Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Karlabrjóstahaldarar rjúka út í Japan Japanskt undirfatafyrirtæki hefur sett í sölu línu af brjósthöldurum sérstaklega ætlaða klæðskiptingum. Frá því línan fór í sölu fyrir tveimur vikum er hún orðin ein vinsælasta vara fyrirtæksins. Ein stærsta netverslun Japans, Rakuten, hefur selt fleiri en þrjúhundruð karlabrjóstahaldara, sem kosta um 2800 yen hver, eða um 4200 krónur. 21.11.2008 21:18
Yfirmaður fjármálaeftirlits Kólumbíu segir af sér Yfirmaður fjármálaeftirlitsins í Kólumbíu hefur sagt af sér eftir að upp komst um pýramídasvindl sem hefur kostað fjölmarga Kólumbíumenn mörg hundruð milljónir bandaríkjadala. Forseti landsins hefur beðið þjóðina afsökunar á að ekki hafi verið gripið inn í málið fyrr. 21.11.2008 21:12
Blóðug átök í Mógadisjú Að minnsta kosti fimmtán hafa fallið í blóðugum átökum í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu í dag. Uppreisnarmenn réðust til inngöngu í borgina í dögun og kom þá til átaka þeirra við stjórnarhermenn. 21.11.2008 16:50
Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna hné niður í varnarræðu fyrir Bush Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna var fluttur á sjúkrahús í gærkvöld eftir að hann hné niður þar sem hann var að halda ræðu á fundi í Washington. 21.11.2008 09:18
Hillary verður næsti utanríkisráðherra Bandaríkjanna Hillary Clinton verður næsti utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir heimildarmanni innan Demókrataflokksins. 21.11.2008 08:39
Reyndi að nauðga átta konum á 90 mínútum Fimmtán ára Skoti hefur verið dæmdur til fjögurra ára vistar í ungmennafangelsi eftir að hafa ráðist á og reynt að nauðga átta konum á aðeins níutíu mínútum. 21.11.2008 08:34
Lifði án hjartans í 118 daga Fjórtán ára bandarísk stúlka komst af í 118 daga án líffæris sem margir telja meðal þeirra mikilvægari. Hún hafði ekkert hjarta í allan þennan tíma. 21.11.2008 08:31
Spá þverrandi áhrifum Bandaríkjanna Glæpir, hryðjuverk og átök um auðlindir, jafnvel mat og vatn, er meðal þess sem spáð er í kolsvartri skýrslu leyniþjónusturáðs Bandaríkjanna sem birt var í gær. 21.11.2008 08:27
Fyrsta aftaka á vegum Bandaríkjahers í hálfa öld Fyrsta aftakan á vegum Bandaríkjahers síðan 1961 er á dagskrá 10. desember næstkomandi. Þá verður hermaður líflátinn sem sakfelldur var fyrir nauðgun og tvö morð sem áttu sér stað árið 1986. 21.11.2008 08:25
Danir geta fræðst um náungann í nýjum gagnagrunni Danir munu innan skamms geta flett upp öllu sem þá fýsir að vita um náunga sinn í gagnagrunni sem gengur undir nafninu Geomatic. 21.11.2008 08:20
Bretar hvattir til minni garðyrkjustarfa til að bjarga þröstum Þröstum hefur fækkað um sjötíu prósent í borgum og bæjum í Bretlandi á síðustu þrjátíu árum. Bretar eru hvattir til þess að vera latir í garðinum til að bjarga þessu við. 20.11.2008 12:39
Reiknar raunaldur með aðstoð orma Vísindamenn í Kaliforníu segjast nú geta reiknað út raunverulegan líffræðilegan aldur fólks, óháð aldri þess í árum. 20.11.2008 08:40
Lést eftir árekstur við fljúgandi dádýr Dönsk kona á sextugsaldri beið bana í gær þegar hún lenti í árekstri við fljúgandi dádýr á þjóðvegi á Jótlandi. 20.11.2008 08:31
Grunuð um að myrða indverska nunnu Tveir kaþólskir prestar og ein nunna hafa verið handtekin á Indlandi, grunuð um að hafa myrt nunnu árið 1992. 20.11.2008 08:30
Rán á bensínstöð í Noregi Tvítugur maður sem rændi bensínstóð í norska bænum Moholt í Þrándheimi upp úr miðnætti í nótt fannst örskömmu síðar með hjálp leitarhunda. 20.11.2008 08:24
