Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sprengingin fleygði mönnum allt að 150 metra Fjórir létu lífið þegar sprenging varð í tanki í vatnshreinsistöð í Avonmouth, nærri Bristol í Bretlandi í gær. Þrír starfsmenn stöðvarinnar og einn verktaki dóu og einn mun hafa slasast en er ekki í lífshættu. 4.12.2020 09:40
Líkur á að fríverslunarsamningur náist hverfandi Líkurnar á því að fríverslunarsamningur milli Bretlands og Evrópusambandsins náist áður en Bretland segir skilið við Evrópusambandið eru hörfandi. Þetta hefur breska ríkisútvarpið eftir heimildamanni sem er hátt settur hjá breskum stjórnvöldum. 3.12.2020 23:45
Fyrstu skammtarnir komnir til Bretlands Fyrstu skammtar af bóluefni lyfjafyrirtækjanna Pfizer og BioNTech komu til Bretlands í kvöld. Birgðirnar voru fluttar í „sérstaka miðstöð á ótilgreindum stað“ og verður nú dreift um landið til bólusetningar. 3.12.2020 23:45
Lýsir áhrifunum sem Moderna-sprautan hafði á hann Bandarískur karlmaður sem tók þátt í bóluefnisrannsókn lyfjafyrirtækisins Moderna kveðst hafa fengið vægar aukaverkanir eftir seinni skammt. Hann segir reynsluna ekki beint „dans á rósum“ en kveðst hiklaust myndu láta sprauturnar aftur yfir sig ganga. 3.12.2020 23:01
Vandræði við bóluefnaframleiðslu Pfizer Lyfjaframleiðandinn Pfizer gerir ráð fyrir því að geta aðeins dreift helmingi þeirra Covid-19 bóluefnaskammta sem dreifa átti fyrir lok þessa árs. Að sögn framleiðandans er það vegna vandamála sem upp hafa komið við framleiðslu hráefna, sem nauðsynleg eru bóluefninu. 3.12.2020 22:07
Íran hafnar skilyrðum Bidens fyrir kjarnorkusamningi Íran hefur hafnað skilyrðum sem ný stjórn Joe Bidens, verðandi Bandaríkjaforseta, hefur sett vegna endurupptöku kjarnorkusamnings milli ríkjanna. 3.12.2020 18:26
Sonurinn var ekki fangi móður sinnar Kona á áttræðisaldri, sem talin var hafa haldið syni sínum föngnum í íbúð sinni í Haninge suður af Stokkhólmi í nær þrjá áratugi, er ekki lengur grunuð um saknæmt athæfi. Ekki hafa fundist neinar vísbendingar um að syninum hafi verið haldið í íbúðinni gegn vilja sínum. 3.12.2020 17:22
Flugvél í árekstri við bíl eftir nauðlendingu Flugmaður einkaflugvélar lenti í miklum vandræðum í Minnesota í Bandaríkjunum í gærkvöldi og þurfti hann að framkvæma nauðlendingu á hraðbraut hjá borgunum Minneapolis og Saint Paul. 3.12.2020 16:41
Mikil líkindi með framgöngu áströlsku sérsveitarinnar í Afganistan og kanadíska Sómalíu-hneykslinu Fyrrverandi varnarmálaráðherra Kanada segir að eina leiðin til að uppræta kerfislæg „menningarvandamál“ og endurheimta orðspor kanadíska hersins í kjölfar svokallaðs Sómalíu-hneykslis, hafi verið að leysa upp umrædda hersveit. 3.12.2020 16:34
Tunglfarið á leið til jarðar með mánagrjót Ríkismiðlar Kína segja að geimfarið Chang'e 5 sé nú á leið aftur til jarðarinnar eftir að hafa lent á tunglinu og tekið þaðan sýni. Geimfarið lenti á tunglinu fyrr í vikunni. 3.12.2020 16:01
Mikil sprenging nærri Bristol sögð mannskæð Slökkvilið, lögregla og aðrir eru með mikinn viðbúnað eftir stóra sprengingu í bænum Avonmouth, nærri Bristol í Bretlandi. Sprengingin varð í efnatanki við vatnshreinsistöð. 3.12.2020 14:34
Faraldurinn nær nýjum hæðum í Bandaríkjunum Faraldur nýju kórónuveirunnar náði methæðum í Bandaríkjunum í gær. 3.150 manns dóu og samtals voru fleiri en hundrað þúsund manns á sjúkrahúsi vegna Covid-19. Rétt rúmlega 200 þúsund greindust smitaðir af Covid-19. 3.12.2020 14:09
