Fleiri fréttir

Hungraður sebrahestur bragðaði á stúlku

Sebrahestur nartaði í stúlku eftir að hafa fengið að bragða á gómsætum kartöfluflögum. Vitanlega var félagi stúlkunnar með snjallsíma á lofti og náðist atvikið því á myndband.

Náði mynd af andliti í Norðurljósunum

Hinn tuttugu og fimm ára gamli ljósmyndari, Jonathan Tucker, náði ótrúlegri mynd af Norðurljósunum á dögunum. Tucker var staddur í Kanada þegar hann tók myndina en þegar hann kom heim tók hann eftir því að andlit sést mótað í ljósunum. Myndin var tekin í Yukon en á henni sést mótað fyrir nefi, kinnum og brosandi munni í grænu ljósunum.

Stal vöruflutningabíl fullum af vodka

Atvinnulaus Rússi stal vöruflutningabíl fullum af vodka og öðru áfengi í Rússlandi nýlega en lögreglan stöðvaði hann þó áður en hann náði að taka sjúss af einni flösku.

Fundu höfuð af manni undir Hollywood skiltinu

Afhoggið höfuð fannst á göngustíg sem liggur upp að hinu heimsfræga Hollywood skilti í hlíðunum fyrir ofan Los Angeles. Lögreglan í borginni reynir nú að finna út af hverjum höfuðið er en um mann á fimmtugsaldri er að ræða. Konur sem voru að viðra hundana sína gengu fram á höfuðið í gær.

Tíðar hákarlaárásir í Ástralíu undanfarið

Ástralskur brimbrettakappi liggur nú alvarlega slasaður á sjúkrahúsi eftir að hákarl réðst á hann. Árásin átti sér stað í bænum Newcastle sem er norðan við stórborgina Sidney. Fyrr í mánuðinum varð önnur hákarlaárás á sömu slóðum og í desember sú þriðja. Hákarlaárásir eru annars fátíðar í Ástralíu og en á síðustu 22 árum hafa 27 látið lífið í slíkri árás.

Björgunaraðgerðum hætt í Costa Concordia

Björgunaraðgerðum hefur verið hætt í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem liggur á hliðinni undan ströndum Ítalíu. Skipið hefur færst úr stað og því er ekki talið óhætt fyrir björgunarmenn að athafna sig í því.

Reykbombu kastað að Hvíta húsinu

Reykbombu var kastað yfir girðinguna kringum Hvíta húsið í Washington í gærkvöldi. Þar höfðu rúmlega 1.000 félagar í Occupy hreyfingunni haldið mótmælafund.

Loftsteinar frá Mars fundust í Marokkó

Afar sjaldgæfir loftsteinar, sem koma frá Mars, hafa fundist í Marokkó í Afríku. Um er að ræða nær sjö kíló af loftsteinum en slíkir steinar fundust síðast á jörðinni fyrir um 50 árum síðan eða 1962.

Segja vandann við EES skort á lýðræði

Norska Evrópunefndin segir EES-samninginn hafa þjónað norskum hagsmunum vel, en gallinn sé sá að Norðmenn taki ekki þátt í ákvörðunum. Utanríkisráðherra Noregs telur EES-samninginn mikilvægari nú fyrir Noreg en árið 1994.

Segja Mubarak vera fórnarlamb

„Mubarak er hvorki harðstjóri né blóðþyrstur maður,“ sagði Farid el-Deeb, verjandi Hosni Mubarak í réttarhöldum, þar sem ákæruvaldið fer fram á dauðadóm.

Stjórnarskránni þarf að breyta

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir að nokkur ákvæði nýrrar stjórnarskrár, sem tók gildi í Ungverjalandi um áramótin, standist ekki reglur Evrópusambandsins.

Bauð viðskiptavinum munnmök í staðinn fyrir kjúklinganagga

Bandarísk kona var handtekinn við McDonalds-stað í Los Angeles á dögunum. Konan, sem er þrjátíu og eins árs, bauð karlkyns viðskiptavinum sem voru staddir í bílalúgunni munnmök í skiptum fyrir kjúklinganagga. Konan hefur nú verið ákærð fyrir athæfið og verður leidd fyrir dómara á næstu dögum þar sem hennar gæti beðið eins árs fangelsis vist og þúsund dollara sekt.

Bílstóll bjargaði lífi 10 vikna stúlku

Tíu vikna stúlka lifði hræðilegt bílslys af í Kaliforníu. Bílstóll stúlkunnar var staðsettur í aftursæti bílsins og er talið að það hafi bjargað henni.

Gekk að eiga látna unnustu sína

Tælenskur maður gekk að eiga látna unnustu sína í óhugnanlegri athöfn fyrr í mánuðinum. Hann jarðsetti síðan eiginkonu sína eftir að hjónabandið var innsiglað.

Costa Concordia: Fimm lík fundust til viðbótar í dag

Björgunaraðgerðir standa enn yfir í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem strandaði við Ítalíustrendur á föstudaginn var. Fimm lík til viðbótar fundust í dag og er því staðfest að ellefu hafi látist. 24 er þó enn saknað. Farþegar og aðstandendur þeirra sem saknað er hafa þegar hafið undirbúning að málshöfðun gegn skipafélaginu. Skipstjóra Concordia er kennt um hvernig fór en hann er sagður hafa skyndilega breytt um stefnu áður en skipið sigldi á kletta skammt undan ströndinni.