Norskir heróínfíklar hætta meðferð unnvörpum Norskir heróínfíklar sem komnir eru í meðferð hætta henni nú í stórum stíl og er ástandið orðið þannig að 50 prósent fleiri heróínfíklar detta nú út úr meðferðinni en fyrir fimm árum. 20.11.2008 08:20
Danir draga úr aðstoð við börn með sértæka örðugleika Færri börn með sértæka náms- eða hegðunarörðugleika munu njóta aðstoðar sérstakra stuðningsstofnana á borð við sérskóla í Kaupmannahöfn en verið hefur. 20.11.2008 08:18
Tom Daschle verður ráðherra í ríkisstjórn Obama Fjölmiðlar vestanhafs fullyrða að Tom Daschle fyrrum leiðtogi Demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings verði ráðherra í ríkisstjórn Baracks Obama sem sver embættiseið 21. janúar. 19.11.2008 20:23
Standa ráðþrota gagnvart sómölskum sjóræningjum Þrátt fyrir að ráða yfir fullkomnustu herskipum í heimi virðast Vesturlönd standa ráðþrota gagnvart sómölskum sjóræningjum. Þeir ræna hverju skipinu af öðru og hirða tugmilljónir dollara í lausnargjald 19.11.2008 18:56
Obama vill að Gates verði áfram varnarmálaráðherra Barack Obama, tilvonandi Bandaríkjaforseti, hefur beðið Robert Gates um að verða áfram varnarmálaráðherra eftir að sá fyrrnefndi tekur við stjórnartaumunum í Hvíta húsinu á næsta ári. 19.11.2008 18:06
Ræða við sjóræningja um lausnargjald fyrir risaolíuskip Eigendur risaolíuskipsins Sirius Star, sem sjóræningar hertóku úti fyrir ströndum Sómalíu, eiga nú í viðræðum um greiðslu lausnargjalds fyrir skipið. Frá þessu greindi utanríkisráðherra Sádi-Arabíu eftir hádegið. 19.11.2008 15:52
Zawahri segir Obama hafa snúið baki við íslömskum uppruna sínum Ayman al-Zawahri, næstæðsti maður al-Qaida samtakanna, hvatti múslíma til áframhaldandi árása á hin glæpsamlegu Bandaríki eins og hann orðaði það í ávarpi sem birt var í dag. 19.11.2008 14:14
Cheney og Gonzales ákærðir vegna misþyrminga í fangelsum Kviðdómur í Willacy-sýslu í suðurhluta Texas hefur gefið út ákæru á hendur Dick Cheney, varaforseta landsins, og Alberto Gonzales, fyrrverandi dómsmálaráðherra, vegna misþyrminga sem fangar sæta í einkareknum fangelsum. 19.11.2008 13:44
Námsmenn kveiktu Kaliforníuelda Námsmenn kveiktu eldana sem hafa brennt fleiri hundruð hús til kaldra kola í Kaliforníu undanfarna daga. 19.11.2008 13:00
Fjórum skipum rænt á fimm dögum Fjórum skipum hefur verið rænt undan ströndum Sómalíu síðan á laugardag. Þar á meðal er eitt af stærstu skipum heims. 19.11.2008 12:36
Réttarhöld vegna morðsins á Politkovskaju á bak við luktar dyr Réttarhöld yfir þremur mönnum sem ákærðir eru fyrir aðild að morði á rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskaju fara fram fyrir luktum dyrum. 19.11.2008 11:13
Sómalskir sjóræningjar taka grískt flutningaskip Sómalskir sjóræningjar hertóku í gær grískt flutningaskip á Aden-flóa undan strönd Sómalíu. Gerðist þetta þrátt fyrir herskipaflota sem er á svæðinu sjófarendum til verndar. 19.11.2008 09:49
Downing-stræti umsetið meindýrum Meindýraplága herjar á breska þingið, Downing-stræti og fleiri stjórnarbyggingar í Lundúnum. 19.11.2008 08:37
Glæparannsóknir sem mölur og ryð fá ei grandað Nýjustu kenningar í skordýrafræðum gera fastlega ráð fyrir því að viss tegund mölflugna geti orðið lykillinn að glæparannsóknum í framtíðinni. 19.11.2008 08:31
Löngu úrskurðaður látinn en birtist óvænt Maður frá Chile sem hvarf í hinu blóðuga valdaráni þar árið 1973 og var úrskurðaður látinn árið 1995 birtist í sínum gamla heimabæ í síðustu viku - sprelllifandi. 19.11.2008 08:26
