Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Wolfsburg steinlá á móti Bayer Leverkusen Wolfsburg tapaði 3-0 á útivelli á móti Bayer Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en þetta var fjórði leikur liðsins undir stjórn þeirra Pierre Littbarski og Eyjólfs Sverrissonar. 5.3.2011 19:35
Mistök markvarðar Wigan færðu Manchester City þrjú stig Manchester City vann 1-0 sigur á Wigan í kvöldleiknum í ensku úrvalsdeildinni og styrkti stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar, sjö stigum eftir toppliði Manchester United og fjórum stigum á eftir Arsenal sem er í 2. sætinu. City er nú með fimm stigum meira en Chelsea sem er í fjórða sætinu. 5.3.2011 19:28
Brynja með fjórtán mörk í sigri HK í Garðabænum Brynja Magnúsdóttir átti stórleik og skoraði 14 mörk úr 20 skotum þegar HK vann óvæntan útisigur á Stjörnunni í Garðabæ í N1 deild kvenna í dag. Þetta var fjórði sigur HK-stelpna í röð og þær eiga enn smá möguleika á því að komast í úrslitakeppnina. 5.3.2011 18:59
Logi leiddi endurkomu Solna Logi Gunnarsson skoraði 14 af 24 stigum sínum í seinni hálfleik þegar Solna Vikings vann 68-62 útisigur á Södertälje Kings í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. 5.3.2011 18:30
Snorri Steinn markahæstur í útisigri AG í Arósum Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 7 mörk fyrir AG Kaupmannahöfn sem vann 30-24 útisigur á Århus Håndbold í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. AG er með þrettán stiga forskot á Århus á toppnum og var búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn fyrir leikinn. 5.3.2011 17:42
Naumur sigur Fylkisstelpna á Haukum Fylkir vann nauman en mikilvægan 22-21 sigur á Haukum í N1 deild kvenna í handbolta í dag en leikið var í Fylkishöllinni. Fylkir náði þar með þriggja stiga forskoti á íBV í baráttunni um fjórða og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. 5.3.2011 17:23
Hermann skoraði sigurmark Portsmouth Hermann Hreiðarsson tryggði Portsmouth 1-0 sigur á Sheffield United í ensku b-deildinni í dag og sá til þess að liðið hoppaði upp í ellefta sæti deildarinnar. Þetta var sjötti sigurleikur liðsins liðsins í röð. 5.3.2011 17:10
Arsenal náði bara markalausu jafntefli á móti Sunderland Arsenal tapaði dýrmætum stigum í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í dag þegar liðið náði aðeins markalausu jafntefli á heimavelli á móti Sunderland. Arsenal átti möguleika á að minnka forskot United í eitt stig með sigri en nú getur United náð sex stiga forskoti með sigri á Liverpool á morgun. 5.3.2011 16:54
Leikur Hoffenheim hrundi eftir að Gylfi var tekinn útaf Gylfi Þór Sigurðsson var í fyrsta sinn í byrjunarliðinu hjá Hoffenheim síðan 5. febrúar þegar liðið tapaði 0-2 á útivelli á móti botnliði Borussia Mönchengladbach í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Leikur Hoffenheim hrundi eftir að Gylfi var tekinn útaf rúmum hálftíma fyrir leikslok. 5.3.2011 16:18
Kenny Dalglish: Þetta snýst ekki allt bara um Rooney Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, segir að sýnir menn geti ekki leyft sér að leggja alla áherslu á það að stoppa Wayne Rooney í stórleiknum á móti Manchester United á morgun. Rooney hefur fundið skotskóna sína í síðustu leikjum og hefur skorað fimm mörk í síðustu fimm deildarleikjum sínum. 5.3.2011 16:00
