Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kanada tekur við fimm þúsund afgönskum flóttamönnum Kanada mun taka á móti fimm þúsund afgönskum flóttamönnum og koma þeim fyrir í Kanada, sem komust frá Afganistan með hjálp Bandaríkjanna. Síðustu bandarísku hermennirnir yfirgáfu Afganistan í morgun eftir tuttugu ára hersetu í landinu. 31.8.2021 15:24
Talibanar fagna sigri í Afganistan Talibanar hafa fagnað grimmt í Kabúl í dag eftir að síðustu hermenn Bandaríkjanna yfirgáfu landið í gærkvöldi. Þeir segjast hafa sigrað stórveldi. Þá heita Talibanar því að tryggja öryggi í Afganistan en þó berast fregnir af áframhaldandi ódæðum vígamanna. 31.8.2021 14:45
Sex dæmdir til dauða fyrir að myrða hinsegin aðgerðasinna Sex meðlimir íslamsks vígahóps voru dæmdir til dauða í Bangladess í morgun fyrir að hafa myrt tvo hinsegin aðgerðasinna fyrir fimm árum síðan. 31.8.2021 13:47
Metfjöldi smita greinist í Ísrael Alls greindust 10.947 með Covid-19 í Ísrael síðastliðinn sólarhring en um er að ræða metfjölda greininga á einum degi í landinu. Mest höfðu 10.118 greinst smitaðir á einum degi þann 18. janúar síðastliðinn. 31.8.2021 12:58
Segir R. Kelly hafa lofað sér frægð í skiptum fyrir kynlíf Fyrsti karlinn, sem hefur ásakað tónlistarmanninn R. Kelly um að hafa beitt sig kynferðisofbeldi, vitnaði fyrir dómi í gær og sagði Kelly hafa lofað sér frægð í skiptum fyrir kynlíf. Gærdagurinn var áttundi dagur réttarhaldanna yfir tónlistarmanninum. 31.8.2021 12:44
Bensíni með blýi útrýmt í heiminum Ekkert land í heiminum notar lengur bensín með blýi til að knýja bifreiðar eftir að síðustu dropar þess kláruðust í Alsír í júlí. Blýi var blandað út í bensíni í hátt í heila öld þrátt fyrir að það mengaði loft, jarðveg og vatn. 31.8.2021 10:33
Stofnandi Theranos segist hafa verið beittur andlegu ofbeldi Elizabeth Holmes, stofnandi blóðrannsóknafyrirtækisins Theranos, heldur því fram að forseti fyrirtækisins og þáverandi kærasti hennar hafi beitt hana andlegu ofbeldi. Þau eru bæði ákærð fyrir stórfelld svik og blekkingar. 31.8.2021 08:46
Óska eftir kælibílum til að anna umframeftirspurn hjá útfararstofum og líkhúsum Yfirvöld í tveimur sýslum í Oregon í Bandaríkjunum hafa óskað eftir flutningabifreiðum með kæligeymslum til að höndla þann fjölda líka sem nú safnast upp á sjúkrahúsum, útfararstofum og líkbrennslum. 31.8.2021 07:51
Fjölmargir breskir og bandarískir ríkisborgarar enn í Afganistan Talíbanar hafa nú tekið alþjóðaflugvöllinn í Kabúl í Afganistan alfarið á sitt vald. Síðasta bandaríska herflugvélin er farin þaðan og þar með er tuttugu ára stríði Bandaríkjamanna í landinu lokið með, að því er virðist, fullnaðarsigri talíbana. Fjölmargir komust þó ekki úr landi. 31.8.2021 07:21
Líffæraflutningum hefur fækkað verulega í Covid-faraldrinum Líffæraflutningum hefur fækkað verulega í Covid-19 faraldrinum en mismikið eftir löndum. Þeim fækkaði til að mynda um tæp 10 prósent í Kanada árið 2020 en um tæp 67 prósent í Japan. 31.8.2021 07:00
Bandaríkjaher farinn frá Afganistan Bandarískir fjölmiðlar greina nú frá því að síðustu herflugvélar bandaríska hersins hafi tekið á loft frá Hamid Karzai-flugvellinum í Kabúl, höfuðborg Afganistan, nú í kvöld. 30.8.2021 21:42
