Fleiri fréttir

Bjó til fiðlustrengi úr kóngulóarvef

Japönskum vísindamanni hefur tekist að búa til fiðlustrengi úr kóngulóarvefþráðum. Þessir strengir eru sagðir jafngóðir, ef ekki betri en hefðbundnir fiðlustrengir.

Fjöldi ábendinga um kosningasvik í Rússlandi

Þegar hafa borist hátt í 4.000 ábendingar um kosningasvik í rússnesku forsetakosningunum frá eftirlitsmönnum með kosningunum. Vladimir Putin vann öruggan sigur í kosningunum með 60% atkvæða og verður forseti Rússlands næstu sex árin.

Tvær lestir mættust á teinunum

Að minnsta kosti sextán manns létust og nærri sextíu slösuðust, sumir lífshættulega, í versta lestarslysi sem orðið hefur í Póllandi í meira en tvo áratugi.

Pútín hefur aftur hreppt forsetaembætti Rússlands

Vladimír Pútín sigraði í forsetakosningum í Rússlandi í gær og fékk um það bil 60 prósent atkvæða. Útgönguspár höfðu talið að hann fengi 58 til 59 prósent, en samkvæmt fyrstu opinberu tölum úr atkvæðatalningu fékk hann um 63 prósent.

Kusu uppreisnarmenn til valda

Tveir uppreisnarleiðtogar í þorpinu Wukan í Kína voru kosnir til valda á laugardaginn, fáeinum mánuðum eftir að þeir voru handteknir fyrir að efna til fjölmennra mótmæla í þorpinu.

"Hernaðaraðgerðir gegn Íran eru raunhæfur valkostur"

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sagði í dag að hernaðaraðgerðir gegn Íran af hálfu Bandaríkjanna séu raunhæfur valkostur. Obama mun funda með Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael á morgun og munu þeir ræða um ástandið í Íran.

Pútin lýsti yfir sigri í kosningunum

Vladimir Pútin hefur lýst yfir sigri í forsetakosningunum í Rússlandi. Hann mun þá sitja þriðja kjörtímabil sitt sem forseti landsins.

Japani þróar "mál-truflara"

Japanskir vísindamenn hafa þróað tæki sem getur þaggað niður í fólki af allt að 30 metra færi. Vísindamennirnir hafa nú þegar hannað frumgerð tækisins en vonast til að hefja fjöldaframleiðslu á næstu árum.

Hörð átök í Jemen

Til átaka kom milli jemenskra hermanna og vígamanna sem hliðhollir eru hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda í suðurhluta Jemen í dag.

Mikið mannfall eftir sprengingu í Kongó

Að minnsta kosti 150 eru látnir eftir að vopnabyrgi sprakk í loft upp í Brazzaville, höfuðborg Vestur-Kongó. Talið er að um 1.500 hafi slasast í sprengingunni, þar af eru margir alvarlega særðir.

Loftsteinn hrapaði yfir Englandi

Fregnir af risavöxnum eldhnetti sem ferðaðist yfir norður Skotland og suður England bárust í nótt. Fjöldi símtala bárust lögregluyfirvöldum á svæðunum og óttaðist fólk að flugvél hefði hrapað.

Maðurinn á bak við Svarthöfða er látinn

Listamaðurinn sem hannaði útlit Svarthöfða úr Stjörnustríðsmyndunum er látinn. "Þegar orð gátu ekki gert hugmyndum skil þá leitaði ég til hans,“ sagði George Lucas.

Romney sigraði í Washington

Mitt Romney styrkti stöðu sína í kapphlaupinu um útnefningu forsetaefnis Repúblikanaflokkksins vestanhafs en hann sigraði í forvali flokksins í Washington-fylki í gær.

Kosið í Rússlandi og Íran

Forsetakosningar fara nú fram í Rússland. Vladimír Pútin sækist á ný eftir kjöri en hann sat í forsetastól á árunum 2000 til 2008.

Sextán látnir eftir lestarslys í Póllandi

Að minnsta kosti 16 eru látnir og 60 særðir eftir lestarslys í Póllandi í gærkvöldi. Samkvæmt fjölmiðlum í Póllandi lentu tvær lestar saman sem voru á leið frá Varsjá og Kraká.

Lík fréttamanna flutt til Damaskus

Sendiherra Frakklands í Sýrlandi og fulltrúi frá pólska sendiráðinu hafa tekið við líki bandarísku fréttakonunnar Marie Colvin en hún lést við skyldustörf í borginni Homs fyrr í mánuðinum.

