Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Abramovich ætlar að greiða 80 milljónir fyrir Tevez og Modric Eigandi Chelsea, Roman Abramovich, er tilbúinn að greiða 80 miljónir punda eða 15 milljarða íslenskra króna í þá Carlos Tevez og Luka Modric, en sá fyrrnefndi er á leiðinni frá Man. City. 10.7.2011 13:30
Svíþjóð komið í undanúrslit á HM Svíþjóð varð í dag þriðja liðið að tryggja sér sæti í undanúrslitum Heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi, en þær sænsku unnu Ástralíu, 3-1, og mæta Japan í undanúrslitum 13.júlí. 10.7.2011 13:00
Umfjöllun: Guðjón Baldvinsson gerði þrennu er KR sigraði Fylki KR vann öruggan sigur, 3-0, á Fylkismönnum í Pepsi-deild karla í knattspyrnu, en Guðjón Baldvinsson gerði 3 mörk í leiknum, öll í fyrri hálfleik. 10.7.2011 12:41
Umfjöllun: Eyjamenn lögðu FH-inga í Eyjum ÍBV vann 3-1 sigur á FH í leik liðanna á Hásteinsvelli í dag. Eyjamenn voru sterkari aðilinn og unnu sanngjarnan sigur. ÍBV er með sigrinum komið í þriðja sæti deildarinnar með 19 stig en FH-ingar hafa 15 stig í því fjórða. 10.7.2011 12:35
Metfiskur í Mývatnssveit Frétt af Vötn og veiði. Metfiskur veiddist í Laxá í Mývatnssveit í morgun. 80 cm ferlíki sem rétti upp öngulinn um leið og hann smaug ofan í háfinn! Þetta er lengsti urriði sem veiðst hefur í Laxá á þessum slóðum, en ekki þó sá þyngsti. 10.7.2011 12:33
Svartá komin í 12 laxa Heildartalan í Svartá er kominn uppí tólf laxa að sögn Vignis Björnssonar veiðivarðar. Fiskanir eru vænlegir tveggja ára laxar, frá 7-10 pund, og hafa þeir flestir komið á Sunray shadow, Svarta Francis og Þýska snældu. Eins og áður eru helstu veiðistaðirnir sem eru að gefa Ármót, Brúnarhylur og Krókeyrarhylur. 10.7.2011 12:29
Frábær veiði í Breiðdalsá og Hrútafjarðará að fara í gang Þrátt fyrir flóð þar sem 2-3 dagar nánast duttu út í veiði er laxveiðin núna fjórföld í Breiðdalsá miðað við sama tíma í fyrra eða komin strax í 75 laxa! 10.7.2011 12:23
Þýskaland gæti misst af sæti í London 2012 Eftir óvænt tap þýska kvennalandsliðsins í knattspyrnu gegn Japan á HM kvenna er góður möguleiki á því að þjóðin verði ekki meðal þátttakenda á Ólympíuleiknum í London 2012. Takist Svíum að vinna Ástrali á morgun er sætið þeirra. 10.7.2011 11:30
Yao Ming leggur skóna á hilluna Kínverski körfuknattleiksmaðurinn Yao Ming hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Ming hefur glímt við erfið meiðsli undanfarið og missti af nánast öllu síðasta tímabili hjá Houston Rockets í NBA deildinni. 10.7.2011 10:30
Nýliði í góðri stöðu á ráslínu á heimavelli Skoski ökumaðurinn Paul di Resta á Force India keppnisbíl verður sjötti á ráslínu í breska kappakstrinum á Silverstone í dag. Nýliðinn hjá Force India náði sínum besta árangri í tímatökum í gær, en Force India liðið er eitt átta Formúlu 1 liða sem eru á heimavelli í dag. 10.7.2011 10:11
Young verður númer átján - De Gea númer eitt Englandsmeistarar Manchester United hafa tilkynnt leikmannanúmer fyrir næstu leiktíð. David De Gea verður númer eitt, Ashley Young númer átján og hinn ungi Phil Jones númer fjögur. 10.7.2011 10:00
