Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stjórnvöld í Barein ætla ekki að framselja Abdulhadi Yfirvöld í Barein ætla ekki að framselja danska ríkisborgarann Abdulhadi al-Khawaja. 8.4.2012 14:20
Tveir handteknir í Tulsa Lögreglan í Oklahoma í Bandaríkjunum hefur handtekið tvo menn sem grunaðir eru um að hafa skotið fimm manns á föstudagskvöldið, þar af þrjá til bana, í borginni Tulsa. 8.4.2012 13:13
Benedikt XVI kallar til friðar í stríðshrjáðum löndum Benedikt páfi XVI hóf páskamessu sína í Páfagarði fyrir stuttu. Rúmlega hundrað þúsund manns eru samankomin á Sankti Péturstorgi til að hlusta á ræðuna. 8.4.2012 11:25
Páfi messar á Péturstorgi í dag Benedikt Páfi 16. heldur páskamessu sína á Péturstorgi í Páfagarði í dag. Í aftanmessu sinni í gær sagði Páfi að skuggi hafi fallið á gjörvallt mannkyn á síðustu árum. 8.4.2012 09:32
Japanir í viðbragðsstöðu vegna eldflaugaskots Norður-Kóreu Eldflaugavarnarkerfi japanska hersins hefur verið sett í efsta viðbúnaðarstig. Er þetta gert vegna væntanlegs eldflaugaskots Norður-Kóreumanna. 7.4.2012 22:00
135 látnir í Kasmír Talið er að 135 hafi látist í snjóflóðinu í Kashmír fyrr í dag. Talsmaður pakistanska hersins staðfesti þetta í viðtali breska ríkisútvarpið. 7.4.2012 20:30
Oxford og Cambridge mættust í undarlegri róðrakeppni Hin árlega róðrakeppni Oxford- og Cambridge háskólanna í var haldin í 158. skipti í Lundúnum í dag. Keppnin var vægast sagt sérstök þetta árið enda þurfti að endurræsa liðin eftir að grunlaus sundmaður birtist í Thames-ánni. 7.4.2012 15:36
Tólf látnir eftir snjóflóð í Kasmír Að minnsta kosti 12 eru látnir eftir að snjóflóð féll á bækistöð pakistanska hersins í Karakoram fjallgarðinum í Kasmír fyrr í dag. 7.4.2012 14:10
Ban gagnrýnir stjórnvöld í Sýrlandi Ban Ki-moon, framkvæmdarstjóri Sameinuðu Þjóðanna, gagnrýnir yfirvöld í Sýrlandi fyrir að herða árásir sínar gegn andspyrnumönnum í aðdraganda vopnahlés sem samið hefur verið um. 7.4.2012 09:40
Seldi nýrað úr sér fyrir iPhone og iPad Skurðlæknir og fjórir aðrir menn hafa verið handteknir í Kína fyrir að hafa lokkað pilt til þess að láta fjarlægja úr sér nýrað. Hann keypti sér iPhone og iPad fyrir söluandvirðið, eftir því sem kínverska fréttastofan Xinhua greinir frá. Pilturinn er sautján ára gamall og er kallaður Wang. Hann mun vera alvarlega veikur eftir að nýrað var fjarlægt og versnar ástand hans stöðugt. 6.4.2012 20:15
Bandarísk herþota hrapaði Bandarísk F18 herþota hrapaði fyrir stundu á fjölfarinn veg í Virginíu. Þetta hefur Fox fréttastofan eftir heimildarmanni bandaríska flugumferðareftirlitsins. Björgunarlið frá hernum, og lögreglan í Virginíufylki hafa öll sent fjölmennt lið á staðinn vegna slyssins. Mikill reykur sést á myndavélum umferðareftirlitsins. 6.4.2012 17:12
Óttast að nýr raðmorðingi sé kominn á kreik í Frakklandi Óttast er að raðmorðingi sé að verkum í Frakklandi eftir að fjögur morð hafa verið framin frá því í nóvember. Morðin voru öll framin í París eða í nágrenni við París og leikur grunur á að þau hafi öll verið framin með sömu byssunni. Síðast var morð framið á fimmtudaginn. Innanríkisráðherrann Claude Gueant hét því að allt yrði gert til þess að leysa málið. Morðinginn flúði á mótorhjóli eftir hvert skiptið, eins og morðinginn í Toulouse en ekki hafa verið gefnar upp neinar ástæður fyrir morðunum. 6.4.2012 18:01
