Ray Allen hefur áhuga á því að spila með Miami Heat Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2012 17:00 Ray Allen fagnar sigurkörfu með Boston Celtics í vetur. Mynd/Nordic Photos/Getty
Brian Windhorst á ESPN hefur heimildir fyrir því að Ray Allen, leikmaður Boston Celtics, hafi áhuga á því að spila með Miami Heat á næsta NBA-tímabili. Allen setur það víst ekki fyrir sig að þarna séu erkifjendurnir á ferðinni sem hafa slegið Boston Celtics út úr úrslitakeppninni undanfarin tvö ár. Það verða væntanlega peningamálin sem á endanum ráða því hvort Ray Allen gerist leikmaður Miami Heat en óvíst er hvort að hann sættist á 3 milljón dollara árslaun sem er það mesta sem Miami getur boðið honum. Önnur félög í NBA-deildinni geta væntanlega boðið honum betri samning en í Miami er líklega einn besti möguleikinn fyrir hann að vinna meistaratitil. Ray Allen verður 37 ára gamall í júlí en hann hefur spilaði í NBA-deildinni frá árinu 1996. Allen kom til Boston Celtics árið 2007 og vann sinn fyrsta og eina titil með liðinu 2008. Ray Allen hefur skorað 2718 þriggja stiga körfur í NBA-deildinni sem er það mesta í sögunni en hann sló þriggja stiga met Reggie Miller í febrúar 2011. Ray Allen glímdi við meiðsli á þessu tímabili en var með 14,2 stig í leik í deildarkeppninni og 10,7 stig í leik í úrslitakeppninin. Hann hækkaði stigaskorið sitt upp í 11,9 í úrslitum Austurdeildarinnar á móti Miami.
NBA Mest lesið Vinirnir vara Tiger við en honum er skítsama Golf Mætti á blaðamannafund með börn látins bróður síns Körfubolti „Fótboltinn var grimmur við okkur“ Fótbolti „Við vorum úr leik en svo komum við til baka“ Fótbolti Goðsagnirnar Duncan og Ginobili pössuðu upp á Popovich Körfubolti Öll sextíu sigra liðin 0-1 undir í sínum einvígum Körfubolti 150 milljónir fylgdust með sögulegum sigri Sport Inter í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir stórbrotið einvígi Fótbolti Bjuggust alls ekki við þessu af Bergrós: „Hún var alveg ótrúleg“ Sport Aron Einar verður ekki með Þórsurum í sumar Fótbolti Fleiri fréttir Mætti á blaðamannafund með börn látins bróður síns Öll sextíu sigra liðin 0-1 undir í sínum einvígum Goðsagnirnar Duncan og Ginobili pössuðu upp á Popovich Ármenningar einum sigri frá sæti í Bónus deildinni Önnur sigurkarfa Gordons í úrslitakeppninni „Ofboðslega meðvitaður um að ég eigi ekki marga svona leiki eftir“ „Er þetta ljótasti maður sem þú hefur kysst?“ Ólafur baðst afsökunar eftir leik: „Ég er bara rosalega viðkvæmur eins og er“ „Annar oddaleikurinn þar sem við lendum í algjörri þvælu“ „Ég fékk að setja þetta ofan í og guðirnir voru með mér í dag“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 74-70 | Stjarnan í úrslit eftir hádramatík Lögmálið: Vil fá Óskar Ófeig hérna í staðinn Allt undir í oddaleik: Sjaldan mætt liði á Íslandi með jafn mikil einstaklingsgæði „Þær eru stærri en við erum drullusterkar“ Sendu Houston enn á ný í háttinn „Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“ Diamond: Þurfum að ná í stopp allan leikinn Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 72-90 | Haukar einu skrefi frá Íslandsmeistaratitlinum Styrmir gulltryggði sigur Belfius Mons og var stigahæstur á vellinum „Verið að kveðja góðan mann með mjög glæstan feril“ Sterk liðsheild Denver á meðan Clippers féll á prófinu „Þetta var minn síðasti körfuboltaleikur“ „Ég kom til Íslands með eitt markmið“ Hamar jafnaði einvígið með stórsigri Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 90-105 | Stólarnir komnir í úrslit „Kóngurinn á Íslandi, DeAndre Kane, bjargaði okkur“ Houston knúði fram oddaleik Segir sína menn þurfa að vera í „meistara ásigkomulagi“ „Þeir vilja náttúrulega fleiri leiki líka“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 95-92 | Rosalegasta endurkoma síðari ára Sjá meira