Fjórir ákærðir fyrir að nauðga og myrða níu ára stúlku Fjórir indverskir menn hafa verið ákærðir fyrir að nauðga og myrða níu ára stúlku í Nýju Delí, höfuðborg Indlands. Meðal mannanna er prestur, sem er meðal annars sakaður um að þvinga móður stúlkunnar til að brenna lík hennar með því markmiði að eyða sönnunargögnum. 30.8.2021 16:35
Ída olli usla í Lúisíana Umfangsmikið björgunarstarf stendur nú yfir í Lúisíana í Bandaríkjunum eftir að fellibylurinn Ída gekk þar yfir í gærkvöldi og í nótt. Fellibylurinn er einn sá öflugasti sem gengið hefur á land í Bandaríkjunum og leiddi til mikilla flóða, rafmagnsleysis og annarskonar tjóns. 30.8.2021 15:51
WHO ferjar nauðsynlegar heilbrigðisvörur til Afganistan Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hefur opnað loftbrú til Afganistan til að ferja þangað nauðsynlegar heilbrigðisvörur. Fyrsta flugvélin, með byrgðir frá WHO innanborðs, lenti í Afganistan í morgun. 30.8.2021 14:36
Flugu í auga Ídu Veðurstofa Bandaríkjanna birti í gær myndband úr auga fellibyljarins Ídu. Flugmenn Veðurstofunnar og flughers Bandaríkjanna höfðu þá flogið í miðju fellibyljarins til að mæla styrk hans og annað. 30.8.2021 12:21
Bíræfnir bankaræningjar bundu gísla utan á flóttabíla sína Bíræfnir og þungvopnaðir bankaræningjar fóru um miðborg borgarinnar Aracatuba í Brasilíu í morgun og rændu minnst þrjá banka. Skýldu ræningjarnir sér bakvið hóp gísla sem þeir höfðu tekið. 30.8.2021 11:03
„Hjarta“ kjarnorkuáætlunar Norður-Kóreu var ræst í sumar Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) segir útlit fyrir að Norður-Kóreumenn hafi ræst kjarnakljúfur ríkisins í Yongbyon fyrr á þessu ári. Í árlegri skýrslu IAEA sem birt var um helgina segir að kveikt hafi verið á kljúfinum í júlí og kælivatn hafi verið losað frá Yongbyon. 30.8.2021 10:12
Draga heilindi og yfirlýsingar talíbana í efa Bresk stjórnvöld draga það í efa að talíbanar muni standa við yfirlýsingar þess efnis að allir sem eiga rétt á því komist frá Afganistan heilir á húfi. Breskir hermenn hafa snúið aftur heim en Bretar hyggjast áfram aðstoða fólk við að komast burt. 30.8.2021 08:27
Fyrsta dauðsfallið á Nýja-Sjálandi sem tengt er bóluefninu frá Pfizer Yfirvöld á Nýja-Sjálandi hafa tilkynnt um fyrsta dauðsfallið sem er talið tengjast bólusetningu með Covid-19 bóluefninu frá Pfizer. Eftirlitsnefnd segir konuna líklega hafa látist af völdum hjartavöðvabólgu í kjölfar bólusetningar. 30.8.2021 07:38
Eldur gleypir í sig íbúðablokk í Mílanó Að minnsta kosti 20 fengu reykeitrun þegar eldur breiddist út um 20 hæða íbúðablokk í Mílanó í gær. Ekki er vitað um dauðsföll en slökkviliðsmenn fóru á milli hæða og börðu á dyr til að freista þess að koma öllum út. 30.8.2021 06:55
Eldflaugum skotið á Kabúl Eldflaugum var skotið á hverfi í grennd við flugvöllinn í Kabúl í Afganistan í morgun. AP fréttastofan greinir frá þessu en segir enn óljóst hver hafi verið þar að verki. 30.8.2021 06:48
Íbúar New Orleans án rafmagns Íbúar borgarinnar New Orleans í Bandaríkjunum eru án rafmagns, eftir að fellibylurinn Ída gekk yfir Louisiana. Vindhraðinn Ídu var allt að 240 km/klst þegar fellibylurinn gekk á land og þeim sem ekki flúðu áður hefur verið ráðlagt að halda kyrru fyrir. 30.8.2021 06:33