Jörðin ljósmynduð í tíu ár

Tíu ár eru liðin síðan Geimferðastofnun Evrópu skaut gervitunglinu Envisat á sporbraut um Jörðu. Síðan þá hefur Envisat tekið stórfenglegar ljósmyndir af Jörðinni.

Sprengjugildrur í Homs

Bílalest Rauða Krossins bíður nú átekta í borginni Homs í Sýrlandi. Fulltrúar samtakanna vonast til að inngöngu í Baba Amr-hverfið í dag en yfirvöld í Sýrlandi meinuðu þeim aðgang að hverfinu í gær.

Vitnaleiðslur vegna Costa Concordia hafnar

Vitnaleiðslur vegna strands skemmtiferðaskipsins Costa Concordia hófust á Ítalíu í gær. Francesco Schettino, skipstjóri skipsins, neitar ásökunum um manndráp af gáleysi.

Ákæran tilbúin

Gengið hefur verið frá ákæru á hendur fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik sem myrti 77 manns í Útey og miðborg Osló.

Skýstrókar valda usla í Bandaríkjunum

Að minnsta kosti 28 létust þegar skýstrókar mynduðust í miðríkjum Bandaríkjanna í nótt. Skýstrókarnir ollu miklum usla í Indiana, Kentucky og Ohio.

Spánverjar standa ekki við loforðin

Leiðtogar Evrópusambandsins hafa samþykkt að Serbía fái stöðu umsóknarríkis, en Rúmenía og Búlgaría þurfa enn um sinn að bíða eftir því að fá aðild að Schengen-sambandinu.

Þrettán sinnum brotist inn hjá NASA

Þrettán sinnum var brotist inn í tölvukerfi Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, á síðasta ári. Þetta sagði Paul Martin, fulltrúi NASA, þegar að hann gaf skýrslu fyrir bandarískri þingnefnd nú í vikunni.

Ríki ESB samþykktu nýjan sáttmála um aga í fjárlögum

Öll ríkin 27 innan Evrópusambandsins nema tvö hafa undirritað nýja sáttmála sem miðar að því að koma á meiri aga á opinber fjárlög ríkja innan sambandsins og koma í veg fyrir að ríkin skuldsetji sig upp úr rjáfrinu.

Rauði krossinn fær að fara inn í borgina Homs

Sýrlensk stjórnvöld hafa ákveðið að leyfa fulltrúum Rauða krossins að fara inn í Baba Amr hverfið í borginni Homs í dag. Með þeim í för verður fólk frá systursamtökunum Rauða hálfmánanum í Sýrlandi.

Klerkastéttin gegn forseta

Stjórnarandstaðan í Íran á fyrirfram litla möguleika í þingkosningunum, sem haldnar verða í dag. Tveir helstu leiðtogar hennar hafa því hvatt landsmenn til þess að taka ekki þátt í kosningunum.

Jack Nicholson á fölsuðum skilríkjum

Brasilískur maður hefur verið ákærður fyrir skjalafals eftir að hann reyndi að opna bankareikning með fölsuðum skilríkjum. Á skilríkjunum var mynd af leikaranum víðfræga Jack Nicholson.

Ikea hefur sölu á búslóðum

Húsgagnaframleiðandinn Ikea hefur gengið skrefinu lengra og mun brátt hefja sölu á heilum íbúðum. Allar vinsælustu vörur Ikea fylgja með húsinu en það mun eflaust taka lengur en einn eftirmiðdag að setja húsið saman.

Rauðir Krossinn aðstoðar í Homs

Alþjóðaráð Rauða Krossins og Rauða hálfmánans tilkynnti í dag að samtökin hafi fengið leyfi frá yfirvöldu í Sýrlandi til að fara inn í borgina Homs.

Bretland lokar sendiráði sínu í Sýrlandi

Bretland hefur ákveðið að loka sendiráði sínu í borginni Damaskus í Sýrlandi. Samkvæmt William Hague, Utanríkisráðherra Bretlands, var ekki lengur hægt að tryggja öryggi starfsmanna sendiráðsins og voru þeir því fluttur úr landi.

Romney sigraði í Wyoming

Mitt Romney telst vera sigurvegari í forkosningum Repúblikana í Wyoming, fámennasta ríki Bandaríkjanna.

Risaflær herjuðu á risaeðlurnar

Flóabit er ekki nýtt vandamál í heiminum. Í Kína hafa fundist steingerfingar af risastórum flóm sem herjuðu á risaeðlur fyrir um 165 milljónum ára síðan.

Sjá næstu 50 fréttir