Fleiri fréttir

Enginn betri en Þórir

Þórir Hergeirsson náði sögulegum árangri með norska kvennalandsliðið í handbolta um helgina. Liðið fullkomnaði gullnu þrennuna með því að bæta ólympíumeistaratitlinum við bæði heims- og Evrópumeistaratitla sína.

Gaf allt sem ég átti í síðustu metrana

Kári Steinn Karlsson náði frábærum árangri í maraþonhlaupi á lokadegi ÓL í London í gær. Hann var um einni og hálfri mínútu frá Íslandsmetinu sínu en skilaði sér engu að síður í 42. sæti af 105 keppendum.

Aron fimmti Íslendingurinn sem kemst í úrvalslið stórmóts frá 2008

Aron Pálmarsson var valinn í úrvalslið handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London en valið var tilkynnt fyrir úrslitaleik Svía og Frakka í gær. Aron spilaði frábærlega með íslenska landsliðinu á mótinu og var alls með 37 mörk og 24 stoðsendingar í 6 leikjum. Aron, sem er aðeins 22 ára gamall, þótti líka vera besta vinstri skyttan að mati sérstakrar valnefndar hjá IHF.

Farið að sjatna í Norðurá

Rennsli í Norðurá er nú helmingi minna en það var á laugardaginn þegar flóðin voru í hámarki. Meira veiddist um helgina en alla síðustu viku.

Luisao rotaði dómara í æfingarleik

Brasilíski varnarmaðurinn Luisao sem spilar með Benfica var ekki ánægður með ákvörðun dómarans í æfingarleik Benfica og Fortuna Dusseldorf í dag.

Thierry Omeyer búinn að vinna 32 stóra titla á ferlinum

Það hefur löngum verið sagt í handbolta að góður markvörður getur gert gæfumuninn fyrir liðið þitt og það sannast hvergi betur en í Thierry Omeyer, markverði franska landsliðsins. Omeyer var enn á ný í fararbroddi með franska landsliðinu sem tryggði sér Ólympíugull fyrr í dag og er nú búinn að vinna 32 stóra titla á ferli sínum en alla titlarnir vann hann eftir aldarmót eða á síðustu ellefu árum.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Valur 2-3

Titilvonir KR-inga minnkuðu til muna þegar liðið tapaði 3-2 gegn Valsmönnum í 15. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði sigurmark Valsmanna í síðari hálfleik.

Fimmti sigur Valsmanna á KR-velli á sex árum - myndir

Valsmenn kunna einstaklega vel við sig á KR-vellinum og það breyttist ekki í kvöld þegar þeir unnu 3-2 sigur á Íslands- og bikarmeisturnum. Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði sigurmarkið eftir að KR-ingar höfðu unnið upp tveggja marka forystu nágranna sinna af Hlíðarenda.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - ÍA 2-3

Skagamenn unnu sinn annan sigur í röð í Pepsi-deild karla í kvöld þegar þeir sóttu þrjú stig til Keflavíkur í 15. umferð deildarinnar. Skagamenn voru jafnframt að vinna sinn fyrsta útisigur í deildinni síðan að þeir unnu Fylkismenn um miðjan maí.

GR-stelpurnar unnu Sveitakeppnina þriðja árið í röð

Golfklúbbur Reykjavíkur vann 1. deild kvenna í Sveitakeppni Golfsambands Íslands en konurnar spiluðu á Garðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. GR vann 3-2 sigur á Keili í úrslitaleiknum og vann því Sveitakeppnina þriðja árið í röð.

Di Matteo ánægður með Hazard og Torres

Roberto Di Matteo var ánægður með margt í leik sinna manna en fannst rauða spjaldið eyðileggja möguleika liðsins í 3-2 tapi gegn Manchester City í leik um Samfélagsskjöldinn.

GKG Íslandsmeistarar í sveitakeppni GSÍ

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er Íslandsmeistari karla í sveitakeppni í golfi eftir sigur á Golfklúbbi Setbergs í úrslitaleik en 1. deildin fór fram á Hólmsvelli á Leiru. Þetta er í fjórða sinn sem GKG vinnur sveitakeppnina en Íslandsmeistaratitilinn kom einnig í hús 2004, 2007 og 2009.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fylkir - ÍBV 0-4

ÍBV vann í kvöld auðveldan 4-0 útisigur á hörmulegu Fylkisliði í fimmtándu umferð Pepsi-deildarinnar. Eyjamenn náðu forystunni strax á fyrstu mínútu leiksins og litu aldrei til baka eftir það, en þeir hreinlega völtuðu yfir heimamenn í leiknum.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Selfoss - Fram 4-2

Selfyssingar komu með mikla spennu inn í fallbaráttuna með því að vinna Framara, 4-2, á Selfossi í kvöld í leik liðanna í 15. umferð Pepsi-deildar karla. Selfyssingar voru ekki búnir að vinna leik síðan í maí eða síðan að þeir spiluðu síðast við Framliðið.

Laxá í Laxárdal: Stórurriðamok á þurrflugu!

Á heimasíðu SVFR segir frá því að hver stórurriðinn á fætur öðrum hefur glatt veiðimenn í Laxá í Laxárdal undanfarna daga – og flestir taka þurrflugur! Mikill fjöldi urriða á bilinu 5-7 pund hafa látið glepjast af þurrflugum veiðimanna og segir að óvenju mikið sé um stórfisk þetta sumarið.

