Tíu mestu hörkutólin í boltanum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. janúar 2008 14:43 Vinnie Jones er að sjálfsögðu á listanum. Nordic Photos / Getty Images
The Sun tók saman lista yfir tíu mestu hörkutólin sem hafa leikið í Englandi og víðar síðustu áratugi. Vísir birtir listann hér. Það er ekki hver sem er sem komst inn á listann, heldur annáluð hörkutól sem allir andstæðingar á vellinum óttast. Hörkutól er ekki endilega sá leikmaður sem er hvað duglegastur að safna rauðum spjöldum, heldur frekar sá sem gefur allt sitt í hvern einasta bolta og sýnir engum vægð. 10. sæti: John Terry Gefur sig allan í leikinn, bæði með Chelsea og landsliðinu. Lætur beinbrot í andliti ekki stöðva sig og er helst mættur á ný í næsta leik. Fékk eitt sinn vænt höfuðhögg frá Abou Diaby, leikmanni Arsenal, í úrslitaleik deildabikarkeppninnar en labbaði út af spítalanum síðar um kvöldið til að taka þátt í fögnuðinum með félögum sínum. 9. sæti: Ron Harris Annar annálaður varnarjaxl sem lék með Chelsea á sínum tíma. Tæklingin hans á Eddie Gray í úrslitaleik Chelsea og Leeds í ensku bikarkeppninni árið 1970 er fræg og átti hann ríkan þátt í að Chelsea vann titilinn það árið. 8. sæti: Vinnie Jones Guðfaðir klikkaða gengisins hjá Wimbledon og hefur haldið áfram að leika hörkutól í kvikmyndum eftir að knattspyrnuferlinum lauk. Fræg er myndin af honum þar sem hann grípur um Paul Gasgoicne á viðkæmum stað en toppurinn á ferlinum er sigur Wimbledon í ensku bikarkeppninni árið 1988. Þar fékk Steve McMahon að kenna á honum. Lið Leeds árið 1975. Fóru langt á keppnisskapinu.Nordic Photos / Getty Images 7. sæti: Norman Hunter Leikmenn Leeds á áttunda áratugnum voru þekktir fyrir grófan leik á knattspyrnuvellinum. Sá grófasti var sennilega Norman Hunter en var hann þó ekki í slæmum félagsskap. Með honum í liðinu voru til að mynda Jack Charlton, Billy Bremner, Johnny Giles og Allan Clarke. 6. sæti: Roy Keane Það muna allir eftir tæklingu Roy Keane á Alf-Inge Haaland, leikmanni Manchester City. Það þarf í sjálfu sér ekkert að rökstyðja val hans á þessum lista. Hann var prímusmótorinn í liði Manchester United í mörg ár og þótti þar að auki efnilegur hnefaleikamaður á sínum yngri árum í Cork á Írlandi. 5. sæti: Stuart Pearce Er enn í dag þekktur undir viðurnefninu „psycho". Í upphafi ferilsins, er hann lék með West Ham, reyndi hann eitt sinn að hlaupa af sér beinbrot í færi. Hann hlaut þó áðurnefnt viðurnefni hjá stuðningsmönnum Nottingham Forest þar sem hann var þekktur fyrir að vera harður í horn að taka en um leið sanngjarn. 4. sæti: Romeo Benetti Einhver harðasti naglinn í ítölsku úrvalsdeildinni á áttunda áratugnum. Andstæðingur sagði eitt sinn eftirfarandi um hann: „Hann var algjör ótemja. Það skipti engu hvort hann stæði í lappirnar, væri krjúpandi eða liggjandi í grasinu. Ef þú fórst nálægt honum fékkstu alltaf að kenna á því." 3. sæti: Dave Mackay Þótti sá harðasti þegar knattspyrna þótti alvöru karlmannsíþrótt. Tvífótbrotnaði en sneri til baka og var einn sterkasti leikmaður Tottenham á sjöunda áratugnum. Lauk svo ferlinum hjá Derby við góðan orðstír. Graeme Souness er efsti maður á lista og kemur það lítið á óvart.Nordic Photos / Getty Images 2. sæti: Andoni Goicoechea „Slátrarinn frá Bilbao" stóð undir nafni þegar hann tæklaði Diego Maradona svo hrottalega að hann var frá í marga mánuði á eftir. Bernd Schuster, annar leikmaður Barcelona, fékk svo að kenna á honum og uppskar hnémeiðsli. 1. sæti: Graeme Souness Það er af mörgu að taka af litríkum ferli Souness. Hann lék á sínum tíma í Englandi, Ítalíu og Skotlandi og var duglegur að sanka að sér rauðum spjöldum. Frægast er líklega atvikið þegar hann var þjálfari Galatasaray og skaut niður fána á miðjum heimavelli erkifjendanna í Fenerbahce eftir að Galatasaray vann þá í úrslitum bikarkeppninnar vorið 1996. Þá er einnig frægur landsleikur Íslands og Skotlands á Laugardalsvelli í maímánuði árið 1985. Þar mættust naglarnir Souness og Sigurður Jónsson og lauk viðskiptum þeirra á þann hátt að sá Sigurður var borinn af velli eftir tæklingu Souness á 26. mínútu. Sigurður meiddist á ökkla og missti af næsta landsleik vegna þess.
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira