Fleiri fréttir Jón Guðni: Ótrúlegt að Hvít-Rússar komust áfram Jón Guðni Fjóluson, leikmaður íslenska U-21 liðsins, segir að leikmenn geti gengið stoltir frá leiknum við Danmörku í kvöld. Ísland vann leikinn, 3-1, en það dugði ekki til að komast áfram í undanúrslit Evrópumeistaramótsins í Danmörku. 18.6.2011 22:02 Day og Westwood með frábæran hring - Mcllroy gefur lítið eftir 18.6.2011 22:00
Sjá næstu 50 fréttir
Jón Guðni: Ótrúlegt að Hvít-Rússar komust áfram Jón Guðni Fjóluson, leikmaður íslenska U-21 liðsins, segir að leikmenn geti gengið stoltir frá leiknum við Danmörku í kvöld. Ísland vann leikinn, 3-1, en það dugði ekki til að komast áfram í undanúrslit Evrópumeistaramótsins í Danmörku. 18.6.2011 22:02
Afturelding og Stjarnan áfram í Valitor-bikarnum Afturelding og Stjarnan eru komin í 8-liða úrslit í Valitor-bikar kvenna í knattspyrnu. Afturelding vann Sindra á Hornarfirði 2-0 og Stjarnan vann Þrótt á heimavelli 5-0. 18.6.2011 21:15
Sviss vann Hvíta-Rússland 3-0 Svisslendingar sigruðu Hvít-Rússa 3-0 í hinum leik A-riðils í Árósum í kvöld. Þrátt fyrir tapið komast Hvít-Rússar áfram ásamt Svisslendingum sem sigruðu í öllum leikjum sínum í riðlinum. 18.6.2011 21:00
Toulalan til Malaga - enn fjölgar kempunum Spænska knattspyrnufélagið Malaga hefur gengið frá kaupum á Jeremy Toulalan frá Lyon. Toulalan sem skrifaði undir fjögurra ára samning við Malaga hefur spilað 36 landsleiki fyrir Frakkland. 18.6.2011 19:45
Steve Bruce mun forðast að kaupa afríska leikmenn Steve Bruce knattspyrnustjóri Sunderland segist ætla að forðast það að kaupa afríska leikmenn til félagsins í sumar. Ástæðan er Afríkukeppnin sem fram fer í janúar. 18.6.2011 19:00
Þrjár breytingar á U-21 liðinu - Bjarni á bekkinn Bjarni Þór Viðarsson, fyrirliði U-21 liðsins, hefur misst sæti sitt í byrjunarliði íslenska liðsins fyrir leikinn gegn Danmörku á EM í kvöld. 18.6.2011 17:36
ÍBV og Fylkir áfram í Valitorbikarnum ÍBV og Fylkir komust í dag í 8-liða úrslit í Valitorbikar kvenna í knattspyrnu. ÍBV sigraði Völsung í Eyjum 4-0 en Fylkir gerði góða ferð norður á Akureyri og sigraði Þór/KA 1-0. 18.6.2011 16:15
Dönsku leikmennirnir fá ekki að vita stöðuna í hinum leiknum Keld Bordinggaard, þjálfari danska U-21 liðsins, hefur ákveðið að leikmenn sínir fái ekki upplýsingar um hvernig staðan er í hinum leik A-riðilsins á meðan leikurinn við Ísland fer fram í kvöld. 18.6.2011 16:00
Danskur sjónvarpsmaður: Væru mikil vonbrigði að komast ekki í undanúrslit Christian Høgh Andersen, sjónvarpsmaður á TV2 í Danmörku, reiknar með að leikmenn danska U-21 liðsins munu ekki vanmeta íslenska liðið fyrir leik liðanna í kvöld. 18.6.2011 15:00
Newcastle hafði betur gegn Liverpool í kapphlaupinu um Sylvain Marveaux Franski kantmaðurinn Sylvain Marveaux hefur skrifið undir fimm ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle. Marveaux kemur á frjálsri sölu til liðsins en hann lék áður með Rennes. Liverpool var einnig á höttunum eftir Frakkanum. 18.6.2011 14:45
Eyjólfur: Danir með leikmenn sem geta klárað leiki Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari segir að danska liðið sé skipað sterkum einstaklingum sem geti klárað leiki upp á sitt einsdæmi. 18.6.2011 14:00
Íslendingur í Álaborg: Búinn að breyta spánni Guðmundur Guðjónsson er búsettur hér í Álaborg með fjölskyldu sinni og hann hefur fylgst vel með gengi íslenska U-21 liðsins á EM í Danmörku. 18.6.2011 13:00