Brynjar Gauti: BÍ/Bolungarvík einn mesti skítaklúbbur landsins Brynjar Gauti Guðjónsson leikmaður ÍBV kallar BÍ/Bolungarvík skítaklúbb. Í gær fjallaði Vísir um ásakanir Vestfirðinga um að stuðningsmenn Víkings frá Ólafsvík hefðu sýnt leikmönnum BÍ/Bolungarvík kynþáttafordóma. 10.7.2011 09:30
Roma semur við eina skærustu stjörnu Argentínu Ítalska félagið AS Roma hefur gengið frá kaupum á argentínska táningnum Erik Lamela frá River Plate í Argentínu. Talið er að kaupverðið sé um 12 milljónir evra eða sem nemur tæpum tveimur milljörðum íslenskra króna. 10.7.2011 09:00
Venesúela vann óvæntan 1-0 sigur á Ekvador Venesúela heldur áfram að koma á óvart í Suður-Ameríkukeppninni í knattspyrnu. Liðið vann í kvöld 1-0 sigur á Ekvador og er í góðri stöðu fyrir lokaumferð riðlakeppninnar. 9.7.2011 23:32
Heimsmeistarar Þjóðverja fallnir úr leik Óvænt úrslit urðu á heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu í Wolfsburg í kvöld. Japan sló út heimsmeistarana, gestagjafa Þjóðverja, með 1-0 sigri eftir framlengingu. 9.7.2011 21:17
Fred bjargaði stigi fyrir Brasilíu Brasilía og Paragvæ skildu jöfn 2-2 í annarri umferð B-riðils í Suður-Ameríkukeppninni í knattspyrnu í Argentínu í kvöld. Fred bjargaði málunum fyrir Brasilíu skömmu fyrir leikslok. 9.7.2011 20:50
Cole og Woodgate á leið til Stoke Peter Coates stjórnarformaður Stoke segir að félagið eigi í viðræðum við ensku landsliðsmennina Carlton Cole og Jonathan Woodgate. Þetta kom fram í spjalli Coates við enska fjölmiðilinn Talksport. 9.7.2011 20:30
Nasri fer í æfingaferð til Asíu - Fabregas ekki Franski miðjumaðurinn Samir Nasri fer með Arsenal í æfingaferð til Asíu. Nasri hefur verið orðaður sterklega við brotthvarf frá Lundúnarliðinu. Cesc Fabregas verður hins vegar eftir í London þar sem hann glímir við meiðsli. 9.7.2011 19:34
Kristinn: Bannað að hlæja að óvitum Kristinn Steindórsson skoraði eitt mark í 4-1 sigrinum á Þór í Kópavogi í dag. Hann hélt sér heitum í hálfleik meðan aðrir leikmenn liðsins fóru inn í klefa líkt og venjan er. 9.7.2011 19:14
Ármann Pétur: Þeir kláruðu færin sín Ármann Pétur Ævarsson leikmaður Þórs sagði Blikana hafa nýtt færin sín í 4-1 sigri Kópavogsliðsins. Þar hefði skilið á milli. 9.7.2011 19:12
Enn dettur England út eftir vítaspyrnukeppni Frakkar eru komnir í undanúrslit á HM kvenna í knattspyrnu í Þýskalandi. Liðið lagði England í fyrsta leik 8-liða úrslitanna í dag eftir vítaspyrnukeppni. Englendingar voru þremur mínútum frá sigri í venjulegum leiktíma. 9.7.2011 18:50
Webber mun sækja til sigurs og segir karp um reglur leiðinlegt Mark Webber er fremstur á ráslínu í breska Formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram á morgun. Hann telur að ruglingur með túlkun á reglum um útbúnað bílanna þessa mótshelgina á Silverstone ekki vera gott mál gagnvart áhorfendum. 9.7.2011 18:16
BÍ/Bolungarvík ósátt við kynþáttafordóma í Ólafsvík Víkingur í Ólafsvík vann mikilvægan 4-1 sigur á BÍ/Bolungarvík í viðureign liðanna á Snæfellsnesi í gær. Á heimasíðu BÍ/Bolungarvíkur segir að leikmenn liðsins hafi orðið fyrir niðrandi hrópum frá heimamönnum meðan á leik stóð. 9.7.2011 16:45
