsins Indiana Pacers samkvæmt frétt í Indianapolis Star blaðinu. Samkvæmt heimildum blaðsins er Bird hundrað prósent öruggur á því að snúa ekki aftur til starfa.

Owen í viðræðum við félag í Sádí-Arabíu

Michael Owen fær eins og kunnugt er ekki nýjan samning hjá Manchester United og nú lítur út fyrir að hann sé á förum frá Englandi. Owen er nefnilega í viðræðum við Al Shabab frá Sádí-Arabíu.

Ólafur Þórðarson má ekki stjórna Víkingum á móti Fylki í kvöld

Ólafur Þórðarson, þjálfari 1. deildarliðs Víkings, verður ekki við stjórnvölinn hjá liðinu í kvöld þegar Víkingar fá Pepsi-deildarlið Fylkis í heimsókn í Víkina í 16 liða úrslitum Borgunarbikars karla. Leikurinn er í beinni á Stöð 2 Sport og hefst klukkan 20.00.

Maðkahallæri á suðvesturhorninu

Veiðivísir hefur fregnir af því að töluverður skortur sé á möðkum á suðvesturhorninu. Veiðimenn kaupa sér leyfi í Reynisvatni til að verða sér úti um maðk.

Benitez: Englendingar hafa hæfileikana en ekki réttu heimspekina

Rafael Benitez, fyrrum stjóri Liverpool, hefur blandað sér í umræðuna um enska landsliðið sem féll út úr átta liða úrslitum Evrópumótsins á sunnudagskvöldið. Benitez segir að Englendingar þurfi að breyta fótboltaheimspeki sinni til þess að ná árangri á stórmótum.

Könnun L'Equipe: Frakkar vilja sparka Nasri út úr landsliðinu

56 prósent lesenda hins virta franska íþróttablaðs L'Equipe vilja sparka Samir Nasri út úr franska landsliðinu eftir hegðun kappans á EM í fótbolta. Samir Nasri lenti upp á kant við bæði þjálfara og fjölmiðlamenn á mótinu og ímynd hans er í molum.

Pabbi Gylfa í viðtali: Gylfi gat ekkert skotið á markið í allan vetur

Sigurður Aðalsteinsson faðir Gylfa Þórs Sigurðssonar var í spjalli i þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun, þar sem hann fór yfir ferilinn hjá stráknum. Mörg stór félög eru á eftir íslenska landsliðsmanninum en Sigurður segir að ekkert skýrist í hans málum fyrr en um mánaðarmótin. Gylfi var orðaður við Tottenham í þýskum fjölmiðlum í gærkvöldi.

Arsenal staðfestir komu Olivier Giroud

Olivier Giroud er orðinn leikmaður Arsenal en enska félagið tilkynnti þetta á heimasíðu sinni í morgun þar sem sjá mátti mynd af Frakkanum með Arsenal-búninginn.

Tvöfaldur skolli: Afrekskylfingar slógu blint högg í Mosfellsbæ

Logi Bergmann Eiðsson og Þorsteinn Hallgrímsson eru með ýmsar skemmtilega "leiki“ og þrautir í golfþættinum Tvöföldum skolla sem sýndur er á Stöð 2 sport. Þeir fengu þrjá afrekskylfinga til þess að spreyta sig á "blindu“ höggi á fyrstu braut á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ.

Breska lögreglan rannsakar twitter-árásir á Cole og Young

Ensku landsliðsmönnunum Ashley Cole og Ashley Young var úthúðað á twitter eftir að þeir brenndu af vítum í vítakeppninni á móti Ítalíu í átta liða úrslitum EM. Þetta gekk svo langt að breska lögreglan hefur hafið lögreglurannsókn meðal annars vegna kynþáttaníðs í skjóli twitter.

Miðfjarðará: Fín opnun en aðstæður erfiðar

Það er mál manna sem voru við veiðar hversu vel haldinn fiskurinn er að mæta úr hafinu, en hins vegar voru aðstæður í Miðfjarðaránni "fjandi erfiðar“; lítið vatn og gargandi sól.