Laugardalsá opnuð Við vorum að fá fyrstu fréttir úr Laugardalsá en eins og menn vita opnaði laugardalsáin eftir hádegi í gær. Seinnipartin í gær var lítið að finna nema silung og eru komnir þónokkrir Urriðar. En strax í morgun komu tveir 10-12 punda laxar á land úr Dagmálafljóti og eru veiðimenn mjög ánægðir með veiðina.. 18.6.2011 12:19
Laxinn mættur í Breiðdalsá og fín veiði í Fögruhlíðará Í gær er unnið var að hreinsun laxastigans í fossinum Beljanda í Breiðdal kom í ljós lax í einu hólfi hans er vatnið var tæmt. Var hann háfaður upp og sleppt í ánn og að sögn þeirra sem komu að þessu var þetta um 7-8 punda hrygna með för eftir lús. Svo hann er mættur í Breiðdalinn enda hefur hin síðari ár oftast sést lax um þetta leyti og veiðin aukist mikið í júlí frá því sem áður var. Veiði hefst 1. júlí og ennþá eru lausar stangir á bilinu 20. - 26. júlí og svo aftur í lok ágúst og von er á metveiði enda var seiðasleppingin vorið 2010 nánast tvöfölduð frá því sem áður hefur verið! 18.6.2011 12:12
Veiðin að glæðast í vötnunum Steingrímur Valgarðsson er búinn að fara nokkrar ferðir í Kleifarvatnið og hefur verið að ná í fína urriða. Hér fyrir neðan má sjá mynd af honum með tvo fiska, 6 og 3,5 punda sem hann fékk í gær en eftir að myndin var tekin fékk hann aðra tvo fína urriða. Hann nefndi að mikill fiskur væri í vatninu og hann var stöðugt verið að narta í hjá honum. Hann var að veiða í suðurenda vatnins, ekki langt frá hverasvæðinu. 18.6.2011 12:05
Danski landsliðsþjálfarinn: Þurfum að giska á nálgun íslenska liðsins Keld Bordinggaard, þjálfari danska U-21 landsliðsins, segir að hans þjálfarateymi hafi eytt miklum tíma í að hugsa um leikstíl íslenska liðsins. 18.6.2011 12:00
U-20 landsliðshópurinn fyrir Evrópumótið valinn Benedikt Guðmundsson þjálfari U-20 ára landsliðs karla hefur valið þá tólf leikmenn sem spila fyrir Íslands hönd í B-deild Evrópumótsins sem fram fer í Sarajevo 14.-24. júlí. 18.6.2011 11:45
Arnór: Betra að spila fyrir fullum velli Arnór Smárason segir að danska liðið sé vel spilandi og með góða leikmenn sem þurfi að hafa gætur á. Hann segir þó að Íslendingar muni mæta dýrvitlausir til leiks. 18.6.2011 11:00
Markvörður Dana: Ég hef yfirhöndina gegn Gylfa Mikkel Andersen, markvörður U-21 liðs Danmerkur, þekkir Gylfa Þór Sigurðsson vel, þar sem þeir voru samherjar hjá Reading áður en Gylfi gekk til liðs við Hoffenheim í Þýskalandi. 18.6.2011 08:00
Forseti Barcelona hótar að skera á öll tengsl við Real Madrid Sandro Rosell, forseti spænska knattspyrnufélagsins Barcelona, segir á heimasíðu félagsins tilbúinn að skera á öll tengsl við erkifjendurna í Real Madrid. Hann segir hegðun Madridinga á síðasta tímabili hafa farið út fyrir öll velsæmismörk. 17.6.2011 23:00
Eto'o, Song og Assou-Ekotto fyrir aganefnd Kamerúnsku landsliðsmennirnir Samuel Eto'o hjá Inter, Alex Song hjá Arsenal og Benoit Assou-Ekotto hjá Tottenham hafa verið kallaðir fyrir aganefnd knattspyrnusambandsins í Kamerún. Þeir eiga að gera grein fyrir hegðun sinni í tengslum við leik landsliðsins gegn Senegal 4. júní síðastliðinn. 17.6.2011 22:00
Demba Ba kominn til Newcastle Framherjinn Demba Ba hefur gengið til liðs við Newcastle. Senegalinn sem er 26 ára skrifaði undir þriggja ára samning við félagið. Hann var á mála hjá West Ham á síðasta tímabili en var laus allra mála hjá félaginu. 17.6.2011 21:00
Moggi í lífstíðarbann frá knattspyrnu Luciano Moggi, fyrrum framkvæmdarstjóri ítalska knattspyrnuliðsins Juventus, hefur verið dæmdur í lífstíðarbann frá afskiptum af knattspyrnu af ítalska knattspyrnusambandinu. 17.6.2011 20:00
