Fleiri fréttir

Ingimundur inn fyrir Arnór

Arnór Atlason fer ekki til Noregs með b-liði íslenska landsliðsins eins og til stóð. Hann þarf að vera undir eftirliti lækna vegna hnémeiðsla.

Lottomatica Roma nálgast 16-liða úrslitin

Ítalska liðið Lottomatica Roma tók stórt skref í átt að 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær með sigri á Brose Baskets á útivelli, 73-59.

Grant Hill fékk botnlangakast

Framherjinn Grant Hill getur ekki leikið með liði Phoenix næstu tvær til þrjár vikurnar eftir að hafa gengist undir botnlangauppskurð. Hill hefur verið í byrjunarliði Phoenix í fyrstu 34 leikjum tímabilsins og leikið mjög vel.

Ég held ég hafi bara aldrei lent í öðru eins

Sverre Andreas Jakobsson, leikmaður íslenska landsliðsins í handbolta, fékk slæma vírussýkingu á LK-mótinu í Danmörku um síðustu helgi og gat ekki leikið síðasta leik Íslands í mótinu gegn Danmörku.

Slysalegt mark tryggði Arsenal jafntefli

Arsenal og Tottenham skildu jöfn 1-1 í fyrri leik sínum í undanúrslitum enska deildarbikarsins á Emirates í kvöld. Gestirnir voru heldur sterkari aðilinn í leiknum en náðu ekki að hrista af sér Arsenal-grýluna og sigra frekar en fyrri daginn.

Henry á skotskónum hjá Barcelona

Thierry Henry skoraði mark Barcelona í kvöld þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Sevilla á útivelli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum spænska konungsbikarsins. Henry kom Barca yfir í leiknum á 24. mínútu en Diego Capel jafnaði skömmu fyrir hálfleik.

Lehmann á leið til Dortmund

Þýski markvörðurinn Jens Lehmann hjá Arsenal hefur samþykkt að ganga í raðir Dortmund samkvæmt fréttum frá Þýskalandi. Lehmann hefur verið úti í kuldanum undanfarið hjá Arsenal og virðist nú ætla að snúa aftur til síns gamla félags í heimalandinu.

Shearer tekur ekki við Newcastle

Heimildamenn BBC segja að Alan Shearer muni ekki gefa kost á sér sem næsti stjóri Newcastle í kjölfar þess að Sam Allarcyce var látinn taka pokann sinn í kvöld. Veðbankar á Englandi höfðu sett Shearer í efsta sætið yfir líklegustu eftirmenn Allardyce og nú er Harry Redknapp hjá Portsmouth kominn þar í efsta sæti.

Grindavík á toppinn

Grindavíkurstúlkur komust í kvöld upp á hlið granna sinna í Keflavík á toppi Iceland Express deildarinnar þegar liðið vann sigur á Fjölni 79-68 í Grafarvogi. Þá unnu Haukar nauman sigur á Hamri í Hveragerði 73-69.

Nistelrooy framlengir við Real Madrid

Hollenski markahrókurinn Ruud van Nistelrooy hjá Real Madrid hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við félagið sem gildir út leiktíðina 2010. Nistelrooy er 31 árs gamall og gekk í raðir Real frá Manchester United fyrir 10,5 milljónir punda árið 2006.

Robson steinhissa á Newcastle

Sir Bobby Robson, fyrrum knattspyrnustjóri Newcastle, segist hafa orðið steinhissa þegar hann heyrði að Sam Allardyce hefði verið rekinn frá félaginu í dag.

Hárgreiðslan liggur ekki fyrir

Línumaðurinn litríki Róbert Gunnarsson hjá Gummersbach er nú að leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir EM í handbolta ásamt félögum sínum í landsliðinu.

Sven er búinn að finna sinn Ronaldo

Sven-Göran Eriksson, stjóri Manchester City, hefur staðfest áhuga sinn á því að kaupa brasilíska sóknarmanninn Mancini hjá Roma á Ítalíu. Sven segir hann geta orðið svar City við Cristiano Ronaldo hjá Manchester United.

Downing enn orðaður við Tottenham

Tottenham er nú enn og aftur orðað við vængmanninn Stewart Downing hjá Middlesbrough og ef marka má frétt Sky eiga félagin í viðræðum þessa stundina. Downing hefur lengi verið orðaður við Lundúnaliðið, en hann er nú loksins sagður til sölu hjá Boro eftir að hafa verið ósnertanlegur síðustu ár.

Robinson á bekknum hjá Tottenham

Fyrri undanúrslitaleikur Arsenal og Tottenham í enska deildarbikarnum hefst klukkan 20 í beinni á Sýn. Paul Robinson er á varamannabekk Tottenham og í stað hans stendur Tékkinn Radek Cerny í marki gestanna.

Riley íhugar að hætta þjálfun

Pat Riley, þjálfari Miami Heat í NBA deildinni, útilokar ekki að hætta þjálfun að loknu yfirstandandi keppnistímabili. Riley er líka forseti Heat en er reyndar með samning sem þjálfari út leiktíðina 2010.