Trump bölsótaðist út af kosningarúrslitunum í löngu ávarpi Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, endurtók framandlegar og stoðlausar ásakanir um stórfelld kosningasvik í forsetakosningum síðasta mánaðar í furðulegu þriggja stundarfjórðunga löngu ávarpi sem hann birti á samfélagsmiðlum í gærkvöldi. 3.12.2020 12:41
Vilja losna við þvinganir, annars verði eftirlitsmenn reknir úr landi Þingmenn í Íran samþykktu á dögunum frumvarp um að meina eftirlitsaðilum Sameinuðu þjóðanna aðgang að kjarnorkustöðvum þeirra og að auka auðgun úrans. Það var gert í kjölfar morðs eins helsta kjarnorkuvísindamanns Írans í síðustu viku. 3.12.2020 11:43
Tugir einstaklinga smitaðir af Covid-19 eftir „swing“-ráðstefnu í New Orleans 41 einstaklingur hefur greinst með Covid-19 eftir að hafa sótt svokallaða „swing“-ráðstefnu í New Orleans í Louisiana í Bandaríkjunum. Yfirvöld segja ráðstefnuna hafa verið viðburð sem stuðlaði að „ofurdreifingu“ kórónuveirunnar sem veldur Covid-19. 3.12.2020 10:33
Fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans látinn Zafarullah Khan Jamali, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, er látinn, 76 ára að aldri. Jamali lést af völdum hjartaáfalls á sjúkrahúsi í Rawalpindi, suður af höfuðborginni Islamabad. 3.12.2020 10:03
Forstjóri CDC spáir erfiðasta vetrinum í lýðheilsusögu Bandaríkjanna Robert Redfield, forstjóri bandarísku sóttvarnastofnunarinnar (CDC), varar við því að veturinn gæti orðið sá erfiðasti í lýðheilsusögu Bandaríkjanna. Spáir hann því að dauðsföll vestanhafs af völdum Covid-19 gætu náð 450 þúsundum í febrúar. 3.12.2020 06:16
Giscard d'Estaing fyrrverandi Frakklandsforseti látinn Valéry Giscard d'Estaing fyrrverandi forseti Frakklands er látinn, 94 ára að aldri. Andlát hans er sagt tengt veikindum af völdum Covid-19 en hann hafði nýverið verið lagður inn á sjúkrahús í Tours í Vestur-Frakklandi. 2.12.2020 23:35
Obama treystir Fauci og segist myndu láta sjónvarpa bólusetningu sinni Barack Obama, fyrrum Bandaríkjaforseti, segist hiklaust munu láta bólusetja sig ef Anthony Fauci, æðsti sóttvarnasérfræðingurinn vestanhafs, segir það óhætt. 2.12.2020 23:33
Járnfrúin vekur enn heitar tilfinningar Margaret Thatcher vekur enn heitar tilfinningar meðal Breta en ákvörðun bæjarráðsins í heimabæ hennar Grantham um að verja 100.000 pundum í athöfn þar sem stytta af „Járnfrúnni“ verður afhjúpuð hefur myndað gjá meðal íbúa. 2.12.2020 22:17
Menn ekki á eitt sáttir um ákvörðun og meint afrek Breta Bretar þurfa ekki lengur að vona að daglegt líf verði eins og áður var í vor; núna geta þeir verið þess fullvissir. Þetta segir forsætisráðherrann Boris Johnson en bresk heilbrigðisyfirvöld stefna á að hefja bólusetningar í næstu viku. 2.12.2020 20:39
Fimm og sex og sjö og... svindl? Getraunayfirvöld í Suður-Afríku rannsaka nú hvort nokkuð misjafnt hafi átt sér stað þegar lottótölurnar í PowerBall lottóinu þar í landi voru dregnar út á dögunum. 2.12.2020 19:10
Grunaði aldrei að nokkur annar byggi í íbúðinni Kona sem grunuð er um að hafa haldið syni sínum föngnum í íbúð sinni í grennd við Stokkhólm var sleppt úr haldi lögreglu eftir að sonur hennar var yfirheyrður í dag. Konan liggur þó enn undir grun í málinu. 2.12.2020 18:05
