Fleiri fréttir

Viðgerð Hubble þokast áfram

Áhöfn geimskutlunnar Atlantis heldur áfram viðhaldsvinnu sinni við Hubble-sjónaukann og skipti í gær um búnað sem notaður er til að greina svarthol í geimnum en sá hefur verið óvirkur síðan árið 2004.

Lögregla á Jótlandi gengur hreint til verks

Tveir ræningjar í Norðborg á Jótlandi nutu frelsisins ekki nema í níu mínútur eftir að þeir höfðu rænt þrjá erlenda ferðamenn peningum og greiðslukortum úti á götu.

Útflutningur á rottum stóreykst

Ótti við svínaflensu og mikil rigningatíð hafa lagst á eitt við að stórauka útflutning á rottum frá Kambódíu til Víetnam.

Bandarísk fyrirtæki mörg í kröppum dansi

Verulega er tekið að harðna á dalnum hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum í Bandaríkjunum, en lánsfé er þar af verulega skornum skammti líkt og annars staðar.

Yfir eitt hundrað flensutilfelli í Bretlandi

Staðfest svínaflensutilfelli í Bretlandi fóru yfir eitt hundrað þegar fjórtán ný tilfelli flensunnar greindust þar síðustu daga, sex hjá fullorðnum einstaklingum en átta hjá börnum.

Heitar umræður um staðsetningu Eurovision

Þegar eru byrjaðar heitar umræður í Noregi um það hvar eigi að halda Eurovision-keppnina eftir eitt ár, enda Norðmenn gestgjafar eftir sigurinn um helgina.

Yfirburðasigur hjá Congress

Congress-flokkurinn í Indlandi, með forsætisráðherrann Manmohan Singh í fararbroddi, bar sigur úr býtum í þingkosningum í landinu sem voru haldnar á laugardag. Sigurinn er einn sá öruggasti í Indlandi í tæpa tvo áratugi.

Uppreisnarher Tamíltígra leggur niður vopn

Uppreisnarher Tamíltígra hefur gefist upp í 25 ára löngu stríði sínu við stjórnvöld á Srí Lanka. Bauðst hann til að leggja niður vopn sín í gær eftir að stjórnar­herinn réðst af krafti inn í sterkasta vígi þeirra í norðausturhluta landsins.

Þurfum sameiginlegan grundvöll til að rökræða

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama hélt ræðu í kaþólska skólanum Notre Dame í dag en andstæðinga fóstureyðinga og stofnfrumurannsókna umkringdu skólann og mótmæltu veru hans þar.

Átök í Sómalíu

Sómalskir andspyrnuhermenn hafa náð tökum á bænum Jowhar sem er norðan við Mogadishu, höfuðborg Sómalíu. Talið er að sjö manns hafi látist í átökum, þar af þrír óbreyttir borgarar.

Verjandi óttast spaugsemi meints morðingja

Verjendur Drew Petersson hafa verulegar áhyggjur af spaugsemi hans. Drew hefur verið ákærður fyrir að myrða þriðju eiginkonu sína, Kathleen Savio árið 2004. Honum er gefið að sök að hafa drekkt henni.

Reknir fyrir að gefa börnum stuð

Tveir bandarískir fangaverðir hafa verið reknir úr starfi eftir að hafa gefið börnum frá fimm ára upp í sautján ára stuð með rafbyssum. Atvikið átti sér stað í síðustu viku í fangelsi í Flórída í Bandaríkjunum. Börnin voru í skoðunarferð en foreldrar þeirra starfa í fangelsinu.

Ólétt á sjötugsaldrinum

Ein elsta tilvonandi móðir heims, breska kaupsýslukonan Elisbeth Adeney, á von á sínu fyrsta barni eftir mánuð.

Hommar og lesbíur handtekin í Moskvu

Óeirðarlögreglna í Moskvu handtók fjöldann allan af samkynhneigðum einstaklingum í dag. Þeir vildu vekja athygli á réttindabaráttu samkynhneigðra í Rússlandi en borgarstjóri Moskvu, Yuri Luzhkov hefur meðal annars látið hafa eftir sér að gleðiganga samkynhneigðra þar í landi sé „satanískt".

Andstæðingar fóstureyðinga mótmæla orðuveitingu Obama

Mörg hundruð andstæðingar fóstureyðingar hafa komið saman við Notre Dame háskólann í Bandaríkjunum til þess að mótmæla komu Obama sem vil leyfa stofnfrumurannsóknir og er fylgjandi fóstureyðingu. Háskólinn hyggst veita Obama heiðursorðu skólans.