Eyjólfur: Má búast við breytingum Eyjólfur Sverrisson hefur ekki útilokað að breyta til í leiknum gegn Danmörku á morgun, bæði hvað varðar leikkerfi og byrjunarlið íslenska U-21 liðsins. 17.6.2011 18:45
Fyrrum forseti FIFA í slæmum málum Siðanefnd Alþjóða ólympíunefndarinnar hefur hafið rannsókn á ásökunum sjónvarpsþáttar BBC á hendur João Havelange fyrrum forseta FIFA. Brasilíumaðurinn, sem er 95 ára gamall, er sakaður um að hafa þegið mútur. 17.6.2011 18:00
Rory McIlroy í metabækurnar eftir frábæran hring Rory McIlroy setti mótsmet í dag á opna bandaríska meistaramótinu með því að leika á 66 höggum eða -5 á öðrum keppnisdegi stórmótsins. Hinn 22 ára gamli Norður-Íri er samtals á 11 höggum undir pari en þetta er í fyrsta sinn í 111 ára sögu mótsins sem kylfingur nær að komast 10 undir par vallar á öðrum hring. Fjölmargir kylfingar eiga eftir að hefja leik í dag en þessa stundina er hinn 22 ára gamli McIlroy með 8 högga forskot í efsta sæti á Congressional vellinum. 17.6.2011 17:44
Dalglish ósáttur við upphafsdag tímabilsins Kenny Dalglish knattspyrnustjóri Liverpool er ósáttur við að enska úrvalsdeildin hefjist á laugardegi. Vikuna á undan eru flest landslið í eldlínunni og hann segir að eðlilegt hefði verið að hefja deildina á sunnudeginum. 17.6.2011 17:00
Kynlífsmyndband með Shaq nefnt í tengslum við mannrán Þótt körfuboltastjarnan Shaquille o'Neal hafi lagt skóna á hilluna er hann ekki horfinn af forsíðum dagblaðanna. Nú hefur nafn hans verið nefnt í kæru á hendur sjö mönnum sem rændu og börðu Robert nokkurn Ross árið 2008. Ross segir mennina hafa verið á höttunum eftir kynlífsmyndbandi með O'Neal. 17.6.2011 16:00
Prúðara liðið gæti komist áfram Talsvert hefur verið fjallað um það í dönskum fjölmiðlum hvað muni gerast ef úrslit leikja í lokaumferð A-riðils á EM U-21 í Danmörku fara á ákveðinn veg. 17.6.2011 15:30
Tiger Woods er enn tekjuhæsti bandaríski íþróttamaðurinn Þrátt fyrir að bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hafi ekki sýnt mikla takta á golfvellinum á undanförnum mánuðum er hann enn tekjuhæsti bandríski íþróttamaðurinn. Í samantekt Forbes tímaritsins var Woods rúmlega 62 milljónir bandaríkjadala í tekjur á árinu 2010 eða rétt um 7,2 milljarða kr.. Þar af eru aðeins 2,2 milljónir í verðlaunafé eða 250 milljónir kr. 17.6.2011 15:00
Rúrik: Trúum enn á okkar möguleika Rúrik Gíslason segir að það væri skelfilegt ef Ísland myndi enda með núll stig og ekkert skorað mark á EM U-21 í Danmörku. Strákarnir mæta heimamönnum á morgun og ætla að sýna sitt rétta andlit þá. 17.6.2011 14:30
Hollenskir landsliðsmenn til Malaga Varnarmaðurinn Joris Mathijsen hefur samið til tveggja ára við spænska knattspyrnuliðið Malaga. Mathijsen fetar í fótspor markahróksins Ruud Van Nistelrooy sem gekk til liðs við Malaga fyrir skemmstu. Leikmennirnir koma báðir frá þýska félaginu Hamburg. 17.6.2011 14:00
Danir úr leik ef þeir tapa fyrir Íslandi Danir munu fylgjast vel með báðum leikjum í lokaumferð EM U-21 liða á morgun því úrslitin í báðum leikjum gætu haft mikið að segja. Danir eru úr leik ef liðið tapar fyrir Íslandi en sigur er þýðingarlaus ef úrslitin í leik Hvíta-Rússlands og Sviss eru þeim óhagstæð. 17.6.2011 13:30