Sjáumst eftir fjögur ár! Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf þeim fregnum byr undir báða vængi í gær að hann hefði mögulega hug á því að bjóða sig aftur fram til forseta árið 2024. 2.12.2020 17:27
Hvetur mannkynið til að láta af „stríði gegn náttúrunni“ Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvatti mannkynið og þjóðir heims til þess að láta af „stríði sínu gegn náttúrunni“ og stefna að kolefnishlutleysi til þess að komast hjá verstu afleiðingum loftslagsbreytinga í dag. 2.12.2020 16:58
Afganir og Talibanar ná sínu fyrsta samkomulagi Samningamenn Talibana og ríkisstjórnar Afganistan hafa komist að þeirra fyrsta samkomulagi. Samkomulagið snýr að grunni áframhaldandi viðræðna og þar af leiðandi því að binda mögulega enda á átökin í landinu en einungis er um fyrsta skrefið af mörgum að ræða. 2.12.2020 16:44
Stefnir í fjórðu kosningar Ísrael á tveimur árum Útlit er fyrir að halda þurfi nýjar þingkosningar í Ísrael. Stjórnarandstöðufrumvarp um að slíta þingi var samþykkt á þinginu, Knesset, í dag. Þetta var þó einungis fyrsta umræða um frumvarpið. 2.12.2020 15:02
Þungvopnaðir ræningjar létu greipar sópa í tveimur bæjum Brasilíu Hópur þungvopnaðra bankaræningja myrti gísl og átti í skotbardaga við lögreglumenn á götum smábæjar í Brasilíu í dag. Svipað bankarán þar sem ræningjar beittu skotvopnum og sprengjum var framið í annarri brasilískri borg í gær. Í báðum tilvikum voru ræningjarnir á þriðja tug. 2.12.2020 14:24
Ræktað kjöt samþykkt í fyrsta sinn Matvælaeftirlitið í Singapúr hefur gefið græna ljósið á „kjúklingabita“ bandaríska fyrirtækisins Eat Just. Bitarnir eru úr raunverulegu kjúklingaprótíni en eru ræktaðir á tilraunastofu og því þarf ekki að slátra kjúklingi fyrir kjötið. 2.12.2020 13:13
Áratugurinn sem er að líða sá hlýjasti í sögunni Útlit er fyrir að árið 2020 verði á meðal þriggja hlýjustu ára frá því að mælingar hófust og verður áratugurinn sem nú er að líða sé hlýjasti frá upphafi. Áætlað er að um tíu milljónir manna hafi þurft að yfirgefa heimili sín vegna veðuröfga og náttúruhamfara á þessu ári. 2.12.2020 13:00
Hótunum rignir yfir embættismenn í Georgíu: „Þetta hefur allt gengið of langt“ Gabriel Sterling, embættismaður sem kemur að framkvæmd kosninga í Georgíu, vandaði Donald Trump, forseta, og öðrum háttsettum Repúblikönum ekki kveðjurnar á blaðamannafundi í gærkvöldi. 2.12.2020 12:30
Japanar mómtæla rússneskum eldflaugum á Kurileyjum Forsvarsmenn herafla Rússlands tilkynntu í gær að búið væri að koma fyrir nýjum eldflaugum á eyjum sem Rússar stjórna í Kyrrahafinu. Japanar gera einnig tilkall til eyjanna og hafa mótmælt því að loftvarnakerfi af gerðinni S-300V4 hafi verið komið fyrir á eyjunum. 2.12.2020 11:18
Rannsaka meintar mútugreiðslur í skiptum fyrir náðanir Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna rannsakar nú mögulega glæpi sem tengjast mútugreiðslum til Hvíta húss Donalds Trump, fráfarandi forseta, í skiptum fyrir náðun. Ónefndir einstaklingar eru grunaðri um að hafa á laun boðið umtalsverð framlög í kosningasjóði í skiptum fyrir náðun eða mildun á refsingu. 2.12.2020 10:20