Minnast fórnarlamba stríðsins í fyrrum Júgóslavíu Íbúar í Sarajevo minnast þess þessa dagana að tuttugu ár eru liðin síðan að stríðið í Bosníu-Hersegóviníu hófst. Um var að ræða mestu þjóðernishreinsanir í Evrópu frá Seinni heimsstyrjöld. Stríðið hófst í apríl 1992 þegar Júgóslavía var að liðast í sundur. Um 100 þúsund manns voru drepnir og um helmingur þjóðarinnar neyddist til að yfirgefa heimili sín á fjögurra ára stríðstímabili. 6.4.2012 14:59
Láta krossfesta sig á Filippseyjum Heittrúaðir kaþólikkar á Filippseyjum láta krossfesta sig í dag til þess að minnast pínu krists. Kaþólska kirkjan fordæmir athæfi þeirra en ferðamenn hafa flykkst að landinu til þess að verða vitni að því sem þarna fer fram. 6.4.2012 14:15
Föstudagurinn langi er helgidagur á Kúbu Föstudagurinn langi er helgidagur á Kúbu núna í fyrsta sinn í marga áratugi. Ákvörðun um það var tekin eftir að Benedikt sextándi páfi heimsótti Kúbu í síðustu viku. Hefðbundnir helgidagar voru afnumdir á Kúbu eftir byltinguna 1959 og afar fáir leggja rækt við trú þar í landi. Engu að síður er Kirkjan áhrifamesta stofnun landsins á eftir kommúnistastjórninni. 6.4.2012 13:04
Forseti Malaví látinn Bingu wa Mutharika, forseti Malaví og fyrrverandi hagfræðingur í Alþjóðabankanum, er látinn úr hjartaslag. Þetta hafa fréttamiðlar eftir lækni og stjórnmálamönnum í Malaví, en ekki er búið að tilkynna andlát hans opinberlega. Forsetinn hneig niður á skrifstofu sinn í höfuðborginni Lilongwe í gær. Hann var samstundis fluttur á spítala en hann var látinn þegar þangað var komið. Óvíst er hver tekur við af Mutharika á forsetastóli. 6.4.2012 09:25
Hátt í 30 farsímum stolið af sænskum þingmönnum Nær 30 farsímum hefur verið stolið frá sænskum þingmönnum og starfsmönnum sænska þingsins á undanförnum tveimur árum. 6.4.2012 00:00
Sex ákærðir fyrir mansal Sex menn hafa verið ákærðir fyrir aðild sína að mansalshring í Svíþjóð. 5.4.2012 23:00
Framhald um Joseph Kony komið á netið Bandaríski aðgerðarsinnahópurinn, Invisible Children, hafa gert framhald heimildarmyndarinnar um Joseph Kony. Fyrri myndin varð heimsfræg á svipstundu en yfir 100 milljónir horfðu á myndina á netinu. Hún var hinsvegar harðlega gagnrýnd í kjölfarið fyrir að eindfalda ástandið í Úganda og láta eins og þar geisaði enn borgarastyrjöld. Það var nefnilega aldrei tekið fram í myndinni að Kony, sem er sakaður um að beita fyrir sér barnahermönnum og hneppa barnungar stúlkur í vændi, væri farinn frá Úganda og að áhrif hans væru mun minni en þegar þar ríkti ófriður. 5.4.2012 17:31
Ætla að sökkva japönsku draugaskipi Bandaríska strandgæslan hyggst sökkva tæplega 200 feta löngu japönsku draugaskipi sem hefur rekið stefnulaust eftir að flóðbylgja skall á Japan í kjölfari öflugs jarðskjálfta þar í landi í mars á síðasta ári. Skipið, sem er rækjuskip, rekur stjórnlaust um 300 kílómetrum frá Sitka í Alaska-flóa. 5.4.2012 15:40
