Ingi Þór: Vorum alltaf skrefinu á eftir þeim Stefán Árni Pálsson í Ásgarði skrifar 4. mars 2011 21:43 Úr leiknum í kvöld. Jón Ólafur Jónsson og Fannar Freyr Helgason berjast um boltann. Mynd/Valli „
Við vorum strax tveimur skrefum á eftir þeim," sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir tapið í kvöld. Snæfellingar voru teknir í bakaríið í kvöld þegar Stjarnan sigraði þá örugglega 94-80 í 20. umferð Iceland-Express deild karla. „Þeir voru bara miklu sterkari en við alveg frá byrjun og löngunin var mun meiri hjá Stjörnunni en okkur." „Þetta var virkilega einkennilegt sérstaklega þar sem við vorum að koma frá alveg hreint frábærum leik gegn Haukum í síðustu umferð, en við höfum ekki spilað svona illa lengi," sagði Ingi. „Svona á heildina litið þá fengum við ekkert almennilegt framlag frá einum né neinum. Þeir voru bara framar en við á öllum sviðum og það var rosalega erfitt fyrir okkur að lenda strax tíu stigum undir en eftir það þurftum við að elta allan leikinn." Það var einkennandi fyrir leik Snæfellinga að þeir létu dómarana fara mikið í taugarnar á sér nánast allan leikinn. „Menn verða bara pirraðir ef liðið manns er undir og ekkert gengur upp. Þá fara menn vanalega beint í dómarann. Það hallaði í raun ekkert á okkur í leiknum og við getum alls ekki kennt dómurunum um tapið hér í kvöld." Snæfell er enn í efsta sæti deildarinnar með 32 stig þegar tvær umferðir eru eftir og því er deildarmeistaratitillinn í sjónmáli. „Við þurfum bara að klára dæmið sjálfir og þetta er aðeins í okkar eigin höndum. Það verður gríðarlega erfitt að mæta Hamri í næstu umferð sem eru að berjast fyrir lífi sínu og þá þurfum við að eiga betri leik en í kvöld," sagði Ingi Þór nokkuð bjartsýnn á framhaldið.
Dominos-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira