Fleiri fréttir

Látin kona skreið upp úr líkkistunni

Talið var að hin 95 ára gamla Li Xiufeng hefði látist í svefni. Nágranni hennar, sem færði henni mat á hverjum degi, fann hana hreyfingarlausa í rúmi sínu.

Ævaforn mörgæs lítur dagsins ljós

Vísindamenn hafa endurreist beinagrind mörgæsar sem var uppi fyrir 26 milljón árum. Mörgæsin er kölluð Kairuku og var einn og hálfur metri á hæð.

Draugagangur heftir endurbyggingu í Japan

Endurbygging á þeim svæðum sem verst urðu úti í jarðskjálftanum við Japan á síðasta ári ganga erfiðlega - fregnir af draugangi hafa fælt vinnumenn frá svæðinu.

Twitter-fuglinn hefur víst nafn

Blái fuglinn hefur verið einkennismerki samskiptasíðunnar Twitter síðan hún var stofnuð árið 2006. Nú hefur nafn fuglsins loks verið opinberað.

Jarðarbúar beðnir um að horfa til himins

Geimvísindamenn leita nú til almennings eftir hjálp við leit að lífi í alheiminum. Á nýrri vefsíðu getur fólk nú leitað í rannsóknargögnum stjarneðlisfræðinga og vonandi uppgötvað það sem ofurtölvur hafa ekki getað numið hingað til.

Norður-Kórea hættir auðgun úrans

Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa ákveðið að hætta auðgun úrans og þróun langdrægra eldflaugaskeyta í staðinn fyrir neyðaraðstoð frá Bandaríkjunum.

Sýrlenski herinn herðir sóknina í Homs

Sýrlenski herinn hefur ákveðið að senda fótgönguliða inn í borgina Homs í dag. Herinn hefur látið sprengjum rigna yfir borgina á síðustu vikum og hafa yfirvöld í landinu nú ákveðið að herða sóknina.

Costa Allegra leggur að landi á morgun

Farþegar skemmtiferðaskipsins Costa Allegra hafa þurft að þola kæfandi hita og matarskort síðan skipið varð aflvana á Indlandshafi fyrir þremur dögum.

Yfir 7.500 manns hafa fallið í Sýrlandi

Sameinuðu þjóðirnar hafa áætlað að yfir 7.500 manns, flest almennir borgarar, hafi fallið í átökum sýrlenskra stjórnvalda við uppreisnarmenn í landinu frá því að átökin hófust í mars á síðasta ári.

Um 400.000 Danir þjást af þvagleka

Um 400.000 Danir þjást af þvagleka en það sem verra er um 90% þeirra segja ekki fjölskyldu sinni eða vinum frá þessu vandamáli vegna þess hve mikið þeir skammast sín fyrir það.

Romney sigraði í Michigan og Arizona

Mitt Romney náði að sigra í prófkjöri Repúblikanaflokksins í Michigan í nótt. Þegar nær öll atkvæði voru talin var Romney með 41% atkvæða á móti 38% hjá Rick Santorum helsta keppinaut hans.

Kung Fu hæfileikar Pamirs vekja hrifningu

Myndband af rússneskum skógarbirnir sem sýnir Kung Fu hæfileika sína hefur vakið gríðarlega athygli. Rúmlega 200.000 manns hafa horft á myndbandið frá því að það birtist á YouTube í síðustu viku.

Sektuð fyrir að hlusta á Rihanna

Par í Bretlandi hefur verið sektað fyrir að hlusta of hátt á plötur söngkonunnar Rihanna. Þau voru afar ósátt við niðurstöðuna og sögðu fyrir rétti að tónlist söngkonunnar hentaði öllum og að hún væri afar myndarleg.

Ökuþór "twittaði" í miðjum kappakstri

Ökuþórinn Brad Keselowski lét sér ekki leiðast þegar Daytona 500 kappakstrinum var frestað tímabundið. Hann dró fram snjallsímann og "twittaði" beint úr bílnum.