Mikil ólga í Grikklandi eftir sjálfsvíg Mikil ólga er í Grikklandi eftir að 77 ára gamall karlmaður svipti sig lífi fyrir framan þinghúsið í Aþenu, höfuðborg Grikklands, en hann á að hafa skilið eftir sjálfsmorðsbréf þar sem hann sakaði ríkisstjórnina um að hafa svipt sig öllum lífeyri, því hefði hann gripið til þessa örvæntingarráðs. 5.4.2012 13:44
Anonymous réðust á kínverskar heimasíður Tölvuhakkarahópurinn Anonymous er sagður hafa ráðist á 500 opinberar heimasíður í Kína sem nú liggja niðri. 5.4.2012 13:32
Áfengi og kókín talin orsök þess að Houston drukknaði Ofneysla áfengis og kókaíns eru talin orsök þess að söngkonan Whitney Houston drukknaði í baðkari á hótelherbergi eftir að hafa fengið hjartaáfall samkvæmt lokaskýrslu dánardómstjórans í Los Angeles sem nú hefur verið gerð opinber. 5.4.2012 11:54
Breivik féllst á að gefa CNN einkaviðtal fyrir réttarhöld Fjöldamorðinginn Anders Breivik hefur fallist á að gefa bandarísku fréttastofunni CNN viðtal fyrir réttarhöldin yfir honum sem eiga að hefjast 16. apríl næstkomandi. CNN staðfestir við NRK að þeir hafi falast eftir viðtali við fjöldamorðingjann sem myrti 77 vinstri sinnuð ungmenni í Útey síðasta sumar. 5.4.2012 10:09
Ryksuga full af bensíni sprakk Bíll og ryksuga brunnu til kaldra kola í norðurhluta Svíþjóðar í vikunni. Eigandi bílsins hafði ætlað að flytja bensín úr bílnum yfir í snjóblásturstæki með þessum afleiðingum. 5.4.2012 00:01
Milljónir falskra á Facebook Á bilinu fimm til sex prósent af Facebook-síðum sem stofnaðar hafa verið eru falskar og ekki með raunverulegan notenda að baki sér. Það þýðir að 40 til 50 milljónir sigla undir fölsku flaggi á samskiptasíðunni. 5.4.2012 10:00
Vilja leyfa aðra fána en danska Radikale venstre, flokkur frjálslyndra í Danmörku, telur tímabært að lyfta banni við því að flagga öðrum þjóðfánum en þeim danska. 5.4.2012 10:00
Friðurinn úti í höfuðborginni Að minnsta kosti tíu manns létust í sprengjuárás á ríkisleikhús í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu. 5.4.2012 09:00
Fleiri íslamistar teknir höndum Franska lögreglan handtók í gær tíu róttæka íslamista í fimm borgum landsins. Í síðustu viku handtók lögreglan 13 manns í sams konar aðgerðum. 5.4.2012 08:30
Boris Tadic reynir að flýta uppgjöri Forseti Serbíu hefur sagt af sér svo hægt verði að efna til forsetakosninga í maí, samhliða þingkosningum. Flokki hans er kennt um efnahagsvanda og þjóðernissinnar óttast að Tadic muni fórna Kosovo fyrir Evrópusambandsaðild. 5.4.2012 08:00
Blóðbað stæði árum saman „Jafnvel þótt þeir útveguðu sýrlensku uppreisnarmönnunum fullkomnasta vopnabúnað gætu þeir ekki sigrast á sýrlenska hernum,“ segir Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, um stuðning Vesturlanda og arabaríkja við uppreisnina í Sýrlandi. 5.4.2012 08:00
Fjölmiðlafár eftir að Ryan Gosling bjargaði konu í New York Bandaríski leikarinn Ryan Gosling bjargaði ungri konu frá því að verða fyrir leigubíl í New York í dag. Málið hefur vakið tölvuerða athygli, ekki einungis vegna hetjudáðar leikarans, heldur vegna eftirkasta atviksins. 4.4.2012 20:42