Barn lést þegar eldflaug var skotið við flugvöllinn í Kabúl Lögreglustjóri í Afganistan fullyrðir að barn hafi látist þegar eldflaug var skotið á hús í hverfi norðvestur af flugvellinum í Kabúl í dag. Talibanar segja að loftárás Bandaríkjahers hafi stöðvað sjálfsmorðsprengjutilræðismann. 29.8.2021 13:42
Sendiherrafrú dæmd fyrir „skepnulegt“ morð á eiginmanninum Dómstóll í Brasilíu dæmdi þarlenda konu í 31 árs fangelsi fyrir að leggja á ráðin um morðið á eiginmanni sínum sem var sendiherra Grikklands í landinu. Dómari lýsti glæp konunnar og vitorðsmanna hennar sem „skepnulegum“. 29.8.2021 10:09
Þúsundir flýja fellibylinn Idu sem eflist hratt Tugir þúsunda manna hafa flúið heimili sín í Lúisíana á suðausturströnd Bandaríkjanna áður en fellibylurinn Ida gengur þar á land síðar í dag. Ida hefur safnað styrk hratt og telst nú fjórða stigs fellibylur. 29.8.2021 09:25
Delta tvöfaldaði líkur á sjúkrahúsinnlögnum Fólk sem smitaðist af delta-afbrigði kórónuveirunnar var tvöfalt líklegra til að þurfa að leggjast inn á sjúkrahús en þeir sem fengu alfa-afbrigðið sem var algengast við upphafi faraldursins í Bretlandi. 29.8.2021 07:45
Telja miklar líkur á annarri hryðjuverkaárás Joe Biden Bandaríkjaforseti segir mjög líklegt að reynt verði að fremja aðra hryðjuverkaárás í Kabúl á næstu sólarhringum. Hann boðar áframhaldandi loftárásir á Ríki íslams sem lýsti yfir ábyrgð á sjálfsmorðssprengjuárásinni sem felldi á annað hundrað manns á fimmtudag. 29.8.2021 07:13
Óvíst hvað staðan í Kabúl þýðir fyrir flóttafólk frá Afganistan Vonir milljóna manna í Afganistan um að komast úr landinu dvína hratt, nú þegar loftbrúin er að lokast og Talíbanar náð tökum á stærstum hluta flugvallarins. Stjórnvöld víða um heim segjast miður sín yfir að þurfa að skilja fólk eftir. 28.8.2021 16:31
Norska lögreglan skaut mann til bana Lögreglumenn skutu mann til bana fyrir utan veitingahús í Sarpsborg í suðaustanverðum Noregi í morgun. Ekki hefur komið fram hver maðurinn var né hvers vegna lögreglan skaut hann. 28.8.2021 09:38
Fellibylurinn Ida ógnar íbúum Lúisíana Íbúar við strendur Lúisíana á suðausturströnd Bandaríkjanna búa sig nú undir að fellibylurinn Ida gangi á land um helgina. Varað er við því að fellibylurinn muni „breyta lífi“ fólks sem er óviðbúið hamförunum. 28.8.2021 08:45
Telja „blátt“ vetni enn meira mengandi en kol eða gas Losun gróðurhúsalofttegunda sem hlýst af vinnslu vetnis úr jarðgasi er enn meiri en ef gasinu eða kolum væri brennt til að framleiða orku. Svonefndu „bláu“ vetni hefur verið hampað sem umhverfisvænu eldsneyti. 28.8.2021 08:02
Svöruðu hryðjuverkunum í Kabúl með drónaárás á Ríki íslams Bandaríkjaher gerði drónaárás á hryðjuverkasamtökin Ríki íslams í Afganistan í nótt til þess að hefna fyrir hryðjuverkaárásina sem var gerð við flugvöllinn í Kabúl á fimmtudag. Vestrænt herlið býr sig undir möguleikanna á frekari hryðjuverkum. 28.8.2021 07:55
Heimsþekktur sérfræðingur í heiðarleika sakaður um svik og pretti Heimsþekktur sálfræðiprófessor sem skrifaði metsölubók um heiðarleika er sakaður um að hafa falsað niðurstöður frægrar rannsóknar. Fyrri verk hans eru nú komin undir smásjánna og efasemdir vaknað um hvort hann hafi alltaf fylgt eigin boðskap. 28.8.2021 07:30