Svíar slegnir óhug

Svíar eru slegnir óhug eftir að sænsk, 38 ára gömul kona og átta mánaða gömul dóttir hennar, fundust látnar í íbúð í bænum Arboga í Svíþjóð í gær. Sænska lögreglan rannsakar málið sem morðmál, en sænskir fjölmiðlar hafa ekkert fengið staðfest um hvernig þeim gæti hafa verið ráðinn bani. Samkvæmt sænska Dagbladet var fannst konan í stofu íbúðarinnar og dóttirin í svefnherberginu. Konan mun hafa verið með áverka á hálsinum og það eru helst þessir áverkar sem fá lögregluna til að gruna að andlát mæðgnanna hafi borið að með saknæmum hætti. Konan hafði búið við heimilisofbeldi og árið 2010 hafði þáverandi unnusti hennar verið dæmdur fyrir ofbeldi gegn henni og að hafa hótað henni lífláti.

Þjófurinn þjakaður af samviskubiti

Norskur síbrotamaður á þrítugsaldri skilaði að eigin frumkvæði innpökkuðum jólagjöfum sem hann stal úr bíl í Herøy í Noregi skömmu fyrir jól. Íslendingur búsettur í Herøy átti bílinn og var að vonum glaður að endurheimta gjafirnar, en þær ætlaði hann að senda til barna á Íslandi.

Fjöldi höfrunga synti á land við Cape Cod

Um 40 höfrungar syntu á land á við Cape Cod í Massachusetts í Bandaríkjunum um síðustu helgina. Meðlimum dýraverndunarsamtaka hefur tekist að að bjarga 19 þeirra og koma þeim aftur á haf út en um 20 hafa drepist.

Óttast að 35 hafi látið lífið um borð í Costa Concordia

Svo virðist sem ítölsk yfirvöld hafi ekki yfirlit yfir hve margir farþegar voru um borð í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia þegar það strandaði um síðustu helgi. Nú er tala þeirra sem saknað er komin í 29 manns og því gætu að allt að 35 manns hafa látið lífið í strandinu.

Gilani stefnt fyrir vanvirðingu

Hæstiréttur í Pakistan hefur stefnt forsætisráðherra landsins, Yusuf Raza Gilani, fyrir vanvirðingu við réttinn. Hann hefur þráfaldlega neitað tilmælum réttarins um að taka upp á ný rannsókn á meintum auðgunarbrotum forseta landsins, Asif Ali Zardari. Gilani hefur verið boðaður fyrir dóminn á fimmtudag til að standa fyrir máli sínu.

Bað áhorfendur um að "googla" lítt þekktan Breta

Leikarinn Peter Dinklage lauk þakkarræðu sinni á Golden Globe-hátíðinni í gær með því að biðja áhorfendur um að "googla" mann að nafni Martin Henderson. Fjöldi fólks gerði það og er Henderson nú eitt vinsælasta efnisorðið á samskiptasíðunni Twitter.

James Bulger vill hitta Wahlberg

Mark Wahlberg, sem slær um þessar mundir í gegn í myndinni Contraband, áformar að hitta glæpaforingjann James "Whitey" Bulger í fangelsi.

Jon Huntsman hættir við framboð sitt

Jon Huntsman fyrrum ríkisstjóri Utah er hættur við að sækjast eftir að verða næsta forsetaefni Repúblikanaflokksins. Hann mun í staðinn lýsa yfir stuðningi sínum við Mitt Romney.

Enn eitt líkið fannst í Costa Concordia

Enn eitt líkið fannst í skemmtiferðaskipunu Costa Concordia í morgun. Talsmaður eigenda skipsins hefur sakað skipstjóra þess um dómgreindarskort og að hann hafi gert alvarleg mistök í starfi sínu sem leiddi til þess að skipið strandaði og það lagðist á hliðina um helgina.

Uppgötvuðu örlítið hryggdýr

Bandarískir vísindamenn hafa uppgötvað nýja frosktegund í frumskógi á Papúa Nýju-Gíneu. Frosktegundin nefnist Paedophryne amauensis og er sú minnsta sem sést hefur. Raunar er þetta minnsta hryggdýr sem fundist hefur.

Stúlka sætti pyntingum mánuðum saman

Í kjölfar máls þar sem 15 ára stúlka sætti pyntingum mánuðum saman af hálfu eiginmanns síns og fjölskyldu hans hefur Hamid Karzai, forseti Afganistan, lofað aðgerðum gegn „aumingjahætti“ þeirra sem beita konur ofbeldi.

Leið kúgunar er blindgata

Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hvetur Bashar al-Assad Sýrlandsforseta til að hætta að „drepa fólkið sitt“. Í ræðu á ráðstefnu um lýðræði í arabaríkjunum sem haldin var í Beirút í gær sagði hann: „Láttu af ofbeldi og hættu að drepa þína eigin þegna. Leið kúgunar er blindgata.“

Lítil von til þess að Guantanamo verði lokað í bráð

Guantanamo-fangelsið alræmda varð tíu ára í vikunni. Ekki lítur út fyrir að því verði lokað á næstunni, þar sem enn er 171 fangi þar í haldi. Barack Obama Bandaríkjaforseti segist þó enn vilja loka fangelsinu.

Fundu tvö lík til viðbótar

Tveir til viðbótar hafa fundist látnir í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia samkvæmt ítölskum og breskum fjölmiðlum. Því er tala látinna komin upp í fimm. Hinir látnu fundust skömmu eftir að tveimur farþegum og starfsmanni skipsins var bjargað. Hinir látnu eru eldri borgarar.

Skipstjórinn með þeim fyrstu sem flúði frá borði

Ekki er vitað um sex starfsmenn og ellefu farþega ítalska skemmtiferðaskipsins Costa Concordia, sem strandaði við eyjuna Grigio aðfaranótt laugardags. Alls er því leitað að sautján manns í skemmtiferðaskipinu, en staðfest hefur verið að þrír hafi látist þegar skipið strandaði.

Sjá næstu 50 fréttir