Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Pútín enn með völd í utanríkismálum Forseti Rússlands, Dmitry Medvedev hefur látið forsætisráðherra landsins, Vladimir Pútín í hendur völd í utanríkismálum landsins. Er þetta í fyrsta sinn í sögu Rússlands sem forsætisráðherra landsins getur tekið þátt í að móta utanríkisstefnu Rússlands. 17.7.2008 16:32
Skattahækkunum á landbúnarvörum í Argentínu hafnað Öldungardeildaþing Argentínu hefur hafnað skattahækkunum á landbúnaðarvörum sem ætlaðar eru til útflutnings. Mikil framleiðsla er í Argentínu á landbúnaðarvörum og fær gott verð á heimsmörkuðum. Þær tekjur sem ríkið hefði getað fengið við að hækka skattana átti að fara í að byggja upp landið og berjast gegn fátækt í Argentínu. 17.7.2008 14:27
Nelson Mandela níræður á morgun Hinn heimsþekkti Suður-Afríkumaður Nelson Mandela verður níræður á morgun. Mandela er þekktur fyrir að hafa barist gegn aðskilnaðarstefnu hvítra og svartra í Suður-Afríku og eytt 27 árum í fangelsi vegna þeirrar baráttu sinnar. 17.7.2008 12:53
Obama gengur vel að safna í kosningasjóðinn Frambjóðandi Demókrataflokksins til bandarísku forsetakosninganna, Barack Obama, safnaði alls 52 milljónum dala, sem jafngildir um fjórum milljörðum íslenskra króna, í kosningasjóð sinn í júní. Það er vel rúmlega tvöfalt meira en forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, John McCain, safnaði í sinn sjóð en McCain krækti sér „aðeins“ í 22 milljónir dala en hefur þó aldrei safnað eins miklum pening í einum mánuði. 17.7.2008 12:49
NATO í tilvistarkreppu - Ræður ímyndarsérfræðing frá Coke Stjórnarherrar Atlantshafsbandalagsins (NATO) hafa ákveðið að ráðast í markaðsherferð til þess að styrkja ímynd bandalagsins. Bandalagið virðist svo sannarlega í einhvers konar tilvistarkreppu því til að hjálpa sér hefur það fengið til liðs við sig einn aðalímyndarsérfræðing Coca-Cola fyrirtækisins. 17.7.2008 12:02
Páfinn gagnrýnir harkalega neyslumenningu Benedikt XVI páfi gagnrýndi harkalega neysluhyggju og dægurmenningu í ræðu yfir mörgum tugum þúsunda ungra kaþólikka í Sydney í dag. Páfinn varaði einnig við ofnotkun á náttúruauðlindum heimsins og boðaði verndun þeirra fyrir komandi kynslóðir. 17.7.2008 10:48
Hinar áttfættu sennilega ekki fleiri en í meðalári „Þessi spurning er borin upp á hverju einasta ári,“ sagði Þóra Hrafnsdóttir, líffræðingur hjá Náttúrufræðistofu Kópavogs, innt eftir því hvort eitthvað væri hæft í því að óvenjumikið væri um kóngulær á landinu í ár. 17.7.2008 09:56
Leigðu sér togara til að komast á fótboltaleik Tólf manna hópur aðdáenda enska fótboltaliðsins Manchester City greip til þess ráðs að leigja sér togara til að komast á leik liðsins gegn færeyska liðinu Streymur í Þórshöfn í dag. 17.7.2008 07:43
Ronnie Wood kominn í meðferð Ronnie Wood gítarleikari hljómsveitarinnar Rolling Stone er kominn í meðferð gegn áfengissýki. 17.7.2008 07:37
Suður Afríka íhugar að lögleiða vændi fyrir HM í fótbolta Fyrirætlanir stjórnvalda í Suður-Afríku um að lögleiða vændi fyrir heimsmeistarakeppnina í fótbolta þar í landi árið 2010 mæta mikilli mótstöðu innan stjórnarandstöðunnar í landinu sem og ýmissa trúfélaga. 17.7.2008 07:28
Írar æfir út í Sarkozy Frakklandsforseta Írskir stjórnmálamenn eru æfareiðir eftir að Nicolas Sarkozy forseti Frakklands lagði til að írska þjóðin ætti að halda aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um Lissabon sáttmálann. 17.7.2008 07:24
Veikum meðlim Mansonfjölskyldunnar neitað um náðun Susan Atkins sem tilheyrði Mansonfjölskyldunni illræmdu var neitað um náðun í gær þriðjudag. Hin 60 ára Atkins er alvarlega veik og hefur verið greind með heilaæxli. Áður hafði henni verið neitað um reynslulausn 11 sinnum. 16.7.2008 23:15
Kaþólikkar djamma í Sydney Hátt í 200.000 kaþólsk ungmenni hvaðanæva úr heiminum eru þessa dagana samankomin í Sydney Ástralíu á hátíð sem hefur verið kölluð ,,Woodstock" kaþólsku kirkjunnar. 16.7.2008 21:15
