Fleiri fréttir

17 milljón brjálaðar býflugur

Slökkviliðsmönnum sem komu að fjögurra bíla árekstri í Minnesota brá í brún þegar þeir sáu farþegana sem þeir þurftu að eiga við.

Haldið áfram að bora þrátt fyrir aðvaranir

Olíurisinn British Petroleum hefur viðurkennt að röð alvarlegra mistaka hafi verið gerð á síðustu klukkustundunum áður en borpallurinn á Mexíkóflóa sprakk í loft upp.

Eldri mæðrum fjölgar ört

Næstum þrefalt fleiri breskar konur eignast börn eftir fertugt núna en fyrir 20 árum síðan. Í fyrra ólu tæplega 27 þúsund breskar konur, fertugar eða eldri, börn en einungis um níu þúsund konur árið 1989. Þetta sýna tölur bresku Hagstofunnar. Í fyrra ólu um 114 þúsund breskar konur á aldrinum 35-39 ára börn en það er um 41% aukning í þessum aldurshópi frá árinu 1999.

Þreyttir á hálfnöktum ferðamönnum

Íbúar og yfirvöld í Katalóníu eru orðin þreytt á að horfa upp á hálfnakta ferðamenn í miðborg Barcelona. Því stendur til að að grípa til aðgerða gegn fólki sem sprangar um helstu götur borgarinnar í baðskýlum og bikini.

Eiturlyfjabaróninn Coke er enn ófundinn

Forsætisráðherra Jamaíka, Bruce Golding, hét því í gærkvöld að koma á allsherjarreglu í landinu. Meira en 30 manns hafa fallið í blóðugri baráttu gegn eiturlyfjabaróninum Christopher Coke sem staðið hefur yfir frá því um helgina.

Ætla að skera niður um 24 milljarða evra

Ítalska ríkisstjórnin hefur samþykkt 24 milljarða evra niðurskurð fyrir næsta ár og þarnæsta til að fást við fjárlagahallann. Upphæðin samsvarar 3800 milljörðum íslenskra króna.

Bankaræningjar misreiknuðu sig

Bankaræningjar í Þýskalandi misreiknuðu sig illilega þegar þeir ætluðu að sprengja upp peningahólf í banka einum á landsbyggðinni. Þeir virðast hafa notað allt of mikið sprengiefni því bankinn hreinlega sprakk í loft upp. Enginn slasaðist þó í sprengingunni en brak úr bankanum skemmdi þó nærliggjandi byggingar og bíla. Fimmtíu og fimm slökkviliðsmenn voru í því að slökkva elda í byggingum og bílum á svæðinu. Ræningjarnir hurfu að sögn lögreglu á braut tómhentir og er þeirra nú leitað.

Breskir krimmar handteknir á Spáni

Lögregla í spænsku ferðamannaparadísinni Costa del Sol hefur handtekið tugi breskra ríkisborgara sem eru grunaðir um stórfellda glæpastarfsemi á Spáni og á Bretlandi. Mennirnir eru sagðir hafa haldið úti umfangsmiklu eiturlyfja- og byssusmygli og verið með höfuðstöðvar sínar á Spáni.

Þrír farþegar slösuðust í ókyrrð yfir Atlantshafi

Þotu frá United Airlines lenti í svo mikilli ókyrrð á Atlantshafi að þrír um borð slösuðust. Vélin var á leið frá London til Los Angeles og þurfti að lenda henni í Ottawa í Kanada til þess að koma hinum slösuðu undi læknishendur. Þeir sem slösuðust, einn úr áhöfn og tveir farþegar, brotnuðu meðal annars á fótum og á ökla. Vélin verður kyrrsett í Kanada og leitað að skemmdum.

Blóðugir bardagar á Jamaica

Tuttugu og sjö manns hafa fallið í bardögum milli lögreglumanna og liðsmanna eiturlyfjabarónsins Christiphers Coke á Jamaica.