Torfastaðir: Ódýr valkostur fyrir laxveiðimenn

Sogið er vatnsmesta lindá landsins með fjölmörgum veiðisvæðum. Ekki var byrjað að selja leyfi á Torfastaðsvæðið fyrr en fyrir um tveimur árum. Meðalveiði síðustu tvö sumur er um 100 laxar.

Borgunarmörkin í beinni útsendingu á Vísi

Sextán liða úrslit Borgunarbikars karla í knattspyrnu verða gerð upp í Borgunarmörkunum á Stöð 2 Sport klukkan 22. Þátturinn verður einnig í opinni dagskrá hér á Vísi.

Drogba orðaður við Barcelona

Framherjinn Didier Drogba er orðaður við spænska félagið Barcelona í spænskum fjölmiðlum í kvöld. Drogba, sem nýverið samdi við Shangai Shenhua í Kína, má yfirgefa félagið bjóðist honum að ganga til liðs við Börsunga.

Liðsfélagi Haraldar hjá Sarpsborg barinn í spað

Alvaro Baigorri, liðsfélagi Haraldar Björnssonar hjá norska félaginu Sarpsborg 08, varð fyrir fólskulegri árás í miðbæ Sarpsborg um helgina. Baigorri er allur blár og marinn eftir árásina en slapp þó ótrúlega vel. Sarpsborg Arbeiderblad sagði frá þessu.

Sveinbjörn hetja Fram í Mosfellsbænum

Sveinbjörn Jónasson skoraði tvívegis þegar Fram kreisti fram 3-2 sigur gegn Aftureldingu í viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu í kvöld.

Arsenal meistari í Argentínu

Arsenal, eða Arsenal de Sarandí eins og það heitir, varð í gær argentínskur meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins. Arsenal tryggði sér sigur í deildinni með því að vinna 1-0 sigur á Belgrano de Córdoba í lokaumferðinni.

Selfyssingar fóru létt í gegnum KB

Pepsi-deildarlið Selfoss vann öruggan 4-0 sigur á 3. deildarliði KB úr Breiðholti í 16-liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu á Selfossi í kvöld.

Tvöfaldur skolli: Arnar leikari ræðir um Haukadalsvöll við Geysi

Logi Bergmann Eiðsson og Þorsteinn Hallgrímsson ætla að fara víða í sumar í golfþættinum Tvöföldum skolla sem sýndur er á Stöð 2 sport. Þeir félagar fóru í heimsókn á Haukadalsvöllinn við Geysi og þar ræddu þeir við Arnar Jónsson leikara – sem spilar nánast allt sitt golf á þessum magnaða golfvelli.

Eyjamenn rúlluðu Hetti upp

Pepsi-deildarlið ÍBV tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu með 6-1 heimasigri á Hetti sem leikur í 1. deild. Eyjamenn leiddu 4-0 í hálfleik en heimamenn höfðu mikla yfirburði í leiknum.

Verstu Panenka-vítin

Vippa ítalska landsliðsmannsins Andrea Pirlo í vítaspyrnukeppninni gegn Englendingum á Evrópumótinu í gærkvöldi hefur vakið aðdáun sparkspekinga um allan heim.

Miami Heat á eftir Steve Nash og Ray Allen fyrir næsta tímabil

NBA-meistarar Miami Heat eru strax byrjaðir að undirbúa liðssöfnun fyrir næsta tímabil og eins og áður leita Pat Riley og félagar að reynsluboltum sem eru tilbúnir að fórna "smá" pening fyrir möguleikann á því að verða meistari.

Umfjöllun og viðtöl: Þróttur R. - Valur 2-1

Fyrstudeildarlið Þróttar gerði sér lítið fyrir og lagði Val 2-1 í 16 liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld á heimavelli sínum eftir framlengdan leik. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1 en Þróttur tryggði sér verðskuldaðan sigur á síðustu mínútum framlengingarinnar.

Sjá næstu 50 fréttir