Ákærðir vegna hryðjuverkanna 11. september Fimm grunaðir hryðjuverkamenn hafa verið kærðir yfirvöldum í Bandaríkjunum fyrir að hafa skipulagt árásirnar á tvíburaturnana 11. september árið 2001. 4.4.2012 21:15
Danskt par dæmt í háa sekt og fangelsi fyrir að segjast vera skilin Par í Frederikshavn í Danmörku hefur verið dæmt til að greiða bæjarfélaginu rúmlega 600 þúsund danskar kr. eða nær 14 milljónir kr. fyrir umfangsmikil bótasvik. Í næstum fimm ár deildi parið hjónasæng en sagðist vera skilið á opinberum pappírum. 4.4.2012 10:47
Áttatíu ára gömul kona nauðlenti lítilli flugvél Helen Collins áttatíu ára gömul bandarísk kona vann það einstæða afrek í gær að nauðlenda lítilli flugvél á eigin spýtur eftir að flugmaðurinn, sem var eiginmaður hennar, fékk hjartaáfall og lést. 4.4.2012 06:34
Öflugir skýstrokkar ollu miklu tjóni í Texas Tólf öflugir skýstrokkar ollu miklu tjóni nærri borginni Dallas í Texas í gærkvöldi. Engin mun hafa farist af völdum þeirra en fjöldi fólks slasaðist að því er segir í bandarískum fjölmiðlum. 4.4.2012 06:29
Tugur islamista handtekinn í Frakklandi Franska lögreglan handtók a.m.k. 10 islamista í aðgerðum í nokkrum bæjum og borgum landsins í nótt og snemma í morgun. 4.4.2012 07:38
17 milljónir manna án vinnu Atvinnuleysi á evrusvæðinu hefur aldrei verið meira en nú frá því að evran var tekin upp 1999. 4.4.2012 07:00
Fylgið hrynur af norska Verkamannaflokknum Fylgið hefur hrunið af Verkamannaflokknum, einum stjórnarflokkanna í Noregi. Þetta sýnir ný skoðanakönnun en samkvæm henni fær Verkamannaflokkurinn 28% fylgi. 4.4.2012 06:44
Öflugasta herskip Breta á leið til Falklandseyja Eitt stærsta og öflugasta herskip Breta, tundurspillirinn HMS Dauntless er á leið til Falklandseyja. 4.4.2012 06:40
Mitt Romney skoraði þrennu í nótt Mitt Romney skoraði þrennu í prófkjörum Repúblikanaflokksins í nótt. Hann sigraði í öllum þremur prófkjörunum sem haldin voru, það er í Wisconsin, Maryland og Washingtonborg. 4.4.2012 06:26
Um 200 breskir hermenn í hópslagsmálum á bar Yfirstjórn breska hersins reynir nú að finna út hvað snýr upp og hvað snýr niður í hópslagsmálum breskra hermanna á bar í Kenía. 4.4.2012 06:24
Létu tíu gísla lausa eftir tólf ár í haldi Kólumbísku skæruliðasamtökin FARC létu í gær lausa tíu gísla sem hafa verið í haldi þeirra í tólf til fjórtán ár. Mjög er nú þrengt að skæruliðunum, sem nýlega hétu því að hætta gíslatökum. Enn eru þó nokkur hundruð gísla í haldi þeirra. 4.4.2012 00:30
Leðurblökumaðurinn er raunverulegur Leðurblökumaðurinn er raunverulegur og hann býr í Silver Spring, rétt utan við Washington í Bandaríkjunum. Hann heitir Lenny B. Robinson og er 48 ára gamall, þriggja barna faðir. 3.4.2012 22:45
Synir Bítlanna leggja drög að hljómsveit Sonur Paul McCartney opinberaði í dag að Bítlarnir muni brátt snúa aftur. Hann hefur í hyggju að stofna hljómsveit með sonum John Lennons og George Harrison. Hann vonast til að hljómsveitin eigi eftir að höfða til nýrrar kynslóðar. 3.4.2012 22:00