Ruglmyndband með kylfingum slær í gegn á Youtube Bandarískir atvinnukylfingar hafa í gegnum tíðina ekki verið þekktir fyrir óhefðbundna hegðun utan vallar nema í undantekningartilfellum líkt og John Daly. Nýverið settu fjórir þekktir kylfingar saman tónlistarmyndband þar sem þeir bregða sér í hlutverk í "strákabandi“ og hefur tónlistarmyndbandið með The Golf Boys slegið í gegn á Youtube. 17.6.2011 13:00
Hvorugt lið fær að æfa á keppnisvellinum í dag Hvorki íslenska U-21 landsliðið né það danska fær að æfa á keppnisvellinum í Álaborg þar sem völlurinn er mjög blautur eftir mikla rigningu í nótt. 17.6.2011 12:38
Jóhann Berg: Förum ekki til Íslands nema við skorum Jóhann Berg Guðmundsson segir að hann sé orðinn leikfær og geti spilað með íslenska U-21 liðinu gegn Danmörku í lokaumferð riðlakeppni Evrópumeistaramótsins á morgun. 17.6.2011 12:30
Úrslitaleikurinn í Meistaradeild Evrópu 2013 á Wembley Evrópska knattspyrusambandið UEFA hefur greint frá því að úrslitaleikurinn í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu árið 2013 fari fram á Wembley-leikvanginum í London. Aðeins þrjár vikur eru síðan Manchester United og Barcelona léku til úrslita á sama velli í sömu keppni. 17.6.2011 12:00
Bjarni: Erum búnir að ná áttum aftur Fyrirliðinn Bjarni Þór Viðarsson á von á heldur rólegri leik gegn Dönum á morgun heldur en leikurinn gegn Svisslendingum var á þriðjudagskvöldið. 17.6.2011 11:30
McIlroy vonast til þess að hafa lært af reynslunni frá Mastersmótinu Norður-írska ungstirnið Rory McIlroy er efstur að loknum fyrsta keppnisdegi opna bandaríska meistaramótsins í golfi en hann lék á 65 höggum eða -6. McIlroy, sem er 22 ára gamall, sagði að hann hefði getað leikið mun betur þrátt fyrir allt en hann er með þriggja högga forskot. 17.6.2011 11:00
Aron Einar: Danir með tvo ása á hendi Aron Einar Gunnarsson verður væntanlega aftur í byrjunarliði Íslands á morgun þegar að liðið mætir Danmörku á EM U-21 liða. Aron Einar tók út leikbann í síðasta leik og hefur því beðið spenntur fyrir leiknum á morgun. 17.6.2011 10:30
Alex McLeish tekinn við Aston Villa Skotinn Alex McLeish hefur gengið frá þriggja ára samningi við Aston Villa. McLeish, sem sagði starfi sínu lausu sem knattspyrnustjóri Birmingham síðastliðna helgi, segist þurfa að sanna fyrir gagnrýnum stuðningsmönnum að hann sé sá rétti í starfið. 17.6.2011 10:00
Man Utd mætir WBA í fyrstu umferð á næsta tímabili Enska úrvalsdeildin hefst að nýju þann 13. ágúst og meistaralið Manchester United fær mótherja í fyrstu umferðunum. Man Utd mætir WBA á útivelli í fyrstu umferð laugardaginn 13. ágúst en mætir síðan Tottenham, Arsenal og Chelsea í fyrstu fimm umferðunum. Chelsea mætir Stoke á útivelli í fyrstu umferð og Liverpool leikur gegn Sunderland á Anfield. Það verður Íslendingaslagur strax í fyrstu umferð þar sem að Heiðar Helguson og félagar úr QPR mæta Bolton sem Grétar Rafn Steinsson leikur með. 17.6.2011 09:00
Fá leikmenn Dallas ekki meistarahringa? Mark Cuban eigandi Dallas Mavericks sem varð NBA-meistari á dögunum segist ekki ætla að láta framleiða hringa fyrir leikmenn sína. Sigurvegarar í NBA-deildinni hafa frá upphafsárum deildarinnar fengið hringa frá eigendum sínum sem tákn um afrekið. Cuban segir hringa vera gamaldags. 16.6.2011 23:30
McIlroy byrjaði með látum á US open Norður-Írinn Rory McIlroy byrjaði vel á opna bandaríska meistaramótinu í golfi en hann er á 6 höggum undir pari eftir fyrsta keppnisdaginn á Congressional vellinum. McIlroy fékk 6 fugla og lék aðrar holur á pari, alls 65 högg, og er hann með þriggja högga forskot. 16.6.2011 23:15