Handbolti

Aron Pálmarsson valinn í úrvalslið Ólympíuleikanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Mynd/Valli
Aron Pálmarsson var valinn í úrvalslið handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London en valið var tilkynnt fyrir úrslitaleik Svía og Frakka sem stendur nú yfir.

Aron spilaði frábærlega með íslenska landsliðinu á mótinu og var með 37 mörk og 24 stoðsendingar í 6 leikjum. Hann þótt líka vera besta vinstri skyttan að mati sérstakar valnefndar hjá IHF.

Svíar og Frakkar eiga bæði tvo leikmenn í liðinu, Svíar vinstri hornamaninn Jonas Kallman og hægri skyttuna Kim Andersson en Frakkar markvörðinn Thierry Omeyer og leikstjórnandann Nikola Karabatic.

Úrvalslið handbolta karla á ÓL í London 2012:

Vinstri horn: Jonas Kallman (Svíþjóð)

Lína: Julen Aguinagalde (Spánn)

Hægri horn: Ivan Cupic (Króatía)

Vinstri skytta: Aron Palmarsson (Ísland)

Leikstjórandi: Nikola Karabatic (Frakkland)

Hægri skytta: Kim Andersson (Svíþjóð)

Markvörður: Thierry Omeyer (Frakkland)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×