Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gangnam Style vinsælasta lagið á YouTube frá upphafi Myndbandið við lagið Gangnam Style með suður-kóreska söngvaranum Psy er vinsælasta myndbandið í sögu Youtube.com. Búið er að horfa á myndbandið yfir 805 milljón sinnum. Þetta er ótrúlegur árangur því myndbandið var sett inn á síðuna í júlí á þessu ári. Fyrir átti söngvarinn Justin Bieber vinsælasta myndbandið við lagið Baby. 24.11.2012 20:30
Hector "Macho" látinn Fyrrum heimsmeistarinn í hnefaleik, Hector "Macho" Camacho, lést í morgun eftir að læknar tóku öndunarvél, sem hann var tengdur við, úr sambandi. Boxarinn var skotinn í höfuðið í síðasta mánuði og var úrskurðaður heiladauður í kjölfarið. 24.11.2012 15:02
Notuðu táragas gegn 10 þúsund mótmælendum Til óeirða kom í Bangkok höfuðborg Tælands í nótt þegar um tíu þúsund mótmælendur komu saman og kröfðust afsagnar forsætisráðherrans, Yingluck Shinawatra. 24.11.2012 10:36
Dallas-stjarna látin Bandaríski leikarinn Larry Hagman lést í gær 81 árs að aldri en hann er hvað þekktastur fyrir að hafa leikið JR Ewing í bandarísku sjónvarpsþáttunum Dallas. Þættirnir, sem eru með þeim vinsælustu sem hafa verið sýndir á sjónvarpsstöðinni CBS í Bandaríkjunum, voru sýndir hér á landi á sínum tíma. Banamein Hagmans var krabbamein. 24.11.2012 09:51
Tugþúsundir andæfa yfirgangi forsetans Tugir manna slösuðust í átökum milli stuðningsmanna og andstæðinga Mohammeds Morsi Egyptalandsforseta, sem brutust út í Kaíró í gær út af stjórnarskrárbreytingum forsetans. 24.11.2012 00:30
Skildu eftir sig drit í tonnavís Ólokaður turngluggi í Þrenningarkirkjunni í Gävle í Svíþjóð reyndist heimboð fyrir dúfur í þúsundavís. Aðkoman þegar hreingerningarfólk kom þar upp fyrir skemmstu, um 30 til 40 árum síðar, var því ófögur. 24.11.2012 00:00
Reykjavík verður kvikmynd um sigur mannsandans Kvikmyndin Reykjavík verður um sigur mannsandans að sögn Mike Newell, sem mun leikstýra þessari stórmynd sem draumasmiðjan ætlar að gera um leiðtogafundinn heimsfræga sem átti sér stað hér á landi árið 1986. 23.11.2012 21:01
35 skrímsli brutust inn til Lady Gaga þar sem hún var nakin Tónlistarkonan, og Íslandsvinurinn, Lady Gaga, varð fyrir sérkennilegri reynslu á dögunum þegar hún ákvað að fara að sækja mat um miðja nótt, nakin. 23.11.2012 20:48
Meðlimur Pussy Riot færður vegna átaka við klefafélaga Einn af meðlimum rússnesku pönksveitarinnar, Pussy Riot, hefur verið færð úr fangaklefa sínum, sem hún deildi með öðrum fanga, vegna áreksturs við klefafélagann. 23.11.2012 20:34
Nýr faraó í Egyptalandi Nokkrar skrifstofur Bræðralags múslima í Egyptalandi urðu eldi að bráð í fjölmennum mótmælum í dag. Boðað var til mótmæla eftir föstudagsbænir. 23.11.2012 13:58
Meðlimur Pussy Riot fluttur í einangrun Hin rússneska María Aljókhína, sem dæmd var í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa staðið fyrir mótmælum í kirkju í Moskvu í febrúar á þessu ári, situr nú í einangrun. 23.11.2012 13:31
Helstu dulmálssérfræðingar Breta standa á gati yfir bréfdúfuskeyti Helstu dulmálssérfræðingar Breta standa á gati og geta ekki leyst dulkóðað skeyti frá seinni heimsstyrjöldinni sem nýlega fannst í strompi í Surrey. 23.11.2012 11:23
Stormur og úrhelli veldur nær 90 viðvörunum um flóð á Bretlandseyjum Slæmt veður með roki og mikilli rigningu er byrjað að herja á Bretlandseyjum. Búið er að gefa út viðvaranir um flóð á nærri 90 stöðum í Englandi, Wales og Skotlandi. 23.11.2012 09:58
Tæp 8% drengja frá nýbúafjölskyldum eru á sakaskrá í Danmörku Ný rannsókn sýnir að tæplega 8% drengja á aldrinum 15 til 19 ára sem koma frá fjölskyldum nýbúa í Danmörku hafa framið glæpi. Til samanburðar 3,5% drengja á sama aldurshópi frá dönskum fjölskyldum fetað glæpabrautina. 23.11.2012 09:41
Eyja sem merkt er á kort af Kyrrahafinu er í raun ekki til Ástralskir vísindamenn segja að eyja í Kyrrahafinu sem merkt er inn á siglingar- og landakort og finnst á vefsíðunni Google Maps sé í rauninni ekki til. 23.11.2012 06:30
Forseti Mexíkó vill breyta nafni landsins í Mexíkó Felipe Calderon forseti Mexíkó vill breyta hinu opinbera nafni landsins. Hið opinbera nafn er Bandaríki Mexíkó eða Estados Unidos Mexicanos en Calderon vill einfalda nafnið og að það verði aðeins Mexíkó eins og raunar flest allir jarðarbúar kalla landið í dag. 23.11.2012 06:23
Merkel efast um að samkomulag náist um fjárlög ESB Angela Merkel kanslari Þýskalands efast um að samkomulag náist um fjárlög Evrópusambandsins á leiðtogafundi sambandsins sem nú stendur yfir í Brussel. 23.11.2012 06:20
Breivik má hafa kúlupenna Aðstaða morðingjans Anders Behring-Breivik í fangelsinu Illa hefur breyst til batnaðar, samkvæmt því sem lögmaður hans sagði í samtali við Verdens Gang. 23.11.2012 00:00
Mauramaðurinn rústaði heimilinu Hjón, búsett nærri Köln í Þýskalandi, eru orðin heimilislaus eftir að þau kölluðu til meindýraeyði vegna vandamáls með maura í húsinu. Hjónin byggðu húsið sitt fyrir tveimur árum síðan, en sífelldur ágangur maura innandyra fór í taugarnar á þeim. 22.11.2012 22:04
Lokkaði ungling til sín og dreymdi um að éta börn Hinn fimmtíu og sex ára gamli Robert Mucha frá New Jersey í Bandaríkjunum hefur verið ákærður fyrir að lokka fimmtán ára dreng til sín í gegnum netið en hann káfaði meðal annars á drengnum þegar þeir hittust. 22.11.2012 21:45
Drap tvo menn, sagaði þá í búta og gróf þá í kjallaranum í ísbúð Hin 34 ára gamla Estibaliz Carranza var dæmd til lífstíðarvistar á réttargeðdeild í Austurríki en hún var sakfelld í dag fyrir að myrða eiginmann sinn árið 2008 og svo elskhuga sinn tveimur árum síðar. 22.11.2012 21:17
Fjörutíu þúsund hafa fallið í Sýrlandi Stjórnarhermönnum í Sýrlandi tókst ekki að berja aftur stórsókn uppreisnarmanna í bænum Mayadeen í nótt. Stjórnarandstæðingarnir hertóku bækistöð stjórnarhersins við bæinn og ráða nú yfir stórum landsvæðum í austurhluta Sýrlands. 22.11.2012 11:54
Segja O.J. Simpson hafa ráðið raðmorðingja til að myrða konu sína Í nýjum heimildarþætti á sjónvarpsstöðinni Investigation Discovery er því haldið fram að leikarinn og ruðningshetjan O.J. Simpson hafi ráðið þekktan raðmorðingja til þess að myrða eiginkonu sína og ástmann hennar. 22.11.2012 09:43
Upprættu kókaínsmyglhring í Hollandi Lögreglan í Hollandi hefur upprætt kókaínsmyglhring í landinu og handtekið 12 manns í tengslum við rannsókn málsins sem er eitt stærsta fíkiniefnamál sem komið hefur upp í landinu á síðustu árum. 22.11.2012 06:36
Nær 50.000 Danir þurftu öryggisvottun frá leyniþjónustunni Veruleg aukning varð á fjölda þeirra Dana sem danska leyniþjónustan gaf öryggisvottun í fyrra miðað við árið á undan. 22.11.2012 06:32
Loftslagsbreytingar í Evrópu eru staðreynd Umhverfisstofnun Evrópu segir í nýrri skýrslu að loftslagsbreytingar í Evrópu séu staðreynd. Síðasti áratugur hafi verið sá heitasti í álfunni síðan að veðurmælingar hófust. 22.11.2012 06:30
Vopnahléið á Gaza heldur Vopnahléið sem samið var um á Gazasvæðinu hefur haldið í gærkvöldi og nótt þótt fréttir hafi borist um að nokkrum eldflaugum hafi verið skotið frá Gaza skömmu eftir að formlega var gengið frá vopnahléssamkomulaginu síðdegis í gærdag. Enginn skaði varð af þeim eldflaugaskotum og Ísraelar svöruðu ekki í sömu mynt. 22.11.2012 06:26
Páfinn ósammála mörgu sem þykja staðreyndir í kristnum fræðum Benedikt páfi 16. hefur gefið út þriðja bindi sitt af ævisögu Jesús Krists. Í því er fjallað um líf frelsarans frá því hann fæddist og þar til hann varð 12 ára gamall. 22.11.2012 06:17
Ætla að ná öllu Kongó undir sig Uppreisnarmenn í Afríkuríkinu Austur-Kongó hafa hertekið borgina Goma og segjast nú ætla að ná öllu landinu undir sig, líka höfuðborginni Kinshasa. 22.11.2012 00:30
Tíu ára fangelsi fyrir spillingu Ivo Sanader, fyrrverandi forsætisráðherra Króatíu, var á þriðjudag dæmdur til tíu ára fangelsisvistar fyrir að hafa þegið mútur frá ungversku olíufélagi og austurrískum banka. 22.11.2012 00:00
Bedi hennar Helgu játar sök - Lögreglan segir svikin Machiavellísk Vickram Bedi, fyrrverandi sambýlismaður hinnar íslensku Helgu Ingvarsdóttur, hefur játað sök í stórfelldu svikamáli gegn tónskáldinu og ayuðkýfingnum Roger Davidson í Bandaríkjunum en þau voru handtekin fyrir tveimur árum síðan. 21.11.2012 22:51
Segja að vopnahlé taki gildi í kvöld Ísraelar og Hamas hafa komist að samkomulagi um vopnahlé og má búast við að það taki gildi klukkan sjö í kvöld. Samkvæmt BBC hafa nærri 160 látið lífið í átökunum. 21.11.2012 17:41
Jesús fæddist nokkrum árum áður en almennt er talið Tímatal kristinna manna byggir á reikningsskekkju. Þetta staðhæfir Benedikt páfi sextándi í nýlegri fræðibók sinni um uppvaxtarár Jesús. 21.11.2012 16:50
Niðurtalning í heimsenda hafin Nú nálgast 21. desember óðfluga. Á þessum degi mun eitt af dagatölum Maya taka enda og eru margir sannfærðir um að tilvist mannsins muni þá taka stórfelldum breytingum. 21.11.2012 14:14
Fann Curiosity líf á Mars? Stórtíðinda er að vænta frá geimfarinu Curiosity, sem nú er við rannsóknarstörf á plánetunni Mars. 21.11.2012 13:29
Danska stjórnin hættir við lög um bann við kaupum á vændi Danska ríkisstjórnin hefur alfarið hætt við að setja lög sem banna kaup á vændi í Danmörku. Slík löggjöf er þegar til staðar í Svíþjóð, Noregi og á Íslandi. 21.11.2012 10:14
Sérsveit kölluð út vegna dóma yfir Hells Angels í Kaupmannahöfn Kalla þurfti út sérsveit Kaupmannahafnarlögreglunnar síðdegis í gær þegar þungir fangelsisdómar voru kveðnir upp yfir 14 meðlimum glæpasamtakanna Hells Angels. 21.11.2012 06:56
Útgöngubann í Bólivíu vegna manntals Útgöngubann hefur verið sett á í Bólivíu vegna manntals sem þar fer fram í dag. Öll umferð um vegi landsins er bönnuð og áfengisbann er einnig í gildi í dag. 21.11.2012 06:41
Reynt til þrautar að ná samkomulagi um vopnahlé á Gaza Samningaviðræður um vopnahlé á Gaza svæðinu halda áfram núna í morgunsárið en ekki tókst að ljúka viðræðunum í gærkvöldi. 21.11.2012 06:31
Minniháttar eldgos á Nýja Sjálandi Minniháttar eldgos hófst í Tongariro-fjalli á norðureyju Nýja Sjálands í nótt. Um tíma náðu öskustrókurinn upp í um tveggja kílómetra hæð en hefur síðan fjarað út. 21.11.2012 06:26
Biðst afsökunar á alræmdum svörtum lista í Hollywood Willie Wilkerson sonur stofnenda blaðsins Hollywood Reporter hefur beðist opinberlega afsökunar á föður sínum sem birti alræmdan svartan lista um fólk í Hollywood sem talið var hallt undir kommúnisma um miðja síðustu öld. 21.11.2012 06:17
Reynt að semja um vopnahlé Fulltrúar Egypta hafa síðustu daga lagt mikla vinnu í að fá Ísraela og Palestínumenn til að semja um vopnahlé og gerðu sér vonir um að af því yrði í gær, nærri viku eftir að Ísraelar hófu loftárásir á Gasa. Ekkert samkomulag hafði náðst þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi. 21.11.2012 00:00
Konur mega ekki verða biskupar Bretland Enska biskupakirkjan felldi í gær naumlega tillögu um að konur gætu orðið biskupar í kirkjunni. Tuttugu ár eru síðan kirkjan samþykkti að konur gætu orðið prestar. 21.11.2012 00:00
Hafði kallað Makedóna slava Aivo Orav, sendiherra Evrópusambandsins í Makedóníu, hefur beðist afsökunar á því að hafa sagt meirihluta landsmanna vera slava. 21.11.2012 00:00
Afríkumenn safna ofnum fyrir kalda Norðmenn Afríkubúar hafa hafið söfnun á ofnum fyrir íbúa Noregs vegna landlægs kulda þar í landi. Í myndbandi sem fylgir fréttinni er lag, svona í anda hjálpum þeim, þar sem íbúar Afríku skora á íbúa heimsálfunnar að aðstoða þessa íssköldu Norðmenn. 20.11.2012 21:00