Fleiri fréttir

Mihajlovic tekur við Sampdoria

Birkir Bjarnason er búinn að fá nýjan þjálfara hjá Sampdoria því Serbinn Sinisa Mihajlovic hefur samþykkt að taka við starfinu af Delio Rossi en hann var rekinn á dögunum.

Bolt tapar peningum út af lyfjamálum Jamaíka

Lyfjaeftirlitsmálin hjá frjálsíþróttasambandi Jamaíka eru undir smásjá alþjóða lyfjaeftirlitsnefndarinnar sem er komið til landsins að skoða hvað sé að gerast þar.

Hólmbert búinn að skrifa undir hjá Celtic

Skoska stórliðið Celtic tilkynnti á vefsíðu sinni í dag að það væri búið að semja við íslenska unglingalandsliðsmanninn, Hólmbert Aron Friðjónsson.

Liðsfélagarnir hrósuðu Hart

Markvörðurinn Joe Hart fékk að spila fótbolta á nýjan leik í gær er hann stóð á milli stanganna hjá enska landsliðinu gegn Þjóðverjum.

Yfir fimmtán þúsund skráðir á "Takk fyrir okkur Eiður Smári“

Knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen tjáði sig í íslenskum fjölmiðlum í gær að hann hefði líklega leikið sinn síðasta landsleik en íslenska landsliðið tapaði fyrir því króatíska, 2-0, í Zagreb í síðari leik liðanna í umspilinu um sæti á HM.

Pulis tekur líklegast við Palace

Veðbankar á Englandi segja líklegast að Tony Pulis taki við liði Crystal Palace. Það heur vantað stjóra síðan Ian Holloway fékk að fjúka.

Ronaldo jafnaði markamet Portúgala

Cristiano Ronaldo sýndi mátt sinn í HM-umspilinu. Hann skoraði öll fjögur mörk Portúgala gegn Svíum en Portúgal vann einvígið, 4-2.

Hodgson: Megum ekki fara á taugum

Enska landsliðið tapaði 0-1 gegn Þýskalandi í gær. Þetta var annað tap liðsins í röð á Wembley en slíkt hefur ekki gerst í 36 ár.

Meistarar Miami á siglingu

Meistarar Miami Heat voru í banastuði á heimavelli sínum í nótt er Atlanta kom í heimsókn. Öruggur sigur hjá Miami sem er búið að vinna átta af síðustu níu leikjum sínum. Þar af hefur liðið unnið síðustu fimm.

Kveðjustund Eiðs Smára

Eiður Smári Guðjohnsen tilkynnti eftir 2-0 tap Íslands gegn Króatíu í Zagreb í gær að landsliðsferli hans væri lokið. Með tapinu varð draumur Íslendinga um að komast á HM í knattspyrnu næsta sumar að engu.

Mættu ofjörlum á Maksimir

Draumurinn um Brasilíu er úti eftir að strákarnir okkar lentu á vegg í Zagreb. Leikmenn Íslands fundu aldrei taktinn gegn sterkum Króötum sem unnu verðskuldaðan sigur. Ævintýri liðsins er þó bara rétt að byrja.

Úti er HM-ævintýri - myndir

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta verður ekki með á HM í Brasilíu næsta sumar eftir 2-0 tap á móti Króatíu í seinni umspilsleiknum í Zagreb í kvöld. HM-draumurinn er því úti að þessu sinni en íslenska landsliðið hefur aldrei verið svona nálægt því að komast á stórmót.

Cristiano Ronaldo jafnaði markametið - myndir

Cristiano Ronaldo skoraði öll þrjú mörk Portúgala á Friends Arena í kvöld þegar Portúgal tryggði sér sæti á HM í Brasilíu með 3-2 sigri. Ronaldo skoraði öll fjögur mörk Portúgals í umspilsleikjunum tveimur og hafði betur í einvíginu á móti Zlatan Ibrahimovic.

Þjóðin pissaði á sama tíma

Margir af þeim sem fylgdust með leik Íslands og Króatíu í kvöld fóru á klósettið á sama tíma, samkvæmt mælum Orkuveitu Reykjavíkur.

Lars Lagerbäck: Algjör þögn í búningsklefanum

Guðmundur Benediktsson ræddi við Lars Lagerbäck, þjálfara íslenska karlalandsliðsins, í rigningunni fyrir utan Maksimir-leikvanginn í kvöld en íslenska landsliðið er úr leik á HM eftir 2-0 tap á móti Króatíu.

Hannes Þór: Ég trúi þessu varla

"Við getum svo sem verið stoltir en fátt annað kemst að á þessu augnabliki en hrikaleg vonbrigði,“ sagði landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson.