Baulað á Messi í Argentínu Argentínska landsliðið hefur ollið vonbrigðum í Suður-Ameríkukeppninni í knattspyrnu. Liðið hefur gert jafntefli í tveimur fyrstu leikjum sínum og spilamennskan ekki verið góð. Svo ósáttir eru stuðningsmennirnir að þeir bauluðu á Lionel Messi skærustu stjörnu landsliðsins í markalausa jafnteflinu gegn Kólumbíu. 9.7.2011 16:45
Elín Metta skoraði fjögur og Ísland í 5. sæti Íslenska stúlknalandsliðið í knattspyrnu lagði Svíþjóð 5-3 í leik um 5. sætið á Norðurlandamótinu í Finnlandi. Íslenska liðið lenti 0-3 undir snemma leiks en sneri leiknum sér í hag. Elín Metta Jensen skoraði fjögur mörk Íslands. 9.7.2011 15:13
Cannavaro leggur skóna á hilluna Knattspyrnumaðurinn Fabio Cannavaro hefur ákveðið að fylgja læknisráði og leggja skóna á hilluna. Cannavaro var fyrirliði heimsmeistaraliðs Ítalíu árið 2006 og var valinn knattspyrnumaður ársins af FIFA sama ár. 9.7.2011 14:15
Umfjöllun: Breiðablik vann stórsigur á Þór í Kópavogi Breiðablik vann stórsigur á Þórsurum í 10. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í dag. Lokatölurnar 4-1 en úrslitin gefa þó ekki alveg rétta mynd af leiknum. Þórsarar spiluðu vel á köflum og sköpuðu sér fín færi. 9.7.2011 13:41
Webber fljótastur í tímatökunni á Silverstone Mark Webber á Red Bull verður fremstur á ráslínu í breska kappakstrinum á Silverstone brautinni í Bretlandi á sunnudag. Hann náði besta tíma í tímatökum í dag og varð á undan liðsfélaga sínum Sebastian Vettel, en Fernando Alonso náði þriðja sæti á Ferrari og Felipe Massa á samskonar bíl því fjórða. 9.7.2011 13:32
Sanchez með mark í anda Romario Perú vann nokkuð óvæntan 1-0 sigur á Mexíkó í Suður-Ameríkukeppninni í knattspyrnu í gærkvöldi. Chile og Úrúgvæ skildu jöfn 1-1 í fyrri leik kvöldsins þar sem Alexis Sanchez var á skotskónum. 9.7.2011 12:15
Tala látinna í Twente hækkar 24 ára karlmaður sem slasaðist þegar þakið á leikvangi FC Twente féll á verkamenn á fimmtudaginn lést af sárum sínum á sjúkrahúsi í gær. Þar með hafa tveir látið lífið vegna slyssins. 9.7.2011 11:45
West Ham vill að Diamanti verði meinað að spila fótbolta Enska knattspyrnufélagið West Ham vilja að FIFA og ítalska knattspyrnusambandið komi í veg fyrir að Alessandro Diamanti fái að spila fótbolta. Diamanti gekk til liðs við Brescia frá West Ham á síðasta ári. Að sögn West Ham hefur Brescia ekki enn lokið við að greiða fyrir kaupin á leikmanninum. 9.7.2011 11:00
Vettel rétt á undan Alonso á lokaæfingunni Sebastian Vettel á Red Bull varð 0.063 úr sekúndu á undan Fernando Alonso á Ferrari á lokaæfingu Formúlu 1 liða á Silverstone brautinni í morgun. Brautin var þurr, en keppendur æfðu í tvígang á blautri braut í gær og þá náði Mark Webber á Red Bull besta tíma á fyrri æfingunni, en Felipe Massa á Ferrari á þeirri síðari um daginn. 9.7.2011 10:24
Essien meiðist enn á ný á hné Michael Essien leikmaður Chelsea meiddist á hné á æfingu hjá félaginu í gær. Essien sleit krossbönd í hné fyrir einu og hálfu ári síðan sem varð til þess að hann missti af HM 2010 í Suður-Afríku. 9.7.2011 10:00