Stríð vofir yfir á Kóreuskaga

Spenna milli Norður- og Suður-Kóreu hefur vaxið með hverjum deginum síðan alþjóðleg rannsóknarnefnd staðfesti að norðanmenn hefðu sökkt herskipi sunnanmanna í síðasta mánuði.

AGS mótmælt í Búkarest

Þúsundir ellilífeyrisþega fóru út á götur Búkarest höfuðborgar Rúmeníu í dag til þess að mótmæla niðurskurði sem gerður er að kröfu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Niðurskurðurinn felur

Mannskætt gullrán í Bagdad

Fimmtán manns voru drepnir þegar vopnaðir ræningjar gerðu árás á gull- og skarpgripamarkað í Bagdad í dag.

Hornið kom út um munninn

Miðað við þessa mynd er það eins og spænski nautabaninn Julio Aparicio hafi upplifað dálítið kraftaverk.

Hjálparskip stefna á Gaza ströndina

Átta skip og bátar frá Írlandi, Grikklandi og Tyrklandi stefna nú á Gaza ströndina í Ísrael með hjálpargögn handa Palestínumönnum.

Blair situr ekki aðgerðarlaus

Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur ráðið sig sem ráðgjafa áhættufjárfestingafyrirtækisins Khosla, sem sérhæfir sig í framleiðslu á umhverfisvænni tækni. Fyrirtækið er starfrækt í Silicon Valley í Kaliforníu.

Suður-Kórea hótar hörðum refsingum

Stöðvun allra viðskipta við Suður-Kóreu verður væntanlega þungur skellur fyrir íbúa Norður-Kóreu, því næst á eftir Kína eiga Norður-Kóreumenn mest viðskipti við nágranna sína í Suður-Kóreu.f

Vilja slaka mjög á reglunum

Alþjóðasamtök flugfélaga, IATA, gagnrýna evrópsk flugmálastjórnvöld harðlega fyrir það hve strangar reglur gilda um flug þegar aska frá eldgosum er í loftinu.

Ekki á að nota kúst eða ryksugu

Þegar sparperur brotna er hætt við kvikasilfursmiti, að því er fram kemur í umfjöllun TV2 í Danmörku. Umhverfisráðuneyti Dana stendur nú fyrir vitundarvakningu um málið. Á vef Landlæknis kemur fram að kvikasilfur í of miklu magni geti haft „skaðvænleg áhrif á vefi líkamans“.

Húðflúrin komu upp heimskan innbrotsþjóf

Lögreglan í Bandaríkjunum var ekki lengi að handsama hinn tvítuga Anthony Brandon Gonzales fyrir innbrot í Colorado en hann braust inn á heimili Elvis-eftirhermu og stal þaðan verðmætum.

Facebook-forstjóri játar mistök

Hinn tuttugu og sex ára gamli Mark Zuckerberg, sem er forstjóri Facebook, skrifaði dálk í Washington Post á dögunum þar sem hann sagði að að uppsetningin á öryggismálum Facebook, sem snýr að notendum, hafi beinlínis verið of flókin.

Klippti á naflastrenginn og fingurgóminn með

Bresk ljósmóðir varð fyrir því óhappi á dögunum að klippa framan af fingurgómi nýfædds barns þegar hún ætlaði að klippa á naflastrenginn. Samkvæmt bresku fréttstofunni SKY þá tók fæðingin fjórar klukkustundir.

Ástralar reka Ísraelskan diplótama úr landi

Ástralska ríkisstjórnin hefur rekið ísraelskan diplómat úr landi vegna ásakanna um að ríkisstjórn Ísraels hafi falsað ástralskt vegabréf. Vegabréfið var falsað í þeim tilgangi að koma morðingjunum, sem myrtu leiðtoga Hamas samtakanna í Dubai fyrr á árinu, inn í landið.