Eldur í norsku elliheimili Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp í elliheimili í Birkenes í Suður-Noregi á fimmta tímanum í morgun. Einn maður er alvarlega slasaður eftir brunann en átta öðrum var bjargað út úr húsinu. 19.11.2008 08:19
Handteknir eftir innbrot og morð Fimm Rúmenar eru nú í haldi lögreglu á Suðaustur-Jótlandi, grunaðir um að hafa myrt 76 ára gamlan mann þegar þeir brutust inn til hans í byrjun október. 19.11.2008 08:16
Sakamenn bíða rafrænna fangavarða Danskir sakamenn bíða nú í löngum röðum eftir að fá rafræn armbönd sem gera það að verkum að þeir geta afplánað hluta dóms síns utan fangelsismúranna en yfirvaldið veit með hjálp armbandsins nákvæmlega hvar viðkomandi er staddur. 19.11.2008 08:13
Eric Holder verður dómsmálaráðherra Obama Fullyrt er að Eric Holder verði dómsmálaráðherra í nýrri ríkisstjórn Barack Obama þegar hann tekur við sem forseti Bandaríkjanna í janúar. 18.11.2008 21:29
Segja stöðu Bills geta komið í veg fyrir að Hillary verði ráðherra Óvíst er hvort Hillary Clinton getið tekið við embætti utanríkisráðherra Bandaríkjanna í stjórn Baracks Obama vegna starfa eiginmanns hennar, Bills Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. 18.11.2008 14:12
Talibanar funda með afgönskum stjórnvöldum Fulltrúar afganskra stjórnvalda munu á næstunni eiga fund með fyrrverandi liðsmönnum talibana í Sádi-Arabíu. Tilgangurinn er að reyna að binda enda á skæruhernað talibana. 18.11.2008 12:42
Fylgist með hræringum eldfjalla með þyrlumódeli Breskur vísindamaður hefur útbúið þyrlumódel til að fylgjast með hræringum eldfjalla. 18.11.2008 08:33
Vonast til að Rasmussen læri af Obama Danir binda miklar vonir við að Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra dragi lærdóm af Barack Obama, nýkjörnum Bandaríkjaforseta, í efnahags-, öryggis- og umhverfismálum. 18.11.2008 08:29
Tekjur danska ríkisins af umferðarsektum snarminnka Tekjur danska ríkisins af umferðarsektum hafa snarminnkað síðan í fyrra og nemur samdrátturinn jafnvirði um 5,6 milljarða íslenskra króna. 18.11.2008 08:26
Olíuskip sem rænt var í gær tekur brátt höfn í Sómalíu Sómalskir sjóræningjar eru nú á leið til hafnar í Eyl í Sómalíu með risaolíuskipið Sirius Star sem þeir réðust um borð í og rændu í gærmorgun. 18.11.2008 08:23
Ætla ekki að bera jólin uppi með kreditkortunum Jólaverslunin í Bandaríkjunum verður í ríkari mæli borin uppi af reiðufé fremur en kreditkortum í ár. 17.11.2008 12:13
Réttarhöld vegna morðsins á Politkovskaju að hefjast Réttarhöld vegna morðsins á rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskaju hefjast í Moskvu í dag þrátt fyrir að morðinginn sjálfur sé enn á flótta. Politkovskaja, sem var harður gagnrýndandi stjórnvalda í Rússlandi og fjallaði um grimmdarverk í stríðinu Tsjetsjeníu, var myrt við heimili sitt í Moskvu fyrir um tveimur árum og eru fjórir menn í haldi vegna morðsins. 17.11.2008 09:59
Einn af æðstu yfirmönnum ETA handtekinn Einn af æðstu mönnum aðskilnaðarsamtakanna ETA á Spáni var handtekinn í nótt í suðurhluta Frakklands. Frá þessu greindi franska innanríkisráðuneytið í morgun. 17.11.2008 09:40
Steranotkun eykst í Danmörku Notkun anabólískra stera til aukningar vöðvamassa hefur aukist í Danmörku ef marka má niðurstöður nýlegrar könnunar þar í landi. 17.11.2008 08:50
Skotið á menn nærri Nørrebro-stöðinni Skotið var á tvo menn sem sátu í bíl nærri brautarstöðinni í Nørrebro-hverfinu í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. 17.11.2008 08:44