Fleiri fréttir

Öll mörkin úr leikjum dagsins

Chelsea fór fýluferð til Newcastle, Manchester-liðin unnu stórsigra og Arsenal vann toppslaginn gegn Liverpool.

Strákarnir hentu frá sér fimm marka forskoti í lokin

Ísland tapaði 32-33 í seinni æfingaleiknum á móti Austurríki í Linz í kvöld en íslenska liðið hafði unnið eins marks sigur í leiknum í gærkvöldi. Þórir Ólafsson var markahæstur í íslenska liðinu með níu mörk. Austurríkismenn skoruðu sigurmarkið úr víti á lokasekúndu leiksins.

Fiorentina vann AC Milan á San Siro

Napoli og Juventus unnu bæði sína leiki í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og ætla ekki að gefa eftir í titilbaráttunni.

Jóhann Berg skoraði í sigri AZ

Jóhann Berg Guðmundsson skoraði seinna mark AZ Alkmaar þegar liðið vann 2-0 sigur á ADO Den Haag og komst í efsta sætið í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Guðlaugur Victor lagði upp mark í endurkomu NEC

Guðlaugur Victor Pálsson og félagar í NEC Nijmegen lentu 2-0 undir í fyrri hálfleik á útivelli á móti toppliði Twente en tókst samt á fá eitthvað út úr leiknum. Twente og NEC gerðu 2-2 jafntefli í hollensku úrvalsdeildinni í kvöld.

51 stigs tap hjá Herði Axel og félögum

Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í Valladolid töpuðu stórt á móti Valencia í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Valencia-liðið vann leikinn á endanum með 51 stigi, 108-57.

Wenger: Sannfærandi sigur á góðu liði

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er á góðri leik með að búa til meistaralið en hans menn sýndu frábæran leik í 2-0 sigri á Liverpool í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Brendan Rodgers: Betra liðið vann

Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, horfði upp á sína menn tapa sannfærandi á móti sterku liði Arsenal í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Morten hefur engu gleymt - bikarleikir körfunnar í dag

Dominos-deildarliðin Keflavík og Snæfelli tryggðu sér í dag sæti í 16 liða úrslitum Powerade-bikarkeppni karla í körfubolta en það gerðu líka 1. deildarliðin Tindastóll og Þór. 2. deildarlið ÍG sló hinsvegar út 1. deildarlið Vængja Júpíters.

Lilja Lind Norðurlandameistari unglinga

Lilja Lind Helgadóttir varð í dag Norðurlandameistari unglinga í ólympískum lyftingum þeagr hún tryggði sér gull á Norðurlandamóti unglinga í Kaupmannahöfn.

Gróttustelpur unnu endurkomusigur á ÍBV

Grótta heldur áfram að gera góða hluti í Olís-deild kvenna í handbolta en liðið vann tveggja marka sigur á ÍBV í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi í dag. Þetta var þriðji sigur Gróttu í röð og liðið fylgir toppliðunum eftir.

Langþráður sigur hjá Valskonum

Jaleesa Butler var með þrennu þegar Valur vann níu stiga sigur á Njarðvík, 92-83, í Ljónagryfjunni í Njarðvík í leik liðanna í Dominos-deild kvenna í körfubolta í dag. Butler var með 24 stig, 13 fráköst og 11 stoðsendingar í leiknum.

Begovic marka-markvörður Stoke: Ég finn til með Artur Boruc

Asmir Begovic, markvörður Stoke, skoraði eina mark síns liðs í dag þegar hann skoraði yfir allan völlinn eftir aðeins fjórtán sekúndna leik. Markið dugði þó ekki til sigurs því Southampton skoraði og tryggði sér 1-1 jafntefli.

David Moyes: Þetta hefur alltaf verið mitt lið

David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United, var ánægður eftir 3-1 sigur á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag. United hefur þar með unnið tvo deildarleiki í röð og fjóra leiki í röð í öllum keppnum.

Bæjarar lentu undir en unnu og jöfnuðu metið

Bayern München jafnaði í dag tæplega 31 árs gamalt met Hamburger SV í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta þegar liðið vann 2-1 endurkomusigur á útivelli á móti 1899 Hoffenheim.