Enska biskupakirkjan logar í illdeilum Enska biskupakirkjan logar í illdeilum vegna afstöðunnar til samkynheigðra biskupa og hvort víga eigi konur til prestþjónustu og einir 250 biskupar hafa kosið að sitja heima í mótmælaskyni við þá þróun sem uppi er. 16.7.2008 20:15
Umhverfisvænir orkugjafar orsaka hærra matvælaverð Það er ekki olían sem veldur hærra matvælaverði um allan heim. Það er heldur ekki aukin eftirspurn eftir mat, veik staða dollarans, vont veður, samdráttur í útflutningi eða hlutabréfamarkaðir - heldur er það framleiðsla á svo kölluðum umhverfisvænum orkugjöfum, það er að segja olíu sem framleidd er úr korni og grænmeti. 16.7.2008 19:00
Verðbólgan í Simbabve 2.200.000% Verðbólga í Simbabve er nú komin í 2,200,000% samkvæmt opinberum gögnum þar í landi. Þetta eru fyrstu verðbólgutölur í landinu frá því í febrúar síðastliðnum, en þá stóð hún í 165 þúsund prósentum. 16.7.2008 14:54
Aðalritari SÞ hvetur Súdan til samvinnu Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna (SÞ), hefur hvatt stjórnvöld í Súdan til að vinna með SÞ að öryggi friðargæsluliða og annar sjálfboðaliða í Darfur og ýta þannig undir frið í landinu. 16.7.2008 13:33
Boðar björgun belgísku ríkisstjórnarinnar Albert II, konungur Belgíu heldur nú neyðarfundi með ráðamönnum þjóðarinnar til bjargar stjórnmálaástandinu í landinu eftir afsögn forsætisráðherra landsins, Yves Leterme. 16.7.2008 12:22
Obama leiðir enn í könnunum Samkvæmt nýrri skoðunarkönnun Reuters fréttstofunnar leiðir Barack Obama með sjö prósentustigum í baráttunni gegn John McCain um forsetastól Bandaríkjanna. 16.7.2008 11:40
Ísraelar og Líbanar hefja fangaskipti Skipti á föngum milli Ísraels og Hizbollah skæruliðasamtakanna í Líbanon fara fram í dag. 16.7.2008 10:27
Fjórði hver Dani trúir á drauga Ný könnun leiðir í ljós að rúmlega fjórði hver Dani trúir á drauga og 15% þeirra segjast hafa séð draug einhvern tímann á æfinni. 16.7.2008 09:05
Leiðtogi stjórnarandstöðu Malasíu handtekinn Anwar Ibrahim leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Malasíu var handtekinn fyrir utan heimili sitt í morgun og færður til yfirheyrslu í aðalstöðvar lögreglunnar í höfuðborginni Kuala Lumpur. 16.7.2008 07:54
Obama áréttar að Írakstríðið sé forgangsverkefni Barak Obama hefur áréttað að forgangsverkefni sitt nái hann kjöri sem forseti Bandaríkjanna muni vera að binda enda á Írakstríðið. 16.7.2008 07:46
Háttsettur Bandaríkjamaður situr fund með Írönum Háttsettur bandarískur embættismaður mun verða viðstaddur fund fulltrúa Evrópusambandsins og Íran í Sviss í dag þar sem ræða á svar Írana við tilboði Sameinuðu þjóðanna um að Íranir hætti við kjarnorkuáætlanir sínar. 16.7.2008 07:43
Tölvukerfi San Francisco borgar er lamað Tölvukerfi San Francisco borgar er nú lamað þar sem eini maðurinn sem hefur aðgangorðið að því situr í haldi lögreglunnar og neitar að gefa upp hvert aðgangorðið er. 16.7.2008 07:34
Tvær áttræðar konur dæmdar fyrir morð og svik Tvær konur á áttræðisaldri hafa verið dæmdar í lífstíðarfangelsi í Los Angeles fyrir morð og tryggingarsvik. 16.7.2008 07:26
Notuðu merki Rauða krossins við björgun gísla Myndir frá því er leyniþjónustumenn frá kólombíska hernum björguðu gíslum úr haldi Farc-skæruliða þar í landi nýlega sýna að einn þeirra var með merki Rauða krossins á borða um handlegg sinn. 16.7.2008 07:22
Romney líklegt varaforsetaefni Talið er líklegt að John McCain forestaframbjóðandi Repúblikanaflokksins bjóði Mitt Romney, fyrrverandi fylkisstjóra í Massachusetts, að verða varaforsetaefni sitt. 15.7.2008 22:45
30 fluttir á sjúkrahús í Gautaborg Rúmlega 30 voru fluttir á sjúkrahús í kjölfar slyssins í skemmtigarðinum Liseberg í Gautaborg fyrr í dag í kjölfar þess að leiktæki sem sveiflar fólki til og frá féll til jarðar. 15.7.2008 21:44