Fæddist háð heróíni - dó vegna brotinna rifbeina

Barn sem fæddist með heróínfíkn lét lífið á sjúkrahúsi í Englandi á dögunum eftir að í ljós kom að barnið var með þrettán brotin rifbein. Barnið hafði verið tekið af kynmóður þess og afhent fósturforeldrum.

Jákvæður fyrir sjálfstæði Palestínu

Forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu mun taka undir þá kröfu að stofna sjálfstætt ríki fyrir Palestínu á fundi við Obama Barrack Bandaríkjaforseta sem verður haldin í vikunni.

Saberi laus úr haldi - komin til Vínar

Bandaríska blaðakonan Roxana Saberi lenti í dag í Vín í Austurríki. Fyrir tveimur dögum fagnaði hún frelsi á ný eftir að hafa verið í fjóra mánuði í fangelsi í Teheran. Um miðjan apríl dæmdi íranskur dómstóll Saberi, sem einnig hefur íranskt ríkisfang, í átta ára fangelsi fyrir njósnir eftir stutt, leynilegt réttarhald.

Bað „vændiskonu“ að afsveina 14 ára son sinn

Faðir sem bað lögregluþjón sem dulbúin var sem vændiskona að afsveina fjórtán ára gamlan son sinn hefur verið dæmdur í 10 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Maðurinn sem er frá Bulwell á Englandi er 42 ára gamall og gaf sig á tal við lögregluþjónin á Mapperley svæðinu en hann hélt að hún væri vændiskona. Hann viðurkenndi að hafa beðið konuna um að stunda kynlíf með barni.

Svínaflensan gæti seinkað pílagrímsferð múslima

Æðstu menn múslima í Egyptalandi hafa lagt til að árleg pílagrímsferð til Mekka verði frestað vegna útbreiðslu svínaflensunnar. Sheikh Ali Jumua leiðtogi múslima í Egyptalandi hefur kallað eftir trúartilskipun til þess að ákveða hversu lengi hægt sé að fresta þessar helgiathöfn. Að minnsta kosti tvær milljónir múslima tóku þátt í síðustu pílagrímsferð sem á að fara fram í nóvember á þessu ári.

Dalai Lama veitt vegabréfsáritun í S-Afríku

Ný ríkisstjórn Suður-Afríku hefur ákveðið að snúa ákvörðun fyrri stjórnar og veita Dalai Lama, andlegum leiðtoga Tíbeta, vegabréfsáritun. Hann getur því sótt friðarráðstefnu sem haldin verður í landinu á næsta ári. Dalai Lama kemur í heimsókn til Íslands í sumar.

Tugþúsundir á flótta í Pakistan

Mörg þúsund almennir borgara flýðu átakasvæðið í norðvestur Pakistan í morgun þegar útgöngubanni var aflétt um tíma í Swatdal. Þar hafa stjórnarher Pakistans og Talíbanar háð blóðuga baráttu síðustu vikuna. Útgöngubanni var aflétt svo hægt væri að að forða borgurum frá átökum.

Rannsóknum á kvíða fleygir fram

Efni, sem gengur undir heitinu FGF2 og stjórnar vexti heilans, gæti haft töluvert að segja um það hverjir verða kvíðasjúklingar og hverjir ekki. Þetta hafa vísindamenn við Háskólann í Michigan sýnt fram á og birta niðurstöður sínar í ritinu Journal of Neuroscience.

Fyrsta vinnudegi við Hubble lokið

Áhöfn geimskutlunnar Atlantis lauk í gærkvöldi fyrsta vinnudegi sínum við Hubble-sjónaukann og er verkefnið á áætlun. Tveir geimfarar fóru að sjónaukanum og skiptu um eina af myndavélum hans.

Kókaín og LSD eru svifryk Spánverja

Kókaín og LSD eru meðal þeirra lyfja sem finna má töluvert af í andrúmslofti spænsku borganna Madrid og Barcelona en auk þeirra er einnig töluvert af amfetamíni og kannabisefnum á sveimi þar líkt og svifryk í Reykjavík.

Allar norðurlandaþjóðirnar keppa til úrslita í Eurovision

Alexander Rybak sem keppir fyrir Noreg í Eurovision komst áfram í úrslitin sem fara fram á laugardagskvöldið. Alexander hefur vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu, ekki síst hjá okkur íslendingum. Noregur komst áfram ásamt níu öðrum þjóðum. Þar með er ljóst hvaða tuttugu og fimm þjóðir það verða sem keppa í úrslitunum. Allar norðurlandaþjóðirnar fimm keppa í til úrslita því Danmörk fór einnig áfram í kvöld. Í gær fóru Svíþjóð, Finnland og Ísland áfram.