Höfrungar þekkja sig í spegli

Hvalir og höfrungar ættu að njóta „mannréttinda“ til lífs og frelsis vegna þess að allar vísbendingar benda til þess að þeir séu mjög greindir, segir hópur náttúruverndasinna og sérfræðingar í siðfræði, lögum og siðfræði. Samkvæmt rökum þeirra er óverjandi að veiða hvali til matar eða geyma þá í sædýrasöfnum.

Tólf fórust í flóðum í Póllandi

Að minnsta kosti 12 hafa farist í miklum flóðum í Póllandi um helgina. Um 20 þúsund Pólverjar hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna og þá er rafmagnslaust víða. Í kjölfar mikillar úrkomu flæddu árnar Vistula, Odra og Warta yfir bakka sína.

Synti í jökullóni á Everest

Breskur maður sem berst fyrir umhverfismálum varð í gær fyrstur manna til að synda í jökullóni á Everest fjalli. Hinn fertugi Lewis Gordon Pugh synti einn kílómeter yfir Pumori vatnið sem er í 17.400 feta hæð.

Suður-Kóreumenn undirbúa viðbrögð

Lee Myung-bak, forseti Suður-Kóreu, og ráðamenn í Seúl undirbúa nú viðbrögð við árás Norður-Kóreu á herskip sunnanmanna í lok mars. Forsetinn hyggst leita til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um refsiaðgerðir gagnvart nágrönnum sínum í norðri.

Flugliðar rétta fram sáttahönd

Verkfalli flugliða hjá British Airways verður aflýst ef flugmiðafríðindum starfsmanna verður aftur komið á. Þetta sagði verkalýðsforkólfurinn Tony Woodley eftir að slitnaði upp úr samningaviðræðum milli deiluaðila í dag. Fimm daga verkfall er boðað frá miðnætti í kvöld.

Fergie sögð miður sín og full iðrunar

Sarah Ferguson, hertogaynja af York, er sögð miður sín og full iðrunar eftir upp komst um tilraun hennar til að selja aðgang að Andrew Bretaprins, fyrrverandi eiginmanni hennar.

Stefnir í fimm daga verkfall hjá British Airways

Slitnað hefur upp úr samningaviðræðum á milli samningsaðila yfirmanna British Airways og flugliða fyrirtækisins. Allt stefnir því í að boðað fimm daga verkfall flugliða hefjist á miðnætti.

Mannskæð slys í Kína

32 létust í Kína í dag þegar flutningabíll á röngum vegarhelmingi lenti framan á rútu í Liaoning héraði. Mikill eldur braust út við áreksturinn. Alls létust 29 farþegar rútunnar, en tuttugu og fjórir eru slasaðir, þar af þrír alvarlega. Þeir þrír sem voru í flutningabílnum létust einnig í slysinu. Verið er að rannsaka tildrög slyssins en rútan var á leið frá Tianjin borg skammt frá Peking til Harbin í Helongjiang héraði.

Prinsinn vissi ekki af samkomulagi Fergie

Enn eitt hneykslið skekur nú bresku krúnuna eftir að Sarah Ferguson var gómuð af rannsóknarblaðamanni þar sem hún krafðist rúmlega 90 milljóna króna fyrir að koma honum í samband við Andrew prins, fyrrverandi eiginmann sinn.

Lögreglumaður verðlaunaður fyrir að skrá fljúgandi furðuhluti

Breskur lögreglumaður hefur unnið alþjóðleg verðlaun fyrir skráningu á fljúgandi furðuhlutum sem lögreglumenn verða vitni að. Gary Heseltine tók við verðlaununum í Washington fyrir vefsíðu sína prufospolicedatabase, sem hann setti á laggirnar árið 2002.

Kosið í Eþíópíu

Gengið verður til kosninga í Eþíópíu í dag í fyrsta sinn síðan 2005, en síðustu kosningar enduðu með blóðsúthellingum. Kosningarnar hafa farið friðsamlega fram það sem af er degi.

Sjá næstu 50 fréttir