Jóhann Berg: Ætluðum að keyra yfir þá

"Þetta var alls ekki nógu gott hjá okkur. Við réðum ekki við góða pressu frá þeim í byrjun leiks,“ sagði Jóhann Berg Guðmundsson eftir 2-0 tapið gegn Króatíu í kvöld.

Aron Einar: Einbeitum okkur að EM 2016

"Við lærum af þessu og verðum að taka þetta inn í næstu keppni og einbeita okkur að því. Taka það jákvæða úr þessu og sleppa því neikvæða,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson.

Mertesacker tryggði Þjóðverjum sigur á Wembley

Auk umspilsleikjanna um laus sæti á HM í Brasilíu þá fóru í kvöld fram nokkrir vináttulandsleikir. Það vakti þar mikla athygli að Spánverjar töpuðu fyrir Suður-Afríku og Þjóðverjar unnu Englendinga á Wembley.

Rúrik: Eiður Smári er goðsögn

"Eiður Smári Guðjohnsen er lifandi goðsögn í íslenskum fótbolta. Maður hefur lært ótrúlega mikið af honum,“ sagði Rúrik Gíslason skömmu eftir að Eiður Smári Guðjohnsen hafi lýst því yfir í viðtali við Rúv að hann hafi leikið sinn síðasta landsleik á ferlinum.

Aron Einar: Ætluðum okkur meira

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, var eðlilega súr í broti þegar að hann ræddi við Rúv skömmu eftir 2-0 tap Íslands gegn Króatíu í Zagreb í kvöld. Tapið þýðir að Ísland keppir ekki á HM í Brasilíu næsta sumar.

Lagerbäck: Okkur skorti kjarkinn

"Ég vil ekki segja að við vorum lamaðir en svoleiðis leit það út,“ sagði landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck í sjónvarpsviðtali við Rúv eftir ósigurinn gegn Króatíu í kvöld. Ísland tapaði 2-0 og fer því ekki á HM í Brasilíu.

Gana og Alsír síðustu Afríkuþjóðirnar inn á HM

Gana og Alsír tryggðu sér í kvöld farseðilinn á HM í Brasilíu og þar með er ljóst hvaða fimm Afríkuþjóðir verða með í úrslitakeppninni næsta sumar. Fílabeinsströndin, Nígería og Kamerún höfðu áður tryggt sig inn á HM 2014.

Þakka Íslendingum fyrir

Fyrir framan áhorfendastúku stuðningsmanna Króata á Maksimir leikvanginum í Zagreb er risastór borði þar sem Íslendingum er þakkað fyrir að hafa fyrstir allra þjóða samþykkt sjálfstæði þeirra. Það gerðu Íslendingar í desember árið 1991.

Viðbrögð Gumma Ben við rauða spjaldinu

Gummi Ben lýsir leik Króata og Íslendinga í beinni útsendingu á Bylgjunni. Í meðfylgjandi hljóðbroti má heyra hvernig Gummi Ben bregst við rauða spjaldinu á Mandzukic.

Frakkar risu upp frá dauðum og komust á HM

Frakkar verða með á HM í Brasilíu eins og Grikkir, Króatar og Portúgalir, þrátt fyrir að útlitið hafi ekki verið bjart hjá franska landsliðinu fyrir umspilsleiki kvöldsins. Frakkar unnu upp tveggja marka forskot Úkraínumanna og tryggðu sér sæti á HM í Frakklandi með 3-2 sigri á Úkraínu.

Grikkir á HM eftir jafntefli í Rúmeníu

Grikkir voru fyrsta þjóðin til þess að komast í gegnum umspilsleiki Evrópuhluta undankeppni HM 2014 en Grikkir tryggðu sér sæti á HM í Brasilíu næsta sumar með því að gera 1-1 jafntefli í Rúmeníu í kvöld.

Líka tvær breytingar hjá Króatíu

Samkvæmt króatískum fjölmiðlum mun Niko Kovac, landsliðsþjálfari Króata, gera tvær breytingar á liði sínu fyrir leikinn mikilvæga gegn Íslandi í kvöld.

Myndbandið sem strákarnir okkar horfðu á fyrir leikinn

Strákarnir okkar gíruðu sig upp fyrir leikinn í kvöld með því að horfa á myndbrot úr fyrri leiknum hér á Laugardalsvelli. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fyrrum landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins, birti myndbandið á Facebook-síðu sinni nú fyrir stundu.

Elvar á leið til Bandaríkjanna

Hinn magnaði leikmaður Njarðvíkur, Elvar Már Friðriksson, er að spila sitt síðasta tímabil fyrir Njarðvík því hann er á leið til Bandaríkjanna í nám næsta haust.

Sjá næstu 50 fréttir