Skipstjóri ákærður vegna dauða 34 um borð í bandarísku skemmtiskipi Skipstjóri skemmtibátsins Conception hefur verið ákærður vegna dauða 34 farþega hans undan ströndum Kaliforníu í fyrra. Hann er sakaður um 34 manndráp og gæti tæknilega séð verið dæmdur í 340 ára fangelsi. 2.12.2020 10:01
Joshua Wong dæmdur í 13,5 mánaða fangelsi Dómstóll í Hong Kong hefur dæmt hinn 24 ára Joshua Wong, einn helsta leiðtoga mótmælenda þar í landi, í þrettán og hálfs mánaða fangelsi fyrir þátt sinn í ólöglegum mótmælum sem beindust gegn stjórnvöldum á síðasta ári. 2.12.2020 09:06
Bretar heimila notkun Pfizer bóluefnisins fyrstir þjóða Bresk stjórnvöld hafa heimilað notkun á bóluefni Pfizer/BioNTech gegn kórónuveirunni og eru Bretar fyrstir þjóða til að stíga það skref. 2.12.2020 07:22
Starfsmenn og íbúar dvalarheimila fremstir í forgangsröðinni Ráðgefandi nefnd við bandarísku sóttvarnastofnunina (CDC) hefur gefið út hvaða forgangsröðun hún vill viðhafa þegar bólusetningar við Covid-19 hefjast vestanhafs. 2.12.2020 06:16
Barr kannast ekki við svindl og Giuliani ekki við náðunarspjall William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, segir engar vísbendingar liggja fyrir um að stórfelld kosningasvik hefðu átt sér stað í nýafstöðnum forsetakosningum. „Hingað til höfum við ekki séð svindl af þeirri stærðargráðu að það hefði leitt til annarra úrslita í kosningunum,“ sagði Barr í viðtali við Associated Press. 1.12.2020 22:42
Eiga tvær heilbrigðar dætur eftir að hafa ættleitt áratugagamla fósturvísa Molly og Emma eru heilbrigðar, yndislegar dætur Tinu og Ben Gibson. Molly fæddist í október sl. en Emma í nóvember 2017. Og hvað er svona merkilegt við það? Jú, báðar komu í heiminn eftir að Tina og Ben ættleiddu fósturvísa sem höfðu verið frosnir í 24 ár í tilviki Emmu og 27 ár í tilviki Molly. 1.12.2020 20:38
Níu mánaða barn meðal látnu Fjórir eru látnir eftir að maður ók bifreið inn á göngugötu í borginni Trier í Þýskalandi í dag. Meðal látnu er níu mánaða gamalt barn. Lögregla hefur handtekið 51 árs gamlan mann en hann er sagður hafa verið undir áhrifum áfengis. 1.12.2020 19:54
Rússnesk yfirvöld handsama „Volgu-brjálæðinginn“ Rússnesk lögregluyfirvöld segjast hafa klófest mann sem myrti að minnsta kosti 26 konur á árunum 2011 og 2012. Var morðinginn þekktur undir viðurnefninu „Volgu-brjálæðingurinn“. 1.12.2020 19:02
Þingmaður gripinn í orgíu sem haldin var á svig við sóttvarnalög József Szájer, Evrópuþingmaður fyrir ungverska stjórnarflokkinn Fidesz, hefur sagt af sér þingmennsku eftir að hann sótti samkomu í belgísku höfuðborginni Brussel á föstudag. 1.12.2020 18:18
Leikarinn Elliot Page úr Juno er trans Leikarinn Ellen Page hefur greint frá því að hán sé trans og gengur nú undir nafninu Elliot. Page, sem sló í gegn í myndum á borð við Juno og Inception, sagðist í stöðufærslu á Twitter vera „heppið“ að vera komið á þann stað sem hán væri á í dag. 1.12.2020 18:14
Lögmaður Trump vill Krebs dreginn út í dögun og skotinn Stuðningsmenn Donald Trump Bandaríkjaforseta freista þess enn að fá niðurstöðum forsetakosninganna snúið. Baráttan hefur litlu skilað og reiðin magnast. 1.12.2020 17:18
Arecibo-útvarpssjónaukinn hruninn Móttökutæki Arecibo-útvarpssjónaukans á Púertó Ríkó hrundi meira en 120 metra niður á endurvarpsdisk hans í dag. Nýlega var ákveðið að taka sjónaukann úr notkun vegna skemmda sem höfðu orðið á honum. 1.12.2020 16:31