Íslenski boltinn

Selfoss vann mikilvægan sigur á Ólafsvík - vantar einn sigur enn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Daði Böðvarsson skoraði mark Selfoss í dag.
Jón Daði Böðvarsson skoraði mark Selfoss í dag. Mynd/Stefán
Selfyssingar færðust skrefi nær Pepsi-deild karla með góðum 1-0 sigri í Ólafsvík þar sem þeir mættu Víkingi.

Jón Daði Böðvarsson skoraði mark Selfyssinga um miðbik síðari hálfleiks en leikurinn hafði annars verið í járnum lengst af.

Selfoss er með 38 stig í öðru sæti deildarinnar og með sex stiga forystu á næsta lið, Hauka, þegar þrjár umferðir eru eftir. Selfyssingum ætti því að duga einn sigur til viðbótar til að tryggja sæti sitt í Pepsi-deild karla.

Fjölnir átti möguleika á að komast upp í þriðja sæti deildarinnar og halda þar með í við Selfyssinga en liðið gerði 1-1 jafntefli við ÍA á heimavelli sínum.

ÍA er sem kunnugt er búið að tryggja sér sæti í Pepsi-deild karla og er liðið með sjö stiga forystu á toppi deildarinnar.

Stefán Þór Þórðarson skoraði mark ÍA úr víti á 29. mínútu en Gunnar Valur Gunnarsson jafnaði metin fyrir Fjölni á 50. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×