Morðingi Roberts Kennedy gæti gengið laus Nefnd, sem ákveður hvort föngum skuli veitt reynslulausn, hefur ákveðið að morðingi Roberts F Kennedy, sem sóttist eftir að verða forsetaefni Demókrata árið 1968, skuli látinn laus úr fangelsi. 27.8.2021 23:02
Óljóst hvort hægt verði að koma fleiri flóttamönnum frá Afganistan Farið er að styttast í annan endan á brottflutningi flóttafólks frá alþjóðaflugvellinum í Kabúl í Afganistan. Óljóst er hvernig eða hvort hægt verði að koma fleira flóttafólki til Íslands. 27.8.2021 12:01
Breivik sækist eftir reynslulausn Norskur dómstóll þarf að taka fyrir ósk hryðjuverkamannsins Anders Behring Breivik um reynslulausn eftir að ríkissaksóknari hafnaði beiðninni. Breivik hefur nú afplánað tíu ár af 21 árs fangelsisdómi sem hann hlaut. 27.8.2021 11:55
Berlusconi aftur lagður inn á sjúkrahús Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, var lagður inn á sjúkrahús í Mílanó í gærkvöldi. Hann hefur ítrekað lent inni á sjúkrahúsi frá því að hann smitaðist af kórónuveirunni í september. 27.8.2021 10:04
Danir aflétta öllum takmörkunum 10. september Danska ríkisstjórnin hyggst aflétta öllum takmörkunum vegna faraldurs kórónuveirunnar 10. september næstkomandi. Covid-19 verður þá ekki lengur skilgreindur sjúkdómur sem ógnar dönsku samfélagi. 27.8.2021 09:36
Óttast frekari árásir ISIS í Afganistan Viðbúnaður er hjá bandarísku herliði sem aðstoðar við brottflutning afganskra flóttamanna frá Kabúl vegna möguleikans á fleiri hryðjuverkaárásum. Fleiri en hundrað manns, afganskir borgarar og bandarískir hermenn, féllu í sjálfsmorðssprengjuárás í gær. 27.8.2021 09:02
„Átti við“ vörur og íbúum ráðlagt að kasta öllum matvælum Þrjátíu og sjö ára gamall maður hefur verið ákærður fyrir að „menga“ eða „eiga við“ matvæli í þremur matvöruverslunum í Lundúnum. Fólki hefur verið ráðlagt að henda matvælum sem það kann að hafa keypt í umræddum verslunum. 27.8.2021 07:45
Fékk bandaríska hermenn á tal við sig áður en hann sprengdi sig í loft upp Rúmlega 90 Afganir og 13 liðsmenn Bandaríkjahers féllu í tveimur sprengjuárásum við flugvöllinn í Kabúl, höfuðborg Afganistan, í gærkvöldi. Á annað hundrað manns særðust í sprengingunum. 27.8.2021 06:27
„Við munum finna ykkur og láta ykkur gjalda“ Joe Biden Bandaríkjaforseti var harðorður í garð hryðjuverkasamtakanna ISIS-K, sem stóðu að baki mannskæðri sprengjuárás á flugvellinum í Kabúl í dag, á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í kvöld. 26.8.2021 23:02
Hver eru hryðjuverkasamtökin ISIS-K? Hryðjuverkasamtökin ISIS-K lýstu í kvöld yfir ábyrgð á sprengjuárásunum á alþjóðaflugvellinum í Kabúl fyrr í dag, sem bönuðu hátt í hundrað manns. 26.8.2021 22:44
Minnst níutíu Afganar hafa farist og ISIS lýsir yfir ábyrgð Minnst níutíu hafa farist í sprengjuárás sem framin var af hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki (ISIS) á alþjóðaflugvellinum í Kabúl í dag. Þá fórust tólf bandarískir hermenn í árásinni. 26.8.2021 20:11
Mannskæð sprengjuárás í mannþröng við flugvöllinn í Kabúl Að minnsta kosti þrettán manns eru látnir eða særðir eftir mannskæða sprengju- og skotárás í mannþröng við flugvöllinn í Kabúl í dag. Talsmaður talibana fullyrðir að konur og börn séu á meðal þeirra látnu. 26.8.2021 13:54