Biður páfa um að fordæma Íran

Benjamin Netanyahu nýr forsætisráðherra Ísraels segist hafa beðið Benedikt páfa um að fordæma hótanir Írans um að tortíma landi sínu. Hann segist hafa beðið páfa á fundi þeirra í Nasaret um að tala gegn forseta Írans, Mahmoud Ahmadinejad, sem hefur kallað eftir eyðileggingu Ísraels.

Styrkleiki maríjúana eykst í Bandaríkjunum

Meðalstyrkleiki maríjúana í Bandaríkjunum, sem hefur aukist jafnt og þétt síðustu þrjá áratugi, hefur í fyrsta sinn náð 10 prósentum. Stjórnvöld þar í landi tilkynntu þetta í dag að sögn CNN.

Heimilislaus Slumdog stjarna - rekinn út með priki

Heimili einnar barnastjörnunnar úr Óskarsverðlaunamyndinni, Viltu vinna milljarð (Slumdog Millionaire), í Bombay hefur verið rifið niður af yfirvöldum. Fréttir herma að lögreglan hafi slegið strákinn, Azharuddin Mohammed Ismail, með bambuspriki áður en þeir skipuðu honum að yfirgefa heimilið. Yfirvöld hafa haldið því fram að hann og aðrir meðlimir fjölskyldu hans hafi sest að á landi í eigu yfirvalda án leyfis.

Hvar er allt fólkið?

Einmana hundur röltir um götur hérðshöfuðborgarinnar Buner í Pakistan. Íbúarnir hafa flúið átökin sem þar geisa milli stjórnarhersins og talibana.

I love New York

Þegar talibanar í Afganistan hefja skothríð þjóta bandarískir hermenn á virkisveggina til þess að skjóta á móti.

AAAAAHHHHHHHHH

Þegar miklir hitar eru í Afríku elska fílar að kæla sig í vatnsbólum. Í Fíladelfíu í Bandaríkjunum er hinsvegar lítið um opin vatnsból.

Ár frá skjálftanum mikla í Kína

Ár er nú liðið frá því níutíuþúsund manns fórust í jarðskjálfta í Sichuan héraði í Kína. Fimm milljónir manna misstu heimili sín.

Enginn er enn öruggur í Írak

Átta manns létu lífið þegar bíl hlöðnum sprengiefni var ekið inn í lögreglurútu í bænum Kirkuk í Írak í gær. Það voru fimm lögreglumenn og þrír óbreyttir borgarar.

Ekkert lát á blóðugum átökum á Srí Lanka

Ekkert lát er á blóðugum átökum stjórnarhers og uppreisnarmanna Tamíltígranna á norðurhluta Srí Lanka. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hvöttu í gær tígranna til að leggja niður vopn og hætta baráttu við stjórnarhermenn svo bjarga megi tugþúsundum almennra borgara sem enn eru innlyksa á bardagasvæðinu.

Aung San Suu Kyi dregin fyrir dóm í Búrma

Stjórnarandstöðuleiðtoginn Aung San Suu Kyi verður dreginn fyrir dóm í Búrma vegna óvæntrar heimsóknar Bandaríkjamanns á rammgirt heimili hennar. Suu Kyi hefur mátt dúsa þar í stofufangelsi svo árum skiptir.

Bresk hjón fundu kú í sundlauginni

Hjónum í bænum Whaddon á Suður-Englandi var brugðið þegar þau heyrðu eitthvað stórt falla ofan í sundlaugina í garði sínum. Enn meira brá þeim þegar þau þustu út í garð og fundu kú svamlandi um í sundlauginni.

Rannsaka dauðsfall í húsbáti

Lögreglan í Kaupmannahöfn rannsakar nú hvort 25 ára gamall Norðmaður, sem fannst látinn um borð í húsbáti við Suðurhöfnina, hafi látist af völdum höfuðhöggs sem hann fékk þegar þungu glasi var kastað í höfuð hans á skemmtistað í borginni á sunnudagsmorgun.

Lögregla tekur YouTube í sína þjónustu

Lögreglan í Cornwall í Bretlandi hefur nú tekið myndskeiðavefinn YouTube í þjónustu sína við að hafa uppi á eftirlýstum glæpamönnum. Birtir lögreglan myndskeið úr öryggismyndavélakerfi neðanjarðarlestanna sem sýnir mann grípa í konu og halda henni.

Sjá næstu 50 fréttir