Allardyce rekinn frá Newcastle

Sam Allardyce hefur verið rekinn úr starfi knattspyrnustjóra hjá Newcastle eftir skelfilegt gengi liðsins að undanförnu.

Carroll á leið til Derby

Paul Jewell, stjóri Derby, er nú við það að ganga frá kaupum á norður-írska markverðinum Roy Carroll frá Glasgow Rangers að sögn BBC. Carroll hefur ekki átt fast sæti í liði Rangers og gæti því verið aftur á leið í ensku úrvalsdeildina.

Miðasala á Ísland-Tékkland hafin

Nú er hafin miðasala á leiki Íslands og Tékklands sem fara fram á sunnudag og mánudag. Leikirnir eru þeir síðustu hjá íslenska landsliðinu fyrir EM í handbolta sem hefst í næstu viku.

Skrtel vill ganga frá félagaskiptunum sem fyrst

Varnarmaðurinn Martin Skrtel vill ólmur ganga frá sínum málum sem allra fyrst og láta draum sinn rætast með því að ganga til liðs við Liverpool frá Zenit í St. Pétursborg.

Tíu mestu hörkutólin í boltanum

The Sun tók saman lista yfir tíu mestu hörkutólin sem hafa leikið í Englandi og víðar síðustu áratugi. Vísir birtir listann hér.

Sissoko spenntur fyrir Juventus

Mohamed Sissoko mun vera spenntur fyrir því að ganga til liðs við Juventus og munu viðræður vera langt komnar.

Ferrari skíðaveisla eftir frumsýningu

Stefano Domenicali, nýr framkvæmdarstjóri keppnisliðs Ferrari var meðal liðsmanna þegar Ferrari hélt sína árlegu skíðaveislu á Ítalíu í dag. Þangað mæta helstu liðsmenn Ferrari og sægur fjölmiðlamanna.

Savage genginn til liðs við Derby

Robbie Savage hefur formlega gengið til liðs við Derby og skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við félagið. Hann kemur frá Blackburn fyrir 1,5 milljónir punda.

Iversen ekki til Lazio eða Wolves

Nú er það ljóst að Steffen Iversen verður áfram í herbúðum norska úrvalsdeildarliðsins Rosenborg en hann hefur að undanförnu verið orðaður við bæði Lazio og Wolves.

Östenstad: Hannes ekki til sölu

Egil Östenstad, yfirmaður íþróttamála hjá norska úrvalsdeildarliðinu Viking, segir að Hannes Þ. Sigurðsson sé ekki til sölu.

Leikjaniðurröðunin á Möltu klár

Íslenska landsliðið í knattspyrnu tekur þátt í æfingamóti á Möltu dagana 2.-6. febrúar næstkomandi ásamt heimamönnum, Armeníu og Hvíta-Rússlandi.

Newcastle vill Diarra

Newcastle hefur sent Arsenal fyrirspurn vegna miðjumannsins Lassana Diarra. Leikmaðurinn hefur fengið sárafá tækifæri með Arsenal síðan hann kom til liðsins frá Chelsea síðasta sumar.

Valur vann topplið Keflavíkur

Einn leikur var í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld. Valur vann Keflavík 97-94 í æsispennandi leik sem var tvíframlengdur.

Sigurmark Chelsea kom í uppbótartíma

Chelsea vann Everton 2-1 í fyrri viðureign liðana í undanúrslitum deildabikarsins. Sigurmarkið kom í uppbótartíma en það var sjálfsmark varnarmannsins Joleon Lescott. Chelsea lék manni færri stærstan hluta seinni hálfleiks.

Tottenham á eftir Laursen og Hutton

Tottenham ætlar að styrkja vörn sína í janúar og er á eftir Martin Laursen og Alan Hutton. Liðið hefur fengið á sig 38 mörk á tímabilinu og afleitur varnarleikur oft orðið því að falli.

Beckham fundaði með Gordon Brown

David Beckham fór á fund með Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, á Downing stræti í kvöld. Í viðtali við BBC eftir fundinn sagði Beckham að Brown væri að gera mjög góða hluti.

Sjónvarpsmaður hyggst bjarga Luton

Sjónvarpsmaðurinn Nick Owen fer fyrir hópi fjárfesta sem hyggst kaupa enska 2. deildarliðið Luton. Félagið rambar á barmi gjaldþrots en Owen ætlar að koma til bjargar.

Ráðlagt að fara ekki til Tottenham

Urby Emanuelson, varnarmaður Ajax í Hollandi, segist ekki hafa áhuga á að fara til Tottenham. Þessa ákvörðun hafi hann tekið eftir að hafa ráðlagt sig við samherja sinn, Edgar Davids.

Kaka meiddist á æfingu

Ólíklegt er talið að brasilíski snillingurinn Kaka verði með AC Milan gegn Napoli um næstu helgi. Kaka meiddist eftir að hafa lent í samstuði við Yoann Gourcuff á æfingu í gær.

Sjá næstu 50 fréttir