ÍR með fjögur mörk og sigur gegn Stjörnunni ÍR vann 4-3 sigur á Pepsi-deildarliði Stjörnunnar í Lengjubikar karla í fótbolta í dag en leikurinn fór fram í Kórnum í Kópavogi. Árni Freyr Guðnason tryggði ÍR-ingum sigurinn úr vítaspyrnu í uppbótartíma effir að Stjarnan hafði verið 3-2 yfir þegar fimm mínútur voru eftir. 5.3.2011 15:43
Fréttatíminn: Launahæstu KR-ingarnir lækka í launum Fréttatíminn sagði frá því að átta launahæstu leikmenn KR-liðsins í Pepsi-deild karla í fótbolta hafi samþykkt beiðni stjórnarinnar um að lækka föst laun sín um tíu prósent og breyta þeim í árangurstengdar greiðslur. 5.3.2011 15:30
Bikarmeistararnir komust ekki til Eyja Leik ÍBV og Fram í N1 deild kvenna í handbolta sem átti að fara fram í dag hefur verið frestað þangað til á morgun. Nýkrýndir bikarmeistarar Framara komust ekki til Vestmannaeyjar vegna ófærðar og því varð að fresta leiknum um sólarhring. 5.3.2011 14:55
Birmingham tapaði 1-3 fyrir WBA á heimavelli Nýkrýndir deildarbikarmeistarar Birmingham voru skotnir niður á jörðina þegar þeir töpuðu 1-3 á heimavelli á móti West Bromwich Albion í nágrannaslag í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fyrsti leikur Birmingham eftir sigurinn á Arsenal á Wembley í úrslitaleik enska deildarbikarsins á sunnudaginn og tapið getur verið þeim dýrkeypt í harðri fallbaráttu deildarinnar. 5.3.2011 14:37
Grétar Rafn byrjar en Eiður Smári er á bekknum Grétar Rafn Steinsson er í byrjunarliði Bolton sem tekur á móti Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni klukkan 15.00 en Eiður Smári Guðjohnsen er áfram á bekknum hjá Fulham sem tekur á móti Blackburn Rovers á sama tíma. 5.3.2011 14:29
Nasri: Arsenal verður enskur meistari Samir Nasri, franski miðjumaðurinn hjá Arsenal, telur að Arsenal sé í dag það lið sem eigi mesta möguleikana á því að verða enskur meistari í vor og ástæðan sé sú að liðið eigi eftir léttustu leikjadagskrána. Arsenal getur minnkað forskot Manchester United í eitt stig með sigri á Sunderland í dag. 5.3.2011 14:15
FIFA búið að banna hálsböndin Alþjóða knattspyrnusambandið hefur ákveðið að banna nýjasta tískufyrirbærið í enska boltanum því hálsböndin, kölluð "snoods" upp á enska tungu, verða bönnuð frá og með 1. júlí í sumar. 5.3.2011 13:30
Cesc og Song á góðri leið - ættu að ná Barcelona-leiknum Arsene Wenger, stjóri Arsenal, færði stuðningsmönnum sínum jákvæðar fréttir á blaðamannafundi þegar hann taldi líkur á því að bæði Cesc Fabregas og Alex Song verði orðnir góðir af meiðslum sínum fyrir seinni leikinn á móti Barcelona í Meistaradeildinni. 5.3.2011 13:00
Yaya Toure kemur til varnar bróður sínum Yaya Toure, bróðir og liðsfélagi Kolo Toure hjá Manchester City, hefur tjáð sig um það að Kolo Toure hafi fallið á lyfjprófi. Yaya Toure segir að bróður sinn sé heill á geðsmunum og hafi því ekki tekið nein ólögleg lyf. 5.3.2011 12:15
Scott Parker og Arsene Wenger valdir bestir í febrúar Scott Parker, miðjumaður West Ham og Arsene Wenger, stjóri Arsenal, voru gær valdir besti leikmaðurinn og besti stjórinn í ensku úrvalsdeildinni í febrúar en það er sérstök nefnd á vegum deildarinnar sem ákveður hverjir hljóta þessi mánaðarlegu verðlaun. 5.3.2011 11:30
NBA: San Antonio vann 30 stiga sigur á Miami San Antonio Spurs fór illa með stjörnurnar í Miami Heat í 125-95 sigri í NBA-deildinni í nótt og sýndi enn á ný að það er engin tilviljun að Spurs-liðið er með besta árangurinn í deildinni. Chicago Bulls vann Orlando, Boston og Lakers unnu sína leiki en New York Knicks tapaði hinsvegar fyrir Cleveland í annað skiptið á stuttum tíma. 5.3.2011 11:00