Þýskur raðmorðingi í lífstíðarfangelsi

Þýski raðmorðinginn Martin Ney var dæmdur í ævilangt fangelsi í dag fyrir að nema á brott og drepa þrjá unga drengi. Ney er 41 árs gamall og uppeldismenntaður. Hann braust inn á heimili fólks og réðst á börn. Brotin áttu sér stað með nokkurra ára millibili og í þremur tilfellum enduðu slíkar árásir með því að börnin dóu. Þrettán ára piltur dó 1992, átta ára strákur dó 1995 og níu ára drengur dó 2001. Ney játaði öll morðin á sig og viðurkenndi jafnframt að hafa ráðist á eitt barn til viðbótar fyrir síðustu aldamót, eftir því sem fullyrt er á vef þýska blaðsins bild.

Tveir látnir eftir skotárás í skóla í Ohio

Tveir eru nú látnir eftir skotárásina í skólanum Chardon í Ohio í gær. Læknar hafa staðfest að sautján ára gamall piltur hafi verið úrskurðaður heiladauður en hann var fluttur á sjúkrahúsið í Cleveland stuttu eftir árásina.

Íhuguðu að rýma Tókíó

Í nýrri óháðri skýrslu um kjarnorkuslysið í japönsku borginni Fukushima segir að yfirvöld hafi alvarlega íhugað að rýma Tókíó, eina stærstu borg heims, þegar ástandið var sem alvarlegast.

Demókratar styðja Santorum í Michigan

Spenna er fyrir forkosningar Repúblikana í Michigan sem fram fara í dag en þeir Mitt Romney og Rick Santorum eru hnífjafnir í skoðanakönnunum. Forkosningar fara einnig fram í Arizona en þar þykir Romney hafa yfirburðastöðu.

Herða refsiaðgerðir gegn Assad

Utanríkisráðherrar ESB ákváðu í gær að herða enn refsiaðgerðir sínar gegn stjórnvöldum í Sýrlandi. Markmiðið er að þrýsta á um að stjórnvöld slaki á klónni í aðgerðum gegn stjórnarandstæðingum í landinu.

Útvarpssendingar mannkyns eiga langt ferðalag fyrir höndum

Frá því að ítalski eðlisfræðingurinn Guglielmo Marconi fékk einkaleyfi á þráðlausar skeytasendir árið 1895 hefur mannkynið sent útvarpsbylgjur út í alheiminn. En þrátt fyrir að rúm öld sé liðin frá upphafi útvarpssendinga þá ná þær aðeins yfir brotabrot af Vetrarbrautinni.

Benedikt XVI mætir á Twitter

Nú stendur til að Benedikt XVI páfi fái sinn eigin Twitter reikning. Páfinn mun miðla guðspjöllunum í 140 stöfum.

Einn látinn eftir skotárás í skóla

Einn lést og fjórir særðust í skotárás í grunnskóla í Ohio í Bandaríkjunum fyrr í dag. Vígamaðurinn var samnemandi fórnarlambanna.

Byssumaðurinn yfirbugaður

Lögreglan hefur handsamað mann sem hóf skothríð í matsal Chardon menntaskólans Ohi í Bandaríkjunum fyrr í dag. Fjórir eru særðir þar af þrír alvarlega. Að sögn fréttastofu CNN fannst maðurinn eftir víðtæka leit á svæðinu. Öðrum skólum í nágrenninu var lokað en um þúsund nemendur sækja Chardon menntaskólann.

Skotárás í bandarískum menntaskóla

Skotárás var gerð í Chardon menntaskólanum í Ohio í Bandaríkjunum fyrir stundu. Fregnir af málinu eru enn óljósar en sagt er að fjórir séu særðir hið minnsta, þrír alvarlega en einn minna. Þá segja óstaðfestar heimildir að einn byssumaður hafi verið handtekinn en að annar gangi enn laus. Mikill viðbúnaður lögreglu er við skólann.

Wikileaks birtir gögn frá Stratfor

Uppljóstrunarsíðan Wikileaks hefur hafið birtingu á rúmlega fimm milljón tölvuskeytum frá bandaríska öryggisfyrirtækinu Stratfor. Mikil leynd hvílir yfir fyrirtækinu og eru gögnin sögð varpa ljósi á starfshætti fyrirtækisins.

Sjá næstu 50 fréttir