Frakkar Ólympíumeistarar á öðrum leikunum í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2012 15:38 Thierry Omeyer fagnar sigri. Mynd/AFP
Frakkar eru Ólympíumeistarar í handbolta karla eftir eins marks sigur á Svíum, 22-21, í úrslitaleik í London í dag. Frakkar vörðu þar með titil sinn frá því fyrir fjórum árum þegar þeir unnu Íslendinga í úrslitaleik. Svíar þurfti hinsvegar að sætta sig við fjórða silfrið á Ólympíuleikum en Svíþjóð hefur aldrei náð í Ólympíugull í handbolta karla. Michaël Guigou var markahæstur hjá Frökkum með 5 mörk og þeir Xavier Barachet, Daniel Narcisse og Luc Abalo skoruðu allir fjögur mörk hver. Niclas Ekberg var markahæstur hjá Svíum með 6 mörk en Jonas Larholm var með 5 mörk. Svíar byrjuðu vel og voru 5-3 yfir eftir 11 mínútna leik. Frakkar unnu hinsvegar næstu þrettán mínúturnar 7-2, komust í 10-7 og voru komnir með tök á leiknum. Svíar skoruðu síðasta mark fyrri hálfleiksins og minnkuðu muninn í 10-8 en liðin skoruðu ekki síðustu fimm mínúturnar. Frakkar náðu aftur þriggja marka forskoti í upphafi seinni hálfleiksins en Svíar náðu að minnka muninn í eitt mark, 16-15, þegar fimmtán mínútur voru eftir. Svíar misstu þá mann útaf og Frakkar náðu strax þriggja marka forskoti, 18-15. Svíarnir gáfust ekki upp og héldu sér inn í leiknum. Niclas Ekberg minnkaði muninn í eitt mark, 21-20, þegar hann skoraði úr víti 70 sekúndum fyrir leikslok en Luc Abalo kom Frökkum í 22-20 þegar hálf mínúta var eftir. Kim Ekdahl du Rietz minnkaði aftur muninn í eitt mark, 22-21, þegar 23 sekúndur voru eftir en Frakkar tóku síðan leikhlé 12 sekúndum fyrir leikslok. Frakkar héldu boltanum til leiksloka og tryggðu sér annað Ólympíugullið í röð.
Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Fleiri fréttir Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Sjá meira