Margrét Lára: Ólýsanlega góð tilfinning að vera komin aftur á fullt Margrét Lára Viðarsdóttir er greinilega í sínu allra besta formi en hún skoraði bæði mörk Íslands í 2-1 sigri á Kína á Algarve Cup-mótinu í gær. Hún skoraði einnig í 2-1 sigri á Svíum á miðvikudag og átti þátt í sigurmarkinu þar að auki. 5.3.2011 10:00
Katrín jafnaði met Rúnars Katrín Jónsdóttir jafnaði í gær met Rúnars Kristinssonar er hún lék sinn 104. A-landsleik þegar Ísland vann Kína, 2-1, á Algarve Cup. Rúnar lék á sínum tíma jafn marga leiki með A-landsliði karla. Hún getur bætt metið þegar að Ísland mætir Danmörku á mánudaginn. 5.3.2011 08:00
Ætla að vera áfram í Þýskalandi Eftir sex góð ár hjá TuS N-Lübbecke er hornamaðurinn knái Þórir Ólafsson á förum frá liðinu. Honum var tjáð af stjórnarmanni félagsins að hann fengi ekki nýjan samning hjá félaginu þar sem hann hefur verið fyrirliði síðustu tvö ár. 5.3.2011 06:00
Mourinho ómeiddur eftir hnífaárás Maður vopnaður hnífi er sagður hafa ráðist að Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Real Madrid, á flugvelli á Spáni í síðustu viku. 4.3.2011 23:45
Spjaldaglaðasti dómari HM-sögunnar fyrirlesari hjá íslenskum dómurum Um helgina fer fram árleg landsdómararáðstefna sem er hluti af undirbúningi dómara fyrir komandi keppnistímabil í fótboltanum. Dómarar hafa verið við æfingar frá því 1. nóvember undir stjórn Egils Eiðssonar en auk þess hafa kennarar og nemendur úr Háskólanum í Reykjavík komið að undirbúningnum með einum eða öðrum hætti. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. 4.3.2011 23:30
Dortmund enn á sigurbraut Michael Rensing átti stórleik í marki Köln í kvöld en náði þó ekki að koma í veg fyrir enn einn sigur Dortmund í þýsku úrvalsdeildinni. 4.3.2011 22:43
Ingi Þór: Vorum alltaf skrefinu á eftir þeim "Við vorum strax tveimur skrefum á eftir þeim,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir tapið í kvöld. Snæfellingar voru teknir í bakaríið í kvöld þegar Stjarnan sigraði þá örugglega 94-80 í 20. umferð Iceland-Express deild karla. 4.3.2011 21:43
Teitur: Besti leikurinn okkar á tímabilinu "Þessi sigur var aldrei í hættu og líklega besti leikur okkar á tímabilinu,“ sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, kampakátur eftir sigurinn í kvöld. Stjarnan bar sigur úr býtum gegn Íslandsmeisturum Snæfells, 94-80, í 20. umferð Iceland-Express deild karla í kvöld. 4.3.2011 21:38
Umfjöllun: Stjarnan tók Snæfell í kennslustund Stjarnan vann frábæran sigur gegn Snæfell, 94-80, í Iceland-Exrpess deild karla í kvöld en leikurinn var hluti af 20.umferð Iceland-Express deild karla. Stjarnan hafði yfirhöndina allan leikinn og því var sigurinn aldrei í hættu. Justin Shouse og Renato Lindmets voru frábærir fyrir Stjörnuna. 4.3.2011 21:36
Stjarnan lagði topplið Snæfells - KFÍ fallið Allt útlit er fyrir hörskuspennandi baráttu um deildarmeistaratitilinn í Iceland Express-deild karla eftir að toppliðið, Snæfell, tapaði fyrir Stjörnunni á útivelli í kvöld, 94-80. 4.3.2011 21:04
Liðsfélagi Gylfa hjá Hoffenheim má ekki mæta á æfingar Króatíski varnarmaðurinn Josip Simunic hjá Hoffenheim hefur fengið skýr fyrirmæli frá forráðamönnum félagsins að hann megi ekki lengur mæta á æfingar liðsins. Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson spilar einmitt með þýska liðinu. 4.3.2011 20:30