Kynning raunveruleikaþáttar fór úr böndunum Þrír starfsmenn raunveruleikaþáttar í Indlandi hafa verið handteknir fyrir að hafa sett fólk í hættu þegar verið var að kynna þáttinn í verslunarmiðstöð í borginni Indore síðastliðinn sunnudag. 15.7.2008 21:30
Hjól efnahagslífsins halda áfram að snúast í Darfur Forseti Súdans hefur verið ákærður fyrir stríðsglæpi og þjóðarmorð í Darfúr. En þrátt fyrir daglegar hörmungar þar halda hjól efnahagslífsins áfram að snúast. 15.7.2008 19:45
Niktótín gegn elliglöpum Lyf með nikótíni geta hugsanlega nýst í baráttunni gegn elliglöpum. Tilraunir lækna við King College í London benda til þess að með notkun lyfja sem innihalda nikótín sé hægt að fresta því um allt að sex mánuði að sjúklingar með elliglöp þurfi að leggjast inn á sjúkrahús. 15.7.2008 19:15
Sarkozy: Írar þurfa að kjósa aftur Írar munu þurfa að hafa aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um endurbætur á stjórnarskrá Evrópusambandsins sagði Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti á fundi með stjórnmálaflokki sínum UMP í dag. Írar höfnuðu Lissabon sáttmálanum í þjóðaratkvæðagreiðslu í seinasta mánuði. 15.7.2008 15:27
Handteknar fyrir keppni í munnmökum á grískri strönd Níu breskar konur eiga yfir höfuð sér kæru eftir þær voru handteknar fyrir að taka þátt í keppni í munnmökun. Sex breskir og sex grískir karlmenn voru einnig handteknir fyrir þátttöku sína í keppninni. 15.7.2008 14:52
Einn hinna grunuðu í Madeleine-málinu fær skaðabætur Robert Murat hefur náð sáttum um skaðabætur og skriflega afsökunarbeiðni við 11 dagblöð og eina sjónvarpsstöð í Bretlandi fyrir meiðyrði. Murat er einn hinna grunuðu í rannsókn portúgölsku lögreglunnar á hvarfi hinnar þriggja ára Madeleine McCann sem hvarf í maí á síðasta ári á Portúgal. 15.7.2008 14:30
Danski Múhameðsteiknarinn fagnar gæsluvarðhaldsúrskurði Danski teiknarinn Kurt Westergaard segist ánægður með að Túnismennirnir tveir, sem grunaðir eru um að hafa skipulagt morðtilræði gagnvart honum, sæti gæsluvarðhandi þar til þeir verði sendir aftur til síns heima. 15.7.2008 13:08
Forseti Írans opinn fyrir viðræðum við Bandaríkin Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, segir að viðræður við Bandaríkin séu mögulegar í náinni framtíð, samkvæmt ríkisfréttastofu Írans. 15.7.2008 11:40
Sér eftir mannréttindabrotum gegn Austur-Tímor Forseti Indónesíu, Susilo Bambang Yudhoyono segist iðrast ranglætisins sem Austur-Tímorbúum var beitt í kosningum fyrir sjálfstæði í Austur-Tímor árið 1999. 15.7.2008 11:30
Fyrsta myndbandið frá Guantanamo gert opinbert Lögfræðingar Kanadamannsins Omar Khadr hafa gert opinbert myndband sem sýnir yfirheyrslu yfir Khadr í Guantanamo-fangelsinu. Þetta er í fyrsta sinn sem myndband úr fangelsinu er gert opinbert. 15.7.2008 10:38
X-Men stjarna verður raunverulegur prófessor Hollywood-stjarnan Patrick Stewart sem leikur prófessor Xavier í X-Men myndunum er nú orðinn raunverulegur prófessor. Hann var gerður að prófessor í leiklist við Huddersfield háskólann við hátíðlega athöfn í gærdag. 15.7.2008 10:36
Mannskæð sjálfsmorðsárás í Írak 23 létust og 68 særðust í bænum Baquba, norður af Bagdad, í dag eftir sjálfsmorðsárás tveggja manna á ráðningaskrifstofu íraska hersins. 15.7.2008 09:51
22 hafa fallið í átökum í Tyrklandi Tyrkneskar hersveitir hafa fellt 22 kúrdíska skæruliða í átökum síðustu fimm daga. 15.7.2008 09:50
Kaupmannahöfn verði ferðaborg fyrir samkynhneigða Ferðamálaráð Kaupmannahafnar, í samvinnu við Tívolí og SAS, hefur í hyggjur að gera borgina að helsta ferðamannastað fyrir samkynhneigða í heiminum. 15.7.2008 07:54
Japanskir sjómenn í umfangsmiklu verkfalli í dag Japanskir sjómenn efna til umfangsmesta verkfalls í sögu samtaka þeirra í dag. 15.7.2008 07:51
Forsætisráðherra Belgíu biðst lausnar frá starfi sínu Yves Leterme forsætisráðherra Belgíu hefur beðist lausnar frá starfi sínum aðeins fjórum mánuðum eftir að hann tók við stöðunni. 15.7.2008 07:40