Rúrik lagði upp mark í stórsigri FCK

FC Kaupmannahöfn komst upp í þriðja sæti dönsku úrvaldsdeildarinnar í fótbolta, í bili að minnsta kosti, eftir 4-0 heimasigur á Nordsjælland í dag. Kaupmannahafnarliðið var í 8. sæti fyrir leikinn.

Mourinho: Við áttum skilið að tapa

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var ekki ánægður með sína menn sem töpuðu 0-2 á móti Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í dag. Chelsea hefði komist á toppinn með sigri.

Jón Margeir og Kolbrún Alda Norðurlandameistarar

Jón Margeir Sverrisson úr Fjölni og Kolbrún Alda Stefánsdóttir úr Firði tryggðu sér í dag Norðurlandameistaratitla á NM í sundi fatlaðra í Stokkhólmi en íslenski hópurinn náði frábærum árangri í fyrsta mótshluta í Eriksdalsbadet í dag.

Manchester City skoraði sjö mörk á móti Norwich

Manchester City sundurspilaði Norwich á Etihad leikvanginum í dag þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. City-menn skoruðu sjö mörk og þau hefðu auðveldlega getað mun fleiri svo voru yfirburðirnir.

Frábær fyrri hálfleikur nægði Manchester United

Manchester United vann sinn fjórða leik í röð í öllum keppnum þegar liðið sótti þrjú stig á Craven Cottage. United vann þá 3-1 sigur á Fulham þar sem öll mörk liðsins komu á fyrstu 22 mínútunum.

Webber náði ráspólnum á undan Vettel

Red Bull heldur áfram yfirburðum sínum í formúlunni. Mark Webber verður á ráspól í Abú Dabí kappakstrinum á morgun en hann sló við liðsfélaga sínum Sebastian Vettel í tímatökunni í dag.

Sandra Sif skoraði fyrir Vålerenga

Sandra Sif Magnúsdóttir skoraði fyrir Vålerenga í 2-1 sigri á Arna Björnar í lokaumferð norsku kvennadeildarinnar í fótbolta sem fór fram í dag. Íslendingaliðið Avaldsnes gerði markalaust jafntefli á útivelli á móti nýkrýndum meistara í Stabæk.

Arnór Atlason líklega ekki með í kvöld

Arnór Atlason verður líklega ekki með í seinni æfingaleik Íslands og Austurríkis sem fer fram í kvöld en Arnór meiddist á hné í fyrri leiknum í gær sem Ísland vann 29-28. Ísland og Austurríki mætast aftur í Linz klukkan 19.15.

Rosaleg vika framundan hjá Arsenal-liðinu

Arsenal fær Liverpool í heimsókn klukkan 17.30 í kvöld í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en það er nóg af risaleikjum framundan á næstu dögum hjá lærisveinum Arsene Wenger.

Newcastle endaði sigurgöngu Chelsea

Newcastle endaði sex leikja sigurgöngu Chelsea í öllum keppnum og varð fyrsta liðið til að vinna lærisveina Jose Mourinho síðan 18. september.

Enginn Einar eftir í KV - Bjarni Guðjóns búinn að taka tvo

Einar Már Þórisson skrifaði í gærkvöldi undir þriggja ára samning við Fram og er enn einn ungi og reynslulitli leikmaðurinn sem Bjarni Guðjónsson, nýráðinn þjálfari Fram, fær til liðs við Safamýrarliðið fyrir átökin í Pepsi-deildinni 2014.

Kobe Bryant fékk feitan tékka í gær

Kobe Bryant er ekki enn farinn að spila með Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta enda að ná sér eftir hásinarslit. Þessi snjalli leikmaður hafði þó ástæðu til að brosa í gær þegar hann fékk risastóra upphæð inn á bankareikning sinn.

Mourinho: Ég gerði ekkert sérstakt fyrir Torres

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, ætlar ekki að taka heiðurinn af því að spænski framherjinn Fernando Torres er farinn að líkjast þeim leikmanni sem Chelsea borgaði 50 milljón punda fyrir á sínum tíma.

Roy Keane verður aðstoðarmaður Martin O'Neill

Martin O'Neill ætlar að fá Roy Keane til að vera aðstoðarmann sinn hjá írska landsliðinu samkvæmt enskum miðlum en fátt kemur nú veg fyrir að O'Neill verði landsliðsþjálfari Íra í knattspyrnu.

Sjá næstu 50 fréttir