Hlynur og Jakob deildarmeistarar í Svíþjóð Sundsvall Dragons, lið Hlyns Bæringssonar og Jakobs Sigurðarsonar, tryggði sér í kvöld deildarmeistaratitilinn í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta með sigri á 08 Stockholm á útivelli, 97-89. 4.3.2011 19:48
Þetta á ekki að vera hægt - ótrúlegt vítaskot í körfubolta Alex Oriakhi er ekki þekktasti körfuboltamaður heims en hann hefur vakið athygli fyrir vítaskot sem hann tók í leik með háskólaliði Connecticut gegn West Virginia. 4.3.2011 19:00
Sigurður Ragnar: Getum unnið öll lið á góðum degi Sigurður Ragnar Eyjólfsson var vitanlega hæstánægður með sína leikmenn eftir 2-1 sigur Íslands á Kína á Algarve Cup-mótinu í dag. 4.3.2011 18:26
Íslandi dugar jafntefli gegn Dönum Svíar unnu í dag 3-1 sigur á Dönum á Algarve Cup-mótinu í Portúgal. Þar með er ljóst að íslenska landsliðinu mun duga jafntefli gegn Dönum í lokaumferð B-riðils á mánudaginn til að komast í sjálfan úrslitaleik mótsins. 4.3.2011 18:15
Ancelotti búinn að ræða við Roma Fyrrum félagi Carlo Ancelotti hjá ítalska landsliðinu, Ruggerio Rizzitelli, heldur því fram í dag að Ancelotti sé þegar búinn að ræða við forráðamenn Roma um þann möguleika að taka við liðinu. 4.3.2011 17:30
Margrét Lára með tvö mörk í glæsilegum sigri á Kína Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir íslenska kvennalandsliðið sem vann 2-1 sigur á Kína í öðrum leik sínum í Algarve-bikarnum í Portúgal. Líkt og í sigrinum á Svíum á miðvikudaginn þá lenti íslenska liðið undir en kom til baka og tryggði sér frábæran sigur. 4.3.2011 16:49
Carroll kostaði eina milljón árið 2009 Andy Carroll, framherji Liverpool, er dýrasti leikmaður Bretlandseyja en Liverpool keypti hann á 35 milljónir punda. Ef Liverpool hefði haft trú á honum fyrir einu og hálfu ári síðan hefði félagið sparað sér 34 milljónir punda. 4.3.2011 16:45
Ronaldo gæti misst af Lyon-leiknum - frá í 10 til 15 daga Það voru skin og skúrir hjá Cristiano Ronaldo í 7-0 sigri Real Madrid á Malaga í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Ronaldo skoraði þrennu í leiknum en varð síðan að fara meiddur af velli. 4.3.2011 16:00
Brawn segir Mercedes um sekúndu á eftir toppbílunum Ross Brawn, yfirmaður Mercedes Formúlu 1 liðsins telur að bílar liðsins séu um sekúndu lakari í hverjum eknum hring, en toppbílarnir, en keppnislið hafa æft á Spáni á árinu og lið hafa því fengið samanburð. Brawn sagði þetta í frétt á BBC Sport. 4.3.2011 15:53
Ferguson ætlar að áfrýja Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, er allt annað en sáttur við kæru enska knattspyrnumsabandsins um óviðeigandi hegðun eftir leik liðsins gegn Chelsea. 4.3.2011 15:30
Mancini: Mario hlustar ekkert á mig Roberto Mancini, stjóri Manchester City, er orðinn þreyttur á því að ná ekki til Mario Balotelli sem gengur illa að hlýða fyrirmælum hjá City alveg eins og var upp á teningnum undir stjórn Jose Mourinho hjá Inter Milan. 4.3.2011 14:45
Wenger: Toure tók megrunartöflur eiginkonu sinnar Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur greint frá því að það hafi verið megrunartöflur sem urðu þess valdandi að Kolo Toure, leikmaður Man. City, féll á lyfjaprófi. 4.3.2011 14:15
Guðlaugs-áhrifin greinileg á gengi Hibernian Guðlaugur Victor Pálsson hefur slegið í gegn með skoska liðinu Hibernian en hann kom þangað frá Liverpool í janúarglugganum. Þórður Már Sigfússon á fótbolti.net hefur tekið saman ótrúlega breytingu á gengi Hibs-liðsins síðan að íslenski 21 árs landsliðsmaðurinn mætti á staðinn. 4.3.2011 13:30
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti