Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fresta niðurstöðum rannsókna á líki Ríkharðs þriðja Fornleifafræðingar sem rannsaka líkamsleifar Ríkharðs þriðja Englandskonungs segja að niðurstöður úr rannsóknum þeirra muni ekki liggja fyrir fyrr en í janúar á næsta ári. 20.11.2012 06:33
Hitabylgjur, þurrkar og mikil flóð víða Breyti jarðarbúar ekki snarlega um stefnu varðandi losun gróðurhúsalofttegunda má búast við að andrúmsloft jarðar verði að meðaltali fjórum gráðum heitara í lok aldarinnar, eða jafnvel strax eftir hálfa öld eða svo. 20.11.2012 00:30
Hamas setur skilyrði Seint í kvöld höfðu loftárásir Ísraela á Gasasvæðið síðan á miðvikudag kostað nærri hundrað manns lífið. Um 50 þeirra voru almennir borgarar, þar á meðal tugir barna. 20.11.2012 00:00
Anderson Cooper illa brugðið Honum var illa brugðið, Anderson Cooper, fréttamanni CNN sjónvarpsstöðvarinnar, þegar hann varð vitni að sprengingu í beinni útsendingu í gærkvöldi þegar hann var við fréttaflutning þar. Ástandið á Gaza verður alvarlegra með hverjum deginum sem líður en Cooper var að segja fréttir af tíu manns sem höfðu farist í sperngingu þegar hann heyrði hvellinn. Hann fullyrðir að þetta sé ein mesta sprenging sem hann hafi heyrt síðan hann kom þangað. 19.11.2012 16:17
Múhameðsteiknarinn alvarlega veikur Hinn heimsfrægi danski teiknari Kurt Wetergaard, sem vað frægur fyrir að teikna afar umdeildar myndir af Múhameð spámanni, er mjög veikur. Fréttavefur danska ríkisútvarpsins segir að hann sé svo veikur að hann hafi þurft að aflýsa ferðum til London og New York. Ferðirnar átti hann að fara í til að kynna ævisögu sína. Bókin ber einfaldlega titilinn "Bókin að baki Múhameðsteikningunum“. Westergaard er 77 ára gamall. Hann hefur ítrekað fengið hótanir frá heitttrúuðum múslimum síðan að bókin kom út. 19.11.2012 15:01
Súkkulaði örvar heilastarfsemi Franz Messerli, sérfræðingur í hjartasjúkdómum og kennari við Columbia háskóla, ritaði grein í læknaritið New England Journal of Medicine þar sem hann heldur því fram að súkkulaðiát auki líkur manna á því að hreppa Nóbelsverðlaun. 19.11.2012 07:00
Fundu 10.000 ára gamlan bústað í Skotlandi Fornleifafræðingar í Skotlandi hafa fundið það sem talið er elsti bústaður manna í landinu. Bústaður þessi, sem fannst í South Queensferry, er talinn vera um 10.000 ára gamall eða frá Mesolitich tímabilinu. 19.11.2012 06:34
Obama í sögulegri heimsókn til Búrma í dag Barack Obama Bandaríkjaforseti kom í sögulega opinbera heimsókn til Búrma í morgun. 19.11.2012 06:32
Ban Ki-moon hvetur til vopnahlés á Gazasvæðinu Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna er nú á leið til Kaíró í Egyptalandi til að reyna að miðla málum milli Ísraelsstjórnar og Hamassamtakanna. Hann hvetur báða aðila til þess að semja um vopnahlé þegar í stað. 19.11.2012 06:29
Anonymous ráðast á opinberar vefsíður í Ísrael Tölvuþrjótasamtökin Anonymous hafa staðið fyrir umfangsmiklum tölvuárásum á opinberar vefsíður í Ísraels. 19.11.2012 06:25
Danskir prestar ósáttir við opinberar jarðarfarir Prestar í Kaupmannahöfn og víðar í Danmörku gagnrýna sveitar- og bæjarstjórnir fyrir að beita sér ekki nægilega í því að finna ættingja fólks sem jarðað er á kostnað hins opinbera. 19.11.2012 06:21
SAS afboðar nokkrar flugferðir í dag Þrátt fyrir að SAS flugfélaginu hafi tekist að semja við flest verkalýðsfélög starfsmanna sinna hefur félagið afboðað nokkrar flugferðir frá Kastrup til hinna Norðurlandanna í dag. 19.11.2012 06:19
Páfi egypskra kopta vígður Tawandros II. var í gær vígður páfi koptísku kirkjunnar í Egyptalandi. Athöfnin tók nærri fjórar klukkustundir, en hana sóttu meðal annars forsætisráðherra Egyptalands og nokkrir aðrir ráðherrar í hinni íslömsku ríkisstjórn landsins. 19.11.2012 06:00
McCain vill að Clinton miðli málum Bandaríkin þurfa að senda hátt settan erindreka, eins og Bill Clinton fyrrverandi forseta, til þess að miðla máli á milli Ísrael og Palestínu. Þetta segir John McCain, öldungadeildarþingmaður Repúblikana. Hann segir að bandarísk stjórnvöld verði að sýna fram á það að þeim sé alvara þegar þau segi að þau vilji að friður haldist á Vesturbakkanum. 18.11.2012 19:22
Vinsældir Frakklandsforseta dala sífellt Francois Hollande, forseti Frakklands, verður sífellt óvinsælli með hverjum mánuðinum sem líður. Vinsældir hans hafa nú dalað sex mánuði í röð samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem birt var í dag. Skoðanakönnunin sem gerð var fyrir vikublaðið Le Journal de Dimanche sýnir að vinsældir Hollandes minnkuðu um eitt prósent síðastliðinn mánuð. Hann nýtur nú stuðnings 41% landsmanna. 18.11.2012 19:02
Áfram barist á Gaza Bardagar halda áfram á Gaza í dag, fimmta daginn í röð. Minnst tólf Palestínumenn féllu í morgun. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, segir að Ísraelar séu reiðubúnir í meiri hernað. Þá halda Palestínumenn áfram að skjóta eldflaugum að Ísraelum. Á meðal þeirra sem hafa fallið á Gaza í morgun eru fjögur börn. Þá voru höfuðstöðvar tveggja fjölmiðla sprengdar og blaðamenn særðust. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, lýsti í morgun yfir stuðningi við Bandaríkjamenn og sagði að þeir væru í fullum rétti til að verja sjálfa sig. 18.11.2012 15:08
Yfir helmingur Breta vill ganga úr ESB Yfir helmingur breskra kjósenda myndi greiða atkvæði með þeirri tillögu að ganga úr Evrópusambandinu, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem sagt er frá á vef The Observer. Yfir 56% kjósenda myndu líklega eða örugglega greiða atkvæði með tillögunni ef haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla. 18.11.2012 09:26
Hart tekist á um réttindi samkynhneigðra Tugþúsundir manna hafa núna um helgina mótmælt áformum stjórnvalda í Frakklandi að heimila hjónabönd samkynhneigðra og veita samkynhneigðum heimild til að ættleiða börn. Lögreglan segir að hið minnsta 70 þúsund hafi verið á götum Parísar, en einnig hafi verið mótmælt í borgunum Lyon, Toulouse og Marseille. Þarna hafi verið um að ræða kaþólikka og aðra stuðningsmenn hefðbundinna fjölskyldugilda, eins og það er orðað á fréttavef BBC. 18.11.2012 09:01
Ætlaði að hefja skotárás á frumsýningu Twilight myndarinnar Karlmaður var handtekinn, grunaður um að hafa undirbúið skotárás á frumsýningu nýju Twilight myndarinnar. Það var móðir mannsins sem hringdi í lögreglu og lét vita af áformum mannsins. Maðurinn, sem er 23 ára, heitir Blaec Lammers, eftir því sem fram kemur á vef Sky. 17.11.2012 14:24
Meiri sýklar á skurðarbrettinu en klósettsetunni Því hefur lengi verið haldið fram að klósettsetan sé skítugasti staður á heimilinu, en ný rannsókn við háskólann í Arizona sýnir að mun fleiri bakteríur er að finna á skurðarbrettinu í eldhúsinu eða jafnvel á lyklaborðinu á tölvunni. Ástæðan er sú að hrátt kjöt og aðrar matvörur sem verkaðar eru á skurðarbrettinu skilja eftir sig bakteríur eins og saurgerla og fundu vísindamenn yfir tvö hundruð sinnum fleiri bakteríur á brettinu heldur en á klósettsetunni. Vísindamenn segja þetta ef til vill vísbendingu um að einstaklingar ættu að þrífa skurðarbrettin jafn vel ef ekki betur en klósettið. 17.11.2012 11:24
Beindu sprengjum sínum að höfuðstöðvum leiðtoga Hamas Ísraelar beindu í nótt sprengjum sínum að höfuðstöðvum leiðtoga Hamas á Gaza svæðinu og gjöreyðilögðu bygginguna, en þetta er fjórði dagurinn í röð sem Ísraelar gera loftárásir á svæði Palestínu. Að minnsta kosti þrjátíu og átta palestínumenn og þrír ísraelsmenn hafa látist í árásunum síðustu daga. Í gærkvöldi kölluðu Ísraelsmenn út sjötíu og fimm þúsund varaliða í hernum, auk þess sem herinn hefur lokað nokkrum þjóðvegum sem liggja að Gaza og segja fréttaskýrendur þetta vera merki um að Ísraelsmenn séu að undirbúa landhernað á Gaza en þeir segja enga ákvörðun hafa verið tekna um það samkvæmt fréttum breska ríkisútvarpsins. 17.11.2012 11:11
Bandaríkjamenn hamstra Twinkies Tilkynnt var á dögunum að bandaríska matvælafyrirtækið Hostess myndi leggja upp laupana. Tíðindin hafa skotið mörgum skelk í bringu enda framleiðir fyrirtækið eitt frægasta sætabrauð veraldar, Twinkies. 16.11.2012 22:34
Fjarlægasta vetrarbraut alheimsins Hubble geimsjónaukinn hefur komið auga á fjarlægustu vetrarbraut sem sést hefur í alheimi hingað til. 16.11.2012 21:48
Enginn asni í framboð Íbúar í borginni Guayaquil í Ekvador töluðu fyrir daufum eyrum þegar þeir kröfðust þess að múlasni fengi að taka þátt í þingkosningum í febrúar. 16.11.2012 21:18
Risavaxnir þríburar slógu heimsmet Sidney, Elliot, og Jenson Deen eru þyngstu þríburar veraldar. Samanlögð þyngd þeirra var tæp 10 kíló við fæðingu og er um heimsmet að ræða í þeim efnum. 16.11.2012 20:31
Eiturhernaður gegn 180 milljón rottum á Galapagos eyjum Stórfelldur eiturefnahernaður er hafinn gegn rottum á Galapagos eyjum. Talið er að rottufjöldinn á eyjunum nemi um 180 milljónum. 16.11.2012 10:22
Skrefi nær alvöru huliðshjálmi Vísindamönnum við Duke-háskóla í Bandaríkjunum tókst nýverið að hylja nokkurra rúmsentímetra demantslaga hylki fullkomlega í tilraun. Er þetta í fyrsta sinn sem tekst að gera hlut algjörlega ósýnilegan. 16.11.2012 10:00
Bannað að safna yfirvaraskeggi Breskum þrettán ára pilti hefur verið bannað að safna yfirvaraskeggi til styrktar átaki gegn krabbameini en skólinn, sem pilturinn sækir, segir að slíkt skegg sé ekki hluti af starfsemi skólans. 16.11.2012 09:34
Árásir hertar á Gasaströnd Loftárásir Ísraelshers á Gasaströnd höfðu kostað að minnsta kosti 15 manns lífið síðdegis í gær. Forseti Egyptalands fordæmir árásir Ísraela og boðar heimsókn sína til Gasa í dag. Palestínumenn halda áfram að skjóta flugskeytum yfir til Ísraels, meðal ann 16.11.2012 09:30
Aldrei fleiri Danir látist vegna eiturlyfja Alls eru 285 mannslát í Danmörku í fyrra rakin til eiturlyfjaneyslu og hafa aldrei verið fleiri. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu heilbrigðisyfirvalda um eiturlyfjaneyslu í landinu sem kynnt var í vikunni. 16.11.2012 09:00
Fátækasti forseti heimsins býr á bóndabæ í Úrugvæ Jose Mujica forseti Úrugvæ er óumdeilanlega fátækasti forseti heimsins en hann býr á bóndabæ eiginkonu sinnar og gefur 90% af launum sínum til fátækra. 16.11.2012 06:46
CIA hefur hafið formlega rannsókn á Petraeus Bandaríska leyniþjónustan CIA hefur hafið formlega rannsókn á gjörðum Davids Petraeus fyrrum yfirmanns leyniþjónustunnar. 16.11.2012 06:21
Eldflaugum skotið á Tel Aviv, varalið hersins kallað út Ekkert lát er á loftárásum Ísraelsmanna á Gaza svæðið og færðust þær í aukana í gærkvöldi og nótt eftir að eldflaugum var skotið frá Gaza á Tel Aviv borg. 16.11.2012 06:18
Daninn sem vann yfir milljarð í lottóinu kominn fram Daninn sem var annar vinningshafa ofurpottsins í víkingalottóinu í vikunni er komin fram. Hann vill alls ekki að nafns síns sé getið. 16.11.2012 06:16
Í nýju tvíeyki í Kína sameinast rauði aðallinn og bóndasonur Í hinu nýja tvíeyki sem tekið hefur við æðstu völdum í Kína sameinast það sem kallað er rauði aðallinn og bóndasonur af fátækum ættum. 16.11.2012 06:13
Stórhuga áform Walt Disney um Star Wars Bandaríska fjölmiðlaveldið Walt Disney er stórhuga þegar kemur að þróun Star Wars söguheimsins. 15.11.2012 23:49
Hefur ítrekað reynt að svipta sig lífi James Holmes, sem grunaður er um að hafa staðið að baki einni mannskæðustu skotárás seinni tíma í Bandaríkjunum, hefur ítrekað reynt að svipta sig lífi í fangaklefa. 15.11.2012 22:43
Google býður í ævintýraferð um Vetrarbrautina Tæknirisinn Google býður nú mannkyni í ævintýraferð um Vetrarbrautina. Notendur netvafrans Google Chrome geta nú kynnt sér leyndardóma alheimsins, hoppað á milli stjarna og pláneta, og fræðst um tilurð sólkerfisins. 15.11.2012 21:29
Kreditkort fyrir 8 ára gömul börn Bresk börn á aldrinum 8 til 16 ára geta nú verslað með kreditkort á veraldarvefnum. Það er hópur foreldra sem stendur að verkefninu en þau stofnuðu fyrirtæki þar sem börnum gefst tækifæri til að kynna sér veröld rafrænna viðskipta. 15.11.2012 21:18
Rússar missa sambandið við gervihnetti sína og geimstöðina Rússar hafa misst sambandið við megnið af almennum gervihnöttum sínum á braut um jörðu sem og við sinn hluta af Alþjóðlegu geimstöðinni. 15.11.2012 10:11
Enginn heimsendir er í nánd Ekkert bendir til þess að fyrirbæri utan úr geimi muni koma til með að tortíma lífi á jörðinni fyrir árslok og sögur um yfirvofandi heimsendi 21. desember næstkomandi eiga ekki við rök að styðjast. 15.11.2012 10:00
Ungir sænskir karlmenn stunda mun meira vændi en stúlkurnar Töluverð umræða hefur sprottið upp í Svíþjóð eftir að rannsókn sýndi að ungir sænskir karlmenn stunda mun meira vændi en stúlkur á sama aldri. 15.11.2012 06:42
Færeyingar þurfa að bíða enn lengur Færeyingar þurfa að bíða lengur en áætlað var eftir því að úrslit fáist í dýrustu olíuborun í sögu eyjanna. Borun holunnar, sem hófst þann 17. júní, átti að taka 4-5 mánuði og vera lokið núna um miðjan nóvember. Statoil hefur nú upplýst að verklokum seinki og að borað verði til áramóta og hugsanlega lengur. 15.11.2012 06:30
Öryggisráðið hélt neyðarfund um Gaza Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hélt neyðarfund í nótt vegna stöðunnar á Gaza í framhaldi af því að Ísraelsmenn felldu þar herstjóra Hamas ásamt lífvörum hans í loftárásum í gærdag. Loftárásir Ísraelsmanna héldu áfram í nótt. 15.11.2012 06:28
Nær 700.000 Bandaríjkjamenn vilja aðskilnað Þeim Bandaríkjamönnum sem vilja aðskilnað ríkja sinna frá Bandaríkjunum hefur fjölgað mjög ört á síðustu dögum. 15.11.2012 06:26