Aron Einar: Enginn Brynjuís í Coventry Knattspyrnumaðurinn Aron Einar Gunnarsson stóðst læknisskoðun hjá Cardiff City í gær og skrifaði að henni lokinni undir þriggja ára samning við félagið. Cardiff á nú aðeins eftir að ganga frá greiðslu á uppeldisbótum til Coventry. 9.7.2011 08:00
Golflandsliðin töpuðu bæði gegn Ítalíu Íslensku landsliðin í golfi töpuðu viðureignum sínum á EM áhugamanna í golfi í gær. Íslenska kvennalandsliðið sem spilar í Austurríki beið lægri hlut gegn Ítalíu, 2:3. Signý Arnórsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir unnu sína leiki í tvímenningi. 9.7.2011 07:00
Ásbjörn Friðriksson til liðs við Allingsas HK Handknattleikskappinn Ásbjörn Friðriksson úr FH hefur skrifað undir samning við sænska félagið Allingsas HK. Félagið leikur í efstu deild í Svíþjóð og er samningur Ásbjörns til tveggja ára með möguleika á eins árs framlengingu. 9.7.2011 01:09
Adebayor dreifði peningum í bókstaflegri merkingu Tógómaðurinn Emmanuel Adebayor sló í gegn á danssýningu í Gana á dögunum. Þá óð Adabayor upp á svið í miðju atriði og byrjaði að dreifa peningum. 8.7.2011 23:30
Togaði í djásnið á Dos Santos Þó svo mörkin láti á sér standa í Copa America er ekkert gefið eftir í leikjum mótsins og menn í mótinu beita öllum brögðum til þess að stöðva andstæðinginn. Það fékk Mexíkóinn Giovani Dos Santos að reyna í leiknum gegn Síle. 8.7.2011 22:45
BÍ/Bolungarvík steinlá í Ólafsvík Lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar í BÍ/Bolungarvík töpuðu 4-1 gegn Víkingum í Ólafsvík í kvöld. Vestfirðingar komust yfir snemma leiks en Ólafsvíkingar komu tilbaka og tryggðu sér glæsilegan sigur. 8.7.2011 22:08
Skagamenn sóttu þrjú stig norður yfir heiðar ÍA er óstöðvandi í 1. deild karla í knattspyrnu. Liðið gjörsigraði KA norðan heiða í kvöld með fjórum mörkum gegn einu. Hjörtur Júlíusson Hjartarson skoraði tvö mörk Skagamanna sem hafa sex stiga forskot á toppnum. 8.7.2011 21:26
Myndasyrpa frá leikvangi Twente sem hrundi Einn maður lést og margir slösuðust þegar þakið á leikvangi hollenska fótboltaliðsins FC Twente hrundi í gær. Talið er að þakið hafi hrunið vegna þess að tveir burðarbitar kiknuðu. Ekki er vitað hvers vegna það gerðist. 8.7.2011 21:15
Bielsa tekur við Bilbao Argentínski þjálfarinn Marcelo Bielsa mun taka við sem þjálfari spænska félagsins Athletic Bilbao í kjölfar þess að Jose Urrutia vann forsetakosningar félagsins. 8.7.2011 20:30
Motta verður áfram hjá Inter Þrátt fyrir miklar vangaveltur síðustu vikur verður ekkert af því að Thiago Motta fari frá ítalska liðinu Inter. Leikmaðurinn vill ekki fara frá liðinu. 8.7.2011 19:45
Neuer ekki í náðinni hjá stuðningsmönnum Bayern Harðkjarna stuðningsmenn Bayern Munchen eru allt annað en sáttir við að Manuel Neuer sé orðinn markvörður félagsins en hann kom frá Schalke í sumar. 8.7.2011 19:00
Eiði Smára boðinn tveggja ára samningur hjá Swansea Nýliðar Swansea í ensku úrvalsdeildinni hafa boðið Eiði Smára Guðjohnsen tveggja ára samning. Eiður skoðar einnig tilboð frá Bandaríkjunum. Þetta kom fram í fréttatíma Stöðvar 2 í kvöld. 8.7.2011 18:45