Hörgá: Ógleymanlegt augnablik

Það má með sanni segja að Guðrún Kristófersdóttir hafi náð að fanga augnablikið þegar hún náði stórbrotinni ljósmynd af stökkvandi sjóbleikju á svæði 5a í Hörgá fyrir skemmstu. Veiðivísir fékk góðfúslegt leyfi til að birta myndina sem sýnir margt af því besta við að standa á bakka veiðivatns á Íslandi.

Podolski skoraði tvö í endurkomu sinni

Arsenal vann í dag öruggan 4-0 sigur á Köln í Þýskalandi. Þetta var síðasti undirbúningsleikur liðsins fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst í næstu viku.

Kolbeinn skoraði í jafntefli

Kolbeinn Sigþórsson tryggði Ajax 2-2 jafntefli gegn AZ Alkmaar í fyrstu umferð hollensku deildarinnar í dag.

Newcastle að kaupa miðjumann frá Ajax

Newcastle virðast vera að ganga frá kaupunum á Vurnon Anita, 23 ára leikmanni sem leikur með Ajax í Hollandi. Newcastle hafa verið að leitast eftir að styrkja lið sitt og hafa lengi fylgst með Anita.

Bandaríkin unnu gullið í spennuleik gegn Spánverjum

Bandaríkjamenn tryggðu sér gullið í 107 - 100 sigri á Spánverjum í London. Þetta er í fimmta sinn á síðustu 6 Ólympíuleikum sem Bandaríkjamenn sigra körfuboltamót Ólympíuleikanna og aðra Ólympíuleikanna í röð sem þeir sigra Spánverja í úrslitum.

Hver er þessi Chukwudi Chijindu sem er að slá í gegn hjá Þór?

Chukwudi Chijindu skoraði bæði mörk Þórsara í 2-1 sigri á Víkingum í toppslag 1. deildar karla í Ólafsvík í gær. Chijindu hefur skorað fjögur mörk í fyrstu þremur leikjum sínum með Þór og er þegar orðinn markahæsti leikmaður liðsins í sumar.

Frakkar Ólympíumeistarar á öðrum leikunum í röð

Frakkar eru Ólympíumeistarar í handbolta karla eftir eins marks sigur á Svíum, 22-21, í úrslitaleik í London í dag. Frakkar vörðu þar með titil sinn frá því fyrir fjórum árum þegar þeir unnu Íslendinga í úrslitaleik.

Rory Mcllroy efstur á US PGA

Rory Mcllroy er efstur á US PGA mótinu eftir þrjá daga en leikmenn voru að ljúka síðustu holum þriðja hringsins rétt í þessu. Leik var frestað í gær vegna veðurs og í dag fóru fram síðustu holur þriðja dagsins.

Zlatan bjargaði stigi fyrir PSG

Zlatan Ibrahimovic kom í veg fyrir neyðarlegt tap í fyrsta leik sínum fyrir Paris Saint German í gærkvöldi. Zlatan sem kom til liðsins frá Milan skoraði tvö mörk í jafntefli liðsins við Lorient.

Tvær norskar í úrvalsliði Ólympíuleikanna

Norski markvörðurinn Kari Aalvik Grimsbo og norski línumaðurinn Heidi Loke voru báðar valdar í úrvalslið handboltakeppni kvenna á Ólympíuleikunum í London en val sérstakar nefndar á vegum IHF var tilkynnt í dag.

Bannað að taka við bronsinu sínu

Landslið Suður-Kóreu vann brons í fótboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London en einn leikmanna liðsins var þó hvergi sjáanlegur þegar Kóreumenn tóku við bronsinu sínu í gær. Alþjóðaólympíunefndin útilokaði hann nefnilega frá verðlaunaafhendingunni eftir að leikmaðurinn varð uppvís að því að veifa fána með pólitískum skilaboðum eftir sigurinn á Japan í leiknum um 3. sætið.

Króatar tóku bronsið - unnu Ungverja létt

Króatar urðu í þriðja sæti í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London eftir öruggan sjö marka sigur á Íslandsbönum Ungverja, 33-26, í leiknum um bronsverðlaunin. Króatar voru fimm mörkum yfir í hálfleik og náðu mest átta marka forskoti í seinni hálfleiknum þannig að sigurinn var afar sannfærandi.

Barry og Richards verða ekki með meisturum City í dag

Ensku landsliðsmennirnir Gareth Barry og Micah Richards verða fjarri góðu gamni í dag þegar Englandsmeistarar Manchester City mæta bikarmeisturum Chelsea í árlegum leik um Samfélagsskjöldinn sem fer fram á Villa Park. Leikurinn hefst klukkan 12.30 og er í beinni á Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport 2.

Ryan Lochte viðurkennir að hafa pissað í Ólympíulaugina í London

Bandaríski sundmaðurinn Ryan Lochte viðurkenndi í útvarpsviðtali hjá Ryan Seacrest að hann hafi freistast til að pissa í laugina á Ólympíuleikunum í London. Ryan Lochte keppti í mörgum greinum á leikunum og oft var stutt á milli hjá honum. Uppskera Lochte á leikunum var tvö gull, tvö silfur og eitt brons og hann hefur nú alls unnið til ellefu verðlauna á Ólympíuleikum.

Kári Steinn í 42. sæti í maraþoni karla

Kári Steinn Karlsson náði frábærum árangri í maraþonhlaupi karla á Ólympíuleikunum í London en hann kom í mark á 2.18:47 klst sem skilaði honum í 42. sæti af 105 keppendum.

